Morgunblaðið - 20.05.1984, Page 22
70
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1984
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Vitað er að hænsnarækt hefur fylgt
manninum lengi. Sagnir eru af
kjúklingarækt í Kína fyrir meira
en 4000 árum. Hænsni eru ræktuð
til matar, vegna eggjanna svo og
vegna fiðurs og skrautlegra fjaðra hanans.
Hænsni fluttust til íslands með landnáms-
mönnum. Um og upp úr aldamótum risu upp
fyrstu hænsnabú hérlendis, en það voru bak-
arar sem ráku þau vegna eggjanna. Þeir
seldu síðan umframegg. En á þeim tíma
tíðkaðist mjög að fólk hefði hænsni til heim-
ilisnota. Þá mátti sjá litauðug heimilis-
hænsni og skrautlega hana við mörg heimili
á íslandi, en hin síðari ár eru hænsni okkar
hvít. Eru það hvítir ítalir. Á hvítum hænsn-
um er fjöðurstafurinn hvítur og er það æski-
legra á kjúklingum sem ræktaðir eru til
matar.
Tvö kyn kjúklinga eru ræktuð hér. Létt
kyn sem verpir mikið og þungt kyn sem eru
holdakjúklingar. Hænsnin hafa fiðurlausan
blett sitt hvoru megin á hausnum, sem kall-
aðir eru eyrnasneplar. Á léttu kynjunum er
þessi blettur ljós en á þeim þungu dökkrauð-
ur. Þungu kynin verpa brúnum eggjum en
léttu kynin hvítum. Því ljósari sem eyrna-
snepillinn er, því ljósari egg.
Upp úr 1960 risu upp fyrstu raunverulegu
kjúklingabú hérlendis, en síðustu tíu ár hef-
ur framleiðslueiningum fjölgað verulega.
Beinagrindin á léttu og þungu kyni er lík að
stærð, en holdið er mun meira á þunga kyn-
inu. Venjulega er kjúklingum slátrað 7—9
vikna, og er þá kjötmagnið 1 kíló eða meira.
Nú er verð á kjúklingum hér á landi lágt, og
er sjálfsagt að nýta sér það. Ýmsar aðferðir
eru til matreiðslu á kjúklingum, algengast
er að glóðarsteikja þá, en mjög gott er að
pönnu-, pott- eða ofnsteikja þá eða sjóða í
pottrétti. Kaldir kjúklingar eru mjög góðir í
salöt.
Pottréttur úr kjúklingabringu með
margs konar kryddi
(handa 3)
6 kjúklingabringur
2 msk matarolía
1 stór laukur
4 sellerístönglar
2 hvítlauksgeirar
1 'k tsk salt
1 tsk turmerik, sterkgult krydd, fæst víða 'k tsk
chillipipar, mjög sterkur
1 tsk korianderduft, fæst í stærri verslunum
1 tsk kúmen
'A tsk negull
2 tsk tómatmauk
2 bollar vatn
1 msk kókosrjómi, cream of coconut, fæst í stærri
verslunum
2 bananar
1 bolli stór, löng hrísgrjón
2 bollar saltvatn til að sjóða grjónin í '
1. Hitið matarolíuna í potti.
2. Afhýðið og saxið laukinn og hvítlaukinn, skerið
þvert á sellerístönglana í litla bita. Sjóðið þetta
allt í olíunni í 7 mínútur. Hafið hægan hita og
gætið þess að þetta brúnist ekki.
3. Hellið vatninu út í, bætið salti, turmerik, chilli-
pipar, korianderdufti, kúmeni og negul út í. Látið
sjóða.
4. Setjið kjúklingabringurnar í pottinn og látið
sjóða við hægan hita í 40 mínútur.
5. Sjóðið hrísgrjónin í saltvatni í 20 mínútur. Hýð-
isgrjón lengur.
6. Hrærið tómatmauk og kókosrjóma út í kjötpott-
inn.
7. Hellið vatninu af hrísgrjónunum og setjið í skál,
takið kjúklingabringurnar örlítið í sundur og
hellið kjötréttinum yfir grjónin.
8. Skerið banana í sneiðar og stráið yfir skálina.
Steiktir kjúklingar med rjómaosti og
steinselju
(handa 4)
2 kjúklingar, 1 kg hvor
1 'k tsk salt
200 g rjómaostur án bragðefna
Væn steinseljugrein eða 1 msk þurrkuð
‘k kjúklingasúputeningur
hveitihristingur
1. Saxið steinseljuna og blandið saman við rjóma-
ostinn með gaffli.
2. Losið húðina frá bringu og læri með því að stinga
fingrunum undir húðina. Smyrjið eða troðið
rjómaostinum jafnt undir húðina. Ef húðin rifnar
er hægt að tylla henni saman með kjötpinnum
eða tannstönglum.
3. Nuddið salti í kjúklingana að innan og utan.
4. Hitið bakarofninn í 200°C. Leggið kjúklingana á
smurða ofnskúffu og steikið í 50 mínútur.
5. Hellið örlitlu vatni í skúffuna þegar steikingar-
tíminn er hálfnaður.
6. Sjóðið innmatinn í 2 dl af saltvatni í 30 mínútur.
Síið soðið.
7. Færið kjúklingana upp á fat. Skolið skúffuna með
örlitlu vatni og hellið í pott ásamt soðinu af inn-
matnum. Setjið kjúklingasúputeninginn út í.
8. Búið til hveitihristing og jafnið sósu.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og soðið grænmeti.
Salat úr köldum kjúklingum
Kalt kjúklingakjöt, u.þ.b. hálfur kjúklingur
'k bikar sýrður rjómi.
2 tsk olíusósa (mayonnaise)
nokkur strá graslaukur eða 1 msk þurrkaður
'k tsk karrý
5 dropar tabaskósósa
'k hálfdós niðursoðnir sveppir
1 lítil paprika
1. Hrærið saman sýrðan rjóma, olíusósu, tabaskó-
sósu og karrý.
2. Klippið graslaukinn, takið steinana úr paprikunni
og saxið, skerið kjúklingakjötið smátt, síið svepp-
ina. Setjið allt út í sýrða rjómann. Blandið saman
með tveimur göfflum.
Meðlæti: Ristað brauð.
Vegna fjölda áskorana framlengjum við
tilboðinu til laugardagsins 26. maí nk.
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verslunarinnar
OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 26.5. frá kl. 10—3 e.h.
ath, K.M. Húsgögn
Tilboðið verður ekki endurtekið Langholtsvegur 111 — Símar 37010 — 37144 — Reykjavík.
Stúdentafagnaður
Nemendasambands Mennta-
skólans í Reykjavík . _
veröur haldinn aö Hótel Sögu, Súlnasal, föstuda^inn 25. maí og hefst meö boröhaldi
kl. 19.30.
Aögöngumiöasala veröur í anddyri Súlnasals. Hótel Sögu, mióvikudaginn 23. maí kl.
17—19 og fimmtudaginn 24. maí kl. 15.30—18.00. Samkvæmisklæönaöur.
Stjórnin.
H |h||h|
H
m
H
H
H
H
Til sölu Caterpillar 966D hjólaskófla 1982.
Upplýsingar í síma 21240.
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
H
H
H
H
H
H