Morgunblaðið - 24.06.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.06.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984 Brotabrot frá Júgóslavíu Landinn í skrautlegum félagsskap. Tvær milljónir Júgó- slava — karlar, konur og kornabörn — lágu í valnum þegar skæru- liðunum, sem svo voru nefndir, auðnaðist loksins að reka þýska innrásarherinn af höndum sér, sem, jafnvel á mælikvarða heimsstyrjaldarinnar síðari með öllum sínum hörmungum og hryðjuverkum, var geigvænleg blóðtaka fyrir þjóð sem í dag, fjór- um áratugum síðar, telur þó ekki nema um tuttugu og tvær milljón- ir sálna. Frelsi er enda lykilorðið á þess- um slóðum enn í dag: ekki ýkja- langt frá þeim stað í Dubrovnik til dæmis þar sem Hótel President tyllir sporðinum í Adríahafið kemur maður þar sem Hótel Lib- ertas — Hótel frelsi — minnist við skafheiðan sumarhimininn. Mað- ur rambar jafnvel á verslanir og þjónustufyrirtæki í þessu sólríka heimshorni sem geyma þetta magnaða orð í heiti sínu; og svona til þess að ekkert fari nú á milli mála hafa landsmenn að auki eig- inlega gert hugtakið „uppgjöf" út- lægt úr máli sínu: í stjórnarskrá ríkisins er semsagt skýrt tekið fram að ef landið verði fyrir vopn- aðri árás hafi enginn af þegnum þess, hvaða embætti sem hann gegni og hverjum svo sem stríðs- guðinn reynist hliðhollur, umboð til þess að semja um uppgjöf við fjandmanninn. Þeim er líka mikið í mun að frétta, Júgóslövunum, þá gesti ber að garði, hvaða augum við Vestur- landabúar lítum stefnu þeirra í al- þjóðamálum: áttum við okkur nógu vel á því, fýsir þá að vita, að það er ættjarðarástin, þessi brennandi sjálfstæðishvöt sem þeir fórnuðu nánast öllu fyrir, sem er kjarninn í afstöðu þeirra til stórveldanna? Ég hélt, þegar ég var spurður, sem var oft, að við íslendingar að minnsta kosti hlytum að skilja þetta og vitnaði óspart til frelsis- baráttu okkar sjálfra; og hlaut raunar einn daginn að launum rembingskoss á báða vanga sem þrekvaxinn, eldhress og alskeggj- aður kollega minn með ensku- mælandi túlk uppá síðuna skenkti mér að gömlum og góðum júgó- slavneskum sið fyrir drengileg viðbrögð. Hann var að spyrja mig spjör- unum úr nánast á barminum á gryfjunni þar sem kokkarnir glóð- arsteiktu griðungana með haus og hala í þetta skiptið sem þeir pund- uðu í okkur gestina undir furu- trjánum. Það komst ekki hnífur- inn á milli okkar Skeggja, enda verður jafnvel Norðurlandabúinn fjálgari og andríkari en ella í svona fagnaði. Mér virtust Júgó- slavarnir eftir á að hyggja örari en við íslendingar, eins og er raunar segin saga um fólkið í þessum sólarlöndum, en þeir fara einstaklega vel með það. Því er fjarri að þeir kaffæri gestinn ef svo mætti að orði komast, yfir- þyrmi hann í gleði sinni. En ég hygg samt að ég geri engum rangt Dubrovnik: kraftaverk við Adriahafið. til þó að ég slái því fram að all- sgáður Júgóslavi sé eins hjartan- legur og einlægur í viðmóti þegar það á við eins og íslendingur á þriðja glasi við svipaðar aðstæður. Þessi fagnaðarfundur okkar starfsbræðranna átti sér stað í skógarferð sem lyktaði með einni af veislunum sem júgóslavnesku gestgjafarnir gerðu brúðunum og brúðgumunum á einskonar alþjóð- legri brúðhjónahátíð, sem er orð- inn árviss atburður í Plitvice- þjóðgarðinum þeirra. Hann er svo sem tveggja stunda akstur frá Zagreb: víðáttumikill fólkvangur með skógi vöxnum ásum, djúp- bláum veiðivötnum, tærum og tignarlegum fossum sem steypa sér niðrí litskrúðug árgljúfur; og eins og til þess að kóróna ævintýr- ið stinga þeir því að manni, staðarmenn, að í myrkviðnum uppí fjöllunum fari úlfar og skóg- arþirnir. Þetta er óskaland af því tagi sem við hér í garranum sjáum í hyllingum þar sem við grúfum okkur yfir sumarleyfisbæklinga ferðaskrifstofanna. Átta júgó- slavnesk pör, hvert úr sínu lands- horninu, voru gefin saman á há- tíðinni: Aida og Aladin, Marina og Miodrag, Dragana og Radomir, svo að eitthvað sé tínt til af þess- um framandi rómantísku nöfnum sem manni finnst eiginlega helst eiga heima í riddarasögum ungl- ingsáranna. Fern erlend hjóna- korn voru að auki gestir á hátfð- inni og fylltu tylftina. Þau voru frá Vestur-Þýskalandi, Hollandi, Kuwait og svo í fyrsta skipti héð- an frá Fróni. Samvinnuferðir-Landsýn sáu um að velja þau íslensku og ýta þeim úr vör og fá hér með fyrstu einkunn fyrir framtnistöðuna. Sjálfur Knapp hefði ekki valið ákjósanlegra landslið. Þau Stein- hildur Hildimundardóttir og Leif- ur Eysteinsson, sem bæði starfa í stjórnarráðinu, gengu í það heil- aga í mars sfðastliðnum og þetta var því einskonar uppbót á hveiti- brauðssæluna. Það kann að hafa verið and- rúmsloftið þarna, nema þjóðrækni Júgóslavans sé beinlínis smitandi, en að minnstakosti fannst manni það einhvernveginn allt f einu skipta töluverðu máli að ungu hjónin íslensku kæmu vel fyrir eins og það heitir, týndust að minnstakosti ekki f hjónaskaran- um af einskærri hógværð og hlé- drægni. Það var ástæðulaus ótti, og voru þessir landar manns samt svo sem ekkert að trana sér. Þó að þjóð- búningar júgóslavnesku þjóðar- brotanna séu litríkari en sjálfur regnboginn og að þvf leyti eins ólfkir þeim fslenska og sólin er forsælunni þá fór því fjarri að hann héldi ekki sinni reisn og vekti ekki verðskuldaða athygli f Plitvice-þjóðgarðinum. .. og birnir til fjalla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.