Morgunblaðið - 23.06.1984, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNl 1984
Samkeppni og
samkeppnishömlur
— eftir Svein Valfells
Á undanförnum mánuðum hef-
ur mikil umræða verið í fjölmiðl-
um og meðal almennings um sam-
keppni og samkeppnishömlur.
Aukið frjálsræði í verðlagningu og
vöxtum í verslun og hjá viðskipta-
bönkum og vaxandi samkeppni
þessara aðila, samfara deilna um
ágæti einkasölu, einokunar og
miðstýrðs verðlags, gefur tilefni
til að athuga ýmis hugtök er þessi
mál varða. Fyrst skal litið stutt-
lega á hið hagfræðilega líkan ein-
okur.ar. Gert verður grein fyrir
helstu niðurstöðum þeirrar skoð-
unar en ekki útlistun þeirra. Tvö
skilyrði þurfa að vera svo markað-
ur teljist einokun.
í fyrsta lagi þarf seljandi að
vera einn og í öðru lagi þarf eðli
vörunnar að vera slíkt að aðrar
vörutegundir geti ekki auðveld-
lega komið í stað hinnar einokuðu
vöru. Dæmi: Einokun á grænum
eplum dugar skammt ef sala á
rauðum eplum er frjáls. Hverjar
eru helstu niðurstöðurnar?
Kinokun reynir að hámarka gróða
sinn baeði til langs og skamms
tíma. Stærð framleiðslumagns er
yfirleitt ekki hagkvæmasta stærð.
Einokun getur aukið gróða sinn
með þvi að mismuna viðskiptavin-
um.
Hvað þýða svo þessar niðurstöð-
ur? Verð einokunar er yfirleitt
hærra en þar sem frjáls sam-
keppni ríkir. Framleiðslumagn er
yfirleitt ekki það hagkvæmasta
þ.e.a.s. neytandinn greiðir meira
fyrir vöruna og hún kostar meira í
framleiðslu, en einn þáttur þess
kostnaðar getur verið óeðlilegur
fjármagnskostnaður vegna offjár-
festingar. Hvort tveggja leiðir til
lægri lífskjara almennings (ekki
endilega þó einokunarsalans).
Einokunarsalinn mismunar við-
skiptavinum sínum eftir eigin
hentisemi t.d. með því að mis-
muna viðskiptavinum einokunar-
innar í verði.
Dæmi um samkeppni einokunar
við vörur annarrar tegundar er
samkeppni sauðfjárafurða við
annað kjötmeti aðallega svína- og
hænsnaafurðir. Þegar sauðfjáraf-
urðir fóru halloka i samkeppni við
þessar afurðir var fyrst reynt að
bæta samkeppnisstöðu sauðfjáraf-
urðanna með því að leggja á fóð-
urbætisskatt sem lagðist þyngst á
svína- og hænsnaræktendur. Þeg-
ar það dugði ekki var reynt að
koma þessum framleiðslugreinum
undir einokun, en vegna mótmæla
almennings var þeirri tilraun
slegið á frest. Margt bendir til
þess að sauðfjárbúskapurinn hafi
farið halloka fyrir öðrum búgrein-
um vegna einokunarinnar en ekki
þrátt fyrir einokunina og fram-
leiðslukostnaður þar sé hærri en
hann þarf að vera vegna óhag-
kvæmrar stærðar framleiðslu-
magns.
Dæmi um einokunarverð til há-
mörkunar gróða var hið háa verð
kókómjólkurinnar og mangósop-
ans á sama tíma og Floridana,
sem er framleitt með sama véla-
kosti, var selt ódýrara en aðrar
samkeppnisvörur. Eins má nefna
hinn mikla sláturgróða og/eða
kostnað en þar má eflaut finna
bæði hátt verðlag og mikinn fram-
leiðslukostnað vegna einokunar.
Óhófleg fjárfesting einokun-
arhringanna blasir allstaðar við í
mjólkur-, osta-, slátur- og sam-
vinnuhöllum.
Dæmi um mismunun verðlags
kom í ljós þegar uppvíst var að
samvinnuhreyfingin selur vörur í
Miklagarðshöllinni á lægra verði í
smásölu en hún selur sömu vörur í
heildsölu til kaupfélaga úti á landi
sem hafa víða staðbundna einokun
í verslun. Mismunurinn getur
einnig komið fram f vöruframboði
þar sem verslunarkeðja, sem er
bæði með heildsölu og smásölu,
selur aðeins sínar eigin vörur í
verslunum sínum. Hið fátæklega
vöruúrval kaupfélaganna er dæmi
um þetta.
