Morgunblaðið - 25.05.1984, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAl 1984
29
Ráðstefna iðnrek-
enda um iðnhönnun
FÉLAG íslenzkra iAnrekenda
gekkst fyrir nokkru fyrir ráð-
stefnu um hönnun í iðnaði. Gestur
ráðstefnunnar var Knut Yran,
formaður norska iðnhönnunar-
ráðsins. Hann fjallaði um mikil-
vægi hönnunar í iðnaði og á hvem
hátt hönnun tengist rekstri og
stjórnun iðnfyrirtækja.
Alls voru flutt sjö erindi á
ráðstefnunni. Torfi Jónsson,
skólastjóri Myndlista- og
handíðaskóla íslands, fjallaði
um menntun í iðnhönnun hér-
lendis í dag og væntanlega
stofnun og starfsemi iðnhönn-
unardeildar við Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Gunnar
Magnússon, húsgagnaarkitekt
og kennari í húsgagnateiknun
við Iðnskólann í Reykjavík,
fjallaði um hönnun í húsgagna-
og innréttingaiðnaði. Birgir
Bjarnason, framkvæmdastjóri
fataverksmiðjunnar Dúks, fjall-
aði um hönnun í fataiðnaði. Elí-
as Gunnarsson, vélaverkfræð-
ingur og ráðgjafi við hönnun og
vöruþróun í málmiðnaði, fjallaði
um hönnun í málmiðnaði. Dr.
Rögnvaldur Ólafsson, eðlisfræð-
ingur, dósent við Háskóla Is-
lands, fjallaði um hönnun í raf-
tækja- og rafeindaiðnaði. Hilm-
ar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri auglýsingastofunnar Arg-
us hf., fjallaði um hönnun um-
búða. Að lokum fóru fram um-
ræður með þátttöku fyrirlesara.
Ákveðið hefur verið að gefa út
erindin sem flutt voru á ráð-
stefnunni.
Blönduós:
JC Húnabyggð dreif-
ir yeggspjaldi
gegn misnotkun á
lífrænum leysiefnum
BlönduóHi. 17. m»í.
I KVÖLD hélt byggðamálanefnd
JC Húnabyggðar fund, þar sem
kynnt var herferð, sem nefndin
stendur fyrir, gegn misnotkun líf-
rænna leysiefna.
Á þessu ári starfar JC ísland
undir kjörorðinu andóf gegn
vímuefnum og innlegg JC Húna-
byggðar er útgáfa á veggspjaldi
þar sem er að finna ráðlegg-
ingar til forráðamanna barna og
unglinga, og annarra þeirra er
kunna að koma að einstakling-
um undir áhrifum sniffefna og
lýsing á einkennum þeirra er
hafa misnotað lífræn leysiefni.
Landlæknir var byggðamála-
nefnd félagsins, sem annast
þesa útgáfu, til aðstoðar við að
semja lesmál spjaldsins en
myndskreytingu annaðist Erla
Björg Evensen. Samband ís-
lenskra samvinnufélaga, Sápu-
gerðin Frigg, Efnaverksmiðjan
Sjöfn og Olíufélagið hf. styrkja
útgáfu veggspjaldsins, sem
prentað er í 10.000 eintökum.
Nú á laugardag mun það
liggja frammi í stórmörkuðum
og nokkrum matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu og á
næstunni einnig í kaupfélögum
víðs vegar um landið og olíu-
stöðvum Esso. Því verður einnig
dreift á öll heimili í Austur-
Húnavatnssýslu og í haust verð-
ur það sent til allra grunnskóla
á landinu. Vitað er um skóla,
sem íhuga að hrinda af stað
verkefnum tengdum efni
spjaldsins.
Á fundinum var rætt um um-
fjöllun fjölmiðla á vímuefnan-
otkun og kom sú skoðun fram að
oft hefði hún neikvæð áhrif og
vekti jafnvel áhuga og vorvitni
unglinga. Þetta á ekki síst við
þegar blásin eru upp í fréttum
vandamál erlendis frá, sem
jafnvel hafa verið með öllu
óþekkt fram að því hér á landi.
