Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 27
27 MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAl 1984 Uttekt á framleiðsluráðslögum: Aukið verzlunar- frjálsræði - aðhald með vinnsluaðilum Kjartan Jóhannsson og fleiri þing- menn Alþýðuflokks hafa flutt tillögu til þingsályktunar um fimm manna þingkjörna nefnd til að endurskoða lög nr. 95/1981 um Framleiðsluráð landbúnaðarins „með það að markmiði að auka frjálsræði 1 við- skiptum, tryggja viðskiptalegt að- hald að vinnsluaðilum og að sem stærstur hluti hins endanlega sölu- verðs afurðanna skili sér til bænda“. Nefndin skili Alþingi áliti sínu fyrir 1. janúar 1985. Kostnaður við störf nefndarinnar veriði greiddur úr rík- issióði. I greinargerð segir að vinnslu- og stjórnkerfi landbúnaðarins sæti vaxandi gagnrýni. Verð til neytenda sé hátt en skilaverð til bænda lágt. Verðmyndun sumrar búvöru fáist ekki upplýst. Vitnað er til greinargerðar Þorvalds Búa- sonar um duldan hagnað slátur- húsa. Vinnslustöðvar byggi stór- hýsi án sýnilegs fjárskorts þrátt fyrir þrengingar á öðrum sviðum þjóðarbúskapar. Skálatúnsheimilið heldur sölusýningu í DAG, laugardag 12. maí, verður haldin sölusýning á listvefnaði og handunnum vegg- og gólfteppum og mottum. Allt eru þetta verk unnin af heimilisfólki Skálatúns, undir leiðsögn þeirra Þóru Svanþórs- dóttur, handavinnukennara og Margrétar Finnbogadóttur vefn- aðarkennara. Sýningin stendur frá kl. 14.00—17.00 á laugardeginum í vinnu- og vefstofu Skálatúns I Hamrahlíð, þar á staðnum. Jafn- framt heldur íþróttafélagið Gáski kökusölu til fjáröflunar fyrir starfsemi félagsins, á sama stað. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í frásögn af and- láti séra Garðars Svavarssonar I Mbl. í gær, að hann var sagður 78 ára. Hið rétta er að hann var 77 ára er hann lést, hefði orðið 78 ára síðar á árinu. Þá var einnig ranghermt, að hann hefði átt fjögur börn með fyrri konu sinni. Þau voru þrjú. Morgun- blaðið biður hlutaðeigandi velvirð- ingar á mistökunum. Ljósm. Mbl. Friðþjófur. Frá blaðamannafundi sem Samhygð á íslandi efndi til í Reykjavík á fimmtu- daginn. Samhygð safnar undirskriftum til að mótmæla atvinnuleysi: Takmarkið að fá þrjár milljónir nafna í Evrópu SAMHYGÐ safnar nú undirskrift- um til að mótmæla og vekja athygli á atvinnuleysi í Evrópu. Á blaðamannafundi sem Sam- hygð á Islandi boðaði til nú fyrir skömmu kom fram að takmarkið er að safna þremur milljónum undirskrifta í þeim Evrópulöndum þar sem Samhygð er starfandi. Að undirskriftasöfnuninni lokinni verða viðkomandi ríkisstjórnum afhentir listarnir og að lokum á að afhenda sameiginlega undir- skriftalista allra þátttökulanda til Sameinuðu þjóðanna. Með söfnun þessara undirskrifta er ætlunin að vekja athygli á því böli sem at- vinnuleysi í mörgum Evrópulönd- um er og krefjast þess að lausn verði fengin á þeim málum og þau látin njóta forgöngu annarra verkefna hjá ríkisstjórnum við- komandi landa. Samtölin um Rithöfundasambandið: Leiðrétting ÞAU mistök uröu við frágang viðtals blm. Morgunblaðsins í gær við Sigurð Pálsson, nýkjörinn formann Rithöf- undasambands íslands, og Njörð P. Njarðvík, fráfarandi formann, að þar slæddust inn meinlegar villur. 