Morgunblaðið - 29.04.1984, Síða 43
43
undan til að undirbúa komu ykkar
hinna."
Ég mun ævilangt þakklátur
þessum ljúfa og elskulega dreng,
fyrir þá hlýju og ástúð sem hann
sýndi mér og konu minni og þó
sérstaklega börnum okkar, og
söknum við hans öll sárt. Þó mun
enn dýpri sorgin hjá elskulegri
eiginkonu hans og börnum og
aldraðri móður.
Ég og fjölskylda mín, sendum
þeim okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Óli Þorbergsson
„Halldór Þorbergsson — hver er
það?“ spurði lítil dóttir mín, þegar
hún var eitt sinn að taka utan af
jólakortum — þá nýorðin læs.
„Það er maðurinn, sem spurði,
hvort hann mætti eiga þig, þegar
við komum af sjónum síðast —
hann Dóri meistari." Það var
nafn, sem hún þekkti, og á mínu
heimili hefur hann alltaf gengið
undir því nafni.
Og nú er Dóri meistari horfinn
yfir móðuna miklu til þess fram-
haldslífs, sem hann trúði á, án
efasemda. Ég ætla ekki að skrifa
um lífshlaup hans. Það læt ég öðr-
um eftir. Frá því hann kom fyrst
til mín sem yfirmaður í vél (en ég
var þá með togarann Þorstein Ing-
ólfsson) hef ég verið þess fullviss,
að Dóri meistari væri réttur mað-
ur á réttum stað. Mig langar til að
segja frá einu atviki, sem styrkti
þessa vissu mína og varð til þess,
að ég eignaðist trúarneista, sem
ég hefi reynt að hlúa að eftir bestu
getu síðan.
Þetta gerðist á þorskanótaárun-
Þyrlukaupum
verði ekki
slegið á frest
— segir í samþykktum
Landssambands hjálp-
arsveitar skáta og skips-
hafna 22 skuttogara
Morgunblaðinu bárust fyrir
nokkru samþykktir stjórnar Lands-
sambands hjálparsveita skáta og
skipshafna 22 togara þar sem varað
er við því að þyrlukaupum fyrir
Landhelgisgæzluna verði slegið á
frest.
Stjórn LHS skorar á stjórnvöld
að taka strax ákvörðun um kaup á
nýjum þyrlum og stefna að því að
fá þær til starfa sem allra fyrst.
Þá er það skoðun stjórnar LHS að
gera eigi Landhelgisgæzlunni
kleift að annast stjórn og milli-
göngu alls björgunarflugs með
þyrlum hér á landi.
í ályktun sjómannanna segir, að
björgunarþyrla, rekin af Land-
helgisgæzlunni, sé búin að sanna
svo rækilega gildi sitt að það sé
óverjandi að láta þennan þátt
björgunarmála falla niður. Undir
samþykkt þessa rita skipshafnir á
Baldri EA, Bjarti NK, Eyvindi
Vopna NS, Hoffelli SU, Kamba-
röst SU, Ljósafelli SU, Snæfugli
SU, Sunnutindi SU, Barða NK,
Björgúlfi EA, Gullver NS, Hólma-
nesi SU, Kolbeinsey ÞH, Sigluvik
SI, Sólbergi ÓF, Birtingi NK,
Brettingi NS, Hafnarey SU,
Hólmatindi SU, Krossanesi SU,
Skafta SK og Stakfelli ÞH.
Menntun
og hagsæld
I frétt um ráðstefnu BHM í Mbl.
í gær var í fyrirsögn rangt farið
með umræðuefni ráðstefnunnar,
sem fjallaði um „Menntun og hag-
sæld“. Þá féll niður í fréttinni að
ráðstefnan var sett af Gunnari G.
Schram, formanni BHM.
P^itttþlaþtþ
MetiHuHad á hverjum degi!
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984
um. Við vorum á veiðum út af
Knarraróssvita á Ögra RE-42. Það
var suðaustan frostnepja en þó
þokkalegt veiðiveður. Við vorum
búnir að berjast um á miðunum
frá því í birtingu og fram í rökkur,
en afrakstur veiða frekar lítill. En
þó að vonlítið væri að fá þorsk í
nót í myrkri, þá ákvað ég samt að
reyna eitt kast í rökkrinu. Ég kall-
aði að hafa klárt til að láta nótina
fara, og allir mennirnir fóru á
sinn stað nema Dóri meistari.
Hann lét annan mann taka við
starfi sínu, sem var að slaka
snurpuvírnum út af spilinu, en fór
sjálfur beint upp á bátadekk, þar
sem nótin lá klár til að renna út,
þegar merki væri gefið. Á þeim
stað vissi ég ekki til, að Dóri hefði
neinu hlutverki að gegna. En ann-
að átti þó eftir að koma í ljós.