Oft er hér um að ræða efni, sem
auðvelt er að nálgast og sum
hver til á hverju heimili og því
ekki óeðlilegt að ætla að börn og
unglingar fikti við þau af for-
vitni, oft til óbætanlegs tjóns.
Lögðu nefndarmenn áherslu á
að á veggspjaldinu væru engin
ákveðin efni nefnd og að texti
þess höfðaði kannski helst til
þeirra er standa fyrir utan leik-
inn og gætu rétt neytendum
hjálparhönd.
— BV.
Metsölublad á hverjum degi!
Bridge
Arnór Ragnarsson
íslandsmót í
tvímenningi
íslandsmót í tvímenningi með
þátttöku 24ra para verður
spilaður á Hótel Loftleiðum um
helgina. Spilað verður í þremur
lotum og hefst hin fyrsta kl. 13 á
laugardaginn. Keppnisformið er
barometer og verða spiluð 5 spil
milli para.
Keppnisstjóri á mótinu verður
Agnar Jörgensson og reikni-
meistari Vigfús Pálsson. í móts-
lok, þ.e.a.s. meðan beðið verður
úrslita í tvímenningnum, verða
afhent verðlaun fyrir öll mót
sem fram hafa farið á vegum
BSÍ í vetur.
Núverandi Islandsmeistarar í
tvímenningi eru Jón Baldursson
og Sævar Þorbjörnsson.
BRIDGEDEILD
SKAGFIRÐINGA
Þriðjudaginn 22. maí var spil-
að í tveim 10 para riðlum. Hæstu
skor hlutu:
A. riðill
Björn Hermannsson —
Lárus Hermannsson 124
Jóhannes Sigurjónsson —
Sveinn Þorvaldsson 118
Ólafur Guðjónsson —
Björn Sigurbjömsson 117
Sigmar Jónsson —
Vilhjálmur Einarsson 114
B. riðill
Guðrún Hinriksdóttir —
Haukur Hannesson 153
Högni Torfason —
Steingrímur Jónasson 121
Hildur Helgadóttir —
Karólína Sveinsdóttir 113
Ólöf Guðbrandsdóttir —
Sæbjörg Jónasdóttir 111
Áfram er spilað næsta þriðju-
dagskvöld í Drangey, Síðumúla
35 kl. 19.30.
Tvímenningsmót
Norðurlands vestra
34 pör tóku þátt í tvímenn-
ingsmóti Norðurlands vestra á
Siglufirði 12. maí sl. og urðu úr-
slit þessi:
Anton Sigurbjörnsson —
Bogi Sigurbjörnss., Sigluf. 314
Ásgrímur Sigurbjörnsson —
Jón Sigurbjörnss., Sigluf. 237
Sigurður Hafliðason —
Valtýr Jónass., Sigluf. 204
Guðjón Pálsson —
Viðar Jónss., Hvammst. 195
Haukur Jónsson —
Heiðar Albertss., Fljótum 126
Guðlaug Márusdóttir —
Jón K. Ólafss., Fljótum 109
Garðar Guðjónsson —
Páll Hjálmarss., Sauðárk. 97
Reynir Pálsson —
Stefán Benediktss., Fljótum 93
Einar Jónsson —
Örn Guðjónss., Hvammst. 84
Björn Þórðarson —
Jóhann Möller, Sigluf. 84
Austurlandsmót
í sveitakeppni
Austurlandsmót í bridge,
sveitakeppni, var haldið á Eski-
firði dagana 11.—13. apríl sl.
Tóku 19 sveitir, eða á milli 70 og
80 spilarar, þátt í mótinu af
svæðinu frá Hornafirði að sunn-
an og Vopnafirði að norðan.
