Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984 Höfundarlög: Endurgjald fyr- ir upptöku efnis Gjald á auð hljód- og myndbönd EFTIR aðra umræðu og afgreiðslu í efri deild hljóðar frumvarpsgrein í frumvarpi að höfundarlögum, er varðar endurgjald til höfunda verka, vegna upptöku á hljóð- eða mynd- bönd, svo: „Höfundar verka, sem útvarpað hefur verið eða gefin hafa verið út á hljóðriti eða myndriti, eiga rétt Ranglega sagt frá ferðum ferðafélaganna í ÞÆTTINUM „Hvað er að gerast um helgina" í gær var ranglega sagt frá ferðum Ferðafélags fslands og ferðafélagsins Útivistar um helg- ina. Það rétta er að Útivist fer á sunnudag í gönguferð á hábungu Esjunnar kl. 10.30 og kl. 13.00 verð- ur fjölskylduferð, ekið í Kollafjörð og komið viö á Álfsnesi. Ferðafélag íslands fer hins vegar í sína fyrstu fuglaskoðunarferð á sunnudag og hefst hún kl. 10.30. Farið verður um Miðnes , Hafnarberg og víðar um Suðurnes, undir leiðsögn fjögurra fararstjóra. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. á sérstöku endurgjaldi vegna upp- töku verka þeirra á hljóð- eða myndbönd til einkanota með heimild 11. mgr. þessarar greinar. Greiða skal gjald af tækjum til upptöku verka á hljóð- og mynd- bönd til einkanota, svo og af auð- um hljóð- og myndböndum og öðr- um böndum sem telja má ætluð til slíkra nota. Gjaldið skal greitt af tækjum og böndum sem flutt eru til landsins eða framleidd eru hér á landi og hvílir skylda til að svara gjaldi þessu á innflytjend- um og framleiðendum. Gjald af tækjum nemi 4% af innflutnings- verði eða framleiðsluverði ef um innlenda framleiðslu er að ræða. Gjald af auðum hljóðböndum nemi kr. 10,00,- en kr. 30,00,- ef um auð myndbönd er að ræða. Menntamálaráðherra setur nánari reglur um gjald þetta, þ.á m. um verðtryggingu gjaldsins. Sameiginleg innheimtumiðstöð samtaka rétthafa, þar með talinna listflytjenda og framleiðenda, inn- heimtir höfundarréttargjald sam- kvæmt næstu málsgr. hér á undan og ráðstafar því. Innheimtumið- stöðinni skulu settar samþykktir í samvinnu við menntamálaráðu- neytið og þær vera háðar staðfest- ingu þess. í samþykktum þessum skal meðal annars ákveða skipt- ingu tekna með aðildarfélögum og þar má einnig mæla fyrir um framlög til styrktar útgáfu hljóð- og myndrita." Borö fyrir skermtölvur Borö fyrir tölvuvinnu Vinna viö skermtölvur og innsláttarborö krefst sérstakrar vinnuaöstööu. Komiö í húsgagnadeild okkar, Hallarmúla 2, og skoöiö B8 tölvuboröin. Skrifborð á sérstöku afsláttarverði í nokkra daga. SYSTEM \^KRIFSTOFUm^2^ji Hallarmúla 2 - Sími 83211 Frá riðstefnunni, frá vinstri: Wilhelm V. Steindórsson, formaöur SÍH, Eggert Ásgeirsson, fundarstjóri, Sigtryggur Maríus- son, Hitaveitu Suðurnesja. Ráðstefna um hönnun og rekstur hitaveitna: Átak verði gert í að auka hagkvæmni hitaveitna SAMBAND íslenskra hitaveitna gekkst nýlega fyrir ráðstefnu um hönnun og rekstur hitaveitna. Tilgangur ráðstefnunnar var fyrst og fremst sá að gefa þeim sem vinna við hitaveitur, verktökum og ráðgjöfum við hönnun og gerð hita- veitumannvirkja, tækifæri til að hittast og bera saman bækur sínar í þeim tilgangi að finna með sameig- inlegu átaki leiðir til að tryggja framfarir byggðar á fenginni reynslu. Eggert Ásgeirsson skrifstofu- stjóri SÍH var inntur eftir tíðindum af ráðstefnunni. — Segja má að ráðstefnan hafi fallið í góðan jarðveg hjá þeim sem að hitaveitumálum vinna þar sem um 100 manns tóku þátt í henni. Vinnan á ráðstefnunni gekk vel og lögðu allir sig fram um að gera árangur hennar sem mestan og móta tillögur sem leitt gætu til framfara. Samband islenskra hitaveitna hefur gert rannsóknir á tæringu og útfellingu í íslenskum hitaveitum. Kom í ljós að hönnun hitaveitna er í ýmsu ábótavant og er ráðstefna þessi framhald þeirrar viðleitni að stuðla að endurbótum. Nú eru fyrir- Leiðrétting í MYNDATEXTA með frétt af blaðamannafundi, sem forsvars- menn Grænmetisverslunar landbún- aðarins héldu í fyrradag og birt var í blaðinu í gær, var farið rangt með föðurnafn eins stjórnarmanna sem sat fundinn. Gisli