Morgunblaðið - 12.05.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
33
Færeysk guösþjónusta þriöju-
dagskvöld kl. 20.30. Jakub Kass
sóknarprestur í Nesi á Austurey
messar. Föstudagur 18. maí, kl.
14.30 síödegiskaffi. Sr. Ingólfur
Guömundsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 14.00.
Orgol og kórstjórn Reynir Jón-
asson. Kaffisala á vegum kvenfé-
lagsins í safnaðarheimilinu aö
lokinni messu. Sr. Guömundur
Óskar Ólafsson. Miövlkudagur,
fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN: Guösþjónusta í
Ölduselsskólanum kl. 11.00. Ath.
breyttan messutima. Fyrirbæna-
samvera Tindaseli 3, fimmtu-
dagskvöld kl. 20.30. Sóknar-
prestur.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíla-
delfía: Almenn guösþjónusta kl.
20. Ræöumenn Einar J. Gíslason
og gestir frá Svíþjóö.
DÓMKIRKJA Krists Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl.
14. Alla rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18 nema á laugardög-
um, þá kl. 14. í maímánuöi er
lesin Rósakransbæn eftir lág-
messuna kl. 18.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa
kl. 11.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg
2B: Samkomu- og skemmtiferö
til Akraness veröur farin kl. 10
árdegis meö Akraborg. Almenn
samkoma veröur kl. 20.30 á
Amtmannsstíg 2 B. Guöni Gunn-
arsson talar 03 tvísöngur veröur.
KIRKJA ÓHADA safnaðarins:
Barna- og fjölskyldumessa kl. 11.
Baldur Kristjánsson.
HJÁLPRÆDISHERINN: Helgun-
arsamkoma kl. 11. Kl. 20 bæn og
Hjálpræðissamkoma kl. 20.30.
Kommandör Will og Kathleen
Pratt frá Bandaríkjunum og
kommandör Solhaug frá Noregi
tala.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
GARÐAKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 14. Margrét Jónsdóttir for-
stööukona á Löngumýri prédik-
ar. Organisti Þorvaldur Björns-
son. — Kaffisala Kvenfél. Garöa-
bæjar á Garðaholti eftir messu.
Sr. Bragi Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guösþjónusta kl. 11. Ath. breytt-
an messutíma. Sr. Gunnþór
Ingason.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa KL. 10.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Ferm-
ingarguösþjónusta kl. 14. Sókn-
arprestur.
ÞORLÁKSHÖFN: Fermingar-
guösþjónusta kl. 11 og kl. 13.30.
Sr. Tómas Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Ferm-
ingarguösþjónusta kl. 13.30. Sr.
Úlfar Guömundsson.
SELFOSSKIRKJA: Fermingar-
guösþjónustur kl. 10.30 og kl.
14. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guósþjón-
usta kl. 14. Heimsókn Fríkirkju-
safnaðarins í Hafnarfiröi. Sr. Jón
Helgi Þórarinsson prédikar.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Vorferö
sunnudagaskólans til Hvanneyr-
ar. Lagt af staö frá kirkjunni kl.
13. Kvöldguösþjónusta í Akra-
neskirkju kl. 20.30. Sr. Björn
Jónsson.
Vordagar á
Bolungarvík
Bolungarvík, 10. maí. *
DAGANA 13.—20. maí munu Bol-
víkingar efna til svokalladra vor
daga hér í Bolungarvík. Vordagar er
heiti á menningarviku, sem Bolvík-
ingar efna til, og boðið verður upp á
menningardagskrá alla daga vik-
unnar.
Dagskráin hefst með hátíðar-
messu í Hólskirkju kl. 14 sunnu-
daginn 13. maí. Um kl. 16 þann
sama dag verða opnaðar sýningar
sem hér segir: í Ráðhússal verður
myndlistarsýning Baltasars, í
grunnskólanum verður opnuð
handmenntasýning og í skóla-
húsnæði grunnskólans við Hafn-
argötu verður myndlistar- og
ljósmyndasýning heimamanna.
Á meðal þeirra, sem koma fram
á þessari menningarviku, verða
eftirtaldir tónlistarmenn: Halldór
Haraldsson, píanóleikari, séra
Gunnar Björnsson, sellóleikari og
Ágústa Ágústsdóttir, söngkona,
auk þess sem jassistar frá Bolung-
arvík, ísafirði og Reykjavík koma
fram.
Um miðja vikuna, á miðviku- og
fimmtudag, mun leikfélag Bolung-
arvíkur sýna finnskt barnaleikrit
undir stjórn Svanhildar Jóhann-
esdóttur. Þarna er á ferðinni bráð-
skemmtilegur gamanleikur, sem
höfðar til allra, ungra sem ald-
inna.