Mótið hófst með hraðsveita-
keppni, sem jafnframt var und-
ankeppni. í fjórum efstu sætum
hraðsveitakeppninnar urðu þess-
ar sveitir:
Sv. Aðalsteins Jónssonar
Bridgefélagi Reyðarfj./Eski-
fjarðar.
Sv. Gísia Stefánssonar Bridge-
félagi Reyðarfj./Eskifjarð-
ar.
Sv. Ásgeirs Sigurðssonar
Bridgefélagi Vopnafjarðar.
Sv. Pálma Kristmannssonar
Bridgefélagi Fljótsdalshér-
aðs.
Þessar sveitir spiluðu síðan til
úrslita og varð röð þeirra þessi:
Sv. Aðalsteins Jónssonar.
Sv. Pálma Kristmannssonar.
Sv. Ásgeirs Sigurðssonar.
Sv. Gísla Stefánssonar.
I sigursveitinni spiluðu Aðal-
steinn Jónsson, Sölvi Sigurðsson,
Kristmann Jónsson, Sigurður
Helgason og Bogi Nilsson. Mótið
þótti fara vel fram undir styrkri
keppnisstjórn Björns Jónssonar,
Reyðarfirði.
Næsta Austurlandsmót í
sveitakeppni verður haldið á
Vopnafirði.
Aðalfundur Bridgesambands
Austurlands var haldið á meðan
mótið stóð yfir og var Björn
Pálsson einróma endurkjörinn
forseti sambandsins. Á fundin-
um kom fram áhugi á að taka
upp samskipti við Færeyinga og
er stefnt að því að fara í bridge-
ferð til Færeyja á komandi
sumri.
Landsbyggðarkirkjur:
Bænadags-
messur á
sunnudag
BÍLDUDALSKIRKJA: Messa nk.
sunnudag, hátíðarguðsþjónusta,
ferming kl. 14. Við messuna leikur
Gísli Bjarnason á gítar. Organisti
Hallgrímur Magnússon. Sr. Dalla
Þórðardóttir.
BLÖNDUÓSSKIRKJA: Guðsþjón-
usta nk. sunnudag kl. 11. Sókn-
arprestur.
BREIÐABÓLSTAÐAKIRKJA í
Fljótshlíð: Guðsþjónusta kl. 14 nk.
sunnudag. Sr. Bragi Friðriksson
prófastur og kór Garðakirkju
koma í heimsókn. Sr. Sváfnir
Sveinbjarnarson.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður annað kvöld,
laugardagskvöldið 26. þ.m. kl. 21
til að biðja fyrir lækningu af böli
áfengis og neyslu fíkniefna. Fjöl-
skyldan fimm og fleira fólk í Sam-
hjálp syngur og talar. ólafur Ág-
ústsson prédikar. Eftir guðsþjón-
ustuna verður kaffi í kirkjunni,
söngur og vitnisburður. Auður Eir
Vilhjálmsdóttir, sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA:
Bænadagsguðsþjónusta nk.
sunnudag kl. 11. Sr. Stefán Lár-
usson.
VÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta nk.
sunnudag kl. 14. Aðalsafnaðar-
fundur verður haldinn að guðs-
þjónustunni lokinni. Sóknar-
prestur.
-
-
Handvafningsvélar og
filma til brettapökkunar
Ódýr og örugg
RUL-LET
RUL-LET heimilisfilman
• Uppfyllir ströngustu gæöakröfur heilbrigð-
isyfirvalda í Evrópu og Bandaríkjunum
• Er því örugg til geymslu matvæla
• Er nú 33% magnmeiri, en á sama veröi og
VELJIÐ ÞAÐ BESTA MilSÍII* lll*
Heildsölubirgöir 26 55
Vegna fjölda áskorana framlengjum við
tilboðinu til laugardagsins 26. maf nk.
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verslunarinnar
OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 26.5. frá kl. 10—3 e.h.
ath, k.M. Húsgögn
Tilboðiö verður ekki endurtekið Langholtsvegur 111 — Símar 37010 — 37144 — Reykjavík.