Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 20
MCHtGUHBL/AÐIÐ,LAUOARDACUR»12. MAÍ1984,
2<£
Áttrœðisafmœlið 18. mars sl. Mínar innileyustu fxikkir
til allra sem að því stóðu að yera mér dayinn sem
ányæjuleyastan oy allra er ylöddu miy með heimsókn-
um, yjöfum oy heillaskeytum.
Guð blessi ykkur öll. Þess biður.
Gudný Guðjónsdóttir,
Álfheimum 17.
Kúajörð
Hjón sem eru aö missa leigujörö sína óska eftir kúa-
jörö til leigu. Til greina kemur aö kaupa.
Lysthafendur leggi inn nafn og síma á augl.deild Mbl.
fyrir 30. maí merkt: „J — 84“.
Félagsstarf aldraðra í Reykjavík
Sumarferðir
j sumar eru áætlaöar stuttar feröir innanlands á veg-
um Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Upplýs-
ingar eru í sumardagskrám félagsstarfs aldraöra.
Dagskrárnar fást í Furugeröi 1, Lönguhlíö 3, Norður-
brún 1, Tjarnargötu 11 og Vonarstræti 4. Athugiö
vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu félags-
starfs aldraöra Noröurbrún 1, símar 86960 og 32018.
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar.
Kramhúsið
dans og leiksmiðja
Við opnum 14. maí
Þá hefst 15 daga námskeiö í leikfimi — danti og fimleikum.
Byrjenda og framhaldsflokkar.
Kennarar: Hafdís Árnadóttir og Bryndís Bragadóttir kenna
musikleikfimi og dans.
Sðren Petersen kennir fimleika og dans.
Fimleikafólk
Sören hefur verið þjálfari syningaflokks í Danmörku, hjá honum
íærió þiö aö tengja saman fimleika og dans.
Innritun daglega frá kl. 13.00.
Simi 15103.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
NÁMSKEIÐ
í VÉLRITUN
Byrjendanámskeið 24 kennslustundir:
Námskeiðið stendur yfir í fjórar vikur. Kennt veróur þrisvar í vlku: Mánud . þriójud.,
miövikud , tvær kennslustundir i senn.
Nemendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af heimavinnu.
A námskeióinu eru nemendur þjálfaóir i blindskrift og kennd undirstöðuatriói i
vélritunartækni Nemendur á byrjendanámskeiöi geta valiö um tima milli kl. 13—15
eóa frá klukkan 17—19.
Kennsla hefst mánudaginn 21. mai.
Framhaldsnámskeið 24 kennslustundir.
Námskeióiö stendur yfir í fjórar vikur. Kennt veróur þrisvar í viku, á mánudögum,
þriójudögum og miövikudögum, tvær kennslustundir í enn.
Nemendur þurfa afcki að hafa ISayggjur af heimavinnu.
A namskeiöinu veröur lögó áhersla á uppsetningu bréfa samkvæmt íslenskum staöli
og kennd skjalavarsla Nemendur á framhaldsnámskeióinu geta valið um tima milli
kl. 17—19 eóa milli kl. 19—21.
Kennsla hefst mánudaginn 21. mai. Þátttökugjald á námskeiöunum er kr. 1.200,-
Verzlunarmannaféiag Reykjavikur, Starfsmannafélag Reykjavikurborgar og
Starfsmenntunarsjóóur starfsmannafélags rikisstofnana styrkja félagsmenn sína til
þátttöku á námskeiöunum og veröa þátttakendur aó sækja beiöni þar aó lutandi til
vióeigandi félags.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Verslunarskóla Islands, Grundarstig 24, Reykjavik,
simi 13550.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
i —»■»•»»»'
’»»»»»»*'»»»i
‘»»»»^»»•►»»1
•>»»»»»»»»•»».
^rmrv'Þ'i
Viðrædurnar viö Deng voru &n efa mikilvegasUr í augum Kínverja.
Heimsókn Reagans til Kína markar
ekki þáttaskil en andrúmsloftið milli
þjóðanna er sennilega hlýrra eftir
AÐ LOKINNI ferð Ronald Reagans Bandarfkjaforseta til Kína, ber að
vísu öllum saman um að heimsóknin hafi verið velheppnuð í sjálfu sér.
En menn greinir nokkuð á um það, hversu mikil áhrif hún skilji eftir og
hvort hún marki þau þáttaskil í samskiptum þjóðanna tvcggja sem Reag-
an varð tíðrætt um í förinni.
Forsetanum, frú hans og
fylgdarliði var hvarvetna
sýndur hinn mesti sómi og heiður
og kínverska fréttastofan orðaði
það svo „að heimsókn hans væri
merkilegt skref fram á við“. Und-
irritaðir voru ýmsir misjafnlega
merkilegir samningar og síðasta
ræða Reagans flaut óritskoðuð í
gegn. Samt finnst sumum, sem
heimsóknin hafi ekki rist djúpt og
muni ekki leiða til neinnar um-
talsverðrar breytingar. Hins veg-
ar hafi hún verið Reagan ágætt
innlegg í forsetakosningabarátt-
una síðar á þessu ári og er það þá
út af fyrir sig væntanlega
ánægjuefni fyrir Ronald Reagan.
Sumir fréttaskýrendur eru raun-
ar ekki að hika við að halda því
fram og gefa ( skyn, að heimsókn-
ir Ronald Reagans geti aldrei orð-
ið öðruvísi en maðurinn sjálfur —
yfirborðskenndur en snjall fjöl-
miðlamaður fram í fingurgóma.
