Morgunblaðið - 24.06.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.06.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984 AlþjóAamiAstöð Sameinuðu þjóð- anna í Vínarborg. Mynd og texti: Anna Bjarnadóttir við Alexandríu og þegar hún verður tilbúin verður byrjað að dreifa geldum Miðjarðarhafs- flugum í bréfpokum úr þyrlum suður við Luxor og Nílardalur- inn verður síðan hreinsaður smátt og smátt. Verksmiðjan mun framleiða einn milljarð af flugum á viku en þær vega alls 7 tonn. Verkefnið á að taka 5 ár og kosta í kringum 40 milljón doll- ara. Barátta gegn Miðjarðarhafs- flugunni í Mexíkó er þegar hafin. Fluguverksmiðja á landamærum Mexíkó og Guatemala er komin í gang og þetta er eina verkefnið sem nágrannalöndin fást til að vinna i sameiningu. Það kostar um 5 milljón dollara á ári að reka verksmiðjuna en það þykir ekki mikið þegar tillit er tekið til þess að Mexíkanar álíta að þeir muni auka útflutning á ávöxtum um jafnvirði 500 milljón dollara á ári og sölu innanlands um 300 milljón dollara á ári þegar Mið- jarðarhafsflugan verður út- dauð.“ Björn ferðast mikið og fylgist með framvindu rannsókna og framkvæmda auk þess sem hann ræðir við stjórnvöld og bændur um erfiðleika landbúnaðarins. Hann hefur ekki aðeins flugu- verkefnin á sinni könnu heldur fæst FAO/IAEA-deildin við allt frá jarðveginum og gerð plantna yfir í geymsluaðferðir uppsker- unnar. Gervikýr á vegum deild- arinnar er stödd á Keldnaholti þar sem fylgst er með melt- ingarmöguleikum kúa á fræði- legan hátt, og svo mætti nefna fjölmörg dæmi. Um 30 rann- sóknarverkefni eru í gangi í 370 rannsóknarstofum út um allan heim. Björn segir deildina beita kjarnorkutækni sem er með öllu skaðlaus og getur oft komið í stað annarra aðferða sem hafa slæmar hliðarverkanir eða plöntur og dýr mynda móteitur fyrir. Slæmur sveppur var til dæmis að drepa alla piparmyntu í heiminum en neutrongeislar breyttu piparmyntunni þannig að nú þolir hún sveppina. Allt skoskt viskí er framleitt úr byggi, Golden Promise, sem hef- ur verið kynbætt með gamma- geislum og 70% alls hveitis sem notað er í spaghetti á Ítalíu hef- ur verið endurbætt með geislum. Björn hefur ekki haft tíma til að sinna rannsóknarstörfum sjálfur undanfarin ár. Hann hef- ur fengist við stjórnunarstörf og nokkuð við ritstörf. Hann skrif- aði til dæmis kafla um stökk- breytingar, Induced Mutation, f nýútkomna kennslubók, Crop Breeding, í Bandaríkjunum. Þekktir visindamenn skrifa aðra kafla í bókinni. Hann vildi lítið segja um hvað tekur við þegar leyfi hans frá Rannsóknarstofn- un landbúnaðarins rennur út. Þangað til verður hann önnum kafinn við að finna leiðir og koma í framkvæmd aðferðum til að auka uppskeru- og matvæla- framleiðslu í heiminum. Það kemur sér væntanlega vel fyrir hann í