Morgunblaðið - 19.06.1984, Page 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
Fiölbreytt vöruúrval
H/F OFNASMIÐJAN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220
SMIÐJUBUÐIN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 19562-21220
Vaskar, margar stæröir.
Blöndunartæki fyrir eldhús.
Harðplast frá Perstorp.
Hillur fyrir geymslur, lagera og verslan-
ir, margar stærðir. Auðveld uppsetning.
Mývatnssveit:
Höfðinn skartaði sínu feg
ursta á Þjóðhátíðardaginn
Mývatnssveit, 18. júní.
MÝVETNINGAR minntust þjóðhá-
tíðardagsins 17. júní með hefð-
bundnum hætti. Klukkan 10.30 í
sunnudag var sundmót með léttu
ívafi í sundlauginni við Krossmúla.
Þar var einnig keppnissund hjá
börnum 7 til 16 ára.
Klukkan 14 var hátíðardagskrá
í Höfða. Hófst hún með helgistund
sem sóknarpresturinn, séra Örn
Friðriksson, annaðist. Einnig var
sungið. Ávarp fjallkonunnar flutti
Æsa Hrólfsdóttir. Jón Illugason
flutti hátíðarræðu. Síðan var farið
í leiki og fleira sér til gamans gert.
Var sérstaklega reynt að skemmta
yngsta fólkinu. Klukkan 17 var
diskótek fyrir yngra fólkið í
Skjólbrekku. Kynnir á samkom-
unni var Haraldur Bóasson.
Klukkan 20.30 var knattspyrnu-
leikur á Krossmúlavelli á milli
kvennaliðs HSÞ b og Sniðils hf.
Hátíðahöld dagsins fóru mjög vel
fram, fjölmenni var. Veðrið var
hið besta, sunnanvindur og hlýtt.
Hiti fór í 17—18 stig. Höfðinn
skartaði sínu fegursta og allur
gróður þar slíkur að það gleður
augað. Mega Mývetningar sann-
arlega, um leið og þeir halda þar
þjóðhátíð, minnast þess ágæta
fólks sem gert hefur þennan stað
að þeim unaðsreit sem hann er í
dag.
— Kristján
Skrúöganga á Laugarvatni
Þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur á Laugarvatni eins og
víða annars staðar á landinu. Ungmennafélagið stóð fyrir skrúð-
göngu og síðan var haldin hátíðarsamkoma í íþróttahúsi héraðsskól-
ans. Davíð Þorsteinsson ljósmyndari Morgunblaðsins tók myndina af
skrúðgöngunni.
„Bestu vinir“ í
Austurbæjarbfói
BESTU vinir (Best Friends) nefnist
bandarísk kvikmynd sem Austur-
bæjarbíó hefur tekið til sýningar.
Leikstjóri er Norman Jewison, en
með aöalhlutverk fara Goldie Hawn
og Burt Reynolds.
Myndin greinir frá Richard og
Paulu sem hafa unnið saman i
fimm ár og búið saman í þrjú og
ákveða að gifta sig. Heimsækja
síðan foreldra beggja. Ýmislegt
kemur upp á ferðalaginu sem fær
þau til að velta því fyrir sér hvort
sambandið hafi ekki verið betra
utan hjónabands en innan.
Gerður Pálmadóttir, kjarnorkukona, sem rekur
Flóna og Sólskríkjuna: „BXinn er meiriháttar. Hann er
súperlipur í bænum og erótrúlega plássmikill. Sætin
eru þau bestu sem hægt eraö fá og frágangurinn er
miklu betri en í öðrum frönskum bílum, sem ég þekki.
Eini gallinn er að þurfa að slökkva á stefnuljósunum
og krafturinn er óþægilega mikill fyrir löghlýðna
borgara. Mér fannst ég besta gjaforð í bænum meðan ég hafði BXinn."
Citroén BX16 TRS, með 1580 cm392,5 hestafla bensínvél, kostar
frá kr. 443.260.-
G/obusr SÍMI81555
Cltroén BX 19 TRD, með 1905 cm3 65 hestafla dísilvél kostar frá kr. 385.200.- til leigubllstjóra en frá kr. 505.000.- til almenningsnota.
Cltroén BX er með 4ra strokka vatnskældri vél, 5 glra kassa, framdrif, vökvafjöðrun með hæðarstillingum og diskabremsur á öllum hjólum.
CITROÉN BX
----*-----