Morgunblaðið - 19.06.1984, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
29
Átján sæmdir
heiðursmerki
hinnar ís-
lensku fálkaorðu
FORSETI íslands sæmdi þann
17. júní sl. eftirtalda íslendinga
heiðursmerki hinnar íslensku
fálkaorðu, að tillögu orðunefnd-
ar:
Bjarka Elíasson, yfirlögreglu-
þjón, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf að lögreglumálum og
fangahjálp, Bjarna Rafnar, yfir-
lækni, Akureyri, riddarakrossi
fyrir störf að heilbrigðismálum,
Björn Bjarnason, magister,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
kennslustörf,, , Guðjón Ingi-
mundarson, kennara, Sauðár-
króki, riddarakrossi fyrir fé-
lagsmálastörf, Guðmund
Kjærnested, fv. skipherra,
Reykjavík, stórriddarakrossi
fyrir landhelgisstörf, Hannes Þ.
Hafstein, framkvæmdastjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að slysavarnamálum,
Hauk Guðlaugsson, söngmála-
stjóra þjóðkirkjunnar, Akra-
nesi, riddarakrossi fyrir störf að
söngmálum, Ingibjörgu
Jóhannsdóttur, Blesastöðum,
Skeiðum, riddarakrossi fyrir
störf að félags- og líknarmálum,
Jón Sveinsson, rafvirkja-
meistara, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir störf að fiski-
rækt, Kristin Olsen, flugstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að flugmálum, Olaf
Björnsson, prófessor, Reykjavík,
stjörnu stórriddara fyrir emb-
ættis- og fræðistörf, Sigurbjörn
Þorbjörnsson, ríkisskattstjóra,
Reykjavlk, riddarakrossi fyrir
embættisstörf, Soffíu E. Jóns-
dóttur, Kópavogi, riddarakrossi
fyrir störf að félagsmálum aldr-
aðra, Stefán Jasonarson, bónda,
Vorsabæ, Flóa, riddarakrossi
fyrir félagsmálastörf, dr. phil
Sverri Magnússon, lyfsala,
Garðabæ, riddarakrossi fyrir
framlag til menningarmála,
Þórarin Kristjánsson, bónda,
Holti í Þistilfirði, riddarakrossi
fyrir félagsmálastörf, Þórð
Björnsson, ríkissaksóknara,
Reykjavík, stjörnu stórriddara
fyrir embættisstörf, dr. Þóri Kr.
Þórðarson, prófessor, Reykja-
vík, riddarakrossi fyrir embætt-
is- og fræðistörf.
Frumkvæoi
Iðnaðartjankans.
FVrir þá forsjálu
IB - lánum hefur nú verið gjörbreytt. Þau eru nú einstakur kostur fyrir
alla þá sem sýna fyrirhyggyu áður en til framkvæmda eða útgjalda kemur.
Þú leggur upphæð, sem þú ákveður sjálfur, mánaðarlega inn
á reikning í IÐNAÐARBANKANUM. Eftir að minnsta kosti þriggja mánaða
sparnað, áttu réttá IB-láni, sem erjafnháttog innistæðan þín.
Þú greiðir síðan lánið á jafnlöngum tíma og þú sparar, flóknara
er það ekki.
Lestu vandlega hér, þessar eru breytingarnar:
Sjávarútvegsrád-
herra heimsæk-
ir Sovétríkin
Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ás-
grímsson, heldur í opinbera heimsókn
til Sovétríkjanna næstkomandi föstu-
dag. Hefst heimsóknin á sunnudag.
I för með Halldóri verður Þor-
steinn Geirsson, ráðuneytisstjóri, og
munu þeir verða í um það bil eina
viku í heimsókninni. Með þessari
heimsókn er sjávarútvegsráðherra
að endurgjalda opinbera heimsókn
starfsbróður síns Kamenchev
hingað til lands á síðasta ári.
Loðnuveiðar
hefjast 1. okt.
Sjávarótvegsráðuneytið hefur nú
ákveðið að loðnuveiðar megi hefjast 1.
október næstkomandi. Heildarafla-
kvótinn fyrir ísland á komandi vertfð
hefur verið ákveðinn 195.000 lestir til
bráðabirgða.
Ráðuneytið hefur ennfremur
ákveðið, að heildaraflakvóta verði
skipt á milli skipa á sama hátt og á
síðustu vertíð, það er tveimur þriðju
hlutum verði skipt jafnt á skipin og
einum þriðja milli skipa í hlutfalli
við burðargetu. Þá er áætlað, að
ákvörðun um heildaraflamagn verði
endurskoðuð eftir leiðangra Ilaf-
rannsóknastofnunar í október og
nóvember næstkomandi.
1.
Hærri vextir
á IB reikningum
Iðnaðarbankinn brýtur isinn í vaxtamálum og notfærir sér heimild
Seðlabankans til að hækka innlánsvexti á IB-Iánum.
Vextir af þriggja til fimm mánaða IB-reikningum hækka úr 15% í 17%,
en í 19% ef sparað er í sex mánuði eða lengur.
2
IB spamaóur
♦ ereRki bundinn
Þú getur tekið út innistæðuna þína hvenær sem er á sparnaðartímabilinu,
til dæmis til að mæta óvæntum útgjöldum. Eftir sem áður áttu rétt á IB - láni
á IB-kjörum, ef þrír mánuðir eru liðnir frá því spamaður hófst.'
3.
igrúmí
rgunum
Þú getur skapað þér aukið svigrúm í afborgunum með því að geyma
innistæðuna þína allt að sex mánuði, áður en IB - lán er tekið. Lánið er þá
afborgunarlaust í jafnlangan tíma og sparnaður hefur legið óhreyfður.
Hafðu samband við næsta útibú okkar eða hringdu beint í
IB-símaþjónustuna í Reykjavík, síminn er: 29630
Fáðu meiri upplýsingar, eða bækling.
Iðnaðarbankinn
QÍÍ BBiomwrl