Morgunblaðið - 19.06.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
Grænfriðungar um hvalveiðamar:
Leyniáætlun um
að brjóta bannið
<)sló 18. júní. Frá frétUriUra Mbl.,
Jan Krik Lauré.
Alþjóðahvalveiðiráðið kom saman
í Buenos Aires í Argentínu á mánu-
dag til að ákveða veiðikvótann fyrir
árið 1985.
Vísindamenn halda því fram að
svo lítið sé vitað um hvalinn að
Verkfall málmiönaðar-
manna í Vestur-Þýskalandi:
Deilt um
skipan sátta-
semjara
Stuttgart, 18. júní. AP.
SÁTTANEFND sú, sem samtök
vinnuveitenda og málmiðnaðar-
manna í Vestur-Þýskalandi hafa orð-
ið ásalt um að koma á fót til að
reyna að binda enda á vinnudeiluna,
sem leitt hefur til þess að 400 þús-
und starfsmenn í bifreiðaiðnaði eru í
verkfalli, hefur enn ekki komið sam-
an þar sem ágreiningur er um skip-
an hennar.
Gert er ráð fyrir því að hvor aðili
um sig skipi þrjá menn í nefndina,
þar af einn með atkvæðisrétt, en
sáttasemjari komi frá hlutlausum
aðila. Vinnuveitendur stungu upp á
því að Bernd Ruethers, sem er lög-
fræðingur og sérfræðingur í vinnu-
rétti, yrði sáttasemjari en samtök
málmiðnaðarmanna höfnuðu því og
leggja í staðinn til, að Georg Leber,
fyrrum varnarmálaráðherra, verði
fenginn til starfans. Er talið að
vinnuveitendur faliist á það ef á
móti verður gengið að því, að
atkvæðagreiðsla í nefndinni verði
leynileg.
Verkfall starfsmanna I bifreiða-
iðnaði hefur nú staðiö á sjöttu viku
og lamað að heita má alla bifreiða-
framleiðslu í landinu. Verkfalls-
menn gera kröfu til þess, að vinnu-
vikan verði stytt um fimm stundir,
úr 40 í 35, án launalækkunar, en
vinnuveitendur telja þá kröfu óað-
gengilega.
nauðsynlegt reynist að minnka
verulega veiðikvótann.
Á sama tíma héldu Grænfrið-
ungar því fram að nokkrar þjóðir
hafi hug á að taka ekki þátt í
fimm ára hvalveiðibanninu sem
taka á gildi 1986.
Samtökin segja að Bandaríkin
og fleiri Vestur-Evrópulönd þjóðir
hafi gert leyniáætlanir um áfram-
haldandi veiðar eftir 1986.
Eins og kunnugt er, samþykkti
hvalveiðiráðið árið 1982, að banna
allar hvalveiðar í fimm ár frá 1986
en sú ákvörðun mætti miklum
mótmælum hjá þremur stærstu
hvalveiðiþjóðunum, Noregi, Japan
og Sovétríkjunum.
Grænfriðungar halda því fram
að leyniáætlun Bandaríkjanna og
•Vestur-Evrópulandanna feli í sér
málamiðlun við þær þjóðir sem
samþykktu bannið. Samkvæmt
áætluninni skulu þeir bæir og
þorp sem byggja afkomu sína á
hvalveiðum, vera undanskilin
banninu. Einnig yrði mikilvægt
skilyrði að eigandi og útgerðar-
maður bátanna sé einn og sami
maðurinn.
Ólympíuleikar fatlaðra
Reag;
iil 01
son kyndil Ölympíuleika fatlaðra, en hún flutti hann
síðasta spölinn til íþróttavallarins á Long Island í New
York þar sem leikarnir hófust síðdegis á sunnudag.
Ný landstjóm í Grænlandi:
Vill endurheimta veiði-
heimildirnar frá E6E
(iodthaah, (irrnlandi, 18. júní. Frá frótlaritara Morgunhlaö.sins, NJ. Bruun.
