Morgunblaðið - 19.06.1984, Qupperneq 24
28 MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
Skólaslit MA:
Útskrifaðir 126 stúdentar
Nýútskrifadir stúdentar fri Menntaskólanum á Akureyri. Myndin er kannski táknraen fyrir þá skiptingu, sem var á
milli stúlkna og pilta við útskriftina að þessu sinni. Stúlkurnar voru 90, en piltarnir aðeins 36.
— þar af 90 stúlkur,
en aðeins 36 piltar
Akureyri, 18. júní.
„VAXANDI þjóðfélag þarfnast vax-
andi fjölda lærðra manna, karla og
kvenna. En menntunina verður að
sníða við þarfir án þess þó að látið
sé af kröfunni um þekkingu og aga f
námi. I*að hefur einnig verið gert í
Menntaskólanum á Akureyri, og þið,
ungu stúdentar, hafið orðið breyt-
inganna vör, jafnvel orðið fyrir barð-
inu á þeim, þótt ekki megi ofgera í
því efni. Þið brautskráist eftir nýrri
námsskrá, þar sem námsskipan og
námsefni hefur verið breytt en til
ykkar hafa verið gerðar kröfur sem
þið hafið staðist. Veganestið vona ég
að sé gott og endist ykkur vel þótt
námi ykkar Ijúki hins vegar aldrei,
því svo lengi lærir sem lifir,“ sagði
Tryggvi Gíslason, skólameistari MA,
m.a. þegar hann sleit Menntaskól-
anum á Akureyri í 104. sinn þann 17.
júní sl.
{ upphafi máls síns minntist
Tryggvi látins kennara við skól-
ann, Hermanns Stefánssonar,
íþróttakennara, sem starfaði við
skólann frá 1929 til 1974.
Nemendur skólans í vetur voru
alls 710, þar af voru 100 í öldunga-
deild. Kennarar voru 40. Að þessu
sinni útskrifuðust 126 stúdentar
frá skólanum, þar af 90 stúlkur og
aðeins 36 piltar. Hæstu einkunn á
stúdentsprófi náði Sólrún
Sveinsdóttir, sem stundaði nám á
samfélagsbraut ðldungadeildar,
9,03. Meðaleinkunn á stúdents-
prófi var 6,83 og þess má geta, að á
undanförnum 10 árum hefur með-
aleinkunn frá skólanum á stúd-
entsprófi alltaf verið á bilinu
6,8—6,9. Frá eðlisfræðibraut út-
skrifuðust 12 stúdentar, máia-
braut 36, þar af sex úr öldunga-
deild, náttúrufræðibraut 29, sam-
félagsbraut 29, þar af 3 úr öld-
ungadeild, tónlistarbraut 2 og af
viðskiptabraut 18, en þeir nem-
endur komu allir úr námi frá við-
skiptabraut við Gagnfræðaskóla
Akureyrar og tóku síðasta áfanga
við MA, eða einn vetur.
Fulltrúar 10, 25, 40 og 50 ára
stúdenta fluttu ávörp og færðu
skólanum fjárupphæðir í tölvu-
sjóð skólans, sem stofnaður var í
fyrra, en nú þegar hefur borist
það mikið til hans, að skólinn hef-
Áfanganum fagnað — kossi smellt á
kinn. Morgunbladid/GBerg.
ur fest kaup á 12 nýjum smátölv-
um til viðbótar þeim sem fyrir
eru. Eru þetta afar vandaðar smá-
tölvur með öflugu vinnsluminni,
sem gera alla kennslu í tölvufræð-
um betri auk þess sem gefast mun
tækifæri til að efna til tölvunám-
skeiða fyrir almenning.
Menntaskólinn á Akureyri hef-
ur nú útskrifað 3.809 stúdenta frá
því að hann fékk heimild til slíks
árið 1928. Skólinn og heimavistin
eru þegar fullsetin fyrir næsta ár
og áætlað að þá verði um 750 nem-
endur við skólann. GBerg.
Barðaströnd:
Snjóar í fjöll
Bar&aströnd, 18. júní.
HÉR er vestan éljagangur og snjóar í
fjöll. Annars er búin að vera frekar
góð tíð hér að undanfórnu. 17. júní
var haldinn hátíðlegur hér og komu
saman í Birkimel á annað hundrað
manns.
Grásleppuvertíðin gengur vel, t.d.
var hásetahlutur eftir daginn á einum
bátnum um 18.000 krónur, síðast er
vitjað var.
SJÞ
HðGKAUP AUGLfelR
ima
FRÁ OG MEÐ 20. JÚNÍ VERÐUR OPIÐ HJÁ OKKUR:
MANUDAGA KL. 9— / 9
ÞRIÐJUDAGA KL. 9— 19
MIÐVIKUDAGA KL. 9— 19
FIMMTUDAGA 0 KL.9—20
FÖSTUDAGA KL. 9—22
LAUGARDAGA LOKAÐ
TT A /1 \T ATT'D Skeifunni 15
lllluIiilU 1 Reykjavík