Morgunblaðið - 24.06.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984
21
Eyjólfur Konráð Jónsson
á lánanáðinni. Þá þyrfti ekki
meira fé heldur minna „úr ríkis-
sjóði“, því að „úlfurinn" hefði ekk-
ert af því étið. Eða hvernig gátu
afurðasölufélög bænda „lánað“
þeim það fé sem þeir áttu en ekki
borgað þeim það út? Og það sem
mest er um vert frá sjónarmiði
allra þeirra sem ekki vilja þola
valdasvindl, sérstaklega ekki
svindl sem byggt er á fjármunum
þeirra sem valdbeitingin beinist
að. Leyndin öll er líka skelfileg og
hlýtur að koma við sálarskarn
þeirra annars ágætu manna sem
sitja í „leyndarráðinu".
Meira verður ekki rætt um
þessa hlið greinar Hallgríms
núna, heldur aftur vikið að niður-
lagi hennar. Þar segir m.a.:
„Ef þið aftur á móti viljið út-
færa málflutning ykkar á víðara
plan og berjast fyrir auknu rétt-
læti í okkar ágæta þjóðfélagi, ekki
bara í gegnum SÍS-veldið, heldur
einkareksturinn líka, þá er enginn
vafi á að þið eignist marga liðs-
menn.“ Það eru fyrst og fremst
þessi orð sem knúðu fram svar,
þótt þess væri ekki beint óskað.
Þau eru nefnilega bæði drengileg
og í tíma töluð. Einkareksturinn
hefur meira og minna verið lagður
í rúst á ofstjórnar- og upplausnar-
áratugnum nýliðna. Og þar sem
hann ekki er í rúst þá er hann í
felum.
Skömmtunarstjórnin í pen-
ingamálum, þar sem sumir hafa
fengið „óverðtryggð lán“ og veita
svo öðrum „óverðtryggð lán“ til að
blekkja þá og hlekkja, en hirða
sjálfir nokkra tugi prósenta á
ferðalagi fjármunanna er undirrót
þess ófarnaðar sem svo til allir
súpa nú seyðið af. Ofstjórnar-
stefnan er ekki bara í SÍS — eða
huldumennskan. Strax skal ég
nefna annað félag, það heitir Sam-
einaðir verktakar. Það á beint og
óbeint þrjá fiórðu hluta stórbygg-
inganna á Artúnshöfða, sem al-
menningur nefnir Pentagon, og
gífurlegar eignir aðrar, m.a. á
fjórða hundrað milljóna í bein-
hörðum peningum. Og álíka fá-
mennisstjórn eins og í SÍS valsar
með þessa peninga annarra án
þess að virða eigendurna, hluthaf-
ana, viðlits. Þar er að finna anga
einkennilegs valdasvindls á ls-
landi.
Hins vegar tek ég það ekki til
mín að ég hafi ekki reynt að stuðla
að því að einkaframtakið gerði
hreint fyrir sínum dyrum, því að
fyrir því hef ég barist í svo sem
eins og aldarfjórðung og m.a.s.
skrifað um það heila bók og lofa
Hallgrími Sveinssyni því hér og
nú að þeirri baráttu skal haldið
áfram, en bið hann i leiðinni að
taka aftur í huga sér orðin: „Þessi
úlfur ykkar mun ekki birtast und-
an sauðargæru Sambandsins."
Það veit hann nefnilega ekki.
Fátt er nú hvimleiðara í ræðu
eða riti en fornafn fyrstu persónu.
Samt segi ég!
Þegar ný löggjöf var sett um
hlutafélög 1978 var mjög ítarlega
um málið fjallað í þingnefndum
sem fluttu marga tugi breyt-
ingartillagna, sem allar hnigu i
réttlætis- og frjálsræðisátt. Marg-
ar þeirra flutti ég, þ.á m. að engar
hömlur mætti leggja á meðferð
hlutabréfa þar sem hluthafar
væru fleiri en 200, hlutfalls- eða
margfeldiskosningar skyldu við-
hafðar við val stjórnar- og trúnað-
armanna, ekki mætti nota at-
kvæði í skjóli hlutafjár sem félag-
ið sjálft ætti, allir ættu frjálsan
aðgang að hlutafélagaskrá og ótal
margt annað til að svifta af leynd,
tryggja lýðræði og réttindi minni-
hlutans og uppræta misnotkun og
naglaskap.
Eg fékk líka samþykkta fyrir
nokkrum árum þingsályktun um
endurskoðun samvinnufélagalög-
gjafarinnar, þar sem hún yrði að-
löguð frjálslegum hlutafélaga-
lögum. Yfir því er dauðaþögn og
var þó sérstaklega tekið fram að
samráð skyldi haft við samvinnu-
hreyfinguna. Og stjórnendur ein-
stakra hlutafélaga fara á svig við
lög — enn. (Það virðist alltaf taka
um hálfan áratug að láta kerfið
skilja að það er ekki hafið yfir
lög.)
Tökum sameiginlega á þessum
málum, Hallgrímur, eins og þú
stingur upp á og ótal margir fleiri.
