Morgunblaðið - 29.04.1984, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984
Útvarp Reykjavík
W
SUNNUD4GUR
29. apríl
8.00 Morgunandakt. Séra Fjalarr
Sigurjónsson á Káirafcllsstad
flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Fílharmón-
íusveitin í Vínarborg leikur;
Lorin Maazel stj.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar.
a. Brandenborgarkonscrt nr. 5 í
D-dúr eftir Johann Sebastian
Bach. Kammersveit Jean-
Francois Paillard leikur.
b. „Te deum“ eftir Antonio Vi-
valdi. Agnes Giebel og Marga
Höffgen syngja með kór og
hljómsveit Feneyjaleikhússins;
Vittorio Negri stj.
c. Óbókonsert í c-moll eftir Gio-
vanni Pergolesi. Han de Vries
og Einleikarasveitin í Zagreb
leika.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður. Þáttur Friðriks
Páls Jónssonar.
11.00 Messa í Laugarneskirkju.
Prestur: Ingólfur Guðmunds-
son. Organleikari: Sigríður
Jónsdóttir.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Vikan sem var. Umsjón:
Rafn Jónsson.
14.15 Gagnvegir — Samskipti
ungra og gamalla. Umsjónar-
menn: Agnes M. Siguröardóttir,
Eðvarð Ingólfsson, Níels Árni
Lund og Þór Jakobsson.
15.15 í dægurlandi. Svavar Gests
kynnir tónlist fyrri ára. í þess-
um þætti: Lög eftir Jimmy
McHugh.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veö-
urfregnir.
16.20 Um vísindi og fræði. Fransk-
ar bókmenntir á mijlistríðsár-
unum. Þórhildur Ólafsdóttir
lektor flytur sunnudagserindi.
17.00 Síðdegistónleikar
a. Píanókonsert nr. 4 í g-moll
eftir Sergej Rakhmaninoff.
Zoltán Kocsis og Sinfóníu-
hljómsveitin í San Francisco
leika; Edo de Waart stj.
b. „Concierto como un diverti-
meiito“ fyrir selló og hljómsveit
eftir Joaquin Rodrigo. Julian
Lloyd Webber og Filharmóníu-
sveit Lundúna leika; Jesús
Lópes-Cobos stj.
18.00 Um fiska og fugla, hunda og
ketti og fleiri Islendinga. Stefán
Jónsson talar.
18.15 Tóitleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Bókvit. Umsjón: Jón Ormur
llalldórsson.
19.50 „Og það var vor“, Ijóð eftir
Þuríði Guðmundsdóttur. Elín
Guðjónsdóttir les.
20.00 Utvarp unga fólksins. Stjórn-
andi: Guðrún Birgisdóttir.
21.00 John Speight og verk hans.
Sigurður Einarsson ræðir við
tónskáldið og flutt verða tón-
verk eftir Speight.
21.40 Útvarpssagan „Þúsund og
ein nótt“. Steinunn Jóhannes-
dóttir les valdar sögur úr safn-
inu í þýðingu Steingríms Thor-
steinssonar (2).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Kotra. Stjórnandi: Signý
Pálsdóttir (RÚVAK). (Þátturinn
endurtekinn daginn eftir kl.
11.30.)
23.05 Franska vísnasöngkonan
Andrea syngur á tónleikum í
Norræna húsinu í febrúar 1983;
fyrri hluti. Kynnir: Ýrr Bertels-
dóttir.
23.50 Fréttir. Dagskráriok.
A1hNUQ4GUR
30. aprfl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. Kristján Björnsson flytur
(a.v.d.v).
A virkum degi. — Stefán Jök-
ulsson — Kolbrún Halldórs-
dóttir — Kristín Jónsdóttir.
7.25 Leikfimi. Jónína Bene-
diktsdóttir (a.v.d.v).
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Helgi Þorláks-
son talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hnífaparadansinn“ eftir Jón
frá Pálmholti. Höfundur les (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónieikar. Þulur velur og kynn-
ir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl.
