Morgunblaðið - 19.06.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
21
John Turner, hinn nýi leiðtogi Frjáls-
lynda flokksins f Kanada:
Miðjumaður í
stjórnmálum
Ottawa, 18. júní. AP.
JOHN Turner, hinn nýi leiðtogi
Frjálsljnda flokksins í Kanada, tek-
ur væntanlega við embætti forsæt-
isráðherra af Pierre Elliott Trudeau,
innan tveggja vikna og er búist við
því, að hann geri þá þegar verulegar
breytingar á ríkisstjórninni.
Turner, sem er 55 ára að aldri,
kvæntur og fjögurra barna faðir,
er í hópi reyndustu stjórnmála-
manna frjálslyndra í Kanada.
Hann er fæddur í Richmond á
Englandi, sonur bresks blaða-
manns og kanadísks hagfræðings.
Faðir hans féll frá er Turner var
barn að aldri og flúttist hann þá
með móður sinni til Ottawa í
Kanada. Hann stundaði lögfræði-
nám við háskólann í British Col-
umbia og framhaldsnám í Oxford
á Englandi og Sorbonne í París.
Að námi loknu hóf Turner störf
á lögfræðistofu í Montreal og hóf
þá afskipti af stjórnmálum. Hann
var kjörinn á þing 1962 og varð
innan skamms ráðherra í ríkis-
stjórn Lesters Pearson. Þegar
Pearson lét af formennsku í
Frjálslynda flokknum árið 1968
kepptu þeir Turner og Trudeau um
embætti hans og bar hinn síðar-
nefndi sigur úr býtum. Trudeau
varð þá jafnframt forsætisráðh-
erra og fól Turner að gegna emb-
ætti dómsmálaráðherra og síðar
fjármálaráðherra.
Turner sagði af sér embætti ár-
ið 1975 og er talið að ástæðan hafi
verið hvort tveggja, persónulegur
ágreiningur við Trudeau og skoð-
anamunur þeirra um stefnu í
efnahagsmálum. Hann sneri sér
þá að lögfræðistörfum á ný um
hríð og vann m.a. að samning-
agerð fyrir stórfyrirtæki og ýmiss
konar kaupsýslu.
John Turner segist miðjumaður
1 stjórnmálum. „Ég er mikill
stuðningsmaður einkaframtaks,"
er eftir honum haft, „en um leið er
ég hlynntur blönduðu hagkerfi og
félagslegri aðstoð." Turner hefur
heitið því að reyna að draga úr
fjárlagahalla ríkisins, en segist
ekki vilja að niðurskurður ríkis-
útgjalda bitni á þjóðfélagshópum
sem búa við lökust efnaleg kjör.
Hann er náinn vinur George P.
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, og er talið að kjör hans í
formannsembætti, sem leiða mun
hann í stól forsætisráðherra, muni
auka og bæta samskipti stjórn-
valda í Bandaríkjunum og
Kanada.
Arsskýrsla Alþjóðlegs þjónustubanka seðlabanka:
Efnahagsstefna
Reagans sætir
mikilli gagnrf ni
Basel, Sviss, 18. júní. AP.
HINN alþjóðlegi þjónustubanki seðla-
banka heims, BIS, sem aðsetur hefur í
Basel í Sviss, hefur hvatt Bandaríkja-
stjórn til að lækka hallann á fjárlögum
ríkisins, þar eð hann leiði til vaxta-
hækkunar og stefni efnahagsbata al-
þjóðlegs markaðskerfis í voða. Þetta
kemur fram í ársskýrslu bankans, sem
gefin var út í dag.
1 skýrslunni er viðurkennt, að
Bandaríkin séu í forystu fyrir við-
reisn efnahagslifs í iðnríkjunum, en
tekið fram að vandamál skuldugra
þjóða séu alvarlegs eðlis og aukinn
halli á bandarískum fjárlögum geti
leitt til hækkunar vaxta á lánum tii
þjóða, sem þegar eigi í miklum erfið-
leikum vegna skulda sinna.
Höfundar skýrslunnar neita að
fallast á þá staðhæfingu taismanna
Bandaríkjastjórnar, að fjárlagahall-
inn sé ekki höfuðorsök hárra vaxta í
Bandaríkjunum. Þeir segja að ef
ekki verði tekið í taumana innan tíð-
ar geti hin ranga stefna Bandaríkja-
manna skekið efnahagskerfi heims-
ins.
Afganistan:
Fjöldamorð Rússa
Peshawar, 18. júní. AP.
HÁTTSETTUR foringi afganskra and-
spvrnumanna hefur ásakað Rússa fyrir
fjöldamorð í Afganistan. Heldur hann
því fram, að í árásum fyrir skömmu á
borg í vesturhluta landsins hafi Rússar
drcpið 1000 manns á tveimur vikum.
Það var Burhanuddin Rabbani,
einn helzti forystumaður Jamiat-I-
Islami, öflugustu andspyrnuhreyf-
ingarinnar í Afganistan, sem skýrði
frá þessu á fundi með fréttamönnum
í Peshawar í Pakistan á laugardag.
Þar viðurkenndi hann jafnframt, að
frelsisveitirnar hefðu farið halloka
fyrir Rússum að undanförnu og lýsti
síðustu árás þeirra á borgina Herat í
grennd við írönsku landamærin sem
„hrottalegri".
„Eftir að Chernenko komst til
valda, hafa Rússar hert á ofbeldis-
verkum sínum í Afganistan," sagði
Rabbani.
Fcr&atæki
« !*
. I 1 JS A
GF5454. 2x4, 8W, AC/DC, FM stereo,
SW/MW/LW. Sjálfvirkur lagaleitari.
Verð kr. 8.135,00 stg.
QT37 með lausum hátölurum. 2x6W, AC/DC
FM stereo, SW/MW/LW. Sjálfvirkur lagaleit-
ari. „Metair „Dolby". Faest í 4 litum.
Verð kr. 11.295,00 stg.
GF4747. 2x3, 4W, AC/DC, FM stereo,
SW/MW/LW. Sjálfvirkur lagaleitari
„Metall“ Verö kr. 6.130,00 stg.
Beint í mark!!
% m m m •**»%
4m ___
QT12 straumlínulagað, létt og meðfæranlegt
stereo ferðatæki. Fæst í 4 litum. 2x4, 4W,
AC/DC, FM stereo, LW/MW/SW. Þyngd aö-
eins 2 kg. Verð kr. 7.495,00 stg.
GF4949. 2x4, 8W, AC/DC, FM stereo,
SW/MW/LW. Sjálfvirkur lagaleitari.
Verð kr. 6.600,00 stg.
HUÐMBÆR
HLJOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103 SlMAR 25999 & 17244
*
Gódan daginn!
Iceland Review
Við eigum okkur trygga lesendur í Japan, Venezúela,
Kenýa og 50 öðrum þjóðlöndum víða um heim. Eru vinir
þínir meðal þeirra?
Sendu þeim gjafaáskrift aö lceland Review. Hún kostar
aðeins 695 krónur og gildir einu hver áfangastaöurinn er.
Sendingarkostnaöur er innifalinn.
Ef þú kaupir nýja gjafaáskrift á árinu 1984 færðu allan
árganginn 1983 á vildarkjörum, aðeins 200 krónum ásamt
buröargjaldi til útlanda.
Hvert nýtt hefti af lceland Review er vinargreiði sem treystir
tengslin. Næsta blaö er á leiðinni, hringdu eöa skrifaöu
okkur strax í dag.
ICELAND REVIEW, SÍMI 84966, HÖFÐABAKKA 9,110 REYKJAVÍK