Morgunblaðið - 19.06.1984, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNl 1984
37
dóttur. Þótt ekki væri ég kunnug-
ur heimilishögum Sveins, fann ég,
að hann bar mikla virðingu fyrir
konu sinni, enda mun hjónaband
þeirra hafa verið farsælt. Sveinn
og Emma áttu heimili á Djúpuvík,
í sambýli við foreldra Emmu, frá
1942—1957, en þaðan 1 frá var
heimili þeirra í Hafnarfirði.
Djúpavík, við innanverðan Reykj-
arfjörð, var staður, sem menn
bundu miklar vonir við um skeið.
Þar var um margra ára bil mikil
síldarsöltun og á árunum
1934—1935 var þar byggð síldar-
verksmiðja. En hún var aðeins
starfrækt um fárra ára skeið, því
að síldin hvarf úr Húnaflóanum
og hefur enn ekki ratað á fornar
slóðir. Þar með brast grunnurinn
undan vonum þeim, sem við verk-
smiðjuna voru tengdar. Þegar þar
við bættist, að aðrar fisktegundir
þurru einnig, hlaut staður og
byggð að gjalda þess. Verksmiðjan
var lögð niður og fólkið fluttist
smám saman burt til byggðanna
við Faxaflóa, en fasteignir urðu
verðlausar og að engu bættar.
Sveinn var allan sinn sjó-
mannsferil á fiskibátum við
þorsk- og síldveiðar meðfram
ströndum þessa kalda lands.
Hlutskipti hans, eins og annarra
vertíðarsjómanna, var að dvelja
langtímum saman fjarri ástvinum
sínum. Þeir gátu einungis verið
heima vor og haust, áður en farið
var á vertíð og á milli vertíða
unnu þeir ýmis konar verka-
mannastörf eftir því sem þau til
féllu. Á síðustu Djúpuvíkurárum
hans dvaldi fjölskyldan þó stund-
um syðra yfir vetrarvertíðina, en
fluttist svo aftur norður með vor-
inu.
Á seinni sjómannsárum sínum
var Sveinn á bátum, sem ýmist
voru frá Reykjavík, Keflavík eða
Hafnarfirði, og eftir að Sigurður
Pétursson, útgerðarmaður á
Djúpuvík, flutti útgerð sína til
Reykjavíkur, var Sveinn skipverji
á bátum hans. Sveinn var tryggða-
tröll og batzt vináttuböndum við
skipstjóra sína og skipsfélaga og
aðra þá, sem með honum störfuðu
og voru honum að skapi.
Eins og áður segir, fór Sveinn
alfarið í land seint á sjöunda ára-
tugnum, líklega 1967, og hafði þá
verið viðloðandi Ægi í um 40 ár.
Hóf hann þá störf í Skipasmíða-
stöðinni Dröfn. Verkstjóri þar var
Sigurjón Einarsson, skipasmíða-
meistari, giftur Andreu Péturs-
dóttur, hálfsystur Sveins. Taldi
Sveinn til þakkar við þau hjón
fyrir greiðvikni og góðan hug í
garð sín og sinna. f Dröfn vann
Sveinn af og til, frá þvf að hann
fluttist til Hafnarfjarðar, og
þangað hugðist hann fara til
starfa, þegar hann yrði að láta af
húsvarðarstarfinu fyrir aldurs
sakir.
Sveinn og Emma eignuðust
fjögur börn. Elzt þeirra er Kam-
illa, f. 1942, þroskaþjálfi. Hún er
gift dönskum manni, Hans Ove
Hansen, málarameistara. Búa þau
í Esbjerg og eiga tvö börn. Guð-
rún, f. 1944, dó á fyrsta ári. Guð-
mundur, f. 1946, kennari og rit-
stjóri, er kvæntur Guðlaugu
Kristmundsdóttur. Þau búa í
Hafnarfirði og eiga tvö börn.
Gunnlaugur, f. 1950, bankamaður,
skrifstofustjóri útibús Iðnaðar-
bankans á Selfossi, er kvæntur El-
ínu Ástráðsdóttur. Eru þau búsett
á Selfossi og eiga tvö börn.
Kynni mín af Sveini Guð-
mundssyni hófust, þegar hann var
ráðinn til starfa við Flensborg-
arskóla. Hann var mikill sóma-
maður til orðs og æðis, hógvær og
hlédrægur, maður starfsins fyrst
og fremst, fjölhæfur til verka og
kom það sér einkar vel í starfi
hans fyrir skólann. Hann var
verklaginn og verkhygginn og ið-
inn, svo að af bar, samvizkusamur
og samvinnuþýður, hýr í bragði og
hafði af glettni gaman, skipti lítt
skapi og tók því, sem að höndum
bar með jafnaðargeði. Hann var
fastur fyrir, ef honum fannst
rangt að málum staðið, en flíkaði
ekki sínum tilfinningum. Ekki
minnist ég þess að úr munni hans
félli styggðaryrði í garð manna
eða málefna. Var hann þó ekki
allra og líkaði misvel framkoma
manna og viðhorf, en engan lét
hann gjalda þess, hvorki í orðum
né athöfnum.
Sveinn var karlmenni í þess
orðs beztu merkingu, en þola
mátti hann líkamlega annmarka
hin siðari árin. Hann var heyrn-
arskertur nokkuð og jók það hlé-
drægni hans, en auk þess var hann
bagaður á fæti. Hvorugt lét hann
á sig fá og mælti ekki æðruorð.
Nú, þegar hann er allur, eru mér
efst í huga þakkir til hans fyrir
góð störf og elskuleg kynni.
Skyndilegt fráfall hans leiðir hug-
ann að fallvaltleik þessa lífs.
Eiginkonu hans, börnum og
barnabörnum sendi ég hugheilar
samúðarkveðjur.
Snorri Jónsson.
BROGA
skór fyrir siglingamenn
í framleiösiu á sigl-
ingaskóm.
Skórnir þola salt og bleytu, vegna
sérstakrar meöhöndlunar leöursins.
ttn
Ánanaustum
Siml 28855
PALOMA
Pessi með skottið!
OSA
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200