Morgunblaðið - 19.06.1984, Qupperneq 47
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
25
jupp Derwall:
EííI] mm
taui \ ga-
spenna“
„LEIKURINN eínkenndist af mik-
illi taugaspennu — bæði liö uröu
aö leika varlega og gæta þesa aö
gera ekki mistök," sagöi Jupp
Derwall, þjálfari Vestur-Þjóðverja
eftir aö þeir höföu sigraö Rúm-
eníu 2:1 í 2. riðli EM i Frakklandi á
sunnudag. Þaö var markakóngur-
inn Rudi Völler sem gerói bæöi
mörk Þjóðverja í leiknum.
„Viö heföum átt að skora fleiri
mörk í leiknum, en þar sem þeir
geröu haröa hriö aö marki okkar
þegar dró nær leikslokum er ég
ánægöur meö að viö náöum aö
sigra,“ sagöi Derwall.
Völler geröi fyrsta mark leiksins
á 25. mín. Hann skallaöi þá fyrir-
gjöf frá félaga sínum hjá Bremen
Norbert Meier í netiö. Áöur höföu
Klaus Allofs og Andreas Brehme
farið illa meö góö færi, en Þjóö-
verjar sóttu stanslaust allan fyrri
hálfleikinn.
Saöan í hálfleik var engu aö síö-
ur aöeins 1:0.
Rúmenar jöfnuöu úr fyrsta skoti
sínu á mark Þjóðverja. Þeir skor-
uöu er aðeins 27 sekúndur voru
liönar af síöari hálfleiknum. Það
var Marcel Coras, mesti marka-
skorari Rúmena, sem jafnaöi.
Schumacher varöi nokkrum
sinnum mjög vel eftir markiö, en
síöan tóku Þjóöverjar leikinn í sín-
ar hendur á ný. Síöara mark Völler
kom á 65. mín. Allofs sendi knött-
inn fyrir markiö, Karl-Heinz Rumm-
enigge skallaði til Völler sem skor-
aöi með föstu hægri fótar skoti.
Eftir aö Völler skoraði reyndu
Rúmenar allt sem þeir gátu til aö
jafna en tókst ekki. Þeir fengu þó
góö færi til þess — Schumacher í
þýska markinu varöi tvívegis mjög
vel. Fyrst frá Mircea Rednic og síö-
ar örfáum sekúndum fyrir leikslok
varöi hann á glæsilegan hátt
þrumuskot Ladislau Boloni utan af
velli. Schumacher rétt náöi aö
koma viö boltann meö fingurgóm-
unum og Rúmenar fengu horn-
spyrnu. Boltinn stefndi efst í mark-
horniö er hann varöi. Norbert
Meier átti mjög góöan leik meö
Þjóöverjum aö þessu sinni — var
besti maður liösins.
Lið Þjóðverja var þannig skipaö:
Schumacher, Bernd Förster, Karl Heinz Först-
er (Guido Buchwald á 79. mín.), Uli Stielíke,
Briegel, Mattháus, Meier (Littbarski á 64.
min.), Brehme, Allofs, Völler, Rummenigge.
Staóan
STADAN í 1. ríöli
innar er þannig:
Evrópukeppn-
Frakkland
Danmörk
Belgía
Júgóslavía
6:0
5:1
2:5
0:7
„ Júgóslavar brotn-
uðu við fyrsta markió“
— sagði Piontek, þjálfari Dana, eftir 5:0 sigurinn
• Jupp Derwall
„JÚGÓSLAVARNIR byrjuðu mjög
vel í dag, alveg eins og þeir geröu
í leiknum gegn Belgum, en fyrsta
mark okkar var mjög mikilvægt,
þeir brotnuöu algjörlega niöur viö
það,“ sagöi Sepp Piontek, lands-
liösþjálfari Dana, eftir aö liö hans
haföi sigraö Júgóslava 5:0 í
Tottenham vildi Olsen:
„Of seinir"
Fré Bofa Hennesay, fréttamanni Morgunblaöaina é Englandi.
Tottenham Hotspur hafói
mikinn áhuga á aö kaupa fyrir-
líóa danska landsliósins, Mort-
en Olsen, frá Anderlecht og
settu forráöamenn liösins sig í
samband vió Danann eftir síóari
leik liðanna í úrslitum UEFA-
keppnínnar í vor.
