Morgunblaðið - 19.06.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.06.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984 íslenskir þing- menn til Rúmeníu SENDINEFND íslenskra þing- manna heldur í dag, þriðjudag, áleiðis til Rúmeníu í boði rúmenska þingsins og mun heimsóknin standa dagana 20. til 27. júní. Formaður sendinefndarinnar er Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs þings, en aðrir sem fara eru Ingvar Gíslason, for- seti neðri deildar, Salóme Þor- kelsdóttir, forseti efri deildar Al- þingis, Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, og Magnús H. Magnússon, varaformaður Al- þýðuflokksins. Að því er Þorvaldur Garðar Kristjánsson tjáði Mbl. bauð Al- þingi íslendinga rúmenskum þing- mönnum til íslands árið 1973, en síðast fór íslensk þingmannanefnd til Rúmeníu árið 1970 og er hér um hefðbundnar vináttuheimsóknir að ræða. Þorvaldur sagði að gert væri ráð fyrir, að þingmennirnir hittu að máli ýmsa forystumenn Rúmena, þ.á m. forseta landsins, Ceausescu, forseta þingsins, utanríkisráð- herra og utanríkisviðskiptaráð- herra og ræddu við þá um sam- skipti iandanna og horfur í heims- málum. Fundur afrískra og norrænna ráðherra Á MIÐVIKUDAG og fimmtudag, 21. og 22. júní, verður haldinn í Stokk- hólmi fundur utanríkisráðherra Noró- urlanda og starfsbræðra þeirra í sex ríkjum í sunnanverðri Afríku þar sem rætt verður um ástandið í þessum heimshluta og aukna efnahagsaðstoð við rfkin sex. Geir Hallgrímsson, utanríkisráð- herra íslands, situr fundinn og fer hann utan í dag. Ríkin, sem um ræðir, eru Angóla, Botswana, Mósambik, Tanzanía, Zambía og Zimbabwe. Það er Lennart Bödström, utan- ríkisráðherra Svíþjóðar, sem býður til fundarins og segir hann, að þar muni norrænu ráðherrarnir sitja og hlýða á málflutning Afríkumanna. Ekki er um neina formlega dagskrá að ræða og því unnt að taka upp hvaða mál sem er. Albert féllst ekki á dómsátt Ráðherrann kom við í sýningarsalnum Háholti í Hafnarfirði í gær og skoðaði sýninguna „Saga skipanna". Við hlið hans stendur Matthías A. Mathiesen, viðskiptaráðherra og honum á hægri hönd stendur Jón Gunnarsson, forstöðumaður Sædýrasafnsins, en har.n gekk með ráðherranum um sýningarsalinn og fræddi hann um líkönin. Viðskiptaráðherra Noregs f opinberri heimsókn: Ræðir við 3 ráðherra Viðskiptaráðherra Noregs, As- björn Haugstvedt, kom hingað til lands í gær í opinbera heimsókn í boði Matthíasar Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra. Á leið frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær skoðaði ráðherr- ann varmaorkuver Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi ásamt fylgdarliði sínu og var þaðan haldið í sýningarsalinn Háholt í Hafnarfirði þar sem sýningin „Saga skipanna" var skoðuð. f dag mun ráðherrann ræða við Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra, Halldór Ás- grímsson, sjávarútvegsráðherra, og Steingrím Hermannsson, for- sætisráðherra. Ráðherrann heldur af landi brott á fimmtudagsmorguninn en áður en hann fer mun hann ræða við forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, og einn- ig mun hann fara til Vest- mannaeyja og að Gullfossi og Geysi. Flugvél hlekktist á á Bíldudal: „Ég tók ekki dómsátt þar sem dóm- arinn sagðist ekki geta tryggt það, að ég þyrfti ekki að borga sektina á nýjan leik ef ég yrði kærður aftur og mér dettur ekki í hug að sættast á það að borga 6.500 krónur reglulega," sagði Albert Guðmundsson, fjármálaráð- herra, en hann kom fyrir dómara í gær, vegna kæru fyrir að halda hund og var boðin dómsátt, sem hann hafnaði. „Dýrið er til og hefur verið það í 13 ár og verður svo lengi sem það lifir. Það er ósanngjarnt að ég þurfi að greiða sekt aftur og aftur vegna sama dýrsins. Ef ég hefði verið að skipta um hund þá skildi ég þetta. Ég get ekki litið á það sem neina sátt, ef ég hef þetta áfram yfir höfði mér og ef ég greiddi sektina vildi ég fá tryggingu fyrir því að ég væri kvittur við guð og menn vegna þessa máls,“ sagði Albert ennfremur. „Ég vildi gjarnan taka dómsátt, en það væri þá um virkilegar sættir að ræða. Dómarinn treysti sér ekki til að staðfesta það að það væri um sættir að ræða vegna þessa dýrs og þá er þetta ekki nein dómsátt. Ég er allur af vilja gerður til að taka dómsátt en það verður þá að vera það sem orðið þýðir,“ sagði Albert. Albert sagði að málið færi nú aft- ur til ríkissaksóknara til nánari ákvörðunar. Fékk á sig hnút og lenti í niðurstreymi Flugvél frá Flugfélagi Norður- lands með 7 manns innanborðs hlekktist á á Bíldudalsflugvelli í gærmorgun. Fékk