Morgunblaðið - 19.06.1984, Blaðsíða 41
45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
. TIL FÖSTUDAGS
Tónlist og stiórnmál
Gestur Sturluson skrifar:
Undanfarið hafa orðið töluverð-
ar umræður um músík þá sem
spiluð er á milli „frétta á tákn-
rnáli" og „frétta", og hefir Pétur
Pétursson, útvarpsþulur, verið þar
aðallega að verki.
Ég hef lítillega minnst áður á
þetta í skrifum mínum í Velvak-
anda og ætla ég ekki að endurtaka
það. Ég er að mörgu leyti sam-
mála Pétri þó ekki vilji ég gera
kröfu til þess að tónlistin sé ein-
göngu íslensk, því tónlist er al-
þjóðlegt fyrirbæri. Ég geri ein-
ungis þá kröfu að spiluð sé af-
slappandi tónlist og að hún skeri
ekki í eyrun. Og það vil ég segja
sjónvarpinu til hróss að tónlistin á
þessum tíma hefur skánað mikið
að undanförnu, hvort sem það er
nöldri okkar Péturs að þakka eður
ei.
En það var eitt sem mig langaði
að drepa á í þessu sambandi og
það er það að ráðist var harkalega
Jón Múli Árnason
á Pétur Pétursson vegna að-
finnslna hans við tónlistarflutn-
inginn í sjónvarpinu. Var Pétur
sakaður um kommúnisma í þessu
sambandi vegna þess að hann væri
á móti bandarískri tónlist. Nú
ætla ég mér það ekki að verja Pét-
ur, það er hann fullfær um sjálfur.
En ég vil benda á það að þessi
ásökun á Pétur er fáránleg og að
ætla að blanda saman pólitfskri
skoðun og tónlistarsmekk manns-
ins er jafn fáránlegt og því gat ég
ekki orða bundist.
Maður er nefndur Jón Múli
Árnason og hefur hann verið einn
helsti útvarpsþulur okkar íslend-
inga árum saman. Einnig er hann
lagasmiður ágætur.
Jón Múli er mikill kommúnisti
og meira að segja einn af fáum
stalínistum sem enn eru ofar
moldu. Fáir hafa hins vegar unnið
jafn mikið og vel að útbreiðslu
bandarískrar menningar og hann.
Aðallega hefur hann unnið ötul-
lega við að kynna bandaríska tón-
listarmenningu og væri ég sendi-
herra Bandaríkjanna hér á íslandi
væri ég fyrir löngu búinn að
heiðra Jón fyrir vikið.
Nú má enginn skilja orð mín svo
að ég hafi ekki sama tónlistar-
smekk og Jón Múli. Ég hefi ákaf-
tega gaman af að hlýða á gamlan
og góðan Dixieland.
En ég vildi bara benda á hversu
hæpið er að blanda saman tónlist-
arsmekk og stjórnmálum.
Að segja
hug sinn
Þorsteinn Guðjónsson skrifar:
Ástæða er til að taka undir með
Helga Sigurðssyni, sem nýlega
varaði við „kurteisisheimsóknum"
erlendra herskipa hingað til lands,
og jafnframt ber að virða hann
fyrir þann kjark að láta fullt nafn
fylgja skrifi sínu um þetta mál —
því þetta er einmitt það sem ís-
lendingar hafa verið einna deig-
astir við að láta frá sér heyra um.
Það þurfti milljón króna tjón til
þess að menn áttuðu sig á því, að
slíkar kurteisisheimsóknir eru
raunar allt annað en kurteisi.
Liðsmennirnir eru „úrlendir", eins
og menn segja, auk þess að vera
erlendir, en það þýðir að engin lög
ná yfir þá og geta þeir gert það
sem þeim sýnist. Engin furða er
þótt hið „veika kyn“ sé veikt fyrir
slíkum rétthöfum.
