Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 17
MOHÖUNBLAÐTO, LA'UG’ARDAGtJR 12. MAÍ 1984
Yl
Gunnar Björnsson, fríkirkjuprestur:
Kyrr staður
Við túnfótinn á Skálholtsstad,
umþaðbil stundarfjórðungsgang í
vestur frá kirkju og skóla, una
nokkur smáhýsi á grastó undir
hæðardragi í skjóli fyrir vindum,
mót sól og suðri. I»að eru Skál-
holtsbúðir.
Þessi hús eru einsog lítil íbúð;
stofa, tvö svefnherbergi, eldhús
og bað. Kokkhúsin eru búin al-
gengum búsáhöldum, heitt og
kalt vatn í krönum, eldavélar,
kæliskápar. 1 svefnherbergjun-
um eru sængur og svæflar. Hús-
in standa til boða kirkjufólki til
lengri eða skemmri dvalar, við
vægu verði.
í kring skartar íslensk náttúra
tilbrigðum sínum: hólar, dældir,
lækir, mýrar, keldur, móar, börð,
bringur, flóar, fífusund, klettar,
steinar, fell og fjöil. Og gegnum
kyrrð þessa staðar má heyra
fuglahjörð æfa sumarkonsert-
ana guðslangan vordaginn, bæði
tjald og mýrisnípu, álft og önd,
jaðrakan og stelk, að ógleymdum
vorfuglinum heiðló, sem hleypur
samsíða göngumanninum og
flautar veikt, þó vonglatt á
hljóðfæri sitt.
Væri ég beðinn að nefna eitt
atriði, sem helst af öllu verkar
sem hvíld og hressing i þessum
stað, mundi ég segja kyrrðin. I
örtröð og ærustu okkar daglega
lífs, með síma og dyrabjöllu, þar
sem orkestur dagsins lætur
stundum helsti hátt í eyrum,
undur er þá gott að koma í kyrr-
an stað, þar sem tími er til að
hugsa um sama hlutinn lengi í
senn: lita í bók, horfa upp í him-
ininn, fága kvæði, hugleiða líf og
dauða, mála mynd ellegar jafn-
vel reyna að ná skalanum í
hljóðfæraleik og söng.
Presturinn messar í Skál-
holtsdómkirkju hvern helgan
dag; manna gagnorðastur.
Við þurfum að halda áfram að
efia Skálholt. Dálítið lóð á vog-
arskálarnar er dvöl til hress-
ingar á líkama og sál í þessum
kyrra stað.
Áöur hét fyrirtæki okkar Lindholms Trælasthandel, og vorum viö Græn-
landsdeild Fredericia Trælasthandel a/s.
Vegna stööugt vaxandi eftirspurnar. m.a. frá íslandi, höfum viö ákveöiö
aö endurskipuleggja starfsemi okkar á Noröur-Atlantshafssvæöinu og
höfum við tekið upp nafnið Superbyg.
Til þess aö geta veitt gömlum og nýjum viöskiptavinum ennþá betri
þjónustu, munum viö koma reglulega til íslands.
Ég verð á íslandi frá 7. til 17. maí og mun
ég ásamt
Hringið eða biöjiö fyrir skilaboö og viö höfum samband.
Nýbyggingar, viöbyggingar, endurbyggingar, einangrun
og fleira. Viö gerum yöur skuldbindingalaust tilboö út frá
teikningum yöar og efnislista.
Hringiö til umboösmanns okkar eftir nánari upplýsing-
um.
Muniö: Flutningar í hverri viku frá Danmörku til islands.
Höfum mikla reynslu af vöruflutningum á Atlantshafinu.
Sjáum um allt sem snertir flutninginn til islands á hag-
stæðasta veröi.
Þér getiö einnig haft beint samband viö okkur.
Kærar kveöiur, Ole Nielsen.
HÚSBYGG JENDUR YERIÐ VELKOMNIR.
Asgeiri B. Guölaugssyni,
Lágmúla 7, sími 33380,
pósthólf 1, 121 Rvík.
veita allar upplýsingar um timburvör-
ur og byggingarefni.
Superbvg
Lindhoun
Pantanir og lager:
Voerbjergvej 40
Postbox 142
9400 Norresundby
Simi 08-19 04 00
Telex 69855 Itwood.
GOODpYEAR
GEFUR 0'RÉTTA GRIPIÐ
Heíuróu gert þér grein íyrir því að milli bíls og
vegar eru aöeins íjórir lóíastórir íletir. Aktu því
aöeins á vióurkenndum hjólbóröum,
Sértu aö hugsa um nýja
sumarhjólbaróa á íólks-
bílinn œttiröu aó haía
samband vió nœsta
umboðsmann okkar.
HUGSID UM
EIGIÐ ÖRYGGI
OG ANNARRA
FULLKOMIN HJÓLBARÐAPJÓNUSTA
TÖLVUSTÝRD JAFNVÆGISSTILLING
>
HF
Laugavegi 170-172 Simar 21240-28080
PU ERT ORUGGUR Á
GOODfYEAR
PRISMA