Morgunblaðið - 12.05.1984, Síða 23

Morgunblaðið - 12.05.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAl 1984 23 Kanada og Danmörk deila um eyðieyju (■rænlandi, 10. maí. Frá Henrik Lund, frétUr. Mbl. hverjum eyjan tilheyrir, en bæði Kanadamenn og Danir hafa gert til- kall til skikans. Ekki er deilt um eyjunna vegna landkosta, þetta er 3 ferkílómetra stór eyðieyja, 300 kílómetra fyrir KANADAMENN eru í þann mund að hreppa Hanseyju, deilueyju eina litla sem er í Kennedy-sundi milli norðvesturhluta Grænlands og Ell- emereslands, sem er kanadískt landsvæði. Enginn veit í rauninni Konur fá enn ekki að hempuklæðast Helsinki, 11. nui. Frá Harry Granberg frétUriUra Mbl. ENN um sinn vcrða Finnar að sætta sig við að eiga ekki kvenpresta, því tillaga um að heimila konum prestskap náði ekki tilskyldu fylgi á kirkjuþinginu. Margar konur íhuga nú að yfirgefa kirkjuna af þessum sökum. Tillaga um að leyfa konum að hempuklæðast var samþykkt með 73 atkvæðum gegn 32, en til þess að ná fram að ganga verður tillaga af þessu tagi að hljóta þrjá fjórðu atkvæða. Mál þetta hefur lengi verið deilumál í Finnlandi, og þar sem sömu fulltrúar sitja kirkjuþing að ári er fyrst búist við að breytingar geti orðið að veruleika á kirkju- þingi 1986. John Vikström erkibiskup er talsmaður þess að konum verði leyft að klæðast hempu, og einnig Gustaf Björkstrand kirkjumála- ráðherra, sem er guðfræðingur að mennt. Finnska þingið getur ekki tekið fram fyrir hendur kirkju- þingsins og breytt kirkjulögum án samþykkis þess. Leynifélagið veldur Craxi erfiðleikum Rómaborg, 11 maí. AP. BETTINO Craxi, forsætisráðherra ftalíu, á nú í erfiðleikum með að halda stjórn sinni saman, en vaxandi gagnrýni hefur beinst að henni eftir að formaður þingnefndar sem rann- sakað hefur starfsemi leynifélagsins P-2 gaf í skyn að einn af ráðherrum stjórnarinnar hefði verið í félags- skapnum. Umræddur ráðherra er fjár- málaráðherrann Pietro Longo úr Sósíaldemókrataflokknum, einn af þremur ráðherrum þess flokks. Ráðherramir þrir hafa allir boðist til að segja af sér vegna ummæla þingnefndarformannsins, sem Craxi hefur þegar lýst vanþóknun sinni á. Formaðurinn heitir Tina Anselmi og er úr röðum Kristilega demókrataflokksins, einum af stjórnarflokkunum í samsteypu Craxis. 20 þingmenn Kristilega demókrataflokksins hafa skorað á forsætisráðherrann að útskýra hvers vegna hann hafi gagnrýnt Árásir bannaðar á farþegaflugvélar Montrcal, 11. maí. AP. AUKAFUNDUR Alþjóðanugmála stofnunarinnar(ICAO) samþykkti breytingar á stofnskrá sinni sem bannar notkun skotvopna gegn far- þegaflugvélum. Ákvörðun þessi er tekin í framhaldi af því að Rússar skutu niður suður-kóreska farþega- þotu. Þegar breytingarnar höfðu ver- ið samþykktar tóku rússnesku fulltrúarnir þátt í fögnuði full- trúa, sem fögnuðu samþykktinni með lófataki. Óljóst er hins vegar hvort Rússar staðfesti hin nýju ákvæði, en til þess þau öðlist gildi þurfa tveir þriðju aðildarríkjanna, sem eru 152, að staðfesta þau. f nýja kaflanum segir að bannað sé að nota vopn gegn þarþega- flugvélum, að hvorki megi stefna norðan nyrstu byggðu ból í Græn- landi. Tilkallsaðilar hrukku upp varðandi tilvist skersins er kanad- ískur sagnfræðingur að nafni Hen Harper ritaði í dagblað í Thule, að Kanadamenn gætu gert tilkall til eyjarinnar þar sem olíuleit þeirra á þessum slóðum frá árinu 1980 hefði haft í för með sér búsetu nokkurra manna þar. Því gætu Kanadamenn gert tilkall, en Dan- ir ekki þar sem þeir hefðu aldrei nýtt sér eyjuna. Danir gerðu auk þess enga athugasemd við olíuleit Kanadamanna. Áður bar eyjuna á góma árið 1971 er rætt var hvað mest um réttindi þjóða á landgrunni. Var hún þá minniháttar deilumál milli Kanada og