Morgunblaðið - 25.05.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 25. MAl 1984
23
20 búfræðingar
brautskráð-
ir frá Hólum
B*‘, Hörðaströnd.
SKÓLASLIT Bændaskólans á
Hólum í Hjaltadal fóru fram viA
hátíðlega athöfn í Hóladóm-
kirkju fóstudaginn 11. maí síð-
astliðinn að viðstöddum fjölda
gesta. Prófastur Skagafjarðar-
prófastsdæmis, séra Hjálmar
Jónsson, prédikaði.
I ræðu skólastjóra kom fram,
að 39 nemendur stunduðu nám
við skólann i vetur og þar af út-
skrifuðust 20 búfræðingar, 6
stúlkur og 14 piltar. Skólastarfið
var með hefðbundnum hætti og
eins og undanfarin ár var nem-
endum gefinn kostur á valgrein-
unum fiskrækt, fiskeldi, loðdýra-
rækt og hrossarækt. Þá var
nemendum og starfsfólki gefinn
kostur á að taka áfanga fram-
haldsskóla í ensku og mæltist
það vel fyrir" Söng og tónmennt
efldist mjög á staðnum í vetur.
Frú Anna Einarsdóttir, prests-
frú á Hólum, er kennari við
Tónlistarskóla Skagafjarðar-
sýslu og stunduðu nokkrir nem-
endur Bændaskólans nám við
þann skóla. Auk þess æfði hún
skólakór Bændaskólans.
í desember síðastliðnum var
fluttur inn blárefur frá Noregi á
loðdýrabú skólans, en minkur
hafði áður verið fluttur inn frá
Danmörku í fyrravor. Er nú að-
staða til kennslu í loðdýrarækt
góð, svo má einnig telja í fisk-
rækt, fiskeldi og hrossarækt.
18.—20. mars var kynningar-
námskeið í fiskeldi og var mikil
aðsókn að því. Einnig verða í
sumar starfræktar sumarbúðir
fyrir börn í samvinnu við Þjóð-
kirkjuna. Þá er ætlunin að halda
námskeið í reiðmennsku síðar í
sumar.
Húsnæðisskortur háir veru-
lega starfsemi skólans. Nauðsyn
er á auknu heimavistar- og
kennslurými og íbúðum fyrir
starfsfólk. Nokkuð mun úr ræt-
ast með kennslurými í sumar, en
þá verður lokið við 3. áfanga
hesthúsbyggingarinnar, en þar
fær inni fyrst um sinn ýmis
verkleg kennsla.
Af þeim tuttugu búfræðingum
sem útskrifuðust hlutu tveir 1.
ágætiseinkunn og sjö 1. einkunn.
Hæstu einkunn hlaut Heiða
Lára Eggertsdóttir, Ingveldar-
stöðum, Hjaltadal, 1. ágætis-
einkunn, 9,1, og hlaut hún fyrir
það viðurkenningu frá Búnaðar-
félagi íslands. Jón Gíslason,
Hofi í Vatnsdal, hlaut 1. ágætis-
einkunn, 9,0.
Stéttarsamband bænda veitti
Heiðu Láru Eggertsdóttur viður-
kenningu fyrir hæstu einkunn á
bústjórnarsviði. Ennfremur
hlaut hún viðurkenningu frá
Landssambandi veiðifélaga fyrir
hæstu einkunn í fiskrækt og
ásamt Jakob Jóhannssyni,
Garðabæ, viðurkenningu frá
Hólalax hf. fyrir góðan árangur í
fiskeldi. Þá hlaut hún einnig við-
urkenningu skólans fyrir hæstu
einkunnir í jarðrækt og verk-
námi.
Hæstu einkunn í loðdýrarækt
hlaut Jón Gíslason og jafnframt
viðurkenningu frá Sambandi ís-
lenskra loðdýraræktenda. Enn-
fremur hlaut Jón viðurkenningu
skólans fyrir hæstu einkunnir í
bútækni og búfjárrækt. Hrossa-
ræktarsamband Skagfirðinga
veitti Höskuldi Jónssyni, Akur-
eyri, verðlaun fyrir bestan
árangur í hrossarækt. Viður-
kenningu skólans fyrir góða um-
gengni hlutu Helga Svanhvít
Þrastardóttir, Ásgerður Jóns-
dóttir og Bjarney Vala Stein-
grímsdóttir.