Kínverjar tóku á móti Reagan
með hinum mesta fögnuði, eins og
áður er getið. Móttökuathöfnin
var viðhafnarmeiri en hefur farið
fram á þeim bæ síðan í menning-
arbyltingunni. Fimm samningar
milli ríkjanna voru undirritaðir
og Den Xiaoping, mestur valda-
maður í Kína, lét í ljós virðingu
sína og ánægju með því að bjóða
Nancy Reagan að koma aftur í
heimsókn méð barnabörn forseta-
hjónanna. Það sem þótti þó af
Kínverja hálfu bera vott um hvað
jákvæðastan hug var að Hu Yao-
bang, aðalritari kínverska komm-
únistaflokksins, þáði umsvifa-
laust boð um aö koma í heimsókn
til Bandaríkjanna.
En þrátt fyrir að allt gengi vel
og snurðulítið fyrir sig segja sér-
fræðingar um málefni Kína, að
Kínverjar hafi í mörgu látið í ljós
að þeir kærðu sig ekki um að
Bandaríkjamenn hefðu of háar
hugmyndir um algera endurlífgun
vináttu þjóðanna. Deng var áfram
um að ekki yrði svo geyst farið, að
ýmsir grannar Kínverja, yrðu tor-
tryggnir og fyndist sem Kínverjar
og Bandaríkjamenn hefðu endan-
lega og í eitt skipti fyrir öll jafnað
ágreiningsmál. I fréttatil-
kynningu sem kínverskir embætt-
ismenn gáfu út til vestrænna
fréttamanna fyrir heimsóknina
var minnt á margþættan ágrein-
ing milli Bandaríkjanna og Kína,
allt frá Taiwan-málinu til banda-
rískra eldflauga í Evrópu, og
minnzt var á stefnu Reagans í
Mið-Ameríku sem ekki samræmd-
ist hugmyndum Kínverja. Þótti
sumum sem Kínverjar tækju
óþarflega mikið upp í sig.
Skömmu áður en Reagan kom til
Peking komust þær sögusagnir á
kreik, að forseti Norður-Kóreu,
Kim II Sung, væri væntanlegur í
heimsókn þangað, þá fyrstu í
átján ár. Þann 31. marz flutti sov-
ézka fréttastofan Tass langt og
mikið viðtal við Kim II Sung, þar
sem norður-kóreski leiðtoginn
réðst harkalega á japanska út-
þenslustefnu og lofaði hinn nýja
forystumann Sovétmanna, Chern-
enko. Það vakti athygli í þessu
viðtali að Kim II Sung hallaði í
engu á Kínverja í þessu viðtali.
Diplómatar í Kína eru þeirrar
skoðunar, að ótti valdamanna þar
í landi við að Kim gengi endan-
lega Sovétmönnum á hönd hafi
ekki sízt átt þátt í því að kín-
verskir ráðamenn ákváðu að
halda fjarlægðinni hæfilegri þeg-
ar Reagan kæmi til Kína.
Það hefur svo varla verið tilvilj-
un að sama dag og Bandaríkja-
forseti kom til Kína tilkynntu
stjórnvöld að aðstoðarforsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, Ivan
Arkhipov, myndi koma í opinbera
heimsókn síðari hluta maímánað-
ar. Ekki hefur jafn háttsettur
sovézkur ráðamaður sótt Kína
heim í tuttugu ár. í sama frétta-
tíma og sagt var frá þessu var
einnig notað tækifærið til að
gagnrýna Bandaríkin fyrir að
hafa herstöðvar í Suður-Kóreu og
ýmislegt fleira í þeim dúr.
Ákefð Kínverja í að gera ekki of
mikið veður út af heimsókn Reag-
ans kann svo að hafa valdið því að
klipptir voru kaflar úr ræðum
hans, eins og frá hefur verið sagt
í fréttum. Þetta var raunar brot á
samkomulagi sem hafði verið gert
fyrir heimsóknina og síðasta ræða
Reagans fékk raunar að berast
óritskoðuð til Kínverja þar sem
hann fjallaði um málefni sem rík-
in eru ósammála um.
Furðulítið hefur verið sagt frá
því sem þeir Reagan og Deng
ræddu þegar þeir hittust. Þó er
vitað að þeir fjölluðu um Kóreu-
mál, stöðu mála í þróunarlöndun-
um og fleiri viðkvæm mál. En
ekki hefur verið sent út neitt bita-
stætt um hvað hvor þeirra sagði
nákvæmlega og hvort einhver von
er til að þjóðirnar tvær geti nálg-
azt hvor aðra eða jafnað ágrein-
ingsmál. Þessar viðræður voru að
sjálfsögðu þýðingarmestar í
heimsókninni, þó svo að ljós-
myndarar og fréttamenn legðu
mest upp úr því að mynda for-
setahjónin klappandi börnum og
björnum eða að skoða fornminjar,
horfa á skólabörn dansa og slíkt.
Sjálfur virðist Reagan einnig hafa
talið það skipta ekki minna máli
en viðræðurnar við Deng og hann
talaði um það í flestum ræðum
sínum, að þó svo að skoðanir væru
skiptar og afstaða ólík í ýmsu ætti
það ekki að koma í veg fyrir að
vinátta væri með þjóðunum. Það
er áreiðanlega satt og rétt. Kín-
verjar eru áreiðanlega jákvæðari í
garð Bandaríkjanna en fyrir
heimsóknina. En hún skiptir eng-
um sköpum, markar engin þátta-
skil. Þrátt fyrir margorðar yfir-
lýsingar Reagans þar um munu
Kínverjar áreiðanlega telja rétt-
ast að halda áfram nokkurri óeig-
inlegri fjarlægð við Bandaríkin.
(Heimildir Time — Newgweek — F«r
Eastern Eeonomie Reriew.)