Allt bendir til þess að sölukerfi
landbúnaðarins eins og það er i
dag með verð- og framleiðslustýr-
ingu, einokun á slátrun og stað-
bundinni verslunareinokun kaup-
félaganna, leiði til aukins fram-
leiðslukostnaðar og hás verðlags
bæði bændum og neytendunum í
þéttbýli og dreifbýli til bölvunar
og þeir einir sem njóti góðs af séu
stjórnendur kerfisins og launaðir
skrifarar þeirra.
Það er vegna þessara ókosta
einokunar sem víðast hvar í hin-
um vestræna heimi hafa verið sett
lög gegn samkeppnishömlum og
hringamyndun en slík lög hafa
ekki fengist samþykkt á Alþingi
íslendinga.
Elstu og fullkomnastu löggjöf
að þessu tagi er að finna í Banda-
ríkjunum, Norður-Ameríku og
verður gerð nokkur grein fyrir
henni hér á eftir.
Fyrstu lögin gegn samkeppnis-
hömlum eru hin svokölluðu
Sherman-lög frá 2. júlí 1890 sem
eru enn í fullu gildi og mikilvæg-
ust laga í þessu efni.
Fyrsta og mikilvægasta grein
Sherman-laganna hljóðar svo:
„Sérhver samningur, samkomu-
lag um hringamyndun, eða sam-
særi er hamlar viðskiptum eða
verslun innan ríkja Bandaríkj-
anna eða við erlendar þjóðir er
ólöglegur."
Ymis önnur lög hafa síðar verið
samþykkt til viðbótar en þeirra
mikilvægust eru Clayton-lögin frá
1914 er banna mismunun i við-
skiptum.
sölukerfi landbúnaðar-
ins eins og það er í dag
með verð- og fram-
leiðslustýringu, einokun
á slátrun og staðbund-
inni verslunareinokun
kaupfélaganna, leiði til
aukins framleiðslu-
kostnaðar og hás verð-
lags bæði bændum og
neytendum í þéttbýli og
dreifbýli til bölvunar og
þeir einir sem njóti góðs
af séu stjórnendur kerf-
isins og launaðir skrif-
arar þeirra.“
í gegnum árin hafa dómstólarn-
ir túlkað þessi lög og myndast hef-
ur réttarhefð. Helstu atriði henn-
ar eru þessi.
Samkomulag um verð er algjör-
lega bannað hvort sem það er
gjört með samkomulagi eða þegj-
andi samkomulagi („Conscious
Parallel Action").
Fyrirtækjum og fyrirtækja-
samsteypum er bannað að mis-
muna aðilum á einn eða annan
hátt. Fyrirtækjum er bannað að
mismuna í sölu, t.d. er fyrirtæki er
framleiðir bæði hráefni og full-
unna vöru skylt að selja öðrum
hráefni jafnvel keppinautum á
jafnréttisgrundvelli. Fyrirtækjum
eða fyrirtækjasamsteypum er
bannað að mismuna í innkaupum.
Þannig er fyrirtæki er ræður yfir
mörgum liðum í verslunarkeðj-
unni skylt að versla við aðra á
jafnréttisgrundvelli á hvaða stigi
verslunarinnar sem er ef slík sala
býðst.
Einnig eru ýmsar hömlur á
kaupum fyrirtækja á öðrum fyrir-
tækjum og hömlur á samruna
fyrirtækja ef það skaðar sam-
keppni.
Fyrirtækjum hefur verið gert
skylt að selja eða aðskilja hluta
starfsemi sinnar og meinað að
fara út í aðra starfsemi eða verið
leyst upp eins og nýlegt dæmi um
símahringinn ATT. Fjöldi ann-
arra atriða varða þessi lög sem er
of langt mál að fara út i hér.
Þessi löggjöf fellur undir saka-
lög og refsing við brotum er sekt
og allt að eins árs fangelsi. Einnig
geta þeir sem skaðast af brotum
af lögum þessum krafist bóta sem
nema allt að þreföldum skaðanum.
Er það einn aðal hvatinn til mál-
sóknar auk þess sem sérstök
stofnun Federal Trade Commision
(FTC) fer með mál sem þessi.
Fullyrt hefur verið að þar sem
engar hömlur eru lagðar á frjálsa
markaðsstarfsemi sé slík löggjöf
óþörf og er það rétt til lengri tíma
litið en frá skammtímasjónarmiði
getur aðgangur að markaði verið
takmarkaður í mislangan tíma af
tækni og öðrum ástæðum.
Löggjöf í þessa átt hefur ekki
fengist samþykkt á Alþingi ís-
lendinga vegna ímyndaðra hags-
muna dreifbýlisins og atkvæða-
misréttis milli dreifbýlis og þétt-
býlis, sem er brot á mannréttind-
um, því enginn grundvallarmunur
er á skerðingu atkvæðisréttar
hvort sem það er vegna kynþáttar,
kynferðis, trúarbragða eða búsetu
en út í þá sálma verður ekki farið
nánar í þessari grein.