7. apríl fór hin árlega skeifu-
keppni fram og veiting Morgun-
blaðsskeifunnar fyrir bestan
árangur í tamningum. Hana
hreppti að þessu sinni Grímur
Guðmundarson frá Lundar-
brekku í Biskupstungum. Viður-
kenningu frá Félagi tamninga-
manna fyrir bestu ásetu hlaut
Höskuldur Jónsson, Akureyri, og
Eiðfaxabikarinn, fyrir góða um-
hirðu á hesti sínum, hlaut Guðni
Þór Guðmundsson, Reykjavík.
I ræðu sinni sagði skólastjóri
m.a.: „Enn í dag stendur land-
búnaöurinn frammi fyrir krefj-
andi viðfangsefnum. Erfitt tíð-
arfar undanfarinna ára og
minnkandi þjóðartekjur hafa
valdið bændum þungbærum erf-
iðleikum. Framleiðsla kjöts og
mjólkur er umfram það sem fullt
verð fæst fyrir. Aukin togstreita
milli atvinnuvega, ágreiningur
um gildismat bitnar á landbún-
aðinum og hinum dreifðu byggð-
um í æ ríkara mæli.
Við verðum að horfast í augu
við þessar staðreyndir. Við meg-
um ekki stinga höfðinu í sandinn
og vona að þetta líði hjá.
Við verðum að líta upp, horfa
fram og berjast sameinaðir. Við
eigum auðlindir og möguleika,
sem enn eru ekki nema að litlu
nýttir vítt og breitt um landið.
Landbúnaðurinn er atvinnuveg-
ur en ekki alfarið lífsform, sem
menn hafa fæðst eða hreiðrað
um sig i.
Við getum nýtt betur og hag-
kvæmar tún okkar og engi. Við
getum aukið hagkvæmni í hinum
hefðbundna búskap. Við eigum
ónýtta möguleika í loðdýrarækt,
eldi vatnadýra, garðyrkju, smá-
iðnaði, ferðamannaþjónustu svo
eitthvað sé nefnt.
Búnaðarmenntunin hefur
fylgt þróuninni eftir og bent á
nýjar leiðir. Aðsókn að búnað-
arskólanum síðustu árin sýnir
að vaxandi hópur ungs fólks trú-
ir því að þar sé verk að vinna,
þar séu möguleikar.
Hlutverk búnaðarmenntunar
er að vera í fararbroddi, styrkja
grundvöllinn, benda á leiðir,
hlúa að vaxtarbroddum.
Það ætti að vera krafa bænda-
stéttarinnar, að þeir sem koma
nýir í atvinnuveginn hafi aflað
sér tækniþekkingar og reynslu
jafnframt aukinni almennri
menntun."
Að lokinni skólaslitaathöfn-
inni í kirkjunni þáðu gestir veit-
ingar í boði skólans.
Björn í Bæ.
Fullveldishátíð ís-
lendinga í Flórída
í tilefni 40 ára afmælis íslenzka
lýðveldisins gengst íslendingafélag-
iö í Mið-Flórída fyrir fullveldishátíð
16. júní fyrir alla íslendinga og vel-
unnara landsins í Flórída.
Hátíðin fer fram á Internation-
al Inn, 6327 International Drive í
Orlando og hefst kl. 18:30. Reiknað
er með, að landar, víða að úr fylk-
inu, muni gista á hótelinu og eru
herbergi fáanleg á sérstöku verði.
Margt verður gert til að halda upp
á afmælið, en svo verður snæddur
veizlumatur og dans stiginn. Nán-
ari upplýsingar gefa Bill og Didda
Schrader, 1777 W. Chapel Drive,
Deltona, Fl. 32726; sími (904) 789-
6323.
yyy
BÚVÖRUSYNING
I REYKJAVIK
21.-30 SEPT 1984
Búvörusýning
í Reykjavík
Undirbúningur fyrir búvörusýn-
ingu í Reykjavík, sem haldin verð-
ur i nýja Mjólkursamsöluhúsinu
við Bitruháls dagana 21. til 30.
september nk. stendur nú yfir.
Sýningin verður fyrst og fremst
sölusýning á landbúnaðarafurðum
en einnig verður þar ýmislegt til
skemmtunar. Framkvæmdastjóri
sýningarinnar hefur verið ráðinn
Agnar Guðnason blaðafulltrúi
bændasamtakanna en formaður
framkvæmdanefndar er Svein-
björn Dagfinnsson ráðuneytis-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu.
Pessi með skottið!
PiMmmM
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200