Morgunblaðið - 20.05.1984, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1984
Þjónusta Græn-
metisins er fyrir
neðan allar hellur
— segir Jón Pálsson veitingamaður í Gafl-inn
„ÞJÓNUSTAN hjá þessu fyrirtæki í
gegnum árin hefur verid fyrir neðan
allar hellur. I'eir hika ekki við að
henda í mann hverskyns drasli, vör-
um sem ekki eru einu sinni 3.
flokks. Maður hefur að vísu yfirleitt
fengið þetta bætt með því að röfla í
þeim en það er eins og þeir taki
Smyrill heimsækir
hafrannsóknaskip
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriks-
son fékk gest um borð, þegar skipið
var statt í Hornafjarðardýpi, um 50
mílur frá landi. Þessi gestur var
smyrill, sem settist á ankerspilið og
hvíldi sig þar næturlangt. Ekki virt-
ist hann svangur, því hann leit ekki
við kjötmeti, sem skipverjar settu
fyrir hann. Þegar morgnaði svo og
birti til, flaug smyrillinn frá borði.
Ljósmynd: (iuóhjarlur (iunnarsson.
áhættuna og treysti því að menn
kvarti ekki,“ sagði Jón Pálsson veit-
ingamaður í Gafl-inn í Hafnarfirði í
samtali við blm. Morgunblaðsins,
þegar hann var spurður hvernig hon-
um líkaði þjónusta Grænmetisversl-
unar landbúnaðarins, en það fyrir-
tæki hcfur mikið verið til umræðu
undanfarið.
„Þeir hafa hagað þessum við-
skiptum algerlega eftir sínu eigin
höfði og virðist vera nákvæmlega
sama um hvort þeir selja vöruna
eða ekki, hvernig varan er og á
hvaða verði hún er seld. Ég get
nefnt mörg dæmi um þessa þjón-
ustu þeirra í gegnum árin. í vetur
höfum við ekki haft mikið af þess-
um kartöfluvandamálum að segja
því bökunarkartöflur hefur nán-
ast ekki verið hægt að fá í
Grænmetisversluninni, en við höf-
um getað haft góðar kartöflur á
boðstólum með því að kaupa þær í
kartöfluverksmiðju, sem hefur
bjargað okkur. Núna fyrir helgina
standa til dæmis flestir veit-
ingamenn á öndinni af reiði, því
ekkert hvítkál er hægt að fá og
okkur sagt að það komi ekki fyrr
en eftir helgi.
Mér finnst sjálfsagt að leyfa
þeim innflutningsaðilum sem það
vilja að veita þessa þjónustu. Það
getur vel verið að það sé þjóð-
hagslega hagkvæmt að hafa
Grænmetisverslunina í lagi en það
er líka jafn sjálfsagt að leyfa öðr-
um að spreyta sig. Þetta á ekki
aðeins við um kartöflurnar, þeir
hafa einkarétt á að flytja þessa
vöru til Iandsins, meira að segja
laukinn," sagði Jón Pálsson.
Ljósmynd N aldimar Kri.slins.son.
Hestadagar í Garðabæ
Félagar í Félagi tamningamanna sýna samspil manns og hests á Hestadög-
um og er ekki annað að sjá en samspil þeirra í milli sé einnig eins og best
verður á kosið, því hestarnir virðast ef marka má myndina ganga í takt.
Morgunblaðið/Friðþjófur.
„Ég veit núna, að þetta er ekki draumur heldur veruleiki," sagði nýkjörin fegurðardrottning íslands, Berglind
Johansen, er Morgunblaðsmenn vöktu hana upp snemma í gærmorgun.
Er rétt að átta mig á því
að titillinn er staðreynd
„ÞAÐ ER dásamlegt að vakna upp
sem Fegurðardrottning íslands eftir
allt þetta umstang, en ég hcfði vissu-
lega kosið að sofa lengur, nóttin var
bæði erfíð og skemmtileg. Þetta hef-
ur verið eins og draumur og ég er
rétt að átta mig á því, að titillinn er
staðreynd," sagði Berglind Johan-
sen, nýkjörin Fegurðardrottning ís-
lands, er Morgunblaðið hitti hana á
heimili hennar snemma í gærmorg-
un.
„Þetta kom mér annars á óvart,
ég hafði ekkert frekar búizt við
þessu og er því bæði glöð og
ánægð. Skemmtunin í gærkvöldi
og nótt var mjög glæsileg og gekk
eins og í sögu. Þá hefur samvinna
okkar stelpnanna verið frábær frá
— segir nýkjörin
fegurðardrottning
íslands,
Berglind Johansen
upphafi og því hefur þetta verið
ógleymanlegur tími.