VINSTRI flokkarnir tveir í Grænlandi kunngerðu í dag sameiginlega stefnu-
skrá sína fyrir næsta kjörtímabil. Flokkarnir tveir, Siumut og Inuit Ataqat-
igiit, hafa náð samkomulagi um stjórnarsamstarf og verður Jonathan Motz-
feldt úr Siumut-flokknum forsætisráðherra. Flokkur hans fær þar að auki
fjögur önnur ráðherraembætti í landsstjórninni en Inuit-flokkurinn tvö.
Atassut-flokkurinn, sem hlaut Siumut í þingkosningunum 6. júní,
aðeins 98 atkvæðum minna en verður í stjórnarandstöðu. I
stefnuskrá stjórnarflokkanna
tveggja segir, að þeir séu m.a.
sammála um, að allt kapp skuli
lagt á, aö Grænlendingar geti sem
fyrst neytt þeirra veiðiheimilda
sjálfir, sem nú hafa verið seldar
aðildarlöndum Efnahagsbanda-
Kosningarnar til Evrópuþingsins:
Stjórnarandstaðan
vann alls staðar á
BrusNfl, IH. juní. AP.
Stjórnarflokkarnir í Frakklandi,
Vestur-Þýzkalandi og Bretlandi
biðu allir verulegan hnekki í kosn-
ingunum til nýs þings Kfnahags-
bandalags Evrópu. Jafnaðar-
mannaflokkur Francois Mitter-
rands Frakklandsforseta missti
fylgi og franskir kommúnistar enn
meira. Fengu þeir síðarnefndu að-
eins 11 % atkvæða nú á móti 20,5%
í kosningunum 1979 en jafnaðar-
menn 21% á móti 23,5% áður.
Helztu stjórnarandstöðuflokkarnir
hlutu til samans 43% atkvæða og
flokkur öfgamanna til hægri fékk
11%. Hefur gengi þeirra síðast-
nefndu í kosningunum nú komið
mjög á óvart.
I Bretlandi vann Verka-
mannaflokkurinn mikið á og
fékk 32 þingsæti í stað 16 áður.
íhaldsflokkurinn tapaði 16 þing-
sætum og fær nú 44 á móti 60
áður. Bretland hefur eins og
Frakkland og Vestur-Þýzkaland
81 þingsæti á Evrópuþinginu.
I Vestur-Þýzkalandi fékk
flokkur græningjanna svonefndu
fulltrúa kjörinn á Evrópuþingið
í fyrsta sinn, en þeir fengu 8,2%
atkvæða og 11 þingsæti nú.
Frjálsir demókratar, sem aðild
eiga að stjórn Helmut Kohls
kanslara, fengu aftur á móti ekki
nægilegan fjölda atkvæða til
þess að fá mann kjörinn og falla
því út af Evrópuþinginu. Er
þetta talinn talsverður hnekkir
fyrir stjórnina í Bonn. Kristi-
legir demókratar töpuðu hins
vegar ekki nema einum manni
og fá 41 þingsæti eða einu færra
en þeir höfðu áður. Fengu þeir
46,5% nú, sem er 3,2% minna
fylgi en í kosningunum 1979.
Jafnaðarmenn fengu 37,4% og
töpuðu þannig 2,4% og tveimur
þingsætum.
A Ítalíu fengu kommúnistar
34% atkvæða en kristilegir
demókratar ekki nema 33%. Fá
báðir flokkarnir nú 27 þingsæti.
Talið er, að kommúnistar hafi
fengið mörg atkvæði vegna
þeirrar samúðaröldu, sem reis
vegna fráfalls Enrico Berlingu-
ers, leiðtoga þeirra, í síðustu
viku. Jafnaðarmannaflokkurinn,
flokkur Bettino Craxis forsæt-
isráðherra, fékk 11,2% atkvæða,
en alls töpuðu flokkarnir fimm,
sem aðild eiga að ítölsku stjórn-
inni 2,6% atkvæða miðað við úr-
slit þingkosninganna þar í landi
í fyrra. Voru það fyrst og fremst
þrír minnstu stjórnarflokkarnir,
sem töpuðu fylgi nú.
