Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjúní 1984næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    272829303112
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    1234567

Morgunblaðið - 23.06.1984, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.06.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ1984 31 Sól-hús og Snyrti-hús SelrotHÍ 18. iúní. NÝVERIÐ hófu starfsemi sína tvö ný fyrirUeki hér á Selfossi, Sól- Húsið og Snyrti-Húsið, en þessi fyrirtæki munu starfa f tengslum hvort við annað. Sól-Húsið býður upp á sólböð í mjög fullkomnum sólbekkjum með stillanlegri kælingu og and- litsljósum. Einnig er hægt að fá Slenderton nudd. Aðstaða til snyrtingar eftir sólböð er sérlega góð og fullkomin, þar sem hár- þurrkur og krullujárn eru til af- nota fyrir viðskiptavini ásamt kremi og snyrtivörum sem Snyrti-Húsið lætur ókeypis í té. Í Snyrti-Húsinu er boðið upp á mjög gott úrval af snyrtivörum fyrir dömur og herra, einnig býðst frítt make-up á afgreiðslutíma. Snyrtiþjónusta s.s. andlitsböð, handsnyrting, fótsnyrting, litanir o.fl. er líka fyrir hendi. Þórhildur Karlsdóttir snyrtifræðingur veitir Snyrti-Húsinu forstöðu, en Drífa Eysteinsdóttir hjúkrunarfræðing- ur og Bryndís Tryggvadóttir sjúkraliði veita Sól-Húsinu for- stöðu. Fyrirtækin eru til húsa að Eyr- arvegi 20, Selfossi. Haukur. Mótmæla fullyrðing- um um skordýravarnir FUNDUR var haldinn að Garðyrkju- skólanum á Reykjum 30. maí sl. og var fundarefni framkvæmd garðúðunar og bæklingurinn „Um skordýravarnir", sem nýlega var dreift til allra heimila á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn gerði eftirfarandi ályktun: Góð upplýsingastarfsemi, sem veitir hlutlausa fræðslu er nauðsynleg, enda sé hún byggð á þekkingu og reynslu þeirra sem hafa gert ræktun og umhirðu gróð- urs að ævistarfi sínu. Fundurinn mótmælir eindregið vissum fullyrðingum og óvísinda- legum vinnubrögðum sem fram koma í bæklingi „Um skordýravarn- ir“, sem gefinn er út af Heilbrigðis- ráði og Umhverfismálaráði Reykja- Sumarflug til Kulusuk FLUGLEIÐIR hófu 18. júní sl. sumarflug sitt til Kulusuk á Grænlandi, og verður haldið uppi reglubundnu flugi þangað til 30. ágúst. Flogið verður frá Reykja- víkurflugvelli þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, og lagt verður af stað kl. 11.30. Að sögn Árna Sigurðssonar, sölufulltrúa hjá Flugleiðum, er þetta flug fyrst og fremst hugs- að fyrir skoðunarferðir og um er að ræða dagsferðir undir leiðsögn fararstjóra. Flugið tek- ur tvær klukkustundir og í dagsferðunum lendir vélin aft- ur á Reykjavíkurflugvelli kl. 20. Ennfremur sagði Árni að á út- leiðinni, þ.e. til Kulusuk, verði flogið útsýnisflug fyrir farþega. víkur og fleiri aðilum, undir umsjón Kristínar Þorkelsdóttur og sam- kvæmt ráðgjöf frá Jóni Gunnari Ottóssyni skordýrafræðingi og Haf- liða Jónssyni garðyrkjustjóra. Óviðunandi er að opinberir aðilar gangist fyrir sllkum málflutningi eins og birtist i þessum bæklingi án þess að leita fyrst umsagnar sér- fróðra aðila. Siðar verður gerð grein fyrir einstökum atriðum. Einnig er bent á að viss atriði í reglum um garðaúðun eru ófram- kvæmanleg og þurfa endurskoðunar við, en um leið skal það undirstrikað að ákveðnar og skýrar reglur um framkvæmd garðaúðunar eru nauð- synlegar. Fundinn sátu eftirtaldir aðilar: Axel V. Magnússson og Óli Valur Hansson frá Búnaðarfélagi íslands, Grétar J. Unnsteinsson, skólastjóri Garðyrkjuskóla ríkisins, og kennar- ar skólans, þeir Guðmundur Sig- urðsson, Sigurður Þráinsson og Þórhallur Hróðmarsson, Magnús Ágústsson sérfræðingur og garð- yrkjustjórarnir Guðni Tómasson og Holger Hansen, Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur og f.h. Félags skrúðgarðyrkjumeistara Markús Guðjónsson og Þór Snorra- son, skfuðgarðyrkjumeistarar og f.h. Félags garðplöntuframleiðenda Pétur N. Ólason garðyrkjubóndi. Kristrún er forstöðu- kona Gefnarborgar ÞAU mistök urðu í frétt úr Garðin- um sl. fimmtudag, þar sem sagt var frá bát sem settur var niður á leikskólalóðinni, að Kristrún Guð- mundsdóttir var sögð gjaldkeri kvenfélagsins Gefnar. Hið rétta er að Kristrún er forstöðukona leik- skólans Gefnarborgar. Þetta Ieið- réttist hér með. _ ___ ® Rístarefni ELABID og þrep ir viö erfióar aöstæöur Heitgalvaniserað ristarefni úr gæðastáli. Bætt vinnu- aðstaða og aukið öryggi starfsfólks er allra hagur. Nyjung! Þrep með sérstakri hálkuvörn Aukiðöryggi við erfiðar aðstæður STALHF Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, símar: 27222 & 21684 Nýr lóran frá K0DEN Verð 28.000 Breidd 14,6 sm Hæö 16,0 sm Dýpt 8,7 sm Sjálfvirkur meö 60 minnum LITLA TROMPIÐ FRÁ K®DEN radiomidun Grandagaröi 9. Sími 23173.

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 141. tölublað (23.06.1984)
https://timarit.is/issue/119707

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

141. tölublað (23.06.1984)

Aðgerðir: