Morgunblaðið - 23.06.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984
23
Iðnríkin axli
hluta byrðanna
( artagena, Kolombíu, 22. júní. AP.
í DAG samþykktu stjórnir ellefu
Suöur-Ameríkuríkja ályktun á fundi
i Cartagena, þar sem Bandaríkin og
önnur iðnríki eru hvött til að axla
hluta þeirrar 350 þúsund milljóna
dollara skuldabyrði, sem Suður-
Ameríkuríkin hafa hlaðið á sig á
undanfönum árum. Ekki gátu stjórn-
irnar komið sér saman um leiðir til
að þrýsta á lánardrottna sína.
Fyrir fundinn höfðu verið uppi
vangaveltur um að ríkin reyndu að
koma sér saman um harða afstöðu
gagnvart lánardrottnum i Banda-
ríkjunum, en við setningar-
athöfnina hvatti forseti Kólombíu,
Belisario Betancur, fundarmenn
til að forðast fjandsamlegar að-
gerðir, en leita fremur eftir aðstoð
og skilningi meðal ríkja og fjár-
málastofnana. Einnig hvatti hann
til þess, að Suður-Ameríkuríki
efldu verslun sína innbyrðis og
leituðu sameiginlega eftir fjár-
festingarfé.
UNITA sleppir 20
Tékkum úr gíslingu
Jóhannesarborg, 22. júní. AP.
TUTTUGU Tékkóslóvakíumönnum, sem hafðir voru í haldi í frumskógum
Angóla frá því í mars í fyrra, var sleppt í dag og flogið áleiðis til heimalands-
ins um Suður-Afríku og Zaire.
Tékkarnir voru fangar UNITA,
sem berst gegn valdhöfum í Ang-
óla. Voru þeir teknir til fanga í
iðnaðarverum í Alto Catumbela í
vesturhluta Angóla 12. mars í
fyrra, ásamt 46 Tékkum öðrum,
konum og börnum, sem sleppt var
þremur mánuðum seinna, eftir
1.200 kílómetra göngu um frum-
skóga landsins til höfuðstöðva
UNITA við Jamba.
í Jamba voru Tékkarnir 20
hafðir í haldi í sínum kofanum
hver og höfðu engan samgang sín
á milli. Þeir segjast hafa hlotið
góða meðferð og aldrei verið pynt-
aðir eða sveltir. Þeir hlutu loks
frelsi er yfirvöld í Tékkóslóvakíu
létu á endanum undan kröfum
UNITA og sendu háttsettan emb-
ættismann til höfuðstöðva þeirra í
Jamba.
Embættismaðurinn kvaðst hafa
hitt Jonas Sawimbi leiðtoga UN-
ITA í Jamba og rætt ástandið í
Angóla við hann. Kvað hann
skæruliða engin skilyrði hafa sett
fyrir frelsi gíslanna 20.
Kohl ánægður í
Ungverjalandi
Búdapest, 22. júní. AP.
HELMUT Kohl kanzlari Vestur-
Þýzkalands átti í dag viðræður við
Jarðskjálfti
Kanía, Krít, 21. júní. AF.
KLUKKAN um hálfellefu f morgun
reið jarðskjálfti yfir grísku eyjuna
Krít og mældist hann 6,4 stig á
Richterkvarða.
Skjálftinn olli hræðslu meðal
fólks og lítils háttar skemmdum á
húsum, en engu manntjóni, að því
er haft er eftir lögregluyfirvöld-
um. Að sögn jarðskjálftastofnun-
arinnar í Aþenu átti jarðskjálft-
inn upptök sín í botni Eyjahafs,
um 275 km fyrir sunnan höfuð-
borgina, milli eyjanna Krítar og
Kýþíru.
Janos Kadar leiðtoga Ungverjalands
og sagði að þeim loknum að viðræð-
urnar hefðu verið opinskáar og já-
kvæðar þrátt fyrir hugmyndafræði-
legan ágreining um orsakir spennu í
alþjóðamálum.
Jafnframt lét Kohl vel af við-
ræðum við aðra háttsetta ráða-
menn í Ungverjalandsheimsókn-
inni. Þetta er fyrsta heimsókn
hans til annars Varsjárbanda-
lagsríkis en Sovétríkjanna.
Kohl tjáði blaðamönnum að
Ungverjar og V-Þjóvðerjar hörm-
uðu að viðræður um takmörkun
vígbúnaðar lægju niðri. Þær
þyrftu að hefjast að nýju hið
fyrsta. Báðir leiðtogarnir létu í
ljós von um að samskipti V-Þýzka-
lands og Ungverjalands ættu eftir
að aukast og eflast.
Walter Mondale og Tom Bradley á blaðamannafundi í gær. Simamynd ap.
Mondale leitar aö varaforsetaefni:
Verður Bradley
fyrir valinu?
