Morgunblaðið - 19.06.1984, Page 45
■é* > \*"-j
1 ~ptt . (M
«T2ií
Bp *h
íra
« IfcíjSÍw
EVROPUKEPPNIN I KNATTSPYRNU:
Stórir sigrar
Dana og Frakka
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
Sjá nánar 24 og 25
Glæsilegur árangur Torfa Olafssonar lyftingamanns:
Fjögur heimsmet
í unglingaflokki
Slæm
hegðun
TÓLF áhangendur enska lands-
liösins í knattspyrnu sem fylgdu
liöi sínu til Chile á dögunum
gerðu mikinn óskunda þar. Þeir
gengu um meö merki nasista og
iétu öllum illum látum. Máliö var
tekið fyrir í breska þínginu og var
lagt til aö tafarlaust yröi komist
aö því hverjir þetta voru og þeir
hínir sömu settir í ævilangt bann
á knattspyrnuvöllum Englands.
„Forsætisráöherrann hlýtur aö
vera oröin hundleiö á aö biöjast
afsökunar í hverju landinu á fætur
ööru vegna hegðunar knattspyrnu-
áhugafólks,“ sagöi Tom Pendry,
einn af þingmönnum stjórnar-
andstööunnar. Þess má geta aö
tveir leikmenn Englands í þessari
ferö voru svertingjar en þrátt fyrir
þaö lýstu tólfmenningarnir sig
fylgjandi stefnu stjórnvalda í Chile.
• Torfi Ólafsson
TORFI Ólafsson, lyftingamaöur
úr KR, var heldur betur í sviðs-
Ijósinu á Noröurlandamóti ungl-
ina í kraftlyftingum, sem fram
fór í Járfalla í nágrenni Stokk-
hólms um helgina. Torfi geröi
sér lítið fyrir og setti hvorki
fleiri né færri en fjögur heims-
met unglinga í +125 kílógr.
flokki. Hann setti heimsmet í
öllum lyftunum, hnébeygju,
bekkpressu, réttstööulyftu og
svo að sjálfsögöu í samanlögöu.
Glæsilegur árangur hjá Torfa.
i hnébeygju lyfti Torfi 290 kíló-
um, 135 kílóum í bekkpressu og
320 kílóum í réttstööulyftu. Sam-
anlagt gerir þetta 745 kílógrömm
og fjórfalt heimsmet.
Annar islendingur var á þessu
móti og stóö hann sig einnig af
stakri prýöi. Hjalti Árnason, fé-
lagi Torfa úr KR, varö annar í
sínum þyngdarflokki, 125 kólóa-
flokknum. Hann lyfti 275 kílóum í
hnébeygju, 160 kílóum í bekk-
pressu og 300 kílóum í réttstööu-
lyftu. Samtals 735 kíló.
Á mótinu um helgina voru sett
fimm heimsmet og þar af áttum
viö íslendingar fjögur. Aldeilis
frábær árangur hjá keppendum
okkar, sem voru aðeins tveir.
Samanlagt fengu þeir 21 stig út
úr stigakeppninni en Svíar sigr-
uöu meö 99 stig. I ööru sæti uröu
Finnar meö 85 stig þá Norömenn
meö 80 stig en þessar þjóöir
sendu fullskipaö liö í keppnina,
um 20 keppendur hver þjóö.
— sus.
sigur Piquet
Fyrsti
HEIMSMEISTARINN í Formula I
kappakstri, Nelson Piquet, vann
sinn fyrsta sigur á þessu keppn-
istímabili þegar hann geystist
fyrstur í mark í Grand Prix-
kappakstrinum í Kanada um
helgina. Piquet skaust framúr
Niki Lauda viö endamarkiö og
tryggöi sér þar meö sigur.
Piquet hefur átt í miklum erfiö-
leikum í þeim mótum sem hann
hefur tekiö þátt í í sumar. Sex
sinnum hefur hann brætt úr vél
bílsins en nú viröist hann hafa náö
tökum á vandamálinu og því veröa
þeir félagar Prost og Lauda aö
vara sig á honum. Olíklegt veröur
þó aó teljast aó hann nái þeim aó
stigum í heimsbikarkeppninni því
hann hefur aöeins 9 stig en Prost,
sem enn hefur forystuna, hefur
hlotiö 32,5 stig.