Morten Olsen, sem veröur 35
ára á þessu árl, sagöl aö gaman
heföi veriö aö leika á Englandi,
Tottenham væri stórliö sem hann
heföi haft áhuga á aö leíka meö.
„En þiö eruð aöeins of seinir —
ég skrifaöi undir nýjan eins árs
samning viö Anderletch fyrir
þremur dögum,“ sagöi Olsen.
— SH.
Evrópukeppninni í knattspyrnu í
Lyon á laugardag.
Danir mæta Belgum í dag og
þeim nægir jafntefli úr þeirri viöur-
eign til aö tryggja sér sæti í undan-
úrslitunum.
Frank Arnesen skoraöi tvö
marka Dana í leiknum — fyrsta
mark leiksins strax á 6. mín. Hann
lék þá á varnarmenn, og sendi
knöttinn í netiö úr þröngu færi.
Markvöröurinn bjóst alls ekki viö
skoti og var kominn út úr markinu
til aö hiröa fyrirgjöfina!
„Ég tók áhættu er ég ákvaö aö
skjóta — og hún gafst vel. Heppn-
in fylgir manni stundum,“ sagöi
Arnesen eftir leikinn um fyrra mark
sitt.
Klaus Berggreen skoraöi annaö
mark Dana á 22. mín., Arnesen
geröi sitt annaö og þriöja mark
liðsins á 69. mín., Prebjen Elkjær
Larsen fjóröa markiö á 82. mín. og
John Lauridsen þaö fimmta á 85.
Glæsimark Gylfa
— er Víkingar báru sigurorð af Fram 2:1
„ÞETTA er fyrsti leikurinn á
þessu móti sem ág er í byrjunar-
liðinu og er því himinlifandi meó
markiö sem ég skoraði. Sendi-
ngin frá Aöalsteini var mjög góö,
ég var algerlega á auðum sjó og
átti því auövelt meö aö skjóta,“
sagði Gylfi Rútsson leikmaöur
Víkings, en hann skoraði annað
markió fyrir liö sitt gegn Fram á
laugardaginn. Skotiö var af rúm-
lega 20 metra færi og hafnaði
boltinn upp undir þverslánni í
marki Fram. Stórglæsilegt mark.
Víkingar sigruöu í leiknum með
tveimur mörkum gegn einu, en
margir voru þó á þeirri skoöun aö
jafntefli heföi veriö sanngjörn úr-
slit, elnkum þó þegar þess er gætt
aö Framarar áttu skiliö aö fá víta-
spyrnu í síöari hálflelknum þegar
Kristni Jónssyni var hrint innan
vítateigs Víkinga. Dómari leiksins,
Kjartan Ólafsson, virtist ætla aö
dæma víti en hætti viö og lét leik-
inn halda áfram.
Svo vikiö sé aö leiknum í heild
sinni þá var ekki mikil reisn yfir
honum, ef frá eru talin mörkin sem
öll voru glæsileg, sérstaklega þó
Víkingsmörkin.
Leikurinn fór frekar rólega af
staö og lítiö var um færi tíl aö byrja
með. Það hættulegasta átti Guð-
mundur Steinsson á 15. mínútu
þegar hann komst einn inn fyrir
vörn Víkings en Ögmundur mark-
vöröur varöi laust skot hans.
Á 25. mínútu kom svo fyrsta
markið. Andri Marteinsson fékk
boltann viö vítateig Fram vinstra
megin, spilaði aftur aö endamörk-
um stoppaöi þar fyrir framan varn-
armann Fram en skaut síöan sak-
lausu skoti aö þvt er virtist f átt aö
markinu. Skipti engum togum aö
boltann fór yfir Guömund mark-
vörð, sem oft hefur veriö léttari á
sér, í stöngina fjær og síöan í met-
iö. Gullfallegt mark en um leiö
mjög svo óvænt.
Tíu mínútum síðar var Andri enn
á ferðinni, nú innan vítateigs Fram
og aöeins Guömundur í markinu til
varnar en skot hans geigaöi
hroöalega og boltinn fór langt útaf.
Þar fór svo sannarlega gott færi
forgöröum.
Víkingar voru mun meira meö
boltann í fyrri hálfleiknum, en áttu
hins vegar erfitt meö aö skapa sér
færi, þó svo aö vörn Fram hafi ver-
iö hálf óörugg á köflum. Framarar
áttu engu aö sföur sín færi og rétt
fyrir leikhlé gaf Guðmundur Torfa-
son boltann fyrir mark Víkings á
Ómar Jóhannsson en hjólhesta-
spyrna hans fór rétt framhjá mark-
inu.