(útdr./. Tónleikar
11.00 „Eg man þá tíð“. Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11.30 Kotra. Endurtekinn þáttur
Signýjar Pálsdóttir frá sunnu-
dagskvöldi (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Nýtt og nýlegt popp.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar; seinni hluti.
Þorsteinn Hannesson les (13).
14.30 Miðdegistónleikar. Pinchas
16.20 Síðdegistónleikar. St.
Martin-in-the-Fields hljómsveit-
in leikur balletttónlist eftir
Wolfgang Amadeus Mozart;
Neville Marriner stjórnar. /
Boris Christoff syngur aríur úr
óperum eftir Verdi og Gluck
með hljómsveitinni Fflharm-
óníu; Jerzy Semkov stj. / Marg-
aret Price syngur aríur úr óper-
um eftir Wolfgang Amadeus
Mozart með Ensku kammer-
sveitinni; James Lockhart stj.
14.45 Popphólfið. — Sigurður
Kristinsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
17.10 Síðdegisvakan. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson og Borgþór
S. Kjærnested.
18.00 Vísindarásin. Þór Jakobs-
son ræðir við Pál llalldórsson
eðlisfræðing um áhrif jarð-
skjálfta á íslandi.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Sigurður
Jónsson talar.
19.40 Um daginn og veginn. Olaf-
ur Byron Guðmundsson talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þor-
steinn J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka
21.10 Nútímatónlist. Þorkell Sig-
urbjörnsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannes-
dóttir les valdar sögur úr safn-
inu í þýðingu Steingríms Thor-
steinssonar (3).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Skyggnst um á skólahlaði.
IJmsjón: Kristín H. Tryggva-
dóttir.
23.00 Kammertónlist. — Guð-
mundur Vilhjálmsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FRAM
TÖLVUS KÓLI
Almenn
Grunnnámskeið
um tölvur
og
tölvunotkun
Námskeið þessi henta öllum þeim er hafa áhuga á að kynnast tölvum og
notkunarmöguleikum þeirra, sem og starfsmönnum fyrirtækja og stofnana
er munu koma til meö að nota tölvur.
Markmið námskeiðanna er að veita almenna grunnþekkingu á tölvum og tölvu-
vinnslu, uppbyggingu tölva, helstu gerðir og notkunarmöguleikar. Farið er m.a.
í eftirfarandi atriði:
★ Saga, þróun og uppbygging tölva.
★ Hugtökín vélbúnaður og hugbúnaður.
★ Stýrikerfi.
★ Tölvulausnir og framkvæmd tölvuvinnslu.
★ Forritun og uppbygging forrita.
★ Forritunarmálin BASIC, COBOL, FORTRAN, Pascal o.fl.
★ Notkun tölva við m.a. ritvinnslu og gagnasöfnun.
★ Framtíðarhorfur í tölvumálum.
Námskeiöin standa yfir í tvær vikur (samtals 18 tímar), kennt er annan hvern
dag og hægt er aö velja á milli tveggja tíma, þ.e. kennsla frá 18.15 til 20.30 eða
20.45 til 23.00.
Námskeiðin eru í formi fyrirlestra og dæma, ásamt raunverulegum verkefnum er
þátttakendur þurfa að leysa sjálfstætt með aðstoð tölvu.
Nemendur skólans eru á öllum aldri, úr öllum starfsstéttum, með mismunandi
menntun að baki og alls staðar að af landinu. Stöðugur straumur nýrra nemenda
sýnir svo ekki verður um villst að FRAMSÝN er tölvuskóli með tilgang og nám
við skólann hentar allra þörfum, enda er skólinn nú í dag sá stærsti sinnar
tegundar á sviði tölvumenntunar.
NÝ NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST
Innritun og nánari upplýsingar fást í síma 39566, frá kl. 13 til 18.
TÖLVUNÁM ER FJÁRFESTING í FRAMTÍD ÞINNI
FRAMSÝN — TÖLVUSKÓLI — TÖLVULEIGA, SÍÐUMÚLA 27,
PÓSTHÓLF 4390, 124 REYKJAVÍK, SÍMI 91-39566.
