Morgunblaðið - 23.06.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984
33
„Stefna framtíð námsmanna
erlendis í mikla hættu“
Opið bréf til menntamálaráðherra frá fundi
íslenskra námsmanna í Norður-Kaliforníu
Fyrir nokkrum dögum barst
okkur frétt um að samþykkt hefði
verið á Alþingi frumvarp sem felur í
sér mikinn niðurskurð á lánveiting-
um til námsmanna. Vegna þess að
Ijóst er að þessi ákvörðun setur
námsferil fjölda námsmanna í veru-
lega hættu, óskum við eftir að gera
grein fyrir skoðunum okkar á náms-
lánastefnu og jafnframt greina frá
hvernig mál horfa við fólki sem er
við nám í Bandaríkjunum.
Um námslána-
stefnuna almennt
1) Um alllangt skeið hefur það
verið ríkjandi skilningur í íslensk-
um menntamálum að menntun
fólks sé nauðsynleg fyrir fram-
þróun í nútíma þjóðfélagi. Mennt-
un er orðin nauðsynlegur og
óaðskiljanlegur hluti af vexti og
viðgangi alls þjóðfélagsins. Þess
vegna hefur sú stefna smám sam-
an mótast að ríkið hvetji ungt fólk
til náms. Sú aðstoð hefur verið í
formi lána til að mæta þeim beina
fjárhagslega kostnaði sem ung-
mennin leggja í til að byggja upp
þann menntunarforða sem land-
inu er nauðsynlegur á komandi ár-
um og áratugum.
Okkur er fullvel ljóst að efna-
hagsástand á íslandi er mjög
slæmt nú og einnig að horfurnar,
litið til næstu framtíðar, eru
dökkar. Við drögum það hinsvegar
í efa að það sé rétt stjórnarstefna
að draga verulega úr fjárfestingu í
menntun, því að mjög miklar líkur
eru á að lífsafkoma þjóða verði í
auknum mæli í beinum tengslum
við menntunarstig þeirra.
Því er það, að þjóð sem vanræk-
'ir að styðja uppvaxandi kynslóð til
að afla sér góðrar menntunar er
að dæma hana til samkeppni við
ódýrt lágmenntunarvinnuafl
þróunarlandanna.
2) Annar meginþáttur i þróun
íslenskrar menntastefnu siðustu
áratugi er að stefnt hefur verið að
þvi að gera ungmennum kleift að
afla sér menntunar burtséð frá þvi
hver fjárhagur foreldranna sé.
Þessi stefna hefur byggst á
tvennu: I fyrsta lagi þeirri mann-
úð sem íslendingar eru kunnir að
og i öðru lagi þeim skilningi að
andlegir og verklegir hæfileikar
æskufólks séu svo mikilvæg og
dýrmæt auðlind að tryggja verði
að hún nýtist, óháð því hvort for-
eldrar hafi þau peningaráð sem
þarf til að láta það verða að veru-
leika.
Sú staða sem
upp er komin
Hverjar afleiðingar af niður-
skurði fjárveitingar til Lánasjóðs-
ins eru nákæmlega kemur vænt-
anlega ekki fram fyrr en í ágúst
eða september. Helstu málsatvik
eru eftirfarandi samkvæmt upp-
lýsingum fulltrúa okkar á íslandi.
1) Nú er þegar búið að úthluta
lánum fyrir meirihluta ársins
1984 út frá þeim lögum sem í gildi
hafa verið um lánaaðstoð við
námsmenn (þ.e. lán fyrir u.þ.b.
95% námskostnaðar).
2) 15 til 20% skerðing á fjárveit-
ingunni á árinu kemur því nær öll
fram á haustmánuðunum þremur
sem leiðir til mjög hárrar skerð-
ingar f prósentum talið, nema
mikill fjöldi námsmanna hverfi
frá námi.
3) Fulltrúi SÍNE i stjórn Lána-
sjóðsins segir okkur að væntan-
lega setji sjóðurinn fram tækni-
lega kosti um það hvernig kjör
námsmanna verði skert og kynni
menntamálaráðherra.
4) Ljóst er að þeir kostir sem
valdir verða geta ráðið því hverjir
og hversu margir hrökklast frá
námi. Þess vegna fara hér á eftir
ábendingar um ýmis atriði sem
við teljum að taka þyrfti til
greina.
Atriði sem hafa þarf í
huga við niðurskurð
1) Við teljum að forðast verði að
ákveðnar námsgreinar eða náms-
lönd verði fórnarlömb niðurskurð-
arins.