Snemma í síöari hálfleiknum,
nánar tlltekiö á 52. minútu kom
annað mark Víkings. Ámundi spil-
aöi upp vinstri kantinn, gaf fyrir
markiö á Aöalstein er gaf boltann
aftur á Gylfa, sem skaut hörku-
skoti beint í mark Fram og staöan
2—0.
Viö þetta mark hresstust Fram-
arar tll muna, komust betur inn í
leikinn og fóru að skapa sér færi,
2 Lli K • _S ■ ' A
vlkunn ap 2
Þorsteinn Bjarnas. ÍBK (2)
Guðjón Þórðarson ÍA (1) Guðjón Guöjóns. IBK (2)
Ottó Guðmunds. KR (1) Valþór Sigþórsson ÍBK (2)
Karl Þóröarson ÍA (2) Ásgeir Elíasson Þrótti (1) Bergþór Magnús. Val (2)
Guðm. Steíns. Fram (2) Ragnar Margeirs. ÍBK (3) Sigþór Ómarsson ÍA (2)
enda gáfu Víkingarnir eftir á miöj-
unni eftir mörkin tvö. Um miöjan
hálfleikinn uröu Framarar fyrir því
óláni aö missa Ómar Jóhannesson
útaf eftir aö, hann haföi lent í sam-
stuöi viö Víking og meiðst á ökkla.
Örn Valdimarsson kom inná í staö
Ómars en skömmu áöur haföi
Bragi Björnsson komiö inná í staö
Steins Guöjónssonar. Þessir tveir
menn hleyptu fersku blóði í
mannskapinn og áttu báöir góöan
leik.
Á 76. mínútu náöi Fram aö
minnka muninn. Hafþór gaf þolt-
ann fyrir mark Víkings frá hægri
kanti. Þar tók Guömundur Torfa-
son viö boltanum, nikkaði honum
til nafna síns Steinssonar sem
skallaöi í netiö. Vel gert hjá Guö-
mundi sem þarna lék sinn 100. leik
meö Fram og fékk aö vonum blóm
fyrir leikinn.
Tíu mínútum fyrir leikslok átti
Viöar Þorkelsson gott skot fyrir
utan vítateig, boltinn stefndi efst
upp í horn Víkingsmarksins en
Ögmundur bjargaði vel í horn. Nær
stanslaus pressa var aö marki Vík-
ings síöari hluta seinni hálfleiksins
en þrátt fyrir tilraunir góöar tókst
Frömurum ekki aö jafna metin og
Víkingar fóru því meö öll stigin þrjú
frá leiknum.
Erfitt er aö gera upp á milli
manna í Víking, liöiö spiiaöi ágæt-
lega án þess þó aö eiga neinn stór-
leik.
Framliöiö getur leikiö mun betur
en þaö geröi á laugardaginn,
leikmenn virtust ekki ná nógu vel
saman og tóku ekki almennilega
viö sér fyrr en allt var komiö i
óefni.
Einkunnagjöfin:
Vikingur: Ögmundur Kristinsson 6, Unn-
steinn Kárason 6. Magnús Jónsson 6, Andri
Marteinsson 7, Ómar Torfason 6, Kristinn
Guömundsson 6, Ámundi Sigmundsson 7,
Heimir Karlsson 6, Aöalsteinn Aöalsteinsson
6, Örnólfur Oddsson 6. Gylfl Rútsson 6, Krist-
inn Helgason vm. lék of stutt, Einar Elnarsson
vm. lék of stutt.
Fram: Guömundur Baldursson 6, Traustl
Haraldsson 6, Þorsteinn Þorsteinsson 6,
Sverrir Einarsson 6. Bragi Björnsson 7, Krlst-
inn Jónsson 6, Steinn Guöjónsson 6, Ómar
Jóhannsson 6, Guömundur Steinsson 7, Guö-
mundur Tortason 6, Viöar Þorkelsson 6, Haf-
þór Sveinjónsson 6, Örn Valdimarsson vm. 7.
I stuttu máll: Laugardalsvöllur 1. deild. Fram
— Vikingur 1—2.
Mörk Víkings: Andri Marteinsson og Gylfi
Rútsson.
Mark Fram: Guömundur Steinsson.