Nú taka væntanlega við ferðir á
erlenda grund. Ég mun taka þátt í
„Miss Universe“-keppninni í Flor-
ida í sumar og „Miss World“-
keppninni í Englandi í haust. Það
er ekki á hverjum degi, sem maður
er kosinn Fegurðardrottning Is-
lands, svo þetta ruglar dálítið
framtíðaráformunum, en ég reyni
að stilla þessu þannig upp, að þau
ruglist ekki verulega. Markmiðið
er að ljúka stúdentsprófinu, en ég
lauk verzlunarprófi á föstudag svo
það eru enn tvö ár í stúdentinn.
Hvað þá tekur við, veit ég ekki
enn. Ég vonast bara til að ég verði
verðugur fulltrúi þjóðarinnar í
þeirri keppni, sem ég tek þátt í á
erlendri grund og vil þakka dóm-
nefndinni fyrir að sýna mér þetta
traust og öllum þeim, sem þátt
áttu í að gera þennan tíma, sem
liðinn er, eins skemmtilegan og
raun bar vitni,“ sagði Berglind Jo-
hansen.
Skoðanakönnun Hagvangs hf.:
2lÁ atkvæði á Vestfjörð-
um á móti 1 í Reykjavík
Hæfileg jöfnun atkvæða að mati 41 %aðspurðra
UM 41% þátttakenda í nýlegri skoð-
anakönnun Hagvangs hf. telja, að
hæfílega langt sé gengið til að jafna
vægi atkvæða með því að ‘l'/i atkvæði
þurfi til þess að fá mann kjörinn á
Alþingi í Reykjavík á móti 1 atkvæði á
Vestfjörðum. 29,2% töldu ekki nógu
langt gengið en !7,3%of langt gengið.
í hópi þátttakenda voru 12,4%, sem
tóku ekki afstöðu til spurningarinnar.
Nokkur munur er á afstöðu fólks
eftir því hvar það er búsett á land-
inu. Þannig töldu 43% þeirra, sem
búa á höfuðborgarsvæðinu, hæfi-
lega langt gengið, í öðru þéttbýli
40,1%, en í dreifbýli 35,8%. Hins
vegar töldu 8,4% þátttakenda, sem
búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu,
of langt gengið, 27,3% í öðru þétt-
býli og 29,4% í dreifbýli.
Á höfuðborgarsvæðinu töldu
38,5% ekki nógu langt gengið í jöfn-
un atkvæða með þessu móti, í öðru
þéttbýli 17,4% og í dreifbýli 18,3%.
Ef miðað er við búsetu eftir kjör-
dæmum töldu 46,5% þátttakenda á
Vestfjörðum of langt gengið með
2'/2 atkvæði á móti 1 en 7,3% í
Reykjaneskjördæmi. í Norður-
landskjördæmi eystra töldu 52,4%
hæfilega langt gengið en 25,6% á
Vestfjörðum og 29,1% í Suður-
landskjördæmi.
Sjá nánar á bls. 27.
Tollpappír-
ana vantaði
VEGNA ummæia Gísla Blöndal,
forstjóra Hagkaups hf., í Mbl. í
gær, hafði Guðmundur Sigþórsson
í landbúnaðarráðuneytinu sarp-
band við Morgunblaðið og kvað
ekki rétt, að vantað hefði eitt blað
í þá vörupappíra, sem fylgja hefðu
átt kartöflunum til fyrirtækisins.
Guðmundur sagði að vörupappír-
arnir hefðu ekki fylgt sendingunni,
þeir hefðu verið sendir með flugi
og líklegast ekki borizt vegna
truflana á flugsamgöngum til
Iandsins. Guðmundur kvað ráðu-
neytið alls ekki hafa viljað setja
fótinn fyrir innflutning Hagkaups,
þvert á móti.
Eiríkur Fjal-
ar í barna-
fararstjórn
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval
flutti höfuðstöðvar sínar um set
um helgina — nánar tiltekið 63
skrefum sunnar í Pósthússtræti. í
tilefni flutninganna réð ferða-
skrifstofan til sín „reyndan og ör-
uggan barnafararstjóra", Eirík
nokkurn Fjalar, sem stjórnaði
nokkrum stuttum ókeypis skoðun-
arferðum um borgina í gærmorg-
un. Myndin var tekin á Austurvelli
þegar lagt var í fyrstu ferðina.
MW./ÓI.K.M.