Morgunblaðið - 23.06.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984
Nýja James Bond-myndin:
Kvikmyndatökur
við Jökulsárlón
AÐSTANDENDUR næstu James
Bond-kvikmyndarinnar, „A View
Lést í bflslysi
í Fljótshlíö
Pilturinn sem lést í bílslysi í
Fljótshlíð á fimmtudag hét Þor-
valdur Steingrímsson til heimilis
að Laugalæk 16 í Reykjavík. Var
hann 17 ára gamall togarasjómað-
ur, fæddur 29. desember 1966,
ókvæntur og barnlaus.
to Kill“, eru nú komnir á Höfn í
Hornafirði, en kvikmyndatökur
hefjast á morgun, sunnudag, við
Jökulsárlón. Er áætlað að þær taki
um tíu daga.
í hópnum sem hingað kominn
eru 28 manns. Auk þeirra starfa
um 20 íslendingar á einn eða
annan máta við gerð myndarinn-
ar, sem Saga-film er íslenskur
umboðsaðili fyrir. Þá verða 16
öryggismenn á staðnum þegar
kvikmyndatökur fara fram,
vegna slysahættu við lónið. Leik-
stjóri myndarinnar, John Glenn,
er væntanlegur hingað til lands
einhvern næstu daga, en hann
var hér áður á ferð til að kynna
sér aðstæður.
Aðalleikarinn, Roger Moore, er
ekki á meðal þeirra sem hingað
komu, en staðgengill hans, Mart-
in Grace, leikur í atriðinu sem
hér verður tekið. Það er upphafs-
atriði myndarinnar, þar sem
Bond er á flótta undan Rússum
og kemst undan á „ísjaka". Má
geta þess að þetta er önnur ferð
Grace til íslands á skömmum
tíma, hann var hér við gerð
kvikmyndarinnar Enemy Mine á
dögunum.
Hér er þýska flutningaskipið Eliza Heeren í Reykjavíkurhöfn, en fálka-
eggjaþjófurinn fannst þar um borð í gærmorgun.
Leiguskip Hafskips:
Strokumaður-
inn um borð
— skipinu snúið til Esbjerg
Þjóðverjinn Miroslav Peter
Baly, sem grunaður var um fálka-
eggjaþjófnað og hvarf sl. þriðju-
dag, fannst í gærmorgun um borð í
þýska flutningaskipinu Eliza Heer-
en, sem Hafskip hefur á leigu. Er
skipið nú á leið til Esbjerg í Dan-
mörku þar sem dönsk yfirvöld
munu að öilum líkindum framselja
strokumanninn íslenskum yfir-
völdum. Er áætlað að skipið komið
þangað um kl. 3 í nótt, en það var
á leið til Hamborgar.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins mun grunur
hafa beinst mjög fljótlega að
þýska flutningaskipinu eftir að
Miroslav Teter Baly var saknað,
því að sést hafði til hans í hópi
skipverja á Eliza Heeren áður en
það lagði af stað til Þýskalands.
Að sögn Jóns Hákonar Magn-
ússonar framkvæmdastjóra
Hafskips kom útlendingaeftirlit-
ið þeirri beiðni á framfæri við
Hafskip um kl. 15 í gær að áætl-
un Eliza Heeren yrði breytt, og
siglt yrði til Esbjerg í stað Ham-
borgar vegna þess að nær von-
laust er að fá þýskan ríkisborg-
ara framseldan frá Þýskalandi
þar sem engin lög eru um slíkt
milli landanna. Jón Hákon sagði
að forsvarsmenn Hafskips hefðu
þegari^ta^fan^þess^leit^æði^
Þessi mynd var tekin þegar farið
var með Miroslav Peter Baly úr
sakadómi eftir að hann hafði verið
dæmdur í gæsluvarðhald 3. maí sl.
við útgerðarfélag skipsins, Baum
& Co., og skipstjóra Eliza Heer-
en að skipið sigldi til Danmerk-
ur, til að fá manninn framseld-
an, en því hafi fyrst verið hafnað
því að um þýskan ríkisborgara
var að ræða. Þegar þeim hafi
síðan verið bent á að ekki væri
unnt að sanna að maðurinn væri
þýskur vegna þess að hann var
skilríkjalaus hefði skipstjórinn
samþykkt að sigla til Danmerk-
ur, enda hefði annað verið brot á
leigusamningi. Er þvi eins og áð-
ur sagði von á skipinu til Es-
bjerg í nótt.
Dauphin-þyrla, sömu gerðar og þyrla sú sem keypt hefur verið fyrir Landhelgisgæsluna.
Dauphin-þyrla keypt fyr
ir Landhelgisgæsluna
— er m.a. með infra-rauðum búnaði
SÍÐDEGIS í gær undirrituðu fjár-
málaráðherra og dóms- og kirkju-
málaráðherra samning við frönsku
Aerospatiale-verksmiðjurnar um
kaup á Dauphin-björgunarþyrlu
fyrir Landhelgisgæsluna. Kaup-
verð er 29 milljónir franskra
franka eða rúmlega 100 milljónir
ísl. króna. Afgreiðslufrestur er 12
mánuðir en um það var samið jafn-
framt kaupunum að Landhelgis-
gæslan fengi þyrlu sömu tegundar
á leigu frá septeraberlokum næst-
komandi og þar til nýja þyrlan
kemur til landsins, að sögn Ölafs
Walters Stefánssonar, skrifstofu-
stjóra í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu.
