Morgunblaðið - 19.06.1984, Síða 34
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNl 1984
t
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
ÞORLEIFUR ÞORLEIFSSON,
Hraungaröi,
Grindavfk,
lést í Keflavíkurspítala aöfaranótt 18. júní.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar og tengdafaöir,
VIGFÚS SIGURGEIRSSON,
Ijósmyndari,
Miklubraut 64,
lést í Landspitalanum 16. júní.
Gunnar G. Vigfúason, Erla M. Helgadóttir,
Bertha Vigfúsdóttir, Gunnar A. Hinriksson.
+ Móöir okkar, tengdamóðir og amma.
GUDRÚN P. MAGNÚSDÓTTIR,
Skúlagötu 80,
lést í Landakotsspítala 17 júni.
Unnur Árnadóttir, John McDonald,
Gísli Árnason, Helga Einarsdóttir,
Magnús Árnason, Ólína Kristinsdóttir,
Þórunn Árnadóttir, Sverrir Hallgrímsson, Helga Gísladóttir
og barnabörn.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
ÞORGERÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR,
Sólvallagötu 24,
andaöist föstuaginn 15. júní.
Jarösett veröur frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 21. júni kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á
Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Sigurgeir Guömannsson,
Elín Guömannsdóttir,
Gunnar Guömannsson,
Bára Guömannsdóttir,
Alda Guömannsdóttir,
Jón Ingimarsson,
Anna Guómundsdóttir,
Magnús Karlsson,
Bjargmundur Albertsson.
Eva Björnsson
Borgen — Minning
F«dd 12. júlí 1898
Dáin 3. júní 1984
Já, nú er hún blessuð amma min
farin frá okkur. Er mér barst
þessi fregn brá mér auðvitað mik-
ið, þar sem ég var nýkomin í sveit
úti á landi. Þegar maður fer að
hugsa til baka má maður þakka
fyrir hvað hún hefur átt góða og
skemmtilega ævi. Ég mun til
dæmis aldrei gleyma sólbaðslífinu
í garðinum á Laufásvegi 67, þar
var oft glatt á hjalla. Ömmu Evu
þótti mjög gott að láta sólina
skína á sig og hvatti óspart aðra
að koma í sólbað til sín. Þegar gott
var veður fylltist garðurinn fljótt
af fólki á öllum aldri. Jafnvel
komu dýr í garðinn og þáðu alls
kyns kræsingar eins og við hin. Ég
get mér þess til að þeir sem hafa
kynnst því sem gerðist í garðinum,
munu aldrei gleyma stemmning-
unni sem ríkti þar.
Amma naut lífsins til hins ýtr-
asta og var mjög mikið gefin fyrir
tónlist og hún lét sig aldrei vanta
á sýningar sem henni þóttu
áhugavekjandi. Nú dettur mér
ekki fleira í hug til þess að skrifa
um þessa stundina, en ég mun
ætíð geyma minningarnar í hug-
anum. Eg get því miður ekki sagt
mikið um líf eldra fólks því aldur-
inn hjá mér er ekki farinn að
segja til sín, þar sem ég er fædd 72
árum seinna en amma mín.
Valgerður Helga Björnsdóttir.
Mig langar að kveðja vinkonu
mína og fjölskyldu minnar með
nokkrum orðum.
Eva fæddist í Osló 12. júlí 1898.
Dóttir hjónanna Dagnýjar fædd
Hoften og Thomasar Borgen
læknis. Áttu þau þrjú börn og var
Eva í miðið. Elstur var Sjur verk-
fræðingur, sem kom hér þegar
sjálfvirka símstöðin var reist og
lifir Vencke ekkja hans enn í hárri
elli. Eva unni bróður sínum Sjur
og voru þau einkar samdrýnd.
Systur sína Elísabetu, sem dó
barn að aldri, syrgði hún mjög.
Thomas Borgen féll frá langt um
aldur fram, skömmu eftir að Eva
varð stúdent, og varð það til þess
að þær mæðgur, Eva og móðir
hennar, fluttu til Kaupmanna-
hafnar, þar sem bróðir hennar var
við nám. í Kaupmannahöfn
kynntist hún ungum íslendingi,
sem var þar við verkfræðinám og
gengu þau í hjónaband 9. febrúar
Nýkjörin stjórn Frama, stéttarfélags leigubílstjóra, ásamt fráfarandi for-
manni. Á myndinni eru talið frá vinstri: Guðmundur Á. Guðmundsson, ritari,
Haraldur Sigfússon, gjaldkeri, Guðmundur Valdimarsson, formaður, Úlfur
Markússon, fráfarandi formaður, Jakob B. Þorsteinsson, varaformaður, og
Jóhannes Guðmundsson, meðstjórnandi
t
Sonur okkar og bróöir,
HERMANN ÞÓRISSON,
Lækjarfit 3,
sem lést aöfaranótt 10. júní, veröur jarösunginn frá Garöakirkju
miövikudaginn 20. júní kl. 14.00.
Jónína Víglundsdóttir, Þórir Björnsson
og systkini.
