Morgunblaðið - 23.06.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 23.06.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984 MMMtt c 1983 UnlvtfMl Pm, Swndluto ^ Fyr51 hanr\ átti 5cx ácjinkonur, hwernig ítendur þá á- þvi c& oor enýnn Hinrik niundi ?" 641 nftwwfc, Vera má aó fjárhagsáhyggjur mín- ar snerti þig ekki, fyrr en að því kemur aó ég þurfi aó borga hér. HÖGNI HREKKVÍSI Sverð lærisveinanna Benjamín H. Eiríksson skrifar: Annað veifið sjást í blöðum og bókum skrif um sverðin tvö, sem guðspjöllin greina frá. Er þá gjarnan lagt út af byltingarhugs- un og hernaðarhyggju. Eftir því sem rosalegri skriður falla úr hug- sjónaiegum grundvelli kommún- ismans, eftir því sem hrunið hefir orðið víðara, eftir því hefir verið leitað víðar' eftir festingum fyrir hinn pólitíska boðskap, einhverju sem gæti endurvakið traustið, nú orðið í guðspjöllunum. Hér eins og oftar þarf að athuga aðstæður. í Gyðingalandi var ým- islegt sem þurfti að varast, og sú varúð, þáttur daglegs lífs. Þessar hættur voru ræningjar og villidýr. Smalinn Davíð sagðist hafa þurft að berjast við birni, úlfa og ljón. í Gamla testamentinu er hvað eftir annað sagt frá því, að ljón ráðist á menn. Til er fræg mynd eftir Rousseau af ljóni, sem stendur yf- ir líki spámanns, sem það hafði rifið á hol. Á öðrum stað segir frá því að maður fór ofan í brunn og drap þar ljón „einn dag er snjó- aði“. Og Jesús talaði um leigulið- ann, sem ver ekki hjörðina fyrir úlfinum. Tvö sverð fyrir 13 manna hóp hefir ekki verið mikið, ekki neinn vígbúnaður, heldur lágmarks var- úðarráðstöfun manna sem ferðuð- ust um. Vopnabúnaður af þessu tagi hefir verið hversdagslegt fyrirbrigði á dögum Jesú. Það hef- ir þótt sjálfsagt að menn bæru einhver vopn. Þetta hefir á sinn hátt verið eins og með sjálfskeið- ungana, sem allir menn urðu að hafa í vasa þegar ég var að alast upp, auk snærisspotta. Alþýða manna mataðist með sjálfskeið- ung, nema hvað notkun hnífs og gaffals var farin að breiðast út í Reykjavík og kauptúnum. Ljósa- maturinn var borðaður úr spil- Sjöfn og Dagbjört skrifa: Kæri Velvakandi. Við viljum þakka sjónvarpinu fyrir að sýna hinn frábæra þátt með Duran Duran laugardaginn 16. júní og við vonum að sjónvarp- ið sýni fleiri tónleika af þessu tagi t.d. með Wham, Howard Jones, komum. Hver borðaði á sínu rúmi. En spænir voru svo til alveg horfnir. Kommúnisminn þarf eitthvað meira en tvö sverð, eigi hann að vinna sitt dauðastríð myndi steinn hafa sagt, jafnvel þótt þau væru fengin ránshendi úr Biblíunni. Thompson Twins og fleiri vinsæl- um hljómsveitum. Svo finnst okkur alveg frábært hjá sjónvarp- inu að byrja að sýna Skonrokk á sumrin og við vonum að lagið Reflex með Duran Duran komi í fyrrnefndum þætti. Takk fyrir Duran Duran Þessir ungu sveinar taka lífinu meó ró enda skín sólin. Björt framtíð þrátt fyrir allt Siguróur skrifar: Hver er mestur auður einnar þjóðar? Eru það auðlindir jarðar, svo sem fallvötn, námur eða fiski- miðin? Allt þetta er mikilvægt og nauðsynlegt til að viðhalda lífinu en er ekki nóg eitt sér. Mesti auður þjóðarinnar er heil- brigt, frjálst og kraftmikið æsku- fólk með jákvætt hugarfar. Æsk- an sem erfir landið frá forfeðrun- um og heldur áfram þróun og upp- byggingu til réttlátara og ham- ingjusamara lífs. í dag er þetta unga fólk meðvitað um þá ógn sem vofir yfir mannkyninu, vegna hins geigvænlega vígbúnaðarkapp- hlaups og einnig um gereyðingar- bomburnar sem hrannast upp í heiminum. Það sér að það þarf að breyta, ef ekki á illa að fara. Mjög margt ungt fólk kærir sig ekki lengur um þá þróun sem fylgir neyslustefnunni og ekki heldur um ýmsar kenningar nútímaþjóðfé- laga t.d. um að hæfilegt atvinnu- leysi sé æskilegt sem stjórntæki til að auka hagvöxt. Því að enginn vill vera atvinnulaus sjálfur. Oft er sagt að æskufólk heimti allt af öðrum, en geri litlar kröfur til sjálfs síns. Því miður er svo um marga. Þeim mun frekar á að styðja við þann hluta þess, sem vill sjálft leggja sitt af mörkum til fegurra mannlífs. Það er erfitt fyrir ungt fólk sem elskar lífið og vill láta sér líða vel og láta gott af sér leiða að vera dæmt inn í kerfi sem býður upp á streitu, klíkuskap, laun sem ekki er hægt að framfleyta sér af eða lífsgæðakapphlaup, sem orsakar vinnuþrælkun. Einnig virðist það nauðsynlegt sé að kunna á kerfið og plata sem mest út úr því og jafnvel náunganum í skjóli laga, sem eru siðlaus og standast ekki samkvæmt stjórnarskránni. Það sem þarf í dag er hugarfarsbreyt- ing meðal fólks, sem síðan mundi leiða til uppskurðar á hinu sjúka kerfi. Þessar hugleiðingar vöknuðu í framhaldi af því, þegar ég ásamt félögum mínum í félagsmáladeild Samhygðar, söfnuðum undir- skriftum með því að hafa persónu- legt samband við fólk í herferð með atvinnu — gegn atvinnuleysi. Undirtektir ungs fólks í þessari undirskriftasöfnun voru stórkost- legar. Móttökurnar sem við feng- um hjá því gerðu okkur bjartsýn og gáfu okkur von um bjartari .. allXoí ríkjandi Jmgaunarhát.t.nr flA framtíft — hrátt. fvrir allt r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.