Dómari: Kjartan Ólafsson.
Áhorfendur: 570.
— BJ.
mín. Fimmtán þúsund Danir voru á
leiknum og var fögnuöur þeirra gíf-
urlegur aö leiksiokum.
Þrátt fyrir stórt tap léku Júgó-
slavar ekki illa — þeir fengu nokk-
ur góö marktækifæri í síöari hálf-
leiknum en náöu ekki aö skora.
Bæöi varöi Ole Quist vel í danska
markinu og einnig fóru skot þeirra
yfir og framhjá markinu.
Þaö virtist ekki hafa nein áhrif á
leik danska liðsins aö Allan Sim-
onsen var ekki meö — en hann
fótbrotnaði sem kunnugt er í fyrsta
leik keppninnar gegn Frökkum.
„Viö vildum vinna þennan leik fyrir
Allan. Við vitum hversu hamingju-
samur hann er nú heima í Dan-
mörku," sagöi Sepp Piontek, þjálf-
ari Dana, eftir leikinn.
Þjálfari Júgóslava, Todor Vesel-
inovic, kom ekki á fréttamanna-
fund eftir leikinn, þar sem „honum
leiö illa“, eins og aðstoðarmaöur
hans, Ante Mladinic, oröaöi þaö.
Mladinic kom á fréttamannafund-
inn. Hann sagöi aö tapið væri
mesta áfall landsliösmanna um
árabil. „Nú veröum viö aö hugsa til
baka og reyna aö komast aö því
hvaö fór úrskeiöis,“ sagöi hann.
Danska liöió var þannig skipaö: Ole Quist,
Ole Rassmussen, Sören Busk, Morten Olsen,
Ivan Nielsen, Frank Arnesen (John Lauridsen
vm. á 80. mín.), Jens Jörgen Bertelsen, Klaus
Berggreen, Sören Lerby, Michael Laudrup,
Preben Elkjær Larsen.
Frakkar stefna hraðbyri að Evrópumeistaratitli:
letum við ver
en ánægðir?
nanRdi eiciua iiio
Hvernig gi
ið annað
spurði Michel Hidalgo efftir að liðið hafði gjörsigrað Belga 5:0
_________■■■
• Michel Platini akoraöi þrívegis gegn Belgum.
Hann hefur þar meö skoraö 30 mörk í 50 landsleikj-
um fyrir Frakka.
MICHEL Platini skoraði þrennu er
Frakkar gjörsigruöu Belga 5:0 í
úrslítakeppni EM á laugardag.
Platini hefur þar meö gert 30
iandsiiösmörk í 50 ieikjum — og
slegiö markamet Just Fontaine,
sem stóö í 24 ár. Platini jafnaði
metið er hann skoraöi gegn Dön-
um. Það var 27 mörk.
Frakkar eru nú öruggir í undan-
úrslitin þrátt fyrir aö leikur viö
Júgóslava sé eftir, en hann fer
fram í dag. Frakkar hafa unniö
báöa sína ieiki.
Frakkar réöu lögum og lofum á
vellinum eins og úrslitin bera meö
sér. Vörn Belganna var langt frá
því aö vera sannfærandi og greini-
legt aö þeir sem komu inn í liöiö
Portúgalir betri
— í jafnteflisleiknum við Spánverja
Spánverjar og Portúgalir skildu jafnir f
öörum riðli Evrópukeppninnar í knatt-
spyrnu á sunnudaginn. Þaö voru Portúgalir
sem skoruöu fyrst og var þaö Sousa sem
skoraöi í upphafi síöari hálfleiks en Santiil-
ana jafnaði metin þegar 15 mín. voru til
leíksloka. Portúgaiir voru betri aðilinn í
leiknum en þaö dugöi ekki til aö knýja
fram sigur.
fyrir þá sem dæmdir voru í leik-
bann í vetur vegna mútumálsins
eru ekki nægilega sterkir til aö fylla
sköröin. Frakkar byrjuðu af mikl-
um krafti þegar í uþþhafi og hraö-
inn í leik þeirra varö strax mikill.
Litlu munaði aö þeir skoruöu úr
tveimur fyrstu sóknum sínum, en
fyrsta markiö kom siðan á 3. mín-
útu.
Patrick Battiston átti þrumuskot
í þverslá eftir aukaspyrnu, knöttur-
inn hrökk til Michel Platini sem var
rétt utan vítateigs og hann skoraöi
meö föstu vinstri fótar skoti.