Úrslit keppninnar í Kanada varö
þannig aö Nelson Piquet frá Bras-
ilíu sigraöi, Niki Lauda frá Austur-
ríki varö annar og félagi hans Alain
Prost hafnaði í þriöja sæti en þeir
hafa veriö mjög sigursælir í sumar.
italinn Elio De Angelis varö fjóröi
og Rene Arnoux fimmti.
Staöan í keppninni um heims-
meistaratitilinn er nú þessi:
stig
Alain Prost Frakklandi 32,5
Niki Lauda Austurríki 24,0
Rene Arnoux Frakklandi 16,5
De Angelis Ítalíu 15,5
Derek Warwick 13,0
Keke Rosberg Finnlandi 11,0
• Nelson Piquet, núverandi
heimsmeistari í Formula I kapp-
akstri, vann sinn fyrsta sigur á
keppnistímabilinu nú um helgina.
100. sigur
Ed Moses
EDWIN Moses vann sinn eitt-
hundraöasta sigur í röö á
hlaupabrautinní um helgina
þegar hann sigraöi í 400 metra
grindahlaupi á Ólympíubraut-
inni í Los Angeles. Moses,
sem hefur ekki tapaö 400 m
grindahlaupi síöan 26. ágúst
áriö 1977, hljóp vegalengdina
að þessu sinni á 48.83 sek. og
tryggöi sér þar með sæti í
undanúrslitum móstsins. Sig-
urganga hans er meöal þeirra
glæsilegustu sem þekkjast í
frjálsíþróttum fyrr og síöar.
Barton rekinn
Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaó«»ns é Englandi.
Hareide ekki með
AGE Hareide, norski varnarmaö-
urinn sterki, sem lék meö Nor-
wich í Englandi — en leikur nú
meö Molde í Noregi — kemur
ekki hingaö til lands meö norska
landsliðinu í leikinn gegn íslandi
á morgun, skv. upplýsingum,
sem Morgunblaöiö fékk frá Nor-
egi í gær. Fjarvera Hareide, sem
er meiddur, veikir norsku vörnina
HEIL umferð var leikinn í 2. deild
í knattspyrnu á laugardaginn og
uröu úrslit þau að FH vann
Skallagrím í Borgarnesi, 1—0, og
var þaö Pálmi Jónsson, sem
skoraði eina mark ieiksins á 80.
mínútu. Hafnfiröingarnir voru
heppnir aö fá öll stigin úr þessari
viöureign því Skallagrímsmenn
sóttu mun meira í leiknum.
Kosta-Boda
golfkeppnin
KOSTA-Boda opna kvennamótiö
í golfi veröur haldiö á Hólmsvelli í
Leiru, fimmtudaginn 21. júní, en
ekki 7. júlí eins og segir í kapp-
leikjaskrá.
Mótiö hefst kl. 16:00.
Ræst verður út til kl. 18:30.
(Frá Golfklúbbi Suðurnesja)
• Tony Barton
Völsungur frá Húsavík sótti þrjú
stig til Vestmannaeyja og var sá
sigur langt frá því aö vera í sam-
ræmi við gang leiksins. Úrslit leiks-
ins uröu 1—2 Húsvíkingum í vil og
eru þeir nú í ööru sæti deildarinn-
ar, næstir á eftir FH. Lúövík Berg-
vinsson kom heimamönnum yfir á
20. mín. en tæplega tíu mínútum
síöar var dæmd mjög vafasöm
vítaspyrna á ÍBV sem Helgi Helga-
son skoraöi úr. Staöan 1 — 1 í hálf-
leik. Olgeir Sigurösson tryggöi
Völsungum sigur meö marki sem
hann skoraöi beint úr hornspyrnu
á 69. mínútu.
Víöir og ÍBÍ geröu jafntefli, 2—2,
í Garðinum. Kristinn Kristjánsson
kom ísfiröingum yfir strax á 13.
mín. meö fallegu skallamarki. Guö-
jón Guömundsson jafnaöi fyrir
heimamenn skömmu síöar úr víta-
spyrnu en Guömundur Knútsson
TONY Barton, framkvæmdastjóri
Aston Villa, var rekinn frá félag-
inu um kaffileytiö í gær. Þar meö
losnaöi ein besta framkvæmda-
stjórastaöan og veröa örugglega
margir sem sækjast eftir henni.