SKJÁNUM
SUNNUDAGUR
29. aprfl
18.00 Sunnudag.shugvekja
Jóhanna Sigmarsdóttir flytur.
18.10 Stundin okkar
Umsjónarmenn: Ása H. Ragn-
arsdóttir og Þorsteinn Marels-
son. Stjórn upptöku: Tage
Ammcndrup.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku
Umsjónarmaöur Guðmundur
Ingi Kristjánsson.
20.55 Tökum lagið
Fjórði þáttur. Kór Langholts-
kirkju ásamt gestum f Gamla
bíói syngur undir stjórn Jóns
Stefánssonar. Þessi þáttur er
tileinkaður kvæðum um vorið
og sumarið. Umsjón og kynn-
ing: Jón Stefánsson. Stjórn upp-
töku: Tage Ammendrup.
21.30 Gönguleið í Búrfellsgjá
Ekki þarf ávallt að fara langt
inn í óbyggðir til að finna fagra
og sérkennilega staði til göngu-
feröa. Einn slíkur er I grennd
við Hafnarfjörö og nefnist Búr-
fell og Búrfellsgjá. Myndin,
sem Sjónvarpið lét taka sumar-
ið 1982, sýnir gönguleið á þess-
ar slóðir.
Leiðangursstjóri er Baldur Her-
mannsson. Hljóð: Böðvar Guð-
mundsson. Þulur: Guömundut
Ingi Kristjánsson. Kvikmynda-
taka, texti og stjórn: Baldur
Hrafnkell Jónsson.
22.10 Nikulás Nickleby
Sjötti þáttur.
Leikrit í níu þáttum gert eftir
samnefndri sögu Charles Dick-
ens. Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
23.10 Dagskrárlok
MÁNUDAGUR
30. aprfl
19.35 Tommi og Jenni
Bandarísk teiknimynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 F'réttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 fþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
21.15 Ástir á skrifstofunni
(Office Romances). Breskt sjón-
varpsleikrit eftir William Trev-
or. Leikstjóri: Mary McMurray.
Aðalhlutverk: Judy Parfitt, Ray
Brooks og Suzanne Burden. Þar
sem karlar og konur starfa sam-
an fer ekki hjá því að ástin rugli
einhverja í ríminu á vinnustað.
Þýðandi Ragna Ragnars.
22.10 Nótt kólibrífuglanna.
Heimildarmynd frá breska
sjónvarpinu um atburði sem
gerðust i Þýskalandi 30. júní
1934 og nefndir hafa verið
„nótt löngu hnífanna". Þá gerði
Hitler upp sakir við fyrri félaga
sína í stormsveitunum, braut
veldi þeirra á bak aftur og lét
taka foringja þeirra af lífi. Þýð-
andi Gylfi Pálsson.
23.10 Fréttir í dagskrárlok
Nýjasta hefti Dædalus
tileinkað Norðurlöndunum
ÚT ER komið ritið Dædalus, og er
það að þessu sinni tileinkað Norður-
löndum. f ritið skrifa 10 höfundar
sem allir eru sérfróðir um menningu
og staðhætti á Norðurlöndunum.
Meðal þeirra eru Per Olov En-
quist, sem skrifar á ljóðrænan
hátt um Svíþjóð og vandamál
landsins, W.R. Mead segir frá
landslagi á Norðurlöndunum og
hvernig það hefur haft áhrif á
þjóðir þeirra, Patricia McFate
rannsakar eðli norrænnar sam-
vinnu sem hún segir að sé byggð á
frændsemi og trausti, og að lokum
kemst Gylfi Þ. Gíslason að þeirri
niðurstöðu að fjölbreytileikinn —
arfleifð hvers lands — auðgi Norð-
urlöndin.
Ritið, sem er 232 blaðsíður, er
gefið út af Bandarísku lista-’ og
vísindaakademíunni, í samvinnu
við Scandinavia Today sem er rek-
ið í samvinnu Norðurlandanna og
Norrænu ráðherranefndarinnar.
Áætlað er að seinna heftið sem
tileinkað er Norðurlöndum komi
út í lok apríl.