Sreinn Valfells er rerk- og rið-
skiptafræðÍBgur.
Heiruildir: Cohea and Cyert,
Theory of the Firm. Oppeuheim
aad Westou, Federal Aatitrust
Law. Ilaaseii, Marketiug.
Fréttabréf úr Jónshúsi:
Fræðimannsíbúðinni gefið listaverk
Jónshúsi, 12. júní.
NÚ PRÝÐIR borð og glugga fé-
lagsheimilisins fjöldi fagurra
stofublóma, sem Félag íslenzkra
iðnrekenda hefur nú öðru sinni
gefið hingað eftir þátttöku félags-
ins í húsgagnasýningu á Bella
Center. Er sú hugsunarsemi vel
metin. Sigrún Eldjárn, myndlistar-
maður, hefur gefið fræðimanns-
íbúðinni listaverk í þakklætisskyni
fyrir dvölina hér í húsi og er það
vel. Fræðimenn hafa og flestir gef-
ið íbúðinni bækur sínar.
Hjörleifur -Stefánsson, arki-
tekt, sem dvalið hefur í fræði-
mannsíbúðinni, flutti nýlega er-
indi í félagsheimilinu um torf-
bæi og timburhús á íslandi, en
hann vann hér að söfnun gagna
um danska uppdrætti húsa á Is-
landi. Á skemmtun eftir mess-
una síðasta sunnudaginn í maí
hélt Hjörleifur fróðlegt erindi
sitt um húsagerð fyrri tíma á
heimalandinu og var gerður
mjög góður rómur að máli hans,
sem hann sjálfur kallaði raunar
aðeins „hjal“. — Þar las einnig
Ragnhiídur Ólafsdóttir, rithöf-
undur, sem búsett er í Kaup-
mannahöfn, úr bók sinni For-
fald, sem nefnd hefur verið Fólk
á förum í íslenzkri þýðingu.
Presturinn stjórnaði samkom-
unni og fjöldasöng, en Guðrún
Kristjánsdóttir organisti lék á
hljóðfærið.
Málverkasýning Sonju „Evi“
Brun Sverrisson hér í Jónshúsi
hefur staðið frá 1. júní og var
margt gesta við opnunina. Eru
málverk hennar 11, grafíkmynd-
ir 17 og einnig sýnir hún teikn-
ingar og tauþrykk. Er listakonan
mjög fjölhæf og andlitsteikn-
ingar hennar hrífandi. Næsta
sýning verður svo opnuð 28. iúní
en þar sýnir Lauri Dammert
ljósmyndir. Og þar á eftir verður
sýning Ingibjargar Rán frá 25.
júlí.
Nýlega boðaði SÍNE-deildin
hér í Höfn til fundar vegna
námslánamála og var Gunnlaug-
ur Júlíusson, trúnaðamaður
deildarinnar, fundarboðandi.
Var fundurinn fjölmennur og
voru hefðbundin mótmæli sam-
þykkt samhljóða. Lögð var
áherzla á þýðingu menntunar
fyrir þjóðfélagið, og á óvissuna,
sem námsfólki er steypt út í, er
það veit ekki hvort framhald
getur orðið á námi. Ríkti sam-
hugur á fundinum og var ákveð-
ið að viðhafa harðari mótmæla-
aðgerðir í haust, ef ekki yrði
bætt úr námslánafrumvarpinu.
I maí var íslenzk guðsþjónusta
í Klausturkirkjunni í Álaborg.
Formaður íslendingafélagsins í
Álaborg og nágrenni, Hallur
Hallsson í Hjörring, auglýsti
messuna meðal félagsmanna og
var hún vel sótt og ánægjulegt
að dvelja með löndum þar norð-
ur frá sem og annars staðar á
Norðurlöndum. I maí voru einn-
ig tvær íslenzkar fermingar-
guðsþjónustur, í Malmö og hér i
Höfn. Vegna íslenzkra ferða-
manna skal tekið fram, að mess-
ur íslendinga í Skt. Paulskirkj-
unni eru síðasta sunnudag mán-
aðarins í júlí, ágúst og septem-
ber og hefjast kl. 14. Q.L.Ásg.
nilngciis
iMiicdcl
SWEDEN
s*ggmj*
GLfBKoSTA
Opið:
Múnud. - fimmtud. kl. 9 - 1H
Föstudaga kl. 9-19
Laugardaga kl. 10 - 17
Sunnudaga kl. 13-17
hlílESS
DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI
SÍMI 54171