Kosningarnar voru að því leyti
öðru vísi í Danmörku en annars
staðar, að þar var þátttaka meir
m •i
\ * -j •J : *• ♦
I^X ». > fr 4 ' M ■ , '<*' * * " V _ '■ * ',4 / •• “7' ■ ’ . c:.í\j " % **. •• ** •» % *\ *•.
Þing Efnahagsbandalagsins í Strasbourg.
nú en i kosningunum 1979 eða
51,8% í stað 48,7%. íhalds-
flokkurinn, flokkur Poul Schlút-
ers forsætisráðherra, vann veru-
lega á en á kostnað hinna borg-
araflokkanna. Sósíalski þjóðar-
flokkurinn (SF), sem er andvígur
aðild Danmerkur að Efnahags-
bandalaginu, vann einnig mikið
á og fékk nær helmingi fleiri at-
kvæði en í síðustu kosningum.
Kosið var um 434 fulltrúa í að-
ildarríkjunum tíu og var kosið í
fjórum þeirra á fimmtudag en í
sex á sunnudag. Þar sem kjós-
endum gafst ekki tækifæri til
þess að kjósa frambjóðendur í
öðrum löndum en sínu eigin og
sökum hins takmarkaða valds,
sem Evrópuþingið hefur, hefur
fyrst og fremst verið litið á þess-
ar kosningar sem atkvæða-
greiðslu um stefnu stjórnarinn-
ar í hverju aðildarlandi EBE út
af fyrir sig. Kosningaþátttakan
var víða dræm og sagði Gaston
Thorn, forseti framkvæmdaráðs
EBE, það valda sárum vonbrigð-
um.
Eftir kosningarnar nú er
skipting þingsæta á Evrópuþing-
inu þessi: Jafnaðarmenn hafa
131 þingsæti og hafa unnið 7,
kommúnistar hafa 42 þingsæti
og töpuðu 6, græningjar hafa 11
þingsæti, en höfðu ekkert áður,
kristilegir demókratar hafa 109
og töpuðu 8, óháðir hafa 11 og
töpuðu 7, aðrir hægri flokkar og
frjálslyndir hafa 109 og töpuðu
14. Loks hafa flokkar yzt til
hægri nú 16 þingsæti en höfðu 12
áður.
lagsins fyrir 216 millj. d.kr. Skip-
um EBE verði ekki leyft að veiða
lengur við Grænland en þau fimm
ár, sem samið hefur verið um.
f stefnuskránni segir ennfrem-
ur, að með tilliti til hugsanlegrar
olíuvinnslu á Austur-Grænlandi
séu flokkarnir tveir sammála um,
að hagsmunir Grænlendinga skuli
hafðir í fyrirrúmi við vinnslu og
hagnýtingu oltunnar.
Deilur í Svíþjóð um
útflutning vopna:
Ný þingnefnd
til að fylgjast
með vopnasölu
Stokkhólmi, 18. júní. Frá Erik Liden,
fréttaritara Mbl.
SVÍAR hyggjast herða eftirlit með
útflutningi vopna, sem framleidd eru
í landinu, í kjölfar uppljóstrunar um
leynilega vopnasölu stærsta vopna-
framleiðanda landsins, fyrirtækisins
Bofors, til Singapore og þriggja ríkja
í Austurlöndum nær.
Mats Helleström, ráðherra sá
sem fer með utanríkisviðskipti í
sænsku stjórninni, greindi frá þvf
á blaðamannafundi í dag, að fyrir-
hugað væri að koma á fót sér-
stakri eftirlitsnefnd með útflutn-
ingi vopna, sem sex þingmenn
ættu sæti i og kæmi saman einu
sinni í mánuði.
Rannsókn fer nú fram á hinni
leynilegu vopnasölu Bofors og hef-
ur málið vakið miklar og heitar
deilur í Svíþjóð. Uppljóstrunin
þykir vatn á myllu friðarhreyf-
inga í landinu, en um starfsað-
ferðir þeirra í þessu máli hefur
einnig verið deilt. T.d. hefur það
uppátæki, að senda dreifirit til
starfsmanna Bofors með teikn-
ingu þar sem þeir eru sýndir með
blóðugar hendur að framleiða
vopn, sætt mikilli gagnrýni.