Formannaskipti
í Frama
stéttarfélagi
leigubflstjóra
Formannaskipti urðu í Frama,
stéttarfélagi leigubílstjóra, 24.
maí al. tJlfur Markússon, sem
gegnt hefur formannsstarfinu
undanfarin 11 ár, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs, en varaformað-
ur félagsins Guðmundur Valdi-
marsson var kjörinn formaður.
Aðrir í stjórn Frama eru Jakob
B. Þorsteinsson varaformaður,
Guðmundur Á. Guðmundsson rit-
ari, Haraldur Sigfússon gjaldkeri
og Jóhannes Guðmundsson með-
stjórnandi. Varastjórnendur eru
Valdimar Elíasson og Baldur Þ.
Bjarnason.
+
SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áöur Laugavegi 147,
andaöist 15. júní. Utför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 21. þ.m. kl. 10.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á Fríkirkjuna.
Erla Wigelund, Kriatján Kristjánsson.
Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir,
HALLDÓR RUNÓLFSSON,
Kleppsvegi 46, Reykjavík,
veröur jarösettur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. júní kl.
13 30.
Katrín Valdimarsdóttir,
Kristbjörg Halldórsdóttir,
Runólfur Halldórsson,
Hulda Matthíasdóttir.
+ Systir okkar og mágkona. + Elskulegur sonur okkar, bróöir og faöir,
UNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR ARON HALLDÓRSSON,
fré Melabúö, Kleppsvegi 66,
andaöist í Borgarspítalanum 14. júni. veröur jarösettur frá Fossvogskirkju miövikudaginn 20. júní kl.
Minningarathöfn veröur í Fossvogskirkju miövikudaginn 20. júní kl. 15.00.
13.30. Útförin fer fram frá Hellnakirkju fimmtudaginn 21. júní kl. 14.00. Halldór Sölvi Björnsson, Þórey Kristjénsdóttir,
Magnfríöur Sigurbjörnsdóttir, Guömundur Sæmundsson, Kristín Kowaleski, Halldóra Capio, Guörún Jónsson, Rut Keeler,
Péftur Sigurbjörnsson, Ásfta Jónadótftir, Vigdís María Jeglinski Kristjén Egill Halldórsson
Páll Sigurbjörnsson, Pélina Andrésdóttir. og Anna Bára Aronsdóttir.
1923. Var þetta Valgeir Björnsson,
sem varð bæjarverkfræðingur í
Reykjavík og síðar hafnarstjóri
um áratuga skeið. Fluttu ungu
hjónin í hús núverandi
Húsmæðraskóla Reykjavíkur á
Sólvöllum og þótti þetta heldur af-
skekkt miðað við stærð Reykjavík-
ur í þá daga. En Eva samlagaðist
fljótt fjölskyldu manns síns og
eignaðist fjölda vina sem mátu
tryggð hennar, hugulsemi og vin-
áttu mikils. Aðalsmerki Evu
fannst mér, hvernig hún á einlæg-
an hátt gat sameinað að vera
sannur Norðmaður og um leið
sannur íslendingur. Eva og Val-
geir voru svo lánsöm að fá að
fylgjast að og lifa það, að fá að
halda demantsbrúðkaup 1983, en í
júní sama ár dó Valgeir og nú
tæpu ári síðar kveðjum við Evu.
Éva átti sér mörg áhugamál,
sem hún rækti af lífi og sál. Var
hún mjög músikölsk og lék mikið á
píanó fram til hins síðasta. Áttu
þær frú Ingrid Markan margar
ánægjustundir við hljóðfærið. Á
tónleikum og listsýningum var
hún tíður gestur. Útivist og sund
stundaði hún alla tíð.
Heimilið að Laufásvegi 67 rúm-
ar margar endurminningar. Þar
var opið hús fyrir marga ættliði
og ekki vantaði að tekið væri vel á
móti hinum fjölmenna hópi vina
barna þeirra.
Síðustu 15 árin þegar kraftarnir
þrutu gerði Dagný foreldrum sín-
um kleift að halda uppi sama
heimilisbragnum, með sinni að-
dáunarverðu fórnfýsi og hjálp-
semi, sem seint verður fullþakkað.
Eva og Valgeir eignuðust fjögur
börn. Dagný, kennari, er þeirra
elst og hefur verið þeirra stoð og
stytta. Björg, bankaritari, er
ekkja Eggerts Kristjánssonar,
hæstaréttarmálaflutningsmanns,
Hallvarður, viðskiptafræðingur,
var kvæntur Rannveigu Tryggva-
dóttur og áttu þau 5 börn. Þáu
slitu samvistum. Kona hans er
Gunnhildur Ásta Baldvinsdóttir,
Björn Thomas, arkitekt, kona
hans er Stefanía Stefánsdóttir og
eiga þau 3 dætur. Barnabarnabörn
Evu og Valgeirs, sem voru orðin
tíu, áttu hauk í horni hjá þeim og
fengu önnur börn líka að njóta
þess.
Eva og Valgeir frændi hafa
fylgt fjölskyldu minni á gleði og
sorgarstundum eins lengi og ég
man eftir mér. Ég og við öll þökk-
um innilega ómetanlega vináttu
þeirra og tryggð í gegnum fleiri
ættliði um leið og við sendum
börnum þeirra og fjölskyldunni
allri innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning þeirra
hjóna.
Ingileif Bryndís Ilallgrímsdóttir.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.