Hann stóð þarna í kuldanæðingi
og sveiflaði höndunum annað veif-
ið til að halda á sér hita. Ég kall-
aði til hans og spurði, hvort
eitthvað væri að, en hann hristi
bara höfuðið. Ég var æði lengi að
leita að besta lóðningasvæðinu, og
alltaf var Dóri á sama stað. Svo
kom að því að ég setti vélina á
fulla ferð og gaf merki um að láta
nótina fara. Hún var rétt byrjuð
að renna út, þegar ég heyrði ógur-
legt öskur: „Hann er fastur.“ Ég
stoppaði skrúfuna í skyndi og
þóttist vita, að einhver hefði fest
sig í nótinni og væri að dragast út.
Ég flýtti mér út á bátadekk og sá
þá, hvar Dóri meistari lá ofan á
ungum pilti sem var í sinni fyrstu
sjóferð. Hann spennti fótinn á
piltinum við skúffubrúnina og
reyndi af öllum mætti að halda
honum innanborðs. Það tókst, af
því að Matthías Jónsson, mágur
Dóra, sem hafði þann starfa að
fylgjast með nótinni meðan hún
rann út, var nógu snöggur að ná í
hníf til að skera á hanafót þann,
sem var að draga piltinn í hafið.
Þegar allt var afstaðið, skipið
stopp, nótin hætt að renna út og
allir ómeiddir um borð, stóð ég
þarna með skjálfta í öllum limum
og fann, að eitthvað stórkostlegt
hafði gerst: Ungum manni hafði
verið bjargað á yfirnáttúrulegan
hátt frá meiðslum eða dauða — af
manni sem var svo næmur, að
hann skynjaði það ókomna með
þeim hætti, að hann stóð tilbúinn
í varnarstöðu.
Seinna spurði ég Dóra, hvað
hefði dregið hann á þennan stað,
sem hann virtist ekki eiga erindi
á. Hann sagðist ekki geta skýrt
það, en á þessum stað hefði hann
orðið að vera.
En það þurfti svo sem ekki þetta
atvik til að fá traust á Dóra meist-
ara. Prúðmennskan, hjálpsemin
og manngæðin skinu af honum af
löngu færi.
Þannig var Dóri meistari.
Og nú kveð ég þennan félaga
minn og vin og vona, að allt sem
hann trúði á, verði hans nánustu
styrkur í framtíðinni.
Þórður Hermannsson
FIÁRFESTINGARFÉUVG
ÍSLANDS HF
Hlutabréf
í hf. Hampiðjunni
Kauptilboö óskast í 10% hlutabréfa hf. Hamp-
iöjunnar samtals aö nafnveröi kr. 3.771.120.
Kaupverð má greiöa á allt aö 5 árum. Áskilinn er-
réttur til aö hafna öllum tilboðum.
Bent skal á að fjárfesting i hlutabrefum i hf. Hampiöjunni er frádráttarbær frá
skattskyldum tekjum manna aö ákveönu hámarki, sbr. 1.9/1984.
Einnig skal á þaö bent aö frá tekjum rnanna. sem ekki eru tengdar atvinnurekstri
eöa sjálfstæöri starfsemi, má draga fenginn arö aö ákveönu hámarki svo og aö
hlutabrefaeign er eignaskattsfrjáls á sama hátt og innistæöur i bönkum. enda sé
eignin ekki tengd atvinnurekstri eöa sjálfstæöri starfsemi. sbr. ákv. 1.8/1984 um br.
á 1.75/1981 m/síöari breytingum
Samkvæmt tilvitnuöum breytingum á skattl. er því
Ijóst aö fjárfesting í hlutabréfum veitir nú mögu-
leika sem ekki hafa verið fyrir hendi áður.
Fyrirspurnum sé beint og tilboðum skilaö til hag-
fræöings Fjárfestingarfélags íslands hf., Þorsteins
Guönasonar, fyrir kl. 17.00, 10. maí 1984.
fjArfestingarfílac
tSLANDS HF
Skólavörðustíg 11,
Reykjavík.
orn to
■ hú" I allar hljon
ance
®■ ■ * Uar hjíómp'ötuverslanu'
hún ko* '.íp“em tieíuf
, me« ASTAIRE sam ,«r
iU'mÞú ^esem'eikWvar
1 B°'nit0araKePpninn> I dlsoo-
nsmeistaraK PP pneð
i. Á samnefndn P ° vinsaB\u
MRE eru ®‘nÍÍ9hafa á Rás'mm
i sem U Shame
^Æsvoaðsiá't-
.ove Trap °^anCe. A"s
öu 5 irldrandt danslög
,14 í c^AiRE plötunm.
5S'9*rpur
■,r danstríKm og
I
r
11LJÖM FIÖTUDEI ID KAKNAR*FJAR
STEINAR HF
SÍMI 45800 PÓSTKRÖFUSÍMI 11620
X, *1