Andrésson frá Hálsi var sagður Gunnarsson og er Gísli hér með beðinn velvirðingar á þessum mistökum. hugaðar enn frekari rannsóknir á því sviði og SÍH hefur fengið styrk frá Norræna iðnþróunarsjóðnum til að gangast fyrir rannsókn á tær- ingarvanda af völdum súrefnis i hitaveituvatni í tengslum við rann- sóknaraðila á öðrum Norðurlöndum. Nemur styrkurinn til þessa verkefn- is um 600 þús. kr. og skal verkinu lokið á næsta einu og hálfu ári. Framsögumenn fundarins lögðu áherslu á að átak verði gert í þá átt að auka hagkvæmni hitaveitna með hagkvæmari framkvæmdum, sparn- aði og bættum sölumælingum. í umræðum var því fagnað að starfsmenn hitaveitna og hönnuðir þeirra væru leiddir saman og talið að það geti leitt til góðs. Mikið var rætt um mikilvægi þess að nýta sem allra best hita vatnsins, en á síðustu árum hefur komið fram ný og betri tækni sem miðar að því. Einnig voru ræddar aðferðir við bætta nýtingu á raforku en raforkukostnaður er vax- andi í sambandi við dælingu á heitu vatni enda sífellt sótt lengra eftir Elísabet Waage vatninu niður í jörðina. I sambandi við raforkukostnað má geta þess að hitaveitur þurfa að greiða mikla skatta og tolla bæði af raforku- kostnaði sínum og einnig af efni til veitna sem hækkar verð þeirra og gerir það stundum ósamkeppnisfært við niðurgreitt rafmagn til húshit- unar. Þannig getur jafnvel svo farið að álögur séu hamlandi á ýmsar hagkvæmnisbreytingar hjá hita- veitum. Ekki verður getið um fleiri atriði sem komu fram í umræðum en þess getið að farið var fram á það við Samband íslenskra hitaveitna að það gengist fyrir frekari fundum af þessu tagi, héldi námskeið fyrir starfsmenn hitaveitna, gengist fyrir samræmdum reglum og ynni að bættum hönnunarleiðum og stöðlun vissra þátta og auknum kröfum til orkumæla. Segja má að ráðstefna þessi hafi tekist mjög vel og er merkur áfangi í sögu SlH sem stofnað var fyrir liðlega þrem árum. Burtfararprófs- tónleikar TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík heldur tónleika í sal skólans að Skipholti 33 sunnudaginn 13. maí kl. 17.00. Elísabet Waage, mezzósópran, nemandi Sieglinde K. Björnsson, syngur lög eftir m.a J.S. Bach, Emil Thoroddsen og Dvofak og aríur eftir Mozart og Verdi. Þetta eru burtfararprófstónleikar henn- ar. Jónas Ingimundarson leikur með á píanó. Hjólreiðadagurinn í dag: 4.000 börn í söfnuninni Takmarkið að safna 1 milljón króna UM 4.000 börn á aldrinum 10—12 ára munu koma hjólandi í miðbæ Reykjavíkur um kl. 14 í dag. Hér er um að ræða skipulagða söfnun- arherferð á vegum kvennadeildar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og hafa börnin safnað áheitum, sem þau munu síðan afhenda. Að sögn Helgu Jóhannsdóttur, formanns kvennadeildarinnar, hefur undirbúningur gengið vel og er þátttakan í ár ívið meiri en í fyrra þrátt fyrir þá staðreynd, að nú eru aðeins 10, 11 og 12 ára börn með í söfnuninni. I fyrra voru engin aldursmörk. Tak- markið sagði Helga vera að safna 1 milljón króna. Hjólreiðadagurinn hefst um hádegið, þar sem börnin safnast saman við eftirtalda skóla: Mela- skóla, Hvassaleitisskóla, Hlíða- skóla, Langholtsskóla, Réttar- holtsskóla, Laugarnesskóla, Breiðholtsskóla, Árbæjarskóla og Selja- og Fellaskóla. Einnig munu börn safnast saman við Kópavogs- og Kársnesskóla, svo og við skóla í Garðabæ og Hafn- arfirði. Hjólreiðaskoðun verður framkvæmd við alla skólana í Reykjavík áður en börnin leggja af stað niður í miðborgina um kl. 13.30. Til þess að forðast umferð- artruflanir eins og þær, sem urðu i fyrra af völdum reiðhjóla- fjöldans, er öllum börnunum bent á að geyma hjól sín í Kola- portinu á meðan skemmtunin á Lækjartorgi fer fram. Hún hefst um kl. 14.15 og verður þar ýmis- legt til skemmtunar. Má t.d. nefna, að lúðrasveitir Kópavogs og Laugarnesskóla leika, Olla og Alli koma fram, Icebreakers- hópurinn úr Bústöðum sýnir dans og Hrím-tríóið leikur. Þá verður krökkunum boðið upp á kók og kex frá Frón og Holta- kexi. Kynnir á skemmtuninni verður Páll Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.