1 viðtalinu við Sigurð er kafli, sem ekki átti að vera þar. Er það sá hluti, “ sem kemur næst á undan spurning- unni um það hver skoðun hans sé á þeim klofningi, sem komið hafi upp í Rithöfundasambandinu. Hefst sá hluti á orðunum: „Þá hef ég mikinn áhuga á því,... “ . Eins og sjá má á svari Sigurðar við spurningunni á þessi hluti ekki heima í viðtalinu. I niðurlagi viðtalsins við Njörð er haft eftir honum: „Það er fráleitt að tala um það, að Rithöfundasam- bandið sé einhvers konar vinstri- mannafélag, þar sem allir helztu rit- höfundar, sem orðaðir hafa verið við borgaralegar skoðanir, eru félagar í því.“ Þarna er orðinu allir ofaukið og á setningin að vera á þessa leið: ... þ a r sem helztu höfundar, sem orðaðir hafa verið ... Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum um leið og það leiðréttir þau. INNLENT 12. mai 1984 ^ % er i dag HJÓLAÐ í ÞÁGU ÞEIRRA SEM GETA EKKI HJÓLAÐ Mæting kl. 12 í eftirtöldum skólum þar sem lögregla skoðar hjólin: Melaskóli, Hvassaleitisskóli, Hliðarskóli, Langholtsskóli, Réttarholtsskóli, Laugames- skóli, Breiðholtsskóli, Árbæjarskóli, Seljaskóli, Fellaskóli, Kópavogsskóli og Kárs- nesskóli. Friðarfundur á Húsavík Morgunblaðinu hefur borizt fréttatilkynning frá Friðarhreyf- ingu Þingeyinga, þar sem segir m.a.: „I framhaldi af blysförinni fyrir friði á Þorláksmessu ’83 og Friðarpáskum ’84 á Húsavík er nú boðað til allsherjarfundar í Félagsheimilinu nk. laugardag kl. 2 e.h. Umræður verða um starfið framundan, ræddar starfsreglur hreyfingarinnar og kosin fram- kvæmdanefnd. Á eftir fundinn verður ungl- ingaskemmtun og hefst hún kl. 4 e.h.“ Félagsstarf aldraðra í Reykjavík Orlofsdvöl Eins og undanfarin sumur efnir Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar í samstarfi viö íslensku Þjóökirkj- una til orlofsdvalar aö Löngumýri í Skagafiröi. í sumar hafa eftirfarandi tímabil veriö ákveöin: 1. 28. maí — 8. júní. 2. 25. júní — 6. júlí. 3. 9. júlí — 20. júlí. 4. 23. júlí — 3. ágúst. 5. 20. ágúst — 31. ágúst. 6. 5. sept. — 16. sept. Innritun og allar upplýsingar veittar á skrifstofu fé- lagsstarfs aldraöra, Noröurbrún 1, símar 86960 og 32018. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Lagt veróur af staö kl. 13.30 og hjólaö að Lækjartorgi. Þeim börnum sem óska verður séö fyrir fari heim. Útihátíð á Lækjartorgi. Allir krakkar fá Coke, Frón- og Holtakex. Icebrakers dansar. Alli og Olla skemmta. • Skólahljómsveit Kópavogs leikur. Lúörasveit Laugarnesskóla leikur. Fimleikaflokkur frá Gerplu sýnir. Við hvetjum ykkur enn til aö taka tillit til hjólreiðafólksins sem hjólar í þágu þeirra sem ekki geta hjólað. Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra, kvennadeild. Varmárskóii Mostellssveit Mæting í Reykjadal, Reykjum, Hlíðartúni, Shell- og Olís-bensínstöövum. Lagt af staö kl. 14.00. Viö Varmárskóla verður á dagskrá m.a. leikur skólahljómsveitar, hjólreiöarþrautir, boöhlaup o.fl. Barnakórinn hefur til sölu heitar pylsur og gos i anddyri skólans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.