Morgunblaðið - 23.06.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.06.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984 15 Höphnershús Ljósmynd/Hallgrlmur Einarsson. landi. Smiðjan nýlegur staður en Hótel KEA með húsgögn og inn- réttingar aðeins eldri en lýðveld- isstofnunin. f ódýrari flokknum eru Bautinn og Súlnaberg, en fyrir þá sem eru enn á Skeiðaréttastig- inu hentar Sjallinn best. Mikil og góð viðbót er svo Laxdalshús, þar sem meðal annars má panta Eyja- fjarðarbotn með Rjómaframburði, svo eitthvað sé nefnt úr matseðl- inum. Er þetta svar Akureyringa við veitingahúsum Reykvíkinga, Torfunni og Lækjarbrekku. Ekki má gleyma Lystigarðinum á Akureyri, hann er einstakur í sinni röð. Stofnaður árið 1912 af konum á Akureyri undir forystu frú Önnu Schiöth, en i dag er for- stöðumður garðsins Jóhann Páls- son grasafræðingur. í Kjarnaskógi er nú komin af- bragðs útivistaraðstaða og er þar mjög skemmtilegt að koma, enda menn farnir að koma þangað um helgar með útigrillið sitt og fara í gönguferðir um þennan ævin- týraskóg. Þann 1. nóvember 1901 þjuggu á Akureyri 1.370 manns. Arið 1936 bjuggu þar 4.519 manns. Þann 1. desember 1983 bjuggu þar 13.742 (Glerárhverfi nú sameinað bænum). Það er langt síðan hjón ein hér á Akureyri sneru sér að okkur bræðrum skammt frá sundlaug- inni að haustlagi 1936 og spurðu: „Getið þið sagt okkur hvar þau eiga heima hér á Akureyri, hann Jón og hún Gunna?" Síðan eru 48 ár. f fyrra voru beinar flugferðir til Kaupmannahafnar frá Akur- eyri. Svo stórt er stökkið frá 1936. Ég lýk þessu bréfi með sögu frá Akureyri, sem sýnir, að Akureyr- ingar hafa alltaf kunnað að svara fyrir sig. Þetta var skömmu fyrir stríð. Ungur Akureyringur, Jó- hannes Snorrason (Billi), síðar flugstjóri, kemur akandi á mót- orhjóli sínu niður á Höphners- bryggju, þar sem enskur tundur- spillir lá. Vinurinn skoðar skipið í krók og kring, en ætlar síðan að ræsa hjólið og aka á brott. En það vildi ekki í gang. Tóku þá hásetar um borð að hlæja að Jóhannesi. Gekk hann þá til þeirra, benti á hjólið og sagði: „Made in England" (ensk framleiðsla). Akureyri á hvítasunnu 1984, Leifur Sveinsson. Keppendur fslands í Ólympíuleikum { eðlisfræði ásamt fararstjórum sínum, t.f.v. Hans Kr. GuAmundsson, eðlisverkfræðingur, Vilhjálmur Þorsteinsson, Finnur Lárusson og Viðar Ágústsson, eðlisfræðingur. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði: íslendingar þátt- takendur í 1. sinn 15. Ólympíuleikarnir i eðlisfræði verða haldnir í ár í borginni Sigtuna í Svíþjóð. fslendingar taka þátt í keppninni að þessu sinni og er það í fyrsta sinn. Keppendur verða frá 17 þjóðum auk íslands: Austurríki, A-Þýska- landi, Bretlandi, Búlgaríu, Finn- landi, Hollandi, Júgóslavíu, Kúbu, Noregi, Póllandi, Rúmeníu, Svfþjóð, Tékkóslóvakíu, Ungverjalandi, V-Þýskalandi og Víetnam. Fyrstu leikarnir af þessu tagi voru haldnir í Varsjá í Póllandi, árið 1967, og hafa þeir síðan verið haldnir á ári hverju að undan- skildum árunum 1973, 1978 og 1980, en keppni var haldin nú síð- ast í Búkarest í Rúmeníu. Fyrir fslands hönd keppa þeir Finnur Lárusson, 17 ára nemandi við MH, og Vilhjálmur Þorsteins- son, 18 ára stúdent frá MH. Þeir urðu hlutskarpastir i landskeppni í eðlisfræði sem haldin var fyrr á þessu ári á vegum Eðlisfræðifé- lags fslands og Félags raungreina- kennara. Með í förinni til Svíþjóðar verða tveir fararstjórar, þeir Hans Kr. Guðmundsson, eðlisverkfræðingur við Raunvísindastofnun Háskól- ans, og Viðar Ágústsson, eðlis- fræðingur, en hann hefur annast þjálfun íslensku keppendanna. Hans Kr. Guðmundsson, farar- stjóri, sagði á blaðamannafundi að aðalatriðið með þátttöku íslands í keppni sem þessari væri fyrst og fremst að taka þátt og geta borið saman hvar við stæðum í eðlis- fræðikennslu. Keppni af þessu tagi veitti íslensku menntakerfi aðhald og stuðning og gæti þannig stuðlað að auknum gæðum þeirrar menntunar, sem hér væri veitt. íslensku keppendurnir halda utan til Svíþjóðar á sunnudag ásamt fararstjórunum, en keppnin mun standa yfir frá 24. júní til 1. júlí. Allur dvalarkostnaður kepp- endanna verður greiddur af Sænska eðlisfræðifélaginu og fræðsluyfirvöldum Svíþjóðar. Þá hefur íslenska keppnisliðið þegið aðstoð til fararinnar frá mennta- málaráðuneytinu, Eðlisfræðifélagi íslands, Félagi raungreinakenn- ara og Stáltækjum sf., en þeir gáfu keppendum reiknivélar til notkun- ar í keppninni. NISSAN SUNNY ÓTRÚLEGA SPARNEYTINN OG FRÁBÆRLEGA SKEMMTILEGUR í AKSTRI AUK ÞESS MEÐ ÖRYGGIFYRIR ÞIG SEM HNITMIÐUÐ OG HÁÞRÓUÐ TÆKNI EIN GETUR TRYGGT FRÁ NISSAN - AÐ SJÁLFSÖGÐU NISSAN SUNNY Þaö er ekki fyrir tilviljun aö á fimmtíu árum hafa Nissan-verksmiðjurnar oröið þriöji stærsti bifreiðaframleiöandi heims. Árangur þennan er að þakka einbeitni Nissan við aö ná fram bestu hugsanlegu hönnun í framleiðslu á bílum. Til þess mótuöu þeir nýj- ustu aðferðir og háþróaða tækni sem hefur orðiö öörum til fyrirmyndar um allan heim og eftirbreytni í útliti, sparneytni og endingu. Nissan hefur ætíö hannað bifreiðar sínar á þessum háleitu forsendum enda hafa bifreiðar þeirra getið sér frábæran oröstír. Sunny, sem er einn af nýrri kynslóð framhjóla- drifinna fjölskyldubíla frá Nissan, gefur hug- takinu „fjölskyldubíir nýja og víöa merkingu. Hann er ekki bara rúmgóður eins og hinn hefðbundni fjölskyldubíll, heldur er hann einnig ótrúlega sparneytinn, ódýr og sérstaklega endingagóður. Fyrirmynd fjölskyldubílsins er bíll meö sport- legu útliti sem gaman er að aka. Sunny passar ekki aðeins inn í þann ramma heldur bjó hann til enda ósvikin Nissan. Fullkomnun náö meö NISSAN-tækni OjMISSAN INGVAR HELGASON HF. Sýnlngarsalorlnn V/Raa&ager6i - Reykjavlk, Siml 91-33560.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.