Morgunblaðið - 23.06.1984, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNt 1984
Breytum skipu-
lagi Listahátíðar
Leið út úr
blindgötu?
Leíklist
Ólafur M. Jóhannesson
Sá er þetta ritar hefir í og með
af því starfa að rita um fáein
atriði á Listahátíð þeirri er hér
er haldin með pomp og prakt
annað hvert ár. Þar með er ekki
sagt að undirritaður geti sest á
dómarastól yfir hátíðinni sem
slíkri, enda lærir sá er fæst við
listrýni fljótt þá lexíu, að meta
ekki verk er sloppið hafa fram-
hjá skilningarvitunum, jafnvel
að treysta ekki ætíð því sem rit-
að er um list — en það er nú
önnur saga. En Listahátíð er
ekki bara haldin hér í Reykjavík
bara annað hvert ár, heldur er
kvikmyndalistin sett í heiðurs-
sæti af Listahátíðarnefnd — ár
hvert.
Ég tel mig hafa nokkuð góða
yfirsýn yfir þá listahátíð og verð
að segja eins og er að einhver
kvika er gjarnan í lofti í sölum
Regnbogans á kvikmyndahátíð,
nánast tilhlökkun er ekki gætir
þá leikhús er flutt á Listahátíð
hinni meiri. Ég held að þetta
stafi máski af því að þegar
kvikmyndahátíð ríður yfir, mett-
ast borgarlífið um stund af
kvikmyndalist. f blöðum birtast
myndir af frægum mönnum úr
þessum geira listarinnar og
gjarnan viðtöl líka við sömu
menn. Slík er ánægjan með
þessa hátíð að hún er haldin ár
hvert og laðar ætíð til sín fjölda
áhorfenda, þannig að manni
finnst oft nóg um þrengslin í
miðasölunni.
Því spyr ég Hví í ósköpunum
förum við ekki sömu leið á braut
Listahátíðar hinnar meiri og við
höfum farið í Regnboganum
undanfarin ár með kvikmynda-
listina? Af hverju ekki að sund-
urlima Listahátíð hina meiri og
bjóða eitt árið músíkáhugafólki
til veislu, næsta ár þeim er
bergja af gnægtabrunni mynd-
listar og hið þriðja ár lokar leik-
listin hringnum. Með þessu
fyrirkomulagi má kveðja sér-
hæft starfsfólk til starfa, menn
er kunna full skil á sínu sérsviði.
Það er ekki allra að hnýta saman
hin ólíku svið listarinnar svo vel
fari. Eða eins og Bjarni Ólafsson
framkvæmdastjóri Listahátíðar
’84 orðaði það hér í blaðinu (20.
júní): „Flestir eru þó sammála
um að hátíðin hafi verið of um-
fangsmikil, þ.e. hafi staðið of
lengi yfir og atriðin, sem boðið
var upp á, hafi verið allt of
mörg. ógerningur hafi verið að
ætlast til þess að allir atburðirn-
ir yrðu fjölsóttir."
Er þetta ekki kjarni máls:
Listahátíðin okkar er orðin of
umfangsmikil — eða eins og
Bjarni sagði síðar í viðtalinu:
„Við getum ekki dengt list yfir
þjóðina endalaust. Þetta hefði
eflaust mátt vera minna í snið-
um.“ Og svo veltir listahátíðar-
forstjórinn fyrir sér valkostun-
um: „Jú, það er spurning um
hvort ekki ætti að hafa þessa há-
tíð á þriggja eða fjögurra ára
fresti eða þá að hafa hana oftar
en þá minni í sniðum. Það eru
þessir tveir valkostir. „Eins og
menn sjá er hvorugur kosturinn
góður. Það er engin trygging
fyrir því, að þótt líði lengra á
milli hátíða örvist áhugi manna
eða framkvæmd verði markviss-
ari en nú er. Né er fýsilegt að
halda hátíðina oftar og minnka
umfang hennar, ég tel að slíkt
rnyndi ljá henni hversdagslegan
blæ og jafnvel stinga listahátíð-
arforkólfa svefnþorni.
Ef Listahátíð yrði hins vegar
færð í það form er ég legg hér til
fyrr í texta, mætti lífga hana við
í tvennum skilningi. Þeir sem
hefðu sérstakan áhuga á tónlist
— svo dæmi sé tekið — myndu
„örvast" af biðinni eftir „sinni
listahátíð", og það sem meira er,
að meðan þeir biðu spenntir eftir
hljómi heimslistarinnar, væru
„þeirra menn“ að semja við
tónsnillinga. Nú, og fyrir hina
sem eru alætur á list væri stöðug
veisla — eitt árið myndlist, hið
næsta tónmennt, hið þriðja
leiklist. Slíkt getur eigi orðið
hversdagslegt því hungur alæt-
unnar yrði aldrei að fullu satt.
