Morgunblaðið - 12.05.1984, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
11
„Hefði gjarnan
viljað getað sýnt
stærri form“
Sagði Jóhanna Kristín Yngvadótt-
ir sem nú sýnir í Listmunahúsinu
í Listmunahúsinu stendur nú yfir sýning Jóhönnu Kristínar Yngvadótt-
ur á málverkum sem máluð eru á þessu og síðasta ári.
Kristín nam mjndlist við Myndlista- og handíðaskólann og útskrifaðist
úr grafíkdeild vorið 1976. Síðan hélt hún til Hollands þar sem hún lærði
myndlist í fjögur ár. Fyrsta árið var hún í Haag en næstu þrjú árin lærði
hún við Ríkisakademíuna í Amsterdam. Þaðan útskrifaðist hún árið 1980
og kom þá til íslands.
Kristín hefur áður haldið tvær einkasýningar, sú fyrri var í Nýlistasafn-
inu vorið 1983 og hin síðari var á Landspítalanum í desember á síðasta ári.
„Ég útskrifaðist úr grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskólans en
það var vegna hálf annarlegra
ástæðna sem það gerðist. Ég
hafði alltaf haft mestan áhuga á
málverkinu en það gleymdist
einn veturinn að ráða kennara
við málaradeildina þannig að ég
þurfti að taka námskeið úr öðr-
um deildum og þau tók ég aðal-
lega úr grafíkdeildinni," sagði
Kristín í upphafi samtals við
blm. Mbl.
„Á þessum árum lá straumur-
inn aðallega í myndmótunar-
deildina sem síðan var breytt yf-
ir í nýlistadeild. Síðan þegar ég
kom til Hollands voru flestir
frekar hissa á því að ég skyldi
velja mér málverkið sem við-
fangsefni því það þótti á þessum
tíma lítt spennandi og í dauða-
teygjunum. Samt hélt ég ótrauð
áfram náminu og ég er alls ekki á
þeirri skoðun að málverkið sé í
dauðakippnum. Mér sýnist frek-
ar að það sé talsverður áhugi
fyrir því að læra listmálun. Samt
er ég ekki frá því að sú lista-
stefna sem er I hvað mestum
uppgangi núna sé „abstract“,“
sagði Kristín.
Kennari Kristínar í Amster-
dam var prófessor Jakob Kuýper,
en hann valdi hún vegna þess hve
frjálslegur hann var. „Það var
jafnvel þannig að við sáumst
ekki í heilan mánuð og hann vissi
varla að hverju ég var að vinna,
þannig að ég hafði ákaflega
frjálsar hendur í náminu í Amst-
erdam."
Kristín sagði að hún hefði
fengið styrk í eitt ár frá hol-
lenska ríkinu og boð um að vera
eitt ár f viðbót en það hefði hún
ekki getað þegið því hún treysti
sér ekki til að vera lengur og
hafa einungis námslán til að
halda uppi fjölskyldu.
„Ég kom því heim en fyrstu tvö
árin hafði ég ekki neina vinnu-
Jóhanna Kristín stendur við eitt verka sinna á sýningunni sem mun
standa til 20. maí í Listmunahúsinu.
aðstöðu og því voru afköstin á
þeim tíma í lágmarki. Við hjónin
keyptum síðan hús sem við
byggðum vinnustofu við.“
Kristín sagði að þetta væri
þriðja einkasýning hennar og
hefðu myndirnar á henni aldrei
verið sýndar áður.
„Ég hefði gjarnan viljað geta
sýnt stærra form, en salurinn
hér ber stór verk ekki vel, og það
má eiginlega segja aö ég hafi
málað fyrir hann. Ég er hrifnari
af stórum formum en litlum, og
einnig mála ég mikið í dökkum
litum, en þeir höfða meira til mín
en ljósir," sagði Kristín.
Aðspurð um hvaðan hún fengi
hugmyndirnar að verkum sínum
sagði hún: „Ég mála yfirleitt
fólk, finnst það skemmtilegasta
„mótífið". Annars held ég að
listamenn geti ekki talað mikið
um verk sín eða útskýrt þau. Mín
verk koma eiginlega að sjálfu sér
eins og verið sé að vinna í gegn-
um mig,“ sagði Jóhanna Kristín
að lokum.
Kjarvalsstaðir:
Sögu- og
skipulags-
sýning
f DAG, laugardag 12. maí kl. 14.00,
opnar Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sögu- og skipulagssýningu í Kjarvals
sal á Kjarvalsstöðum í Keykjavík.
Markmiðið með sýningunni er að gefa
borgarbúum og öðrum landsmönnum
tækifæri að kynna sér ýmsa þætti úr
skipulagi Reykjavíkur, bæði úr nútíð
og fortíð.
Sýningin er í 6 deildum: 1. Sögu-
leg þróun byggðar — skipulagssaga.
2. Félagsmál og frítímaiðja. 3. íbúar
og athafnalíf. 4. Umferðarmál. 5.
Nýleg skipulagsverkefni. 6. Fram-
tíðarsýn.
Sýningin er aðallega í myndrænu
formi, þ.e. ljósmyndir, loftmyndir,
kort, skipulagsuppdrættir og skýr-
ingarmyndir. Sem dæmi um ný
skipulagsverkefni sem kynnt eru á
sýningunni má nefna skipulag íbúð-
arbyggðar við Grafarvog, skipulag
nýs miðbæjar í Kringlumýri og
skipulagstillögu að Aðalstræti og
nágrenni.
Sunnudaginn 13. maí kl. 16.00,
flytur Páll Líndal, lögmaður, erindi
á Kjarvalsstöðum sem hann nefnir:
„Aldaskrá, spjall um þróun skipu-
lagsmála í Reykjavík undanfarin
100 ár.“
Fimmtudaginn 17. maí kl. 20.30,
fjallar Gestur Ólafsson, forstöðu-
maður Skipulagsstofu höfuðborg-
arsvæðisins um framtíðarbyggð á
höfuðborgars væði nu.
Lokadag sýningarinnar, 20. maí
kl. 15.00 til 16.30, kynna skipulags-
höfundar ný skipulagsverkefni á
vegum Reykjavíkurborgar. Eftir þá
kynningu verður farið með strætis-
vagni frá Kjarvalsstöðum og fyrir-
huguð byggingarsvæði skoðuð, und-
ir leiðsögn skipulagshöfunda.
HHy^rad3flufy
eramorgun
interflora
-Falleg afskorin blóm
í miklu úrvali.
léiiBWC
Gróðurhúsinu
við Sigtún: Símar 36770-86340