Danmerkur. Um írafár var þó ekki að ræða þar sem eyjan er ekki stærri eða mikilvægari en raun er. Nú eru Danir hins vegar að vakna til vitundar um að Kan- adamenn séu í þann mund að stinga eyjunni undan þeim. Grænlandsráðherra þeirra, Tom Höyem, sagði í blaðaviðtali nýlega að Danir ættu nú að skjóta Kan- adamönnum ref fyrir rass með því að reisa veðurathugunarstöð á eyjunni og gera í leiðinni tilkall á móti. W'A.JUJ"" 0 **£*£&ú> Walter Mondale, sem keppir að tilnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunum, á kosningaferðalagi í Ffladelfíu. Hann kom við í ítalska verzlunarhverfinu og þar sem hann gæddi sér á konfekti. rannsókn nefndarinnar svo mjög. Longo hefur neitað því að hafa nokkru sinni verið félagi í P-2, en Anselmi sagði að félagaskrá sem fundist hefði væri „í öllum aðal- atriðum marktæk". I dag virtist Craxi reyna að leiða hjá sér gagn- rýnina og lýsti báðum fyrrnefndu flokkunum sem nauðsynlegum í stjórnarsamstarfinu, veittist hins vegar að kommúnistaflokknum, næststærsta flokki landsins, fyrir að „stunda niðurrifsstarfsemi". Aðstoðarforsætisráðherra landsins, kristilegi demókratinn Arnaldo Forlani, gekk í lið með Craxi í dag er hann lýsti yfir að viðbrögð við skýrslu þingnefndar- innar væru „ýkt og óþörf". Stjórnarandstaðan mun ætla að nýta sér málið út í ystu æsar, hver svo sem útkoman verður. Sérfræð- ingar telja að stjórnin ætti að geta staðið af sér veðrið. Stjórn Craxis er 44. ríkisstjórn landsins síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk. VIDEOVÆDDUR TTTTTFf il;Kf n ■ ■ Þetta eru tilboð ^ helgarínnar frá Daihatsu l? 1 Opió laugardag frá kl. 10 -17 Daihatsu Charmant LTX sjálfsk. Árg. ’83 Litur Vínrauður Daihatsu Charmant 1300 LC ’82 Silfurblár Daihatsu Charmant 1400 '79 Vínrauður Daihatsu Charmant 1400 '79 Ljósbrúnn Km. 12 þús. 10 þús. 43 þús. 43 þús. Verð 355 þús. 265 þús. 150 þús. 140 þús. lífi farþeganna í hættu eða öryggi flugvélarinnar, þótt hún rekist af flugleið og herflugvélar fljúgi í veg fyrir hana. Akvæði af þessu tagi voru óskrifuð lög er sovézkar orrustu- þotur skutu kóresku farþegaþot- una niður 1. september sl. með þeim afleiðingum að allir sem um borð voru, 269 manns, týndu lífi. Flugvélin var á leið til Seoul frá New York, villtist af leið og flaug inn yfir sovézk yfirráðasvæði. Rússar halda því fram að flugvél- in hafi verið í njósnaflugi. Fiug- málastofnunin getur ekki refsað fyrir verknað af þessu tagi. Hið mesta sem hún getur er að tak- marka atkvæðarétt viðkomandi ríkis. Daihatsu Charade XTE 4ra dyra Daihatsu Charade XTE 4ra dyra Daihatsu Charade XTE 4ra dyra Daihatsu Charade XTE 4ra dyra ’81 '81 ’80 '79 Rauður Blár Met. Blár Met. Silfurgrár 24 þús. 39 þús. 28 þús. 64 þús. 195 þús. 190 þús.. 160 þús. 140 þús. Daihatsu Charade Runabout m/sóllúgu '83 Silfurgrár 5 þús. 260 þús. Daihatsu Runabout sjálfskiptur ’82 Silfurblár 24 þús. 230 þús. / Daihatsu Runabout sóll. og Turbo ’82 Svartur 36 þús. 280 þús. Daihatsu Charade Runabout ’81 Blár Met. 30 þús. 190 þús. Daihatsu Runabout Charade ’80 Kremgulur 42 þús. 160 þús. VW Golf 3ja dyra ’82 Blár 24 þús. 260 þús. Mazda 323 3ja dyra ’80 Brúnn 49 þús. 170 þús. Mazda 323 3ja dyra ’81 Rauöbrúnn 50 þús. 220 þús. Honda Accord EX sjálfskipt, útvarp, segulband, vökvastýri, rafmagnsrúð- ur, sóllúga ’82 Silfurblár 31 þús. 395 þús. Dodge Omni framhjólad., sjálfsk. ’80 Blár 59 þús. 200 þús. Honda Civiv 3ja dyra, sjálfsk. '78 Rauður 60 þús. 125 þús. Daihatsu Taft Diesel 4 WD ’83 Hvítur 3 þús. 480 þús. Toyota Carina DX Liftback sjálfsk. ’82 Hvítur 30 þús. 290 þús. Höfum góða kaupendur að Daihatsu árg. 1980 og 1981 Daihatsuumboðið, Ármúla 23,85870 - 81733.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.