Morgunblaðið - 29.04.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984
5
l'tvarp kl. 14.15:
Gagnvegir
I tvarp annað kvöld kl. 19.40:
Um daginn og veginn
Sjónvarp kl. 18:
Stundin okkar
í síðasta sinn
þar til í haust
Síðasta Stundin okkar að
sinni, verður í dag kl. 18. Næst
verður Stundin okkar á dagskrá
sjónvarpsin.s í haust, þegar vetr-
ardagskráin hefst.
Ása, Alli og Olla verða á
sínum stað við kynningarnar
og Brúðubíllinn kemur og sýn-
ir brúðuleikrit.
Ragnar Snær og apinn
Hnoðri koma í heimsókn og
spjalla við nokkra krakka. Þá
sýna Break-bræður break-
dans og Ása ræðir við þrjár
stúlkur sem eru skiptinemar
hér á landi.
Farið verður í heimsókn í
Reykjadal í Mosfellssveit þar
sem sumarbúðir eru fyrir fötl-
uð born. Smjattpattarnir
verða á dagskránni og að lok-
um verður lagið um það sem
er bannað, eftir Sveinbjörn I.
Baldvinsson, sungið og um
leið verða sýndar myndir sem
tengjast textanum.
talía býður þér upp á marga góða sumardvalarstaði en fáa jafn fullkomna og Rimini, hina
fornu borg við Adríahafið.
Hér gengur þú að öllu vísu; sól og ylvolgum sjó, aðgrunnri
og breiðri strönd, glaðværu mannlífi, frábærum
veitingastöðum og vandaðri gistiaðstöðu.
Þú finnur fljótlega að margt er betra en þú átt að
venjast annars staðar, sumt miklu betra.
Áþreifanlegastur er munurinn á leikaðstöðunni fyrir
börnin, þar sem barnafararstjórinn er í broddi fylkingar.
Góð staðsetning Rimini gagnvart mörgum stórbrotnustu
stöðum Evrópu - Feneyjum, Flórens, Róm - veitir þér að
auki möguleika á skoðunarferðum sem gera Riminiferð að
öðruogmeira en venjulegri sólarferð.
Við minnum þig á að heppni hefur lítið með sólarlandaferðir að gera. Góður áfangastaður
og gott skipulag skiptir þar sköpum. Ef þú hins vegar dregur úr hömlu að panta Riminiferð
sumarsins gætir þú orðið of seinn - og það væri ljóta óheppnin!
Adrtatic Rivicra ol
Emilia - Romagna (llaly )
Gatteo a Mare
San Mauro a Mare
Misano Adriatico
Lidi di Comacchio
Savignano a Mare
BeMaria - Igea Marina
Corvia - Milano MartWma
Ravenna e le Sue Manoe
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRiETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Samskipti ungra og gamalla
„Gagnvegir — samskipti ungra og
gamalla" nefnist þáttur sem verður
á dagskrá útvarpsins í dag kl. 14.15.
Umsjónarmenn eru þau Agnes M.
Sigurðardóttir, Eðvarð Ingólfsson,
Níels Árni Lund og Þór Jakobsson
en þau skipa nefnd sem unnið hefur
að skipulagningu verkefnisins
„Gagnvegir" sem felur í sér að ungl-
ingar taki viðtöl við gamalt fólk.
Umsjónarmennirnir byrja þátt-
inn á að bera saman fátækratíma
fyrri hluta aldarinnar og nútím-
ann, lífshætti þá og nú, og þá
kynslóð sem ólst upp upp úr alda-
mótunum og þá sem nú eru að al-
ast upp.
Verkefninu „Gagnvegum" var
hrundið úr vör í haust og nú hafa
nefndinni borist um 50 verkefni.
Einn nefndarmanna tjáði blm.
Mbl. að nefndin hefði nú í undir-
búningi útgáfu bókar með verk-
efnum unglinganna og yrði það
lokaverkefni nefndarinnar.
í þættinum verður m.a. rætt við
dreng sem unnið hefur eitt verk-
efni. Hann segir frá ýmsu sem
kom honum á óvart við vinnslu
verkefnisins og því sem honum
þótti athyglisverðast. Lesið verður
úr nokkrum verkefnum, sem valin
eru af handahófi og ung stúlka,
Bergþóra Guðmundsdóttir, ræðir
við gamla konu. Farið verður á
Hrafnistu í Reykjavík og gamalt
fólk tekið tali.
Þá verður rætt við nokkra ungl-
inga og þeir spurðir meðal annars
um viðhorf til aldraðra. Umsjón-
armenn þáttarins sögðust að lok-
um vonast til þess að þátturinn
yrði til þess að þeir fjölmörgu,
sem byrjað hafa á verkefninu
„Gagnvegir", ljúki því hið fyrsta
og skili því, því skilafrestur renn-
ur út nú á vordögum.
Um daginn og veginn verður á
dagskrá útvarpsins annað kvöld
kl. 19.40. Ólafur Byron Guð-
mundsson flytur erindi og sagði
hann í spjalli við Mbl. að hann
fjallaði um ýmisleg vandamál í
daglcga lífinu, sígild vandamál
og þau sem væru ofarlega á
baugi núna.
Ólafur hefur áður flutt er-
indi um daginn og veginn og
einnig lesið sögur í útvarpinu.
Ólafur sagðist mundu fara
um 45 ár aftur í tímann og lýsa
■ÉF**
því i stuttu máli hvernig hafi
verið umhorfs hér í upphafi
heimsstyrjaldarinnar síðari. í
framhaldi af þvi mun hann
fjalla um þær breytingar sem
orðið hafa síðan þá, umferð-
armál, jafnréttismál, ýmiskon-
ar misrétti í þjóðfélaginu og
lífsgæðakapphlaupið svo eitt-
hvað sé nefnt.
Ólafur Byron Guðmundsson
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Nokkur orð
um Italiu, Rimini, sumarið,
sólina og pig