Morgunblaðið - 23.06.1984, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984
Mitterrand í Moskvu:
Viðræður snerust
um afvopnunarmál
Moakvu, 22. júní. AP.
FRANCOIS Mitterrand Frakklandsforseti sagði í dag að framtíðin yrði að leiða
í Ijós hvort tveggja daga viðræður sínar við sovéska leiðtoga myndu leiða til
slökunar spennu sem ríkir í samskiptum austurs og vesturs.
Tilræðið við páfa:
Bfll Búlgara
beiö á torginu
Róm, 22. júní. AP.
ÍTALSKT vikurit fullyrðir að sann-
anir séu fyrir því að Búlgarir hafi
ætlað að smygla tilræðismanni Jó-
hannesar Páls páfa, úr landi í
sendiráðsbifreið. Tímaritið segir að
ástæða sé til að halda að fjarvist-
arsönnun búlgarsks manns, sem
liggur undir grun í þessu sam-
bandi, sé tilbúningur og Búlgaría
hafi hjálpað aðstoðarmanni tilræð-
ismannsins að fiýja land.
Segir í tímaritinu að sannanir
séu fyrir því, að bíllinn hafi verið
á Péturstorginu í R6m þegar
skotið var á páfann. Tyrkneski
hryðjuverkamaðurinn, Mehmet
Ali Agca, sem skaut páfann, seg-
ir að hann og annar Tyrki, sem
einnig hefur verið ákærður fyrir
tilræðið, hafi átt að nota sendi-
ráðsbílinn til að yfirgefa torgið,
eftir að hafa skotið páfa og
sprengt nokkrar „hræðslu-
sprengjur" til að dreifa athygli
mannfjöldans.
Tímaritið byggir greinar sínar
á úttekt sem ítalskur saksóknari
gerði á málinu. Segir saksóknar-
inn að Búlgaría hafi, hugsanlega
með stuðningi Sovétríkjanna,
fyrirskipað tilræðið. Átti að
reyna að koma í veg fyrir stuðn-
ing páfastóls við óháðu verka-
Iýðssamtökin í Póllandi, föður-
landi páfa.
Beguní
einangrun
Tcl Aviv, ísracl, 21. júní. AP.
SOVÉSKI andófsmaðurinn Yosef
Begun, sem er af gyðingaættum, var
settur í einangrun í þrælkunarvinnu-
búðum þeim sem hann var dæmdur í
fyrra, að því er eiginkona hans
skýrði frá.
í einangruninni fær Begun
hvorki að senda frá sér né mót-
taka bréf. Hann fær að fara úr
klefa sínum í 30 mínútur á degi
hverjum en er meinað að fá heim-
sóknir.
Hann sagði að þungamiðjan í við-
ræðum sínum í Moskvu hefðu verið
afvopnunarmál og jafnvægi í
vopna- og herstyrk í Evrópu. Kvað
hann líklegt að á næstunni mundi
miða eitthvað í átt til geimvopna-
banns og samkomulags um að
fækka eða eyða efnavopnum.
Mitterrand sagði viðræðurnar
hafa verið „alvarlegar, yfirgrips-
miklar, kurteisislegar og án nokk-
urrar stífni". Hann sagðist ekki
Ákvörðun þessi er tekin í fram-
haldi af þeim atburði 5. júní þegar
herþotur Saudi-Araba skutu ír-
anska orrustuflugvél niður yfir
Persaflóa. Eftir ónafngreindum
sendiherra arabaríkis er haft að ír-
anska vélin hafi verið í árásarflugi
vera í hlutverki sáttasemjara í
deilu stórveldanna, Frakkar reyndu
að komast hjá því að skipta sér af
málum sem þeir ekki ættu aðild að.
Á morgun, laugardag, heldur
Mitterrand til Volgograd þar sem
orrustan um Stalingrad var háð,
þar sem sovéski herinn bar sigurorð
af herjum Hitlers.
Þetta er fyrsta heimsókn Mitt-
errands til Moskvu frá því hann
komst til valda í maí 1981. Hann
og ætiunin hafi verið að varpa
sprengjum á olíuhreinsunarstöð í
austurhluta Saudi-Arabíu.
íranir og írakar ásökuðu hvorir
aðra í dag um að brjóta samkomu-
lagið, sem komið var á fyrir
tilstuðlan Sameinuðu þjóðannna, að
aflýsti árlegum leiðtogafundum
Frakka og Sovétmanna vegna fram-
ferðis Rússa í Póllandi og Afganist-
an, en nú hafa leiðtogarnir ákveðið
að efna til tíðari funda sín á milli.
Aðspurður um málefni Sakhar-
ovs kvaðst Mitterrand vonast til að
eitthvað yrði aðhafst í þeim efnum
af hálfu Rússa. „Ég tjáði þeim
okkar afstöðu og þeim er hún ljós.
Ef ég get orðið að frekara gagni þá
er ég reiðubúinn að veita alla þá
aðstoð sem hægt er,“ sagði forset-
inn.
hlífa íbúðarhverfum í löndunum við
árásum. Hvorugir hafa þó haldið
því fram að óbreyttir borgarar hafi
látið lífið í þessum árásum.
Samkvæmt upplýsingum hernað-
aryfirvalda í löndunum tveimur
féllu 15 íraskir hermenn í bardög-
um við írani á suðurvígstöðvunum
á síðasta sólarhring og 8 iranskir
hermenn voru felldir í nágrenni
borgarinnar Basra.
Maóistar í Perú:
Myrtu 20
manns
Ajacucho, Perú, 22. júní. AP.