Alain Giresse geröi annað mark
Frakka — glæsimark, sá litli vipp-
aöi snyrtilega fyrir Pfaff markvörö.
Luiz Fernandez geröi þriðja markið
eftir undirþúning Didier Six og Gir-
esse og Platini geröi tvö síöustu
mörkin. Þaö fyrra úr víti, sem
dæmt var er Pfaff braut á Didier
Six og síöan meö skalla einni mín.
fyrir leikslok.
„Hvernig getum viö veriö annaö
en ánægöir meö úrslitin og hvernig
viö lékum?” sþuröi Michel Hidalgo,
landsliösþjálfari Frakka, frétta-
menn eftir leikinn. „Þarna kannaö-
ist ég aftur viö liðið sem skemmti
mér hvaö eftir annaö í heimsmeist-
arakeppninni á Spáni 1982 —
leikgleöin og baráttuandinn sátu í
fyrirrúmi," sagöi Hidalgo.
Platini sagöi eftir leikinn, aö
leikmenn liösins heföu fariö út á
völlinn meö því hugarfari aö hafa
gaman af því sem þeir væru aö
gera og þaö heföi tekist. Belgarnir
höföu einum degi minni hvíld en
við fyrir leikinn og þeir vlrkuöu
þreyttir," sagöi hann.
Guy Thys, þjálfari Belga, sagöist
ekki hafa neinar afsakanir á tak-
teinum. „Við töpuöum leiknum á
miöju vallarins. Þaö voru miövall-
arleikmenn sem geröu öll fimm
mörk þeirra — Frakkar eru geysi-
sterkir um þessar mundir," sagöi
Thys.
Staðan
i
i
STAÐAN
mótsins
þannig:
V-Þýskaland
Spánn
Portúgal
Rúmenía
öörum riöli Evrópu-
knattspyrnu er nú
2 110
2 0 2 0
2 0 2 0
2 0 11
2—1 3
2—2 2
2—2 2
2—3 1
Morgunblaöiö/Símamynd AP
• Danir tóku Júgóslava í kennslustund í knattspyrnu um helglna í Frakklandi og sigruöu
5:0. Rasmussen (t.v.) leikur hér á Júgóslavann Vusovic í leiknum.
Persónulegt met
Brynjólfs í 1500 m
BRYNJÓLFUR Hilmarsson hlaup-
ari úr UÍA setti persónulegt met I
1.500 metra hlaupi á frjálsíþrótta-
móti í Sollentuna i Svíþjóð á laug-
ardag, hljóp á 3:6,09 mínútum.
Brynjólfur varð sjötti í hlaupinu,
sem vannst á 3:43,28. Danski
hlauparinn Nilv Kim Hjorth, sem var
beztur Noröurlandabúa I 1.500
metra hlaupi í fyrra, meö rúmar
3:36 mínútur, varö annar í hlaupinu
á 3:43,56 mínútum.
Brynjólfur hljóp fyrir skömmu
800 metra hlaup á 1:51,42 mínút-
um, einnig í Stokkhólmi, og varö þá
númer tvö. Sænskur landsliösmað-
ur varð örlitið á undan honum í
mark, Brynjólfur náöi sinum bezta
árangri í 800 metra hlaupi í fyrra,
hljóp þá á 1:50,56 mínútum.
Meö hlauplnu í Solentuna hefur
Brynjólfur skotizt upp fyrir Svavar
heitinn Markússon á skrá yfir beztu
afrek í 1.500 metra hlaupi frá upp-
hafi og er nú í þriöja sæti. Is-
iandsmet Jóns Diðrikssonar UMSB
er 3:41,65 mínútur frá því í hitteö-
fyrra. Þá er Brynjólfur í fimmta sæti
frá upphafi í 800 metra hlaupi með
árangri sínum í fyrra.
— égás.
Á morgun leika Þjóöverjar viö
Spánverja og Portúgalir leika viö
Rúmena. Öll liöin eiga enn mögu-
leika á aö komast áfram í undan-
úrslitin en þó verður aö telja lík-
legt aö Þjóöverjar sóu orönir
öruggir en hverjir fylgja þeim er
ekki gott að segja.
