Morgunblaðið - 12.05.1984, Page 3

Morgunblaðið - 12.05.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984 3 „Eg rétt náði taki á honum“ — sagði Páll Ragnarsson, sem bjarg- aði frænda sínum frá drukknun „Ég var aö sækja strákana á rólu- völíinn og í bakaleiðinni kom ég viö hjá systur minni sem býr viö læk- inn,“ sagöi Matthildur Pálsdóttir, móöir piltsins sem bjargaði frænda sínum frá drukknun. „Þeir voru úti aö leika sér í garðinum en hann liggur að lækn- um og er girtur af. Við systurnar vorum að spjalla saman og vissum við þá ekki fyrr til en litli strákur- inn minn kom hlaupandi inn og sótti hjálp.“ „Þeir eru ekki vanir því að fá að leika sér við lækinn heldur eru þeir á dagheimili eða þá að þeir leika sér þar sem þeir mega,“ bætti Matthildur við. „Ég vissi ekki af því að Svanur hefði dottið í lækinn því ég þurfti aðeins að fara frá og svo þegar ég kom til baka var hann í læknum," sagði Páll Ragnarsson, er bjargaði frænda sínum. „Ég rétt gat náð taki á höndunum á honum og haldið í hann á meðan Róbert hljóp inn að sækja mömmu," sagði Páll. Matthildur sagði að þegar hún hefði komið að þeim hefði Páll kropið við lækinn og haldið í Svan, og voru einungis hendur og höfuð hans upp úr vatninu. „Ég var fljót að koma mér til þeirra og kippa Svan upp úr læknum og var hann þá alveg stjarfur af hræðslu," sagði Matthildur að lokum. Atvinnuleysið fer minnkandi: 600 færri voru án at- vinnu í apríl en marz í aprílmánuöi síöastliðnum voru skráðir 25.000 atvinnuleysisdagar á landinu öllu, sem svarar til þess, að tæplega 1.200 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan mánuð- inn. Jafngildir þaö um einum hundraðasta af mannafla sam- kvæmt áætlun Þjóöhagsstofnunar. í marzmánuði síðastliönum voru skráöir 38.500 atvinnuleysisdagar og hefur þeim því fækkað um 13.500 frá fyrra mánuöi og at- vinnulausum á skrá fækkaö um 600 manns á landinu. Þegar á heildina er litið var atvinnuástandið í april mjög svipað og í sama mánuði í fyrra, en þá voru skráðir 21.500 at- vinnuleysisdagar, sem svarar til 0,9% af mannafla. Af einstökum stöðum er atvinnuástandið lak- ast á Akureyri, en þar voru í mánuðinum skráðir 4.500 at- vinnuleysisdagar eða sem næst jafnmargir og í marz. í Reykja- vík fækkaði hins vegar skráðum atvinnuleysisdögum um tæpa 4.000 daga frá fyrra mánuði, en voru þó um 2.000 fleiri en í sama mánuði i fyrra. Á höfuðborgarsvæðinu voru atvinnulausir í mánuðinum 461 (724), þar af konur 205. Á Vest- urlandi voru 72 (116) atvinnu- lausir, þar af 39 konur. Á Vest- fjörðum voru 8 (18) atvinnulaus- ir, engin kona. Á Norðurlandi vestra voru 121 (170) atvinnu- lausir, þar af 57 konur. Á Norð- urlandi eystra voru 282 (435) at- vinnulausir, þar af konur 127. Á Austurlandi voru 87 (124) at- vinnulausir, engin kona. Á Suð- urlandi voru 97 (111) atvinnu- lausir, þar af konur 53. í Vest- mannaeyjum var enginn at- vinnulaus en á Reykjanesi 48 (77), þar af 35 konur. Svigatölur eru frá marz 1984. Flugleiðir: Fyrsta Detroit- flugið í gær FLUGLEIÐIR flugu 1 fyrsta sinn áætlunarflug til Detroit í Bandaríkj- unum í gær, en flug þangaö er liöur í sumaráætlun félagsins. Flugstjóri í þessari fyrstu ferð var Jóhannes Markússon og farþegar voru bókaö- ir 209 meö boðsgestum. Farið var frá Keflavíkurflug- velli klukkan 17.00 f gær og áætlað að vera í Detroit klukkan 23.15 að íslenzkum tíma eða 18,15 að stað- artíma. Eins og áður sagði er Detroit-flugið liður í sumaráætlun Flugleiða og verður flogið þangað einu sinni í viku, á föstudögum. Fer vélin beint þaðan til Luxem- borgar og kemur síðan við í Kefla- vík á leið sinni vestur um haf að nýju. Humarverð hækk- ar um 23,5 % YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávar- útvegsins hefur ákveðið lágmarks- verð á ferskum og slitnum humri á komandi humarvertíð. Nemur hækkunin 23,5% að meöaltali og er byggö á hækkun dollars og endurmati launakostnaöar frá síö- ustu vertíð. Samkvæmt ákvörðun yfir- nefndar verður verð á fyrsta flokks humarhölum, óbrotnum og 25 grömm að þyngd eða meira, 215 krónur fyrir hvert kíló, annars flokks humarhölum, óbrotnum og 10 til 25 grömm að þyngd, 105 krónur hvert kíló og þriðja flokks humarhölum, 6 til 10 grömm að þyngd, 45 krónur hvert kíló. Verðflokkun byggist á gæða- flokkun Framleiðslueftirlits sjávarafurða og miðast verðið við, að seljandi áfhendi humar- inn á flutningstæki við hlið veiðiskips. Verðið var ákveðið af oddamanni yfirnefndarinnar, Bolla Þór Bollasyni, og full- trúum seljenda, Ágúst Einars- syni og Ingólfi Stefánssyni, gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda, Árna Benediktssonar og Eyjólfs Isfeld Eyjólfssonar. Á myndinni eru dreng- irnir ásamt móöur sinni og frænku, Matthildi Pálsdóttur en hún kippti drengn- um upp úr læknum. Taliö frá vinstri: Rób- ert sem hljóp inn í hús- ið og sótti hjálp, Matthildur sem heldur á Svani og Páll sem hélt honum uppi. ERTUB0INN AÐSKOÐA FtAHŒWA? AUÐV/m, EN HEFUR Þ0 KEYRT] HANN? framlijóladrifnm FIAT gœðingur “•“OCfiQTQ ee eétta KCV7n i n valið hann er — aíburða sparneytinn — rúmgóður með „risaskott" — frábœr í akstri — á mjög góðu verði Sex ára ryóvarnarábyrgð KYNNINGARVERÐ - OG KJÖR Á þessari fyrstu sendingu bjóðum við sérstakt kynningarverð og reynum að haía hátíðaryíirbragð á kjömnum. Útborun í REGATA getur verið allt oían í 100.000,- krónur og verðið er hreint ótrúlegt íyrir rúmgóðan, íramhjóladriíinn glœsivagn. kr. 329.000,- (gengi 2/5 '84) Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.