SVEIT 60 maóista réðst inn í lítið
þorp í Andean-héraðinu í Perú á
miðvikudag og skaut 20 manns til
bana, þ.á m. konur og börn.
Hryðjuverkamennirnir réðust
inn í þorpið Balcon og smöluðu
íbúum saman á torgi einu, þar sem
þeir völdu af handahófi 20 úr
hópnum og skutu þau til bana.
Sökuðu þeir fólkið um stuðning
við stjórnina í Perú.
Fjöldamorðin áttu sér stað að-
eins nokkrum klukkustundum eft-
ir að Frenado Belaunde Terry, for-
seti, lýsti því yfir í opinberri
heimsókn í Brasiliu, að stjórnin
væri tilbúin til að fjarlægja her-
afla frá þessu svæði, ef engar
blóðsúthellingar ættu sér stað
innan næstu 30 daga.
Veður
viða um heim
Akureyri 7 lóttskýjað
Amsterdam 17 skýjaó
Aþena 32 heióskfrt
Barcelona 23 þokumóóa
Berlín vantar
BrUaael 21 heíóskírt
Chicago 29 skýjaó
Dubtin 16 skýjaó
Feneyjar 25 skýjaó
Frankturt 28 heióakfrt
Genf 26 skýjaó
Helsinki vantar
Hong Kong 31 heióskfrt
Jerúsalem 24 skýjaó
Kaupmannahöfn 21 heiðskfrt
Las Palmas 23 lóttskýjaó
Lissabon 22 skýjaó
London 20 skýjaó
Los Angeles 26 heióskfrt
Luxemburg 20 skýjað
Malaga 26 hefóskfrt
Mallorca 25 léttskýjað
Miami 30 skýjað
Montreal 20 skýjaó
Moskva 20 heióskfrt
New York 28 hoiðskírt
Osló 17 rigning
Paris 26 heióskírt
Peking 28 heióskfrt
Reykjavik 8 lóttskýjaó
Rió de Janeiró 32 skýjað
Róm 28 heióskirt
Stokkhólmur 18 Mttskýjaó
Sydney 18 heíóskfrt
Tókýó 21 rigning
Vínarborg 30 skýjað
Þórshöfn vantar
Bonn fagnar
örlögum
tillögu Nunns
Bonn, 22. júní. AP.
JtÍRGEN Sudhoff, talsmaður stjórn-
arinnar í Bonn, auðsýndi ánægju
með úrslit atkvæðagreiðslunnar í
öldungadeild Bandaríkjaþings í vik-
unni er felld var tillaga um fækkun
bandarískra hermanna í Evrópu um
90 þúsund ef NATO-ríki ykju ekki
útgjöld til varnarmála.
„Niðurstaðan er í samræmi við
okkar hagsmuni. Það er óþarfi að
hafa fleiri orð um niðurstöðuna,"
sagði Sudhoff. Júrgen Reichardt,
talsmaður varnarmálaráðuneytis-
ins, kvaðst hafa búist við þessari
niðurstöðu þegar fyrir lá að stjórn
Reagans legðist gegn tillögunni.
Reichardt sagði að í rauninni
væri það óþarfi fyrir öldunga-
deildina að „vara Evrópuríkin við“
með þessum hætti, því upplýs-
ingamiðlun og samgangur milli
Bandaríkjanna og NATO-ríkja í
Evrópu væri mjög greiður. „Oski
ein ríkisstjórn einhvers er þarf-
laust að koma því til skila með
óbeinum þrýstingi af þessu tagi,“
sagði hann.
Salt veldur ekki of
háum blóðþrýstingi
Bandarískir vísindamenn:
Washington, 22. júní. AP.
BANIIARÍSKIR vísindamenn halda því fram í skýrslu, sem birt er í
tímaritinu Science í dag, að fólk geti sloppið við háan blóðþrýsting með
því að neyta kalsíums og annarra næringarefna í réttum hlutfdilum í
hóflega neyttum mat, jafnvel þótt salt sé notað ótakmarkað.
Vísindamennirnir, sem starfa
við heilbrigðisvísindaháskólann
í Oregon og byggja niðurstöður
sínar m.a. á upplýsingum frá
opinberri heilbrigðisstofnun,
segja að háþrýstingur stafi
fremur af skorti vissra nær-
ingarefna en ofneyslu annarra,
svo sem matarsalts.
Þessar niðurstöður munu ef-
laust verða umdeildar, því
hingað til hafa rannsóknir á
mönnum og skepnum bent til
þess að mikil saltneysla leiddi til
háþrýstings, en vísindamennirn-
ir í Oregon halda því gagnstæða
fram. Þeir segja niðurstöður sín-
ar gefa tilefni til spurninga af
því tagi hvort ástæða sé til að
ráða öllum háþrýstisjúklingum
frá saltneyslu.
Vísindamennirnir gera sér
grein fyrir hvaða afleiðingar
kenningar þeirra kunna að hafa
og í því sambandi hafa þeir
hvatt til þess að endurskoðað
verði mjög rækilega hvert hið
raunverulega samband sé milli
saltneyslu og blóðþrýstings.
Saudi-Arabar efla
loftvarnir sínar
Manama, Rahrain, 22. júní. AP.
SAUDI-ARABAR hafa eflt mjög loftvarnir sínar í því skyni að geta brugðist
skjótar við hugsanlegri árás írana, að því er AP-fréttastofan hefur eftir arabísk-
um stjórnarerindrekum og dagblaðinu Al-Qabas í KuwaiL