Þá mun vel farnast í íslensku at-
vinnulífi, hvort sem almennings-
félögin verða kölluð samvinnufé-
lög, almenningshlutafélög eða
eitthvað annað. Samvinnuhreyf-
ingin í hinum engilsaxneska heimi
og víðar er víst einmitt opin hluta-
félög enda lagði Erlendur Einars-
son, sem nú er að ósekju skamm-
aður fyrir alla hluti, einu sinni til,
að íslensku samvinnufélögin yrðu
færð í nútímalegt horf. En „stór-
hugsjónamenn” fortíðarinnar
drápu hugmyndir hans í fæðingu
þvi að allt væri svo hreint og fínt
hjá hreyfingunni — eða eins og
„spurning" þín nr. 4 hljóðar:
„Er ykkur kunnugt um að lík-
lega hafa bændur sjálfir meiri-
hluta í stjórnum 90% kaupfélaga,
samvinnufélaga og vinnslustöðva
Iandbúnaðarins á íslandi?“ Þessi
var hörð. Þú verður að svara henni
sjálfur. Kannski gera það líka ein-
hverjir aðrir „samvinnumenn".
Eru þeir ekki eitthvað um 40 þús-
und samankomnir í lýðræðinu? Og
eru ekki bændur bara 4 þúsund?
Þú segir þá „í stjórnum" að 90%
hundraðshlutum. En heldurðu að
þeir ráði stjórn að 10 hundraðs-
hlutum? Það er vafamál, því að
Kerfið blífur.
En því ætlum við sem sagt að
breyta Hallgrímur. Ekki satt?
Sauðárkróki,
21. júnl 1984.
Ég vil í tilefni áttrœðisafmœlis míns þakka öllum er
sendu mér gjafir og hugheilar afmæliskveðjur. Einnig
þakka ég ferðafélögum mínum í afmælisferðinni hlý
handtök og sérstaklega fararstjórunum Ásthildi og
manni hennar sem gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Guð og gæfanfylgi ykkur öllum.
Sigfús Bjarnason,
Sjafnargötu 10.
Reykjavík.
Gardínuhúsið
Mikiö úrval af Ijósum bómullar- og dralonefnum.
Einnig ítölsk efni, damask, velour, ódýrir stórísar,
eldhúskappar, tauplast og fl. og fl.
Vönduö vara, góö þjónusta.
(SmmtlínuH'ú&ið
Iðnaðarhúsinu,
Hallveigarstíg 1,
sími 22235.
Vs /
Niðjamót
Vatnsfjarðarhjóna
séra Páls Ólafssonar og Arndísar Eggerz frá Vatns-
firði við Djúp, veröur í héraðsskólanum að Reykjum í
Hrútafiröi dagana 7.-8. júlí nk. Niðjar og makar
þeirra eru hvattir til að fjölmenna til mótsins. Vin-
samlega tilkynnið þátttöku fyrir þriðjudagskvöld 3.
júlí til einhvers eftirtalinna: Arndísar Pétursd., s.
30564, Arndísar Hannesdóttur, s. 685925, Kristínar
Þorbjarnardóttur, s. 38435, Ágústar Gíslasonar s.
94-2162 og Jakobínu Theódórsdóttur, s. 94-2553.
Hópferðabíll fer frá Umferöarmiöstöð Rvík kl. 10
árdegis 7. júlí.
30
íbúðir
°96
raðhús
)æmi um verð á 3ja herbergja íbuð:
Kr. 1.610.000,-
Byggingarmeistarí biður eftir veðdeildar-
láni, útfoorgun dreyfist i allt að 18 mánuði
og eftirstöðvar lánaðar i5til 1nA'
RÚNAR GUNNARSSON. ARKITÍKT
Vorum að fá til sölumeðferðar 30 íbúðir
vestast í vesturbænum, þar sem útsýni og
þægindi gerast best, stutt er í miðbæinn
og 800 m2 verslunar- og þjónustumiðstöð
á neðstu hæð, svo hægt er að gera innkaup-
in á inniskónum, sem sagt allt á sama stað.
Þama verða 30 2ja og 3ja herbergja íbúðir af
misjöfnum stærðum og gerðum, bílskýli
fýlgir hverri íbúð.
íbúðimar afhendast tilbúnar undir tréverk
ásamt allri sameign frágenginni, tilbúnum
þægilegum bílskýlum, á tímabilinu október
- febmar '85.
Opið kl
1—3.
T ST0FA
HERB
oo
BAÐ
ELD
Hestar ibúðimar em með sérínngangi
og þama eru 2ja hæða penthouse íbuðir.
Teikningar og nánarí upplýsingar em á
skrífstofunni alla daga vikunnar.
Síminn er 68 77 33.
FASTEIGNASALAN
\CÖ FJÁRFESTING
ÁRMÚLA1,105 REYKJAVÍK, SÍMI68 77 33
LogtrB&ngtiT Pétur P«f SigwAMon hdl
Dæmi um verð á 2ja herbergja íbuð:
Kr. 1.000.000-
Byggingaimeistarí biður eftir veðdeildar-
láni, útfoorgun dreyfist i alft að 18 mánuði
og eftirstöðvar lánaðar í 5 tiMO ár.