2) í þessu sambandi má nefna
að Bandaríkin eru í hópi dýrari
námslanda hvað framfærslu-
kostnað varðar. Hér helst það í
hendur að ef námsland er fram-
arlega í þróun er námskostnaður
oftast hár. Við teljum það
skammsýni að gera ráðstafanir
sem hrekja sérstaklega námsfólk í
Norður-Ameríku frá námi.
3) Það er sérkenni á Bandaríkj-
unum, Kanada og Bretlandi að
skólagjöld eru há, sem oft kemur
til vegna þess að skólarnir eru
búnir dýrum tækjum. Sú hug-
mynd sem heyrst hefur fleygt, að
beina niðurskurði sérstaklega að
skólagjöldum, mundi því fyrst og
fremst koma niður á náms-
mönnum í þessum löndum.
4) Þó að við, eins og aðrir ís-
lendingar, séum tilbúnir að herða
sultarólina, eru ekki nema fá pró-
sentustig möguleg til skerðingar
því að námslán eru miðuð við nær
því lágmarks framfærslukostnað.
Reyndar komast margir í veru-
legan fjárhagsvanda á hverjum
vetri á núverandi lánakjörum.
5) Námsmenn erlendis eiga að
jafnaði erfiðara með að mæta
tekjuskerðingu en námsmenn á Is-
landi vegna eftirtalinna ástæðna:
Sumir geta fengið ódýrt hús-
næði, fæði o.s.frv. hjá foreldrum
eða kunningjum.
Auðveldara er að fá ígripavinnu
á íslandi. I Bandaríkjunum t.d.
hafa námsmenn og makar þeirra
ekki atvinnuleyfi, hvorki á skóla-
tíma eða í fríum. Undantekning er
aðstoðarkennsla við skólana, sem
er ekki nærri öllum opin.
Svo dýrt er að fara heim til
vinnu á sumrin að harla lítil búbót
er að, jafnvel þótt ferðastyrkir
komi til.
Félagsleg aðstoð, sem getur orð-
ið fólki til hjálpar á erfiðum tím-
um, er tiltæk á íslandi og Norður-
löndunum. Á þessu er vöntun í
bandarísku þjóðfélagi þannig að
námsmenn sem komast í fjár-
þröng eiga erfitt með að fleyta sér
yfir slík tímabil.
6) Sú leið að afla aukatekna með
aðstoðarkennslu og sækja um
styrki hefur verið gerð merk-
ingarlaus með reglum Lánasjóðs-
ins. Hann dregur upphæðir af
þessu tagi að fullu frá lánsupp-
hæð. Sú leið að mæta tekjuskerð-
ingu að einhverju leyti með eigin
framtaki er því mönnum útilokuð.
Það er tillaga okkar að þessu verði
breytt þannig að slíkar tekjur
verði ekki dregnar frá láni meðan
tekjur og lán til samans eru undir
áætluðum framfærslukostnaði.
Niðurlag
Með bréfi þessu viljum við
benda á að þær niðurskurðarað-
gerðir sem samþykktar hafa verið
á Alþingi stefna framtíð náms-
manna erlendis í mikla hættu. Við
skorum því á stjórnvöld að taka
þessi mál til alvarlegrar endur-
skoðunar um leið og gögn Lána-
sjóðs liggja fyrir í haust.
Efni bréfsins var samþykkt með
22 samhljóða atkvæðum.
Pennavinir
Frá Ítalíu skrifar 21 árs stúlka
sem hefur margvísleg áhugamál
og vill endilega eignast pennavini
hér á landi:
Mariella Jessica Fracasso,
Via Dante 130,
37032 Monteforte D’Alpone,
Verona,
Italy.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og dýrum,:
Hiroko Ohnishi,
32-3 Nishinoguchi-cho,
Takehana Yamashina-ku,
Kyoto-City,
Kyoto,
607 Japan.
Átján ára japönsk stúlka með
ahuga á tónlist, tízkufatnaði og
innanhússarkitektúr:
Kimiko Shiozawa,
38-2 Kosai-cho kawakami,
Nakakoma-gun, Yamanashi,
4004)4 Japan.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og bókalestri:
Noriko Hiromoto,
29-23 Yakushigaoka Itsukaichi-
cho,
Saeki-gun,
Hiroshima,
731-51 Japan.
Pað er með GOLF
eins og annað
þeir bestu
fara lengst