„Ég hélt aö ég væri aö fara á
ósköp venjulegan stjórnarfund —
í 2. deild
kom heimamönnum yfir. Þaö var
Guðmundur Jóhannsson sem
tryggöi ÍBÍ annaö stigiö á síöustu
stundu, jafnaöi á 88. mínútu.
Jafntefli, 1 — 1, varö á Siglufiröi í
leik KS og UMFN. Þaö var Haukur
Jóhannsson sem kom Njarövíking-
um yfir í síöari hálfleik en Höröur
Júlíusson jafnaöi fyrir KS en hann
haföi komið inn á í síðari hálfleik
sem varamaöur.
Einherji tapaöi fyrir Tindastól
þegar liöin mættust á Vopnafiröi.
Úrslitin uröu .1—4 og skoruöu
Tindastólsmenn þrjú mörk á síö-
ustu mínútum leiksins. Heima-
menn komust yfir, 1—0, á 15. mín.
meö marki Kristjáns Davíössonar
en Sigfinnur Sigurjónsson jafnaöi
eins og skot. Þannig var staöan
þar til um fimm mín. voru eftir þá
komu þrjú mörk. Sigfinnur skoraöi
tvö til viöbótar og loks Elvar Grét-
arsson.
eg er vægast sagt sjokkeraöur,"
sagöi Barton viö blaöamenn eftir
aö stjórnarfundi Villa lauk, en þar
var honum tilkynnt ákvöröun
stjórnar félagsins. Barton hefur
veriö valtur í sessi undanfariö. Villa
gekk ekki sérlega vel í vetur —
hafnaöi reyndar í 10. sæti 1. deild-
arinnar og komst í undanúrslit
mjólkurbikarins. „Gordon Cowans
var meiddur allt keppnistímabiliö
og Gary Shaw átti viö meiösli aö
stríöa í langan tíma,“ sagöi Barton
í gær er hann rakti raunir sínar
meö liðið í vetur og útskýröi sínar
ástæöur fyrir gengi þess. — SH
Nafn Bjarna Sveinbjörnssonar,
Þór, Akureyri, datt einhverra
hluta vegna út úr einkunnagjöf-
inni á laugardaginn eftir leik Þórs
og ÍBK. Bjarni fékk einkunnina 6.
JACK Charlton hefur veriö ráðinn
framkvæmdastjóri Newcastle
United. Charlton hefur veriö í fríi
frá knattspyrnu í heilt ár — síöan
hann hætti hjá Sheffield Wednes-
day.
Staöa framkvæmdastjóra hjá
Newcastle er ein sú besta á Eng-
Staðan
STAÐAN í fyrstu deildinni í
knattspyrnu er nú þessi:
ÍA 7 5 11 12—4 16
ÍBK 7 4 3 0 7—3 15
Þróttur 7 2 4 1 9—6 10
Víkingur 7 2 4 1 11—10 10
KA 7 2 3 2 11—11 9
Fram 7 2 1 4 8—10 7
Þór 7 2 1 4 7—11 7
UBK 7 1 3 3 5—7 6
Valur 7 1 3 3 4—6 6
KR 7 1 3 3 7—13 6
Nú veröur stutt hlé á 1.
deildar keppninni vegna
landsleiks fslands og Noregs
á morgun en næsti leikur í
deíldinni er á föstudaginn. KA
og UBK leika þá á Akureyri.
Sjá nánar um leiki helgarinnar
á bls. 24, 25 og 26.
landi — félagið er meö þeim auö-
ugri í landinu. Charlton sagöist
vera „kominn heim“, er hann fékk
þessa stööu. „Þetta var ekki erfiö
ákvöröun", sagöi hann. Hann er
frá Tyneside og Newcastle var
„hans liö“ í æsku.
mikið. — SH.
FH-ingar enn efstir
Charlton til Newcastle
Fré Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaösins í Englandi.