Guðjón Þóröarson
Akurnesingar á toppinn
Akurnesingar tóku forystuna í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu efftír sigur þeirra gegn KR, 2:0, sl.
laugardag. Þaó voru kaflaskipti í þessum leik. Fyrri hluti hans var svo til algjörlega eign Skagamanna sem
geröu þá haróa hríð aö marki KR., en aöeins einu sinni tókst þeim að skora og þaö strax á fimmtu mínútu
leiksins. Það var Sigþór Ómarsson sem skoraöi stórglæsilegt mark meö þrumuskoti af vítateigshorni.
Sigþór var mjög virkur í sókninni allan fyrri hálfleikinn og geröi oft mikinn usla í vörn KR-inga sem virkuðu
mjög daufir í hálfleiknum. Hann átti t.d. góöan skalla sem Halldór varði mjög vel á 23. mín. og þrumuskot
hans fór naumlega framhjá á 25. mín. Önnur helstu færi Skagamanna áttu Höröur Jóhannesson og Karl
Þóröarson. Höröur á 18. mín. gott skot, sem Halldór markvörður varði vel, og Karl á 28. mín. þegar honum
mistókst aö skalla knöttinn, mjög aöþrengdur í dauðafæri eftir fyrirgjöf Jóns Áskelssonar.
Þaö var greinilegt aö Hólmbert
þjálfari KR haföi messaö rækilega yf-
ir sínum mönnum i leikhléinu því þaö
var sem nýtt lið kæmi inn á völlinn í
síöari hálfleikinn. Framan af honum
áttu Skagamenn mjög í vök aö verj-
ast og sluppu svo sannarlega fyrir
horn þrívegis á fyrstu fimm mínútun-
um. Guójón Þórðarson bjargaói á
línu á 49. mín. og Jósteinn Einarsson
átti góöan skalla eftir aukaspyrnu en
naumlega framhjá. Bjarni markvörö-
ur varö síöan aö taka á stóra sínum
þegar hann varði gott skot á sömu
mínútunni. Skagamenn voru ekki á
þvi aö gefa sig og komust betur inn í
leikinn eftir því sem leiö á hálfleikinn.
Töluverö harka færöist í leikinn og
varö dómarinn aö gefa þremur leik-
mönnum gult spjald. Sverrir Her-
bertsson átti þrumuskot á 57. mín.
en naumlega yfir markiö. Lítiö var um
góó marktækifæri eftir þetta, þó
Skagamenn veröi aö teljast hafa átt
fleiri á lokakaflanum, sérstaklega fór
Höröur Jóhannesson illa aö ráöi sínu
á 79. mín. þegar Karl Þóröarson ein-
lék i gegnum vörn KR upp aö enda-
mörkum og gaf vel fyrir, Hörður var í
dauðafæri fyrir opnu markinu en laus
skalli hans fór hárnákvæmt framhjá.
Á 84. mín. kom síöara markiö.
Guójón Þóröarson bakvöröur brá sér
í sóknina og fékk góöa sendingu frá
Árna Sveinssyni inn í vítateig KR.
Guöjón skaut föstu skoti aö markinu
en Halldór varöi mjög vel en missti
boltann frá sér og Guójón fylgdi eftir
og skoraöi viö mikil fagnaöarlæti
áhorfenda. Eftir markiö virtist sem
bæöi liðin sættu sig viö oröinn hlut
og geröist ekkert markvert þær mín-
útur sem eftir liföu.
Þó margt gott sæist til liöanna í
þessum leik geta þau bæöi leikiö
mun betur. Akurnesingar eru greini-
tega aö sækja sig eftir frekar daufa
leiki aö undanförnu. Allir varnar-
mennirnir áttu góóan dag og sömu-
leiðis Bjarni markvörður. Miövall-
arspilararnir eiga aö geta spilað mun
betur, þar var Árni Sveinsson at-
kvæðamestur og Karl Þóröarson er
aö komast vel inn í leikskipulag liös-
ins. Sigþór kom inn í liöiö aö nýju en
Jón Leó sem leikið hefur undanfarna
leiki meiddist í leiknum gegn KA fyrr
í vikunni. Sigþór var geysilega öflug-
ur í fyrri hálfieiknum og geröi KR-ing-
um lífiö leitt í vörninni, mark hans var
sérlega fallegt. Skagamenn hafa nú
tekiö forystuna í deildinni þrátt fyrir
aö margir álíti þá ekki hafa leikiö
sérlega vel í fyrstu leikjunum. Þeirra
hlutverk er ekki auövelt því þeir hafa
titil aö verja og öll liö keppast viö aö
leggja þá að velli. Byrjun þeirra í
mótinu er mun betri núna en t.d. i
fyrra hvað sem siöar veröur. Fólk má
heldur ekki gleyma því að þeirra
• Paul McStay
Fagan vill
fá McStay
Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morg-
unblaösins í Englandi.