North Oaks, Minnesota, 22. júnf. AP.
WALTER Mondale, sem keppir að kjöri forsetaefnis demókrata, leitar
nú að hugsanlegu varaforsetaefni um leið og hann bíður eftir vísbendingu
frá Gary Hart um að hann sé reiðubúinn að hætta baráttunni um útnefn-
inguna og viðurkenna Mondale sem sigurvegara.
Mondale hefur nú tryggt sér
fylgi nægilega margra fulltrúa
til að verða útnefndur forseta-
efni demókrata á þingi þeirra í
San Francisco í næsta mánuði.
Leit hans hófst í dag er hann
ræddi við Tom Bradley, borgar-
stjóra Los Angeles, í þrjár og
hálfa klukkustund. Mondale
sagði eftir fundinn að hann væri
sannfærður um að bandarískir
kjósendur myndu sætta sig við
svertingja í embættinu.
Borgarstjórinn sagðist vera
þess fullviss að Mondale myndi
íhuga málið vandlega. Mondale
sagði að Bradley hefði verið
kjörinn borgarstjóri í borg þar
sem aðeins 17% íbúa væru svert-
ingjar og hefði hann verið ná-
lægt því að verða kjörinn ríkis-
stjóri Kaliforníu árið 1982.
Einnig hafa verið orðuð við
hugsanlegt varaforsetaembætti
Lloyd Bentsen, öldungadeildar-
þingmaður frá Texas og Dianne
Feinstein, borgarstjóri San
Francisco, og ráðgerður er fund-
ur með þeim og Mondale á morg-
un.
í aðalstöðvum demókrata var
tilkynnt í dag að Mario Cuomo,
ríkisstjóri New York-ríkis, mik-
ill og dyggur stuðningsmaður
Mondales, myndi flytja stuðn-
ingsræðuna á þingi demókrata,
og er það talið enn eitt merki
þess að Mondale verði útnefnd-
ur.
Meistara-
víkurflug-
völlur
ómissandi
Meistaravíkurflugvöllur við Scor-
esbysund á Austur-Grænlandi fær
að sinna hlutverki sínu enn um hríð,
a.m.k. í eitt ár, hefur grænlenska
útvarpið eftir Tom Hoyem Græn-
landsmálaráðherra.
Til stóð að leggja flughöfnina
niður í sparnaðarskyni, en nú hef-
ur danska stjórnin ákveðið að
doka við með það vegna þess að
völlurinn geti komið að notum við
olíuleit á þessum slóðum, auk þess
sem hann sé ómissandi fyrir þær
umfangsmiklu og alþjóðlegu rann-
sóknir sem nú fara fram í austur-
grænlenska þjóðgarðinum.
Leitað að
banamanni
Líbýumanns
Aþenu. 22. júní. AP.
GRÍSKA lögreglan leitar nú að
banamanni líbýska kaupsýslu-
mannsins, sem veginn var í Aþenu í
gærkvöldi. Hefur mikill fjöldi araba
í borginni verið færður til yfirheyrslu
en engar handtökur átt sér stað.
Morðið var framið á lokadegi
opinberrar heimsóknar Ali Abd-
ulssalam Treiki, utanríkisráð-
herra Líbýu, til Grikklands. Talið
er að morðið hafi verið framið af
pólitískum ástæðum.
Hinn myrti féll samstundis er
hann var hæfður fimm skotum í
brjóst og fætur. Morðinginn skaut
á hann með skambyssu er hann
sté inn í bifreið sína. Komst morð-
inginn undan á mótorhjóli, sem
aðstoðarmaður ók, sem ekið var í
átt til austurhluta Aþenu, að sögn
sjónarvotta.
Embættismenn þvertaka fyrir
að hinn myrti, sem starfað hefur í
Aþenu í þrjú ár, hafi verið and-
stæðingur Khadafys Líbýuleið-
toga.
■ ■■ '
\T/
ERLENT
Allt urn (jrófrur oý ijaröa
í GRÓANDANUM:
Tírnaritió GRÓANDIW er óvenju falleyt og
vandaó blaÖ urn allt sem lýtur aó gróóri, yöró-
um Ofj yaröyrkju, auk fress sern GRÓANDINN
flyturfjölbreytt efni urn útilif o<j frístundir.
GRÓANDINNJ'æst í bókaverslunutn. söluturn-
um oi/ blómaverslunum utn allt land. o</ ereinn-
i</ seldur í áskrift.
Tekiö veröurá rnóti áskrifturn alla In h/ina. í
da</ rnilli klukkan 10 o</ lti o</ á rnon/un. sunnu-
da</ á satna tírna í sirnurn
91 687j74- „„687479
Tímiinfid GRÓAXDIXX
IIöJ'Dabakka 9
110 Reykjavík