Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
• Ásgeir Sigurvinsson og félagar hans í Stuttgart leika gegn
Frankfurt í dag á heimavelli sínum. Leikurinn er afar þýö-
ingarmikill fyrir Stuttgart-liöið sem má alls ekki tapa stigi í
leiknum ef þaö ætlar sér aö sigra í hinni höröu deildarkeppni í
ár.
Leiknum ekki
sjónvarpað beint
NÚ ER oröiö Ijóst að leik Stutt-
gart og Hamborg 26. maí veröur
ekki sjónvarpaö beint í V-Þýska-
landi. Ástæðan er sú aö önnur 1.
deildarlið sem leika á sama tíma
hafa mótmælt því að þaö veröi
gert vegna ótta viö að missa aö-
sókn aö leikjum sínum.
Allt bendir til þess hinsvegar aö
leiknum veröi lýst í útvarpi hér
heima laugardagseftirmiödaginn
þann 26. maí. Ríkisútvarpiö vinnur
nú að þeim málum þar sem vitaö
er um geysilegan áhuga á leiknum
hér á landi. Veröi leiknum lýst
veröur þaö í fyrsta sinn sem leik
erlendra knattspyrnuliöa veröur
lýst beint hér á landi.
Þar eö fjölmargir fá ekki miöa á
leikinn ytra hefur stjórn Stuttgart
brugöiö á þaö ráö aö sýna leikinn
á breiötjaldi f risastóru íþróttahúsi
viö hliö vallarins. Þar munu 10
þúsund manns geta séö leikinn.
ÞR.
Norrænt íþróttakennara-
og þjálfaranámskeið
Eins og undanfarin ár gengst
íþróttakennaradeild Luther Coll-
ege, Decorah, lowa, fyrir norrænu
íþróttakennara-, þjálfara- og leiö-
toganámskeiöi dagana 8.-29. júlí
nk.
Á námskeiöinu veröa kynntar
amerískar íþróttir, körfuknatt-
leikur, sund, golf, blak, tennis,
trimm, hornaknattleikur, bogfimi,
frjálsíþr., lyftingar o.fl. Þátttak-
endur ióka þessar greinar aó eig-
in vali, en auk þess fer fram sýni-
kennsla og fyrirlestrarhald.
Kennarar á námskeiöinu eru
prófessorar og/eöa þjálfarar viö
Luther College og víöar aö, læknar
viö Mayo-sjúkrahúsiö, skipuleggj-
endur íþróttakennslu og stjórn-
endur íþróttamannvirkja, sem
margir hverjir hafa áratuga
reynslu, sem fræöimenn, kennarar
og þjálfarar og eru vísindamenn
hver á sínu sviöi.
Aöalhvatamaöur og stjórnandi
þessa námskeiös er prófessor, dr.
Kenton Finanger deildarstjóri
íþróttakennaradeildar L.C. Hann
er íslenskum íþróttamönnum og
kennurum aö góöu kunnur. Fin-
anger hefur nokkrum sinnum kom-
iö til islands ýmist til námskeiöa-
og fyrirlestrahalds eöa meö körfu-
boltaliöi L.C. sem hann þjálfaði um
árabil.
Dr. Kenton Finanger er annt um
island og islendinga og er ávallt
reiöubúinn til aö greiöa götu þeirra
þar vestra þegar til hans hefur ver-
iö leitaö. Af því höfum viö mörg
persónulega reynslu.
Þeir, sem heföu áhuga á aö
kynna sér þetta námskeiö frekar
og athuga möguleika á þátttöku í
því, geta snúiö sér til skrifstofu
íþróttafulltrúa ríkisins, s. 25000,
eða haft beint samband viö Dr.
Kenton Finanger, Luther College,
Decorah, lowa, 52101, USA.