Hugsið ykkur ef eitt árið yrði
tónlistarhátíð undir forystu
tónlistarfrömuðar á borð við
Ingólf Guðbrandsson, annað árið
leiklistarhátíð undir forystu
Sveins Einarssonar fyrrum
Þjóðleikhússtjóra og hið þriðja
ár myndlistarhátíð undir forystu
Errós. Hér eru bara nefnd nöfn
er detta í hugann um leið og
lamið er á ritvélina. Þeir sem
mest og best hafa stutt þessa há-
tíð á síðustu árum verða að
sjálfsögðu áfram með í ráðum.
Eg hef svo ekki fleiri orð um
þetta mál, en vil bara minna á að
við íslendingar fyllum vart út-
hverfi í stórborg hvað þá meir,
og því ber okkur að sníða stakk
eftir vexti, hér sem annars stað-
ar.
21 kr. fyrir grálúðu-
kílóið í Englandi
LÍTIÐ er nú um þessar mundir
af siglingum íslenzkra fiski-
skipa. Einhver fiskiskip hafa
landað afla sínum í Færeyjum,
en til þess þarf ekki sérstakt
leyfi. I»á seldi einn bátur grá-
lúðu í Englandi í vikunni og
fékk 21.00 krónu fyrir kílóið.
Árni Geir KE seidi 48 lestir
af grálúðu í Hull á fimmtudag.
Heildarverð var 988.000.00
krónur og meðalverð 21.00
króna.
Fyrirhugað er að annað skip
selji erlendis í næstu viku og
skráð er söluferð hins þriðja 5.
júlí næstkomandi.
AF ERLENDUM VETTVANGI
komst til valda í kosningum 1980
er flokkurinn bar sigurorð af
Þjóðarflokki (PNP) Michael Manl-
ey. Tveggja flokka þingræði hefur
verið í landinu, en í kosningum i
desember sl. hlaut JLP öll þing-
sætin, 60 að tölu, þar sem PNP tók
ekki þátt í kosningunum til að
mótmæla því að Seaga stóð ekki
við fyrirheit frá 1980 um breyt-
ingar á kosningalöggjöfinni.
Seaga efndi til kosninga í fyrra,
tveimur árum fyrr en til stóð, til
að láta þjóðina skera úr um hvort
hann s kyldi segja af sér starfi
fjármálaráðherra, eins og PNP
hafði krafizt. Vinsældir hans með-
al landsmanna höfðu aukist stór-
um eftir innrásina á Grenada og í
bili gleymdist mönnum að stjórn
Seaga leitar til út-
lendinga til að glæða
atvinnulíf á Jamaica
eftir ÁGÚST ÁSGEIRSSON
Dráttaruxar draga kerrufylli af sykurreyr til sykurverksmiðju, en um
tíma var þetta algeng sjón á Jamaica.
Edward Seaga forsætis- og fjármálaráðherra Jamaica reynir nu akaft að
styrkja efnahagslíf lands síns, sem hefur átt við mikla örðugleika að
glíma. í þessu skyni heimsótti hann London í síðustu viku þar sem hann
bar í víurnar við brezk fyrirtæki í þeirri von að fá þau til að fjárfesta á
Jamaica, en við það fengju þau tollfrjálsan aðgang að bandarískum
markaði. í Lundúnaferðinni hittu Seaga og aðrir ráðherrar landsins
íslenzku stóriðjunefndina og föluðust eftir samstarfi f áliðnaði við fslend-
inga, eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu á fimmtudag.
Iþessu skyni átti Seaga viðræð-
ur bæði við Margaret Thatcher
forsætisráðherra, sem metur hann
mikils þrátt fyrir ágreining þeirra
varðandi innrásina á Grenada,
sem Seaga studdi, og Norman
Tebbit viðskiptaráðherra. Að
frumkvæði Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta var liðkað fyrir
aðgangi ríkja í Karíbahafi að
bandartskum markaði 1982 í því
skyni að örva efnahagslíf þeirra.
Áætlunin gildir til 1995 og er talin
verða framlengd. Þessu hefur
Seaga veifað framan í brezk stór-
fyrirtæki, en tilraunir til að laða
bandarisk fyrirtæki til fjárfest-
inga á Jamaica hafa borið lítinn
árangur.
Seaga er það mikið kappsmál að
efla atvinnulíf heima fyrir eftir
verulegt hrun í boxítsölu, en út-
flutningur á boxít hefur verið
helzta tekjulind Jamaica. Hefur
útflutningur minnkað úr 12 millj-
ónum smálesta í 7,7 milljónir
lesta, sem þýtt hefur 324 milljóna
dollara tekjutap á þremur árum.
Eigi er búist við aukningu á box-
ítsölu á næstu árum.
Einnig reynir Seaga að efla
ferðamannaiðnaðinn til þess að
brúa bilið, sem myndast hefur við
hrun boxítsölunnar, svo og land-
búnað. Frá því 1980 hefur fjölgað
um 44% ferðamönnum, sem lagt
hafa leið sína til Jamaica. Og í
þeirri von að það laði stóru hótel-
samsteypurnar til að reisa hótel á
eynni hyggst hann gera spilavíti
lögleg.