Vortónleikar Tónskóla Bolung-
arvíkur verða fléttaðir inn í þessa
viku og á þeim tónleikum og skóla-
slitum munu koma fram 60—70
nemendur skólans. Tuttugasta
starfsári TB er nú að ljúka. Af því
tilefni verða sérstakir tónleikar,
þar sem fram koma eldri nemend-
ur Tónskólans, bæði þeir, sem
hafa stundað nám hér og eru að
ljúka því, sem og nemendur, sem
stundað hafa nám f Reykjavík og
erlendis.
Vordögunum lýkur hinn 19. maí
en þá mun hið nýja íþróttahús
Bolvíkinga verða vígt. Við það
tækifæri mun lúðrasveit Mos-
fellssveitar leika. Þá verður
íþróttasýning og sundmót í
Sundhöll Bolungarvíkur. Um
kvöldið verður síðan skemmti-
kvöld og dansleikur í félagsheimil-
inu. — Gunnar.
Safnaðardagur í
Ásprestakalli
ÁRLEGUR kirkjudagur Safnaðar-
félaga Ásprestakalls er nk. sunnu-
dag, 13. maí. Við guðsþjónustu í
Áskirkju, sem hefst kl. 14. munu
hjónin Inga Rós Ingólfsdóttir
cellóleikari og Hörður Askelsson
organisti flytja list sína og kirkju-
kór Áskirkju syngja undir stjórn
Kristján Sigtryggssonar organista.
Eftir messu verður veizlukaffi
reitt fram í Safnaðarheimili
Áskirkju í kjallara kirkjunnar,
en þetta er í fyrsta sinn sem
dagskrá kirkjudagsins fer fram í
eigin húsakynnum safnaðarins.
Verður húsið opið fram til kl. 17.
Er ekki að efa að margir vina
og velunnara Áskirkju munu
koma til kirkjunnar þennan dag
og fagna því mikla sem áunnist
hefur í byggingarmálum safnað-
arins og neyta þeirra veitinga,
sem fram verða bornar, en
veizluborð Safnaðarfélagsins eru
kunn að ágætum. Ferðir verða
frá Hrafnistu og Norðurbrún 1
kl. 13.15 og íbúum þaðan ekið
heim aftur síðar um daginn.
Von ég að sem flestir leggi leið
sína í Áskirkju á sunnudaginn
til að gleðjast með glöðum og
styðja gott málefni.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Kaffisala Eyjakvenna
KVENFÉLAGIÐ Heimaey heldur boðnir velkomnir, en borð verða
sína árlegu kaffisölu á Hótel Sögu á hlaðin kræsingura. Allur ágóði renn-
morgun, sunnudaginn 13. maí. Vest- ur til líknarmála.
manneyingar og aðrir gestir eru
Kynna verk sín í
Gallerí Langbrók
í GALLERÍ Langbrók stendur yf-
ir kynning á verkum þeirra Stein-
unnar Bergsteinsdóttur og Kol-
brúnar Björgólfsdóttur. Steinunn
sýnir handmálaðan bómullarfatn-
að og ullarfatnað og Kolbrún sýnir
skartgripi úr postulíni. Kynningin
er opin frá klukkan 12—18 virka
daga, en kl. 14—18 um helgar.
Útflutningsbætur
á landbúnaðar-
vörur verði
felldar niður
AÐALFUNDUR starfsmannafélags-
ins Sóknar, sem haldinn var 8. maí
sl., ályktaði að skora á flytjendur
„bandormsins“ svonefnda að fella
niöur eða breyta ákveðnum atriðum
frumvarpsins.
í fyrsta lagi vilja Sóknarmenn
að allar útflutningsbætur á land-“
búnaðarvörur verði felldar niður
og þeim fjármunum sem þannig
sparast verði varið til að greða
niður mjólk og dilkakjöt á innan-
landsmarkaði. Ennfremur var
samþykkt að skora á flytjendur
„bandormsins" að nema þegar í
stað á brott úr frumvarpinu
hækkun á gjaldi að göngudeildum
og sérfræðingaþjónustu, þar sem
slík gjöld bitni fyrst og fremst á
fólki með skerta starfsorku.
Þá benti fundurin á að vanda
ríkissjóðs væri hyggilegra að leysa
með því að fresta opinberum
framkvæmdum en skerða kjör
launafólks.
Þú svalar lestrarþckf dagsins y
ásíðum Moggans!
m
°T|
AF HVERJU
MALLORKA
í FRÍINU?
Því er fljótsvarað! Vegna þess að þar er veðurlag gott,
sólskin og heitur sjór, rólegheit eða fjör, bara eftir því hvað þú vilt.
Atlantik býður upp á frábæra gististaði sem henta allri fjölskyldunni,
og leggur kapp á að gera dvölina sem þægilegasta
fyrir gesti sína, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna.
Það fara allir ánægðir og sólbrúnir frá Mallorka,
með góðar endurminningar um dvölina
og sumir eru þegar farnir að hugsa um hvenær
þeir komist aftur til Mallorka.
Mallorka er málið!
OTCÉKVm
Ferðaskrifstofa. Iðnaðarhusmu. Hallveigarstig 1 simar 28388 og 28580