Ásgeir Sigurvinsson:
„Megum ekki gera
nein glappaskot“
í dag leikur Stuttgart þriöja
síöasta leik sinn í 1. deildar
keppninni í knattspyrnu í
V-Þýskalandi. Eins og fram hefur
komíö svo oft þá á liöiö góöa
möguleika á að vinna deildar-
keppnina í ár en höfuökeppinaut-
ar liösins eru núverandi meistar-
ar Hamborg S:V. Stuttgart leikur í
dag gegn Eintracht Frankfurt á
heimavelli sínum og ef að líkum
lætur þá sigrar Stuttgart (leikn-
um. En enginn leikur er þó ör-
uggur og mikil pressa er núna á
leikmönnum Stuttgart þar sem
mikiö er í húfi. Viö spjölluöum viö
Ásgeir Sigurvinsson, lykilmann
Stuttgart, í gærkvöldi og inntum
hann eftir því hverning leikurinn
legðist ( hann og félaga hans i
liöinu. Jafnframt spuróum viö
Ásgeir að þv( hvort allir bestu
menn liösins yróu meö og hvern-
ig undirbúningi fyrir lokasprett-
inn yrói hagaö.
— Hvaö mig sjálfan varöar þá
finst mér leikurinn gegn Frankfurt
vera geysilega erfiöur. Ég er
hræddur viö hann. Viö veröum aö
sigra hvaö sem þaö kostar og viö
megum ekki gera nein glappaskot.
Ég álít þennan leik erfiöari en leik-
inn gegn Werder Bremen um
næstu helgi þó svo aö hann sé á
útivelli. Viö erum meö eins stigs
forystu í deildinni og þaö má ekk-
ert útaf bera. Og þegar svona
staöa kemur upp þá er mikil
pressa á leikmönnum öllum bæöi
líkamlega og sálarlega. En viö er-
um meö gott liö og leikreynt og ég
hef ekki trú á ööru en aö okkur
takist vel upp. Okkur hefur gengið
mjög vel í síöustu leikjum okkar og
vonandi veröa heilladísirnar meö
okkur áfram. Viö erum meö sterkt
og heilsteypt liö sem á aö geta
unniö meistaratitilinn í ár, sagöi
Ásgeir.
— En þaö er ekki bara pressa á
okkur, hin liðin vita aö þau veröa
aö standa sig ef þau ætla aö eiga
möguleika. Þannig aö segja má aö
spennan sé óvenju mikil og þaö
hefur ekki gerst hér í V-Þýskalandi
i fjöldamörg ár aö síöasti leikurinn
í deildinni, þaö er aö segja leikur
okkar og Hamborgar, sé hreinn úr-
slitaleikur. Stemmingin hér (
Stuttgart er líka mjög mikil. Þaö er
mikiö fjallað um liöiö í fjölmiölum
og flestir vonast aö sjálfsögðu eftir
því aö Stuttgart takist aö vinna tit-
ilinn þar sem þaö hefur ekki gerst
áöur. Þaö er fyrir löngu uppselt á
úrslitaleikinn og miöar ganga nú á
háu veröi hér á svörtum markaöi,
sagöi Asgeir.
Aö sögn Ásgeirs þá mun liöiö
leika stífa pressu á leikmenn
Frankfurt frá byrjun leiksins og
leggja höfuöáhersluna á aö skora
snemma í leiknum. Stuttgart-liöinu
hefur oft gengiö illa framan af í
leikjum sínum en náö sér verulega
á strik þegar fyrsta markiö er kom-
iö. Og þaö má benda á aö Stutt-
gart-liðið er eitt sterkasta heimaliö
í deildinni. Þaö heyrir til undan-
tekninga ef liðið fær á sig mark á
heimavelli. Og i síðustu leikjum
hefur Stuttgart rúllaö andstæöing-
um sínum upp, eins og stundum er
sagt á knattspyrnumáli.
Helstu keppinautar Stuttgart,
Hamborgarliöiö, leikur á útivelli
gegn Nurnberg. Bayern leikur
heima gegn Kaiserslautern og
Gladbach leikur gegn Uerdingen á
heimavelli. En eins og viö skýröum
frá í blaöinu í gærdag þá hefur
Lárus Guömundsson nú undirritaö
tveggja ára samning viö Uerding-
en. En þaö er ekki bara nóg fyrir
liðin aö sigra i dag. Án efa leggja
þau mikla áherslu á aö ná góöri
markatölu hún getur nefnilega ráð-
iö úrslitum. Og eins og staöan er í
dag þá hefur Stuttgart besta
markahlutfalliö, hefur skorað 75
mörk en aöeins fengiö á sig 29
mörk í 31 leik. Hamborg hefur
skoraö 68 mörk en fengiö á sig 33.