A brattann að sækja
I Lundúnaferðinni hvatti Seaga
m.a. við fyrirtæki á borð við
Hawker-Siddeley, Fisons, GKN,
Rowntree Mackintsoh og Rank-
samsteypuna til að fjárfesta á
Jamaica. En þótt hann kunni að
reynast sannfærandi, þá mun
hann eiga á brattann að sækja, því
öllum er kunnugt um sögu verka-
lýðsbaráttu eyjaskeggja, sem ver-
ið hafa afar herskáir í þeim efn-
um, og lengi hefur verið grunnt á
pólitísku ofbeldi.
Seaga hefur þó kosið að taka þá
áhættu að reyna að blása lífi í at-
vinnulífið af krafti, í þeirri von að
tilraunin mælist vel heima fyrir
Erna, móðir Edwards Seaga, óskar
syni sínum innilega til hamingju
með kosningasigurinn 1980 er
flokkur hans batt enda á stjórnar-
feril Mike Manleys.
og að pólitískt andóf verði hverf-
andi. Leiðtogar annarra ríkja, sem
stríða við gífurlega efnahagsörð-
ugleika, svo sem Alfonsin Argent-
ínuforseti, hafa fallið frá lækn-
ingu af þessu tagi af ótta við pólit-
ískar afleiðingar.
Við afgreiðslu fjárlaga fyrir
tveimur vikum kynnti Seaga nýjar
skattahækkanir er eiga að minnka
fjárlagahallan um helming. Jafn-
framt hefur verið dregið úr niður-
greiðslum á matvælum, sem leitt
hefur til verðhækkunar undir-
stöðu fæðutegunda. En til að
draga úr áhrifum þessa fyrir hina
fátækustu, sem eru helmingur
þjóðarinnar, eða um ein milljón
manna, hafa verið gefnir út sér-
stakir matarmiðar þeim til handa.
Með þessu móti losnar ríkissjóður
við erfiðar niðurgreiðslur, en hinir
takmörkuðu sjóðir hins vegar not-
aðir til aðstoðar þeim sem virki-
lega eru hjálparþurfi.
Fullt hús þingmanna
Flokkur Edward Seaga, Verka-
mannaflokkur Jamaica (JLP),
hans hafði mistekist að reisa efna-
hag landsins við, sem lofað hafði
verið 1980. Áhættan tókst og Se-
aga tryggði sér stjórnarsetu til
1988.
Seaga tókst að ná samningum
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
(IMF), sem lánaði Jamaica millj-
arð dollara til að reisa efnahag
landsins við. En þótt tækist að
sýna hagvöxt í fyrsta sinn í áratug
og þótt fjör færðist í ferðamanna-
iðnaðinn hefur gjaldeyrisöflunin
hvergi dugað til, enda markaður
fyrir boxít í lægð, eins og áður er
vikið að, ásamt því sem sykurverð
er í algjöru lágmarki. Við það bæt-
ist að Jamaica þurfti að greiða 530
milljónir dollara í afborganir af
erlendum lánum í fyrra, en í árs-
lok skulduðu landsmenn 2,5 millj-
arða dollara.
Þá er atvinnuleysi mikið á
Jamaica, en það hefur lengi verið
26%. Verðbólga eykst hröðum, en
Seaga hafði tekist að koma henni
úr 30—40% niður fyrir 5%. í fyrra
störfuð verksmiðjur að meðaltali á
aðeins 49% afkastagetu. Ýmsar
tilraunir við gengisskráningu
tryggðu ekki erlendan gjaldeyri og
tvisvar í fyrra tókst Jamaica ekki
að standast kröfur IMF um efna-
hagslegar framfarir, Seaga til
mikilla vandræða. Brást hann við
því með 43% gengisfellingu og
skömmu síðar var boðað til kosn-
inganna í desember.
Nýjar kosningar?
Flokkur Manleys hefur krafist
nýrra kosninga strax og nýjar
kjörskrár liggja fyrir, en það verð-
ur nú í sumar. Sérfræðingar segja
að Seaga hefði unnið mjög naum-
an sigur á PNP í fyrra, en ef kosið
hefði verið samkvæmt nýrri kjör-
skrá, hefði PNP unnið öruggan
sigur, þar sem nýir kjósendur
hefðu veitt PNP atkvæði sitt. I
ljósi þessa halda forvígismenn
PNP því fram að neiti Seaga að
efna brátt til kosninga muni
gremja grípa um sig meðal kjós-
enda og kynni það að leiða til póli-
tískrar spennu og jafnvel uppþota
og ofbeldis.
Seaga kveðst ekki ætla láta PNP
ákveða hvenær kosið er og segist
ætla að nýta kjörtímabilið til að
styrkja efnahag landsins, en
kunnugir telja að ef efnahagsbati
verði áður kunni hann að grípa
tækifærið og efna til nýrra kosn-
inga.
Byggt * Observer, Ouardian og AP.
Agúst Asgeirsson er blaðamaður í
erlendri fréttadeild Mbl.