vélin á sig hnút og lenti í niðurstreymi er hún kom yfír Nýnorskan blómstrar í meðförum Ödegaards“ Osló, 18. júní. Frá fréturiura Mbl. Jan Erik Laure. KNUT Ödegaard, nýráðinn for- stjóri Norræna hússins í Reykja- vík, voru í gær afíient hin virðu- legu Bastian-þýðingaverðlaun fyrir þýðingu sína á bókinni „Fljótt, fljótt, sagði fuglinn", eftir Thor Vilhjálmsson. Við afhendingu verðlaunanna var lögð sérstök áhersla á frábært vald Ödegaards á málinu, en hann skrifar á ný- norsku. Þýðingin á bók Thors Vil- hjálmssonar kom út í Noregi í fyrra undir nafninu „Fort, fort, sa fuglen". Verðlaunin fékk Knut Ödegaard í samkeppni við 23 aðra þýðendur. „Nýnorskan blómstrar í með- förum hans. Málið, sem hann beitir, er safaríkt og kraftmikið og hann nýtir sér uppsprettur tungunnar af miklu listfengi," sagði m.a. i áliti dómnefndar norska þýðendasambandsins. í þakkarræðu sinni sagði Öde- gaard m.a. að í bókinni „Fljótt, Fljótt, sagði fuglinn" yrðu tungu- Símamynd/NTB. Knut Ödegaard með Bastian-verðlaunin, sem veitt eru fyrir beztu þýð- ingu í Noregi ár hvert. tak og söguþráður ekki aðskilin. „Að miklum hluta er málið og beiting þess sjálfur söguþráður- inn og í því hefur falist helsta ögrunin við þýðingu þessarar bókar, sem ég hófst handa við fyrir mörgum árurn," sagði öde- gaard og lýsti yfir ánægju sinni og þakklæti vegna verðlaun- anna. fíugbrautarendann til lendingar að sögn fíugmannsins og rakst þá vinstra hjól hennar niður og laskað- ist. Rann fíugvélin síðan 200 metra eftir flaugbrautinni og skemmdist nokkuð en engan um borð sakaði. Flugvélin, sem ber einkennis- stafina TF-JMG, var í beinu leigu- flugi frá Akureyri til Bíldudals með sex iðnaðarmenn frá Akur- eyri. Heldur leiðinlegt veður var á leiðinni. Stakk hún sér niður í Patreksfjörð, flaug út fyrir nesið á milli fjarðanna og inn Arnarfjörð til Bíldudals. ókyrrð var inn fjörð- inn og gengu dimmir rigningar- skúrir yfir að sögn flugmannsins, Baldurs Þorsteinssonar. Þegar vélin kom inn til lendingar á Bíldudalsflugvelli og var komin alveg að brautarendanum fékk hún á sig hnút og lenti í niður- streymi, er rigningarskúr gekk yf- ir, með þeim afleiðingum að hún lenti fyrr en flugmaðurinn ætlaði. Þrem til fimm metrum frá braut- arendanum er þverhníptur bakki, og lenti hún með vinstra lend- ingarhjólið á honum, þannig að það lagðist aftur. Skrúfan vinstra megin fór strax í jörðu og vængur- inn skömmu síðar en flugmannin- um tókst með bremsum og beygj- um að halda henni á flug- brautinni, en eftir henni rann vél- in um 200 metra. Er hún stöðvað- ist var hún nokkurn veginn í réttri stefnu en út við brautarjaðarinn, skrokkurinn 3 til 5 metra inni á brautinni en vinstri vængurinn stóð þrjá metra út fyrir brautina. „Þetta var mikill skellur," sagði einn farþeganna, Gunnar Berg yngri á Akureyri i samtali við blm. Morgunblaðsins. „Þetta var búið að vera slæmt inn fjörðinn en við gerðum okkur ekki grein fyrir neinu fyrr en flugstjórinn brems- aði mjög snöggt, því vélin datt ekki straks niður á vænginn. En þetta fór allt vel og kom í sjálfu sér ekkert við okkur.“ Flugvélin er mikið skemmd. Stél, skrúfa og vinstri vængur er skemmt auk hjólsins, en búkurinn virðist óskemmdur. Vélin var ekki flutt frá Bíldudal í gær en það er í ákvörðunarvaldi tryggingarfélags vélarinnar hvað gert verður við hana. TF-JMG er tvegggja hreyfla vél, af Piper Chieftain-gerð. Þetta eru tíu mann vél sem Flugvélag Norðurlands keypti frá Bretlandi fyrir tæpum tveimur mánuðum í stað „Rauðku", sem hlekktist á á ólafsfjarðarflugvelli í vetur. Fundir í læknishéruöum FJÓRIK fundir um heilbrigðis- og tryggingamál, sem Matthías Bjarna- son, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra gengst fyrir í læknishéruðum landsins, hafa þegar verið haldnir á Vestfjörðum og Vesturlandi. Næstu fundir eru fyrirhugaðir á Norðuriandi vestra, miðvikudaginn 20. júnf á Sauðárkróki í Safnahúsinu og fimmtudaginn 21. júní á Blöndu- ósi í Félagsheimilinu. Auk ráðherra verða framsögu- menn á þessum fundum Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri, sem ræðir um sjúkrahússmál, Guðmundur Þor- geirsson, læknir, sem talar um hjartarannsóknir og hjartasjúk- dóma og Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri, sem ræðir um heilsu- gæslumál og málefni aldraðra. I Reykjaneslæknishéraði eru svc fyrirhugaðir fundir í Keflavík 25 júní og í Hafnarfirði 26. júní og í Suðurlandslæknishéraði eru fundit fyrirhugaðir á Selfossi 27. júní og I Vestmannaeyjum 28. júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.