Þyrlan er af gerðinni Dauphin
2 SA 365 N. Hún er af svipaðri
stærð og Sikorsky-þyrla Land-
helgisgæslunnar, TF-RÁN, sem
fórst í Jökulfjörðum í vetur en
franska þyrlan á að koma í
hennar stað. ölafur Walter sagði
að þyrlan yrði með fullkomnum
búnaði vegna þarfa Landhelgis-
gæslunnar meðal annars til
björgunar og leitar. Meðal tækja
um borð er infra-rauður búnað-
ur, það er búnaður til að nota við
leit og björgun í myrkri og við
slæm skilyrði. Er hann að sögn
Ólafs talinn einkar hentugur til
að finna mann í sjó i myrkri.
Fjórir fulltrúar frá Aerospati-
ale-verksmiðjunum hafa verið
hér á landi að undanförnu til
viðræðna og samninga um þyrlu-
kaupin. í fyrradag og í gær
gengu tilboðin á milli aðila, með-
al annars um kaupverð og
greiðsluskilmála. Viðstaddir
samningafundina voru auk ráð-
herranna og fuiltrúa verksmiðj-
anna menn frá Gunnari Ásgeirs-
syni hf., sem er umboðsaðili
verksmiðjanna hér á landi,
menn frá Landhelgisgæslunni og
viðkomandi ráðuneytum. Samn-
ingar um kaupin voru síðan und-
irritaðir af Alberti Guðmunds-
syni fjármálaráðherra og Jóni
Helgasyni dóms- og kirkjumála-
ráðherra fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar og fulltrúum Aerospati-
ale-verksmiðjanna. Ekki hefur
verið gengið endanlega frá
greiðslukjörum en ríkisstjórnin
getur samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins valið um hvort
hún tekur tilboði verksmiðjanna
um lánsútvegun í frönskum
bönkum sem nemur 85 til 100%
kaupverðsins og greiðist á 12 ár-
um eða tekur sjálf 12 ára lán og
borgar þyrluna út í hönd, en með
því móti fær hún 12,5% afslátt
af kaupverðinu.
Stigahlíð:
Ein 165 í endursölu
EIN AF einbýlishúsalóðunum í
Stigahlíð, sem Reykjavíkurborg
seldi hæstbjóðendum, hefur nú verið
auglýst til sölu hjá fasteignasölunni
Húsafelli. Aðspurðir kváðust for-
svarsmenn fasteignasölunnar ekki
geta gefið upp endanlegt verð lóðar-
innar, þar sem óskað væri eftir til-
boðum í hana.
Lóðin er á góðum stað og því í
hærri verðkantinum, en meðal-
verð lóðanna er um 1,6—1,7 millj-
ónir króna. Sölu lóðarinnar sögðu
þeir þannig til komna að eigand-
inn hefði boðið í tvær lóðir og ver-
ið úthlutað báðum, en hygðist að-
eins eiga aðra. Margar fyrirspurn-
ir hafa borist um lóðina, flestar
frá aðilum sem buðu í lóðir við
Stigahlíð en hlutu ekki.
„Ég þóttist vita af þessu dæmi
og á von á að þetta verði eina lóðin
sem fer í sölu,“ sagði Hjörleifur
Kvaran, skrifstofustjóri borgar-
verkfræðings, aðspurður. „Það er
kominn á samingur við aðilana 21,
sem eru búnir að kaupa lóðirnar
og búið er að ganga frá greiðslum,
þannig að mönnum er frjálst að
fara með þær á þann hátt sem þeir
kjósa." Hjörleifur sagði að kaup-
endur fengju útgefið afsal fyrir
lóðunum eftir 15. júlí nk. Fyrir
þann tíma þyrftu þeir að greiða
fjórðung af kaupverði. Væri slíkt
ekki gert áskildi borgin sér rétt til
að rifta kaupunum. Fram til sama
tíma hefðu menn rétt til að skila
lóðum, en eftir að fjórðungur
kaupverðs hefði verið greiddur
væri slíkt ekki hægt undir neinum
kringumstæðum.
Indriði Pálsson, forstjóri Skelj-
ungs hf., hafði samband við Morg-
unblaðið og kvaðst, að gefnu til-
efni, vilja taka það fram að lóðin
sem væri auglýst til sölu í Stiga-
hlíð væri hvorki lóð nr. 80, sem
Selveiðar að hefjast
SELVEIÐAR eru nú að hefjast að
nýju með vorkópaveiðinni, en aðal-
veiðitíminn er í júlí og síðan I
haust. Það er landselskópurinn,
sem veiddur er á vorin, en útsels-
kópurinn á haustin.
Erlingur Hauksson, sjávar-
líffræðingur, sagði í samtali við
blm. Morgunblaðsins, að sér virt-
ist veiðin fara af stað nú með
svipuðum hætti og undanfarin
ár. Hins vegar lægu enn engar
tölur fyrir um veiðina. Nú væru
veiðilaunin þau sömu fyrir alla
kjálka, 200 krónur auk 10 króna
fyrir hvert kíló. Engin vand-
kvæði væru því vegna hræja.
Tekið væri á móti þeim í frysti-
húsum og þeim síðan safnað
saman á fóðurstöðvum loð-
dýrabúa víða um landið. Er-
lingur sagði ennfremur, að helztu
selveiðisvæðin væru við Suðaust-
urland, Breiðafjörð, Vestfirði og
Húnaflóa.
honum var úthlutað, né heldur lóð
nr. 78, sem úthlutað var til eigin-
konu hans, Elísabetar Hermanns-
dóttur, þau hjónin væru ekki að
selja lóðir sínar og hefðu ekki í
hyggju að gera slíkt.
Lést í vinnuslysi
f Þúfuveri
Maðurinn sem lést í Þúfuveri í
fyrrakvöld þar sem hann var við
vinnu við Kvíslárveitur hét Jón
Sigurðsson til heimilis að Foss-
öldu 10 á Hellu. Hann var 24 ára
gamall, fæddur 10. maí 1960 og
lætur eftir sig eiginkonu og unga
dóttur. ____.