— ÞR
Meistarakeppni KSÍ í dag
FYRSTI stórleikurinn á knatt-
spyrnukeppnistímabilinu fer
fram í dag á Melavellinum kl.
14.00. Þá leíka lið ÍA og ÍBV í
meistarakeppni KSÍ. Má búast
viö fjörugum og skemmtilegum
leik á milli þessara liöa í dag en
þau hafa sýnt góö tilþrif í æf-
ingaleikjum sem þau hafa leikið
aö undanförnu.
Þess má geta aö mótabók KSÍ
kom út í gær og er hún mjög vönd-
uö í hvívetna aö vanda. í henni er
aö finna margvíslegar upplýsingar
og fróöleik.
Fyrsti leikurinn í 1. deild fer fram
á fimmtudag i næstu viku, 17. maí.
Þá leika Víkingur og KR og verður
sá leikur væntanlega á grasvellin-
um í Laugardal. Daginn eftir, föstu-
daginn 18. maí, rekur svo hver
leikurinn annan. Þá veröa leiknir
tveir leikir í 1. deild og sjö í 3. og 4.
deild. — ÞR
KR-ingar semja viö Þýsk-íslenska verzlunarfélagið:
Fjórir leikmenn verðlaunaðir
í hverjum mánuði hjá KR
Knattspyrnudeíld KR hefur
samiö viö Þýsk-íslenska verslun-
arfélagiö um auglýsingar á bún-
ingum deildarinnar og munu
flokkar félagsins auglýsa vörur
frá Sadolin og Varta.
Samvinna KR-inga og Þýsk-
íslenska hófst áriö 1982 þegar
samiö var um aö meistaraflokkur
karla og kvenna auglýstu Varta-
rafhlööur og geyma á búningum
sínum.
Síöastliöiö ár var geröur viöbót-
arsamningur sem fól í sér aö allir
flokkar deildarinnar léku meö
Varta-auglýsingar.
Nú hafa Þýsk-íslenska og KR
samiö um enn frekari útvíkkun á
samstarfinu. Geröir hafa veriö tveir
samningar, annars vegar um
meistaraflokk kvenna og 3., 4., 5.,
6. og 7. flokk sem munu leika meö
Varta-auglýsingar og hinsvegar
um meistara, 1. og 2. flokk karla
sem munu auglýsa vörur frá Sado-
lin-málningarversmiðjunum.
Þýsk-íslenska hefur nýlega tekiö
viö umboöi fyrir Sadolin sem fram-
leiöir m.a. hið heimsþekkta Pino-
tex-merki, og er nýi samningurinn
því í samræmi viö þá stefnu fyrir-
• Sævar Leifsson, einn leik-
manna KR, í hinum nýja KR-bún-
ingi.
tækisins aö auglýsa nýjar vöruteg-
undir á búningum 1. deildarliösins.
Meö þessum nýju samningum
veröur samstarfiö mun víöfeðmara
en áöur því auk peningagreiöslna
eins og áöur mun Þýsk-íslenska nú
taka virkan þátt t ýmissri starfsemi
deildarinnar. Má þar nefna stór-
mót fyrir 6. og 7. flokk sem haldið
veröur í ágústmánuöi þar sem öll-
um bestu liöunum veröur boöin
þátttaka, stuöning viö knatt-
spyrnuskóla KR og ýmsar óvæntar
uppákomur á heimaleikjum. Þá
mun Þýsk-íslenska taka upp þá
nýbreytni aö verölauna í hverjum
mánuöi þá 4 leikmenn meistara-
flokks sem þótt hafa skara framúr
og hefur veriö skipuö nefnd sér-
fróöra manna til aö annast valiö. í
lok keppnistímabilsins mun nefnd-
in velja leikmann ársins og hlýtur
hann stórglæsileg verölaun frá
Þýsk-íslenska.
Samstarf þessarra aöila hefur
veriö meö miklu ágætum og er
áhugi forráöamanna Þýsk-islenska
verslunarfélagsins á eflingu og
styrk viö íþróttahreyfinguna eflaust
einsdæmi hér á landi.
Hér nýtur ekki einungis KR góös
af heldur hefur fyrirtækið styrkt á
annan tug knattspyrnufélaga um
land allt auk keppenda í fjölda
annarra íþróttagreina.