Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
7
Cherokee 1980
til sölu
Jeppi í sérflokki — einn meö öllu.
Bílasala Eggerts,
sími 68-77-66.
Margar geröir og stæröir.
Opið laugardag 10—16 sunnudag 14—16
Húsgagnaveralun, Raykjavfkurvagi 68, Hafnarfir6i, a. 54343.
Neyzluskattar
heppilegri en
tekjuskattar
Gunnar G. Schram hafdi
framsögu á Alþingi fyrir til-
lögu sinni og fleiri þing-
manna SjáÍfsUeöisflokks
um afnám tekjuskatts í
áföngum. Hann taldi betur
vid hæfi að skattleggja
eyðslu en vinnuframlag
fólks. enda hafi reynzt erf-
itt „að leggja hann á með
jafnræði, sem væri grund-
vallarregla skattaiaga“.
Sjálfstæðisflokkurinn hafi
því sett sér það mark að
afnema tekjuskatt af al-
mennum launatckjum í
landinu í áfongum.
Tillaga sú, sem hér var
verið að mæla fyrir, felur f
sér að sérstök nefnd verði
sett á laggir til að gera til-
lögur um „á hvern hátt
megi spara í rekstri ríkis-
ins og Hkisstofnana með
tilliti til þess að tekjuskatt-
urinn verði afnuminn f
áföngum af almennum
launatekjum. Skuli tillögur
nefndarinnar lagðar fyrir
Alþingi í upphafi næsta
þings.“
Gunnar kvað mikilvægi
tekjuskatts í ríkissjóðstekj-
um hafa farið minnkandi,
enda kæmi yfir 80% ríkis-
sjóðstekna af óbeinum
sköttum (neyzlusköttum).
Tekjuskattar einstaklinga
nema 1790 m.kr. en óbein-
ir skattar 14.500 m.kr.
Tekjuskattur er því innan
við 10% af tekjum ríkis-
sjóðs.
Afnám tekjuskatts í
áfongum mætti fram-
kvæma í áföngum á nokkr-
um árum, svo aðveldara
verði fyrir ríkissjóð að
mæta honum, annarsvegar
með sparnaði og hagræð-
ingu en hinsvegar hugsan-
lega með nýrri tekjuleið.
Hvert söluskattsstig gefur
td. ríkissjóði 300 m.kr.
Alþýðuflokkurinn flytur
og tillögu af svipuðum
toga. Uklegt er því að þing-
vilji standi til þessarar
þróunar.
Tekjur hjóna
jafnaðar fyrir
skattlagningu
Gunnar minnti á annað
Tekjuskatturinn — launþegaskattur
„Tekjuskatturinn er ranglátasti skatturinn," sagöi Gunnar G.
Schram er hann mælti fyrir tillögu sjálfstæöismanna á Alþingi
um afnám tekjuskatts í áföngum, „hann er fyrst og fremst
skattur á launþega, ekki sízt starfsmenn ríkis og bæjarfélaga".
Ennfremur: „Ýmsir aðrir hópar í þjóðfélaginu borga minni
tekjuskatt en þeim ber og raunar sumir alls engan ...“ Undir
þetta skal tekið. Það er hyggilegra frá þjóðhagslegu sjónar-
miði að skattleggja eyðslu fólks en vinnuframlag. Þar að auki
virðast margir geta „faliö“ tekjur sínar. Hinsvegar felur enginn
eyðslu sína, skattalega séö.
stefnuskrármál Sjálfstæð-
isfiokks; að tekjur hjóna
verði jafnaðar fýrir skatt-
lagningu. Hann tók dæmi
af tvennum hjónum sem
hefðu haft samtals 550.000
króna tekjur 1983. Gf fyrir-
vinnan væri ein yrði tekju-
skattur að viðbættu sjúkra-
tryggingargjaldi kr.
110.000.— Ef á hinn bóg-
inn annað hjóna hefði
300.000 króiia árstekjur,
hitt 250.000.— yrðu sömu
skattar heimilisins kr.
70.000.—. Hér skakkar
hvorki meira né minna en
kr. 40.000.— í tekjuskatti
með sjúkratrvggingargjaldi
tveggja heimila með sömu
tckjur. Hér er því að ferð
óþolandi óréttlæti, raunar
refsing fyrir vinnuframlag,
sem er víðs fjarri skatta
legu jafnræði. Hér þarf
skjótiega úr að bæta.
Þingsíða
Morgun-
blaðsins
Guðmundur Kinarsson,
alþingismaður, sagði f
þingræðu sl. fimmtudag:
„Núna í vetur gerðist sá
hörmulcgi atburður að
i Morgunblaðið eiginlega
felldi niður einu nothæfu
þingfréttasíðuna, sem var á
dagblaðamarkaðinum
hérna, og þaö er mikill at-
burður, þannig að við erum
kannski verr stödd heldur
en nokkru sinni fyrr.“ Hér
á þingmaðurinn við al-
menna upplýsingamiðhin
ura störf Alþingis, en hann
var að mæla fyrir hugmynd
um daglegt útvarp frá Al-
þingi.
Morgunhlaðið hefur
ekki fellt niður þingsíðu
sína. Hinsvegar valda
tæknileg atriði því að þing-
fréttum, sem og öðrum
fréttum og þjónustuþáttum
við lesendur, hefur verið
þrengri stakkur skorinn
um sinn. 1‘etla stendur þó
til bóta. I»egar ný prentvél
Morgunblaðsins kemst í
gagniö, sem verður, mun
það bæta þjónustu við les-
endur sína á þessu frétta-
sviði sem öðrum.
Morgunblaðið tekur að
sjálfsögðu undir orð fyrr-
nefnds þingmanns Banda-
lags jafnaðarmanna um
þingfréttirnar, enda hefur
blaðið kappkostað að
rækta þessa fréttamiðlun
eins vel og frekast er kost-
ur — og allir helztu þættir í
störfum Alþingis undan-
farnar vikur hafa komizt til
I skila, en betur má ef duga
skal. Kn á hitt er einng rétt
að benda að oft fer óþarf-
lega mikill tími þingmanna
í léttvægt karp, á meðan
mikilvæg mál bíöa af-
greiöslu vikum og jafnvel
mánuðum saman. I>ing-
fréttir myndu batna viö
það ef alþingismenn litu í
eigin barm og tækju mál-
efnin fostum tökum, utan
þess raunverulega þing-
tíma, sem blasir oft við
með broslegum hætti — og
er hér átt við þær tvær vik-
ur í lok þingtímans, þegar
Ijúka á ficstum mikilvæg-
um málum í einu „drullu-
hasti“ fyrir þinglausnir. Kn
þá kemur einnig í Ijós að
einhvcrjir smákóngar, sem
hefðu átt að vera uppi á
lénstímanum, eyða dýr-
mætum tíma í aö koma í
veg fyrir afgreiðslu mála,
sem þeim eru ekki að
skapi og hindra þannig að
vilji þingsins, og jafnvel
þjóðarinnar, nái fram að
ganga.
Kn Morgunblaöið mun
að sjálfsögöu taka kurteis-
leg orð Guðmundar Kin-
arssonar til athugunar og
flýta fyrir því að virðu-
legasta stofnun þjóðarinn-
ar fái þá meðferð hér í
blaöinu sem hún að sjálf-
sögðu á skilið, öðrum
! stofnunum freniur.