JOE Fagan, framkvæmda-
stjóri Liverpool, hefur mestan
áhuga á Paul McStay, hinum
tvítuga miövallarleikmanni
Celtic, til aö ffylla þaö skarö
sem Graeme Souness akilur
eftir sig í Liverpool-liðinu, en
Souness er sem kunnugt er
farinn til Sampdoria ...
... Souness mun hafa
nærri 200.000 pund í árslaun
hjá Sampdoria, þaö eru um
fjórar milljónir ísl. kr. Souness
sagði á dögunum aö hann
heföi því sem næst „orðið“ aö
fara úr landi — konan hans
erföi nefnitega gífurlegar fjár-
upphæöir eftir fööur sinn og
heföu þau búið í Englandi
heföu þau þurft að greiða him-
inháa skatta ...
... Craig Johnston hefur
enn ekki undirritað nýjan
samning viö Liverpool. Hann
er á sölulista og vill Liverpool
fá 650.000 pund ffyrir hann ...
... Trevor Christie, marka-
skorarinn mikli hjá Notts
County, var í gær seldur „yfir
götuna" til Nottingham Forest
á 175.000 pund. Hann vildi
frekar fara til Forest en Man.
City ...
... Neville Southall hefur
undirritaö nýjan samning viö
Everton. Samningurinn gildir
til fjögurra ára. Southall lék
mjög vel í marki Everton-liðs-
ins í vetur ...
... Andy Blair hefur veriö
seldur frá Aston Villa til
Sheffield Wednesday á 80.000.
Villa keypti hann á 300.000
pund frá Coventry fyrir þrem
ur árum ... — SH.
besti spilari, Siguröur Jónsson, getur
ekki leikiö með þeim og hlýtur þaö
aö hafa áhrif á leik liösins þegar slík-
an lykilmann vantar. KR liöið er betra
en staöa þess í deildinni segir. Mikiö
er um forföll hjá þeim, t.d. lék mark-
vörður þeirra, Stefán Jóhannsson,
jafngóöan mannskap í sínum hópi og
þaö ætti ekki að saka þó nokkur
nöfn vanti inn í. i þessum leik fannst
mér liðið frekar dapurt í fyrri hálf-
leiknum en nokkrir leikmenn léku vel
i síöari hálfleiknum. Má þar nefna
Ottó, Gunnar Gíslason, Ágúst og
Sævar Leifsson. Halldór markvöröur
veröur ekki sakaöur um mörkin en
hann virkaöi oft á tíöum óöruggur.
Dómari leiksins var Helgi Krist-
jánsson og var dómgæsla hans kap-
ítuli útaf fyrir sig. Mikiö ósamræmi
var í dómum hans og samvinna hans
og línuvarðanna oft á tíöum furöuleg.
I stuttu máli: Akranesvöllur 16. júní 1984.
Mörk ÍA: Sigþór Ómarsson á 5. mín. og Guö-
jón Þóróarson á 84. mín.
Gul spjöld: Willum Þórsson KR, Jakob Pét-
ursson KR, Siguröur Lárusson IA.
Ahorfendur: 951.
EINKUNNAGJÖFIN:
KR: Halldór Pálsson 6, Jósteinn Einarsson 6,
Willum Þórsson 6, Ottó Guömundsson 7, Jak-
ob Pétursson 6, Gunnar Gislason 6, Ágúst
Már Jónsson 6, Sverrir Herbertsson 6, Sævar
Leifsson 6, Sæbjörn Guömundsson 5, Ómar
Ingvason 5, Björn Rafnsson (vm) lék of stutt,
Hálfdan örlygsson (vm) lék of stutt.
Akranes: Bjarni Sigurösson 8, Guójón Þórö-
arson 8, Jón Askelsson 7, Siguröur Lárusson
7, Siguröur Halldórsson 7, Höröur Jóhannes-
son 6, Sveinbjörn Hákonarson 6, Karl Þóröar-
son 7, Sigþór Ómarsson 7, Guóbjörn Tryggva-
son 7, Árni Sveinsson 7.
JG