Til þess að láta krók koma á
móti bragði er aðeins eitt ráð til,
og það er að gera það sem hinir
geta ekki. Allir íslendingar vita að
til er það sem heitir fjarhrif eða
hugsamband milli manna. Enginn
ber á móti þessari staðreynd, og
ennfremur er sumum það ljóst, að
beiting þessa hæfileika verður að
gerast í sambandi við það sem
stundum er nefnt forsjón eða
handleiðsla (sbr. grein Gests í
Velvakanda 11. júní). Hinir lengra
komnu styðja þá skemmra komnu,
þegar hinunt skemmra komnu
tekst að vera samhuga.
íslendingar gætu, ef þeir vildu,
beitt þessu afli til þess að hrinda
frá sér hinum lagalausu heim-
sóknum. — Því að forsjónin er til.
Ef menn hugsa þetta og segja það
hverjir við aðra, verður ekkert úr
svona heimsóknum, því að her-
veldin eru varnarlaus fyrir því af-
li, sem hér kemur til greina. Sigur
fjarhrifa-aflsins yfir hernaðar-
stefnunni væri sigur hins rétta á
hinu ranga.
Þessir hringdu
Mann-
skemmandi
Fassbinder
„Arnar-
hreiðrið"
SJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Það hefur verið
rætt talsvert um bílageymsluna
sem stendur undir Seðlabanka-
byggingunni sem nú er að rísa og
hafa menn verið að gamna sér
við það að gefa bílageymslunni
nafn. Mér kom í hug heitið „Arn-
arhreiðrið" á henni. Þetta er
hálfgert hreiður þarna utan í
Arnarhólnum og því hægt að
nefna það þessu nafni.
Hins vegar er þetta ekki gert í
því skyni að kasta steini að
Seðlabankanum, síður en svo. Ég
hefi einungis átt góð viðskipti
við Seðlabankann.
Sólveig hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Ég vil endi-
lega beina þeim tilmælum mín-
um til sjónvarpsins að þeir taki
af dagskránni þennan Fas-
sbinder-þátt sem er á dagskr-
ánni á miðvikudögum. Þessi
þáttur er bæði mannskemmandi
og andstyggilegur. Ég skil ekk-
ert í því hvers vegna er verið að
fá svona myndir til sýninga í
sjónvarpið það verður endilega
að koma í veg fyrir það að þessi
ófögnuður birtist mönnum aftur
á skjánum.
Listahátíð, Rás 2
og sjónvarpið
Guðrún Pálsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langar til að beina þeirri
fyrirspurn til Listahátfðar hvort
ekki sé hægt að endurtaka
dagskrá Íslenska dansflokksins
sem var í Norræna húsinu fyrir
skömmu.
Þá langar mig einnig að
kvarta svolítið yfir morgunþætt-
inum sem er á rás 2. Það er eins
og þeir sem þar stjórna séu bara
með þetta fyrir sjálfa sig.
Og að lokum langar mig að
þakka sjónvarpinu fyrir bíó-
mynirnar sem það sýndi laug-
ardaginn 9. júní.
Brottför: 11. júlí — 13. júlí — 22. ágúst —
24. ágúst — 12. sept. — 3. okt.
Gisting með og án fæðis. Hótel eða íbúðir.
SIIMARHIIS
SÚMARHÚSIN OBERALLGAU í hjarta Bæjara-
lands í Þýskalandi, stutt frá Bodensee. Mjög góö
aöstaöa til útivistar og skemmtunar. Mjög góð
gisting í Studíó-íbúöum eöa stærri íbúöumfyrirfjöl-
skyldur.
Brottför alla laugardaga. Dvalartími 1-3 vikur.
Flug gisting,bílaleigubíll,verö frá:12.589,tveir í
íbúð.
iMMBA
MWMM
Flug og bíll — eða flug og gisting alla föstudaga
Flug og bíll — flug og gisting.vikuferöir.g
Flug og gisting — flug og bill. Vikuferöir alla föstudaga.
Fáiö sumarbæklinginn i skrifstofunni í Aöaistræti 9 —
eöa hringiö í síma 28133 og fáið hann sendann í pósti.
Hótel- og farmiöapantanir út um allan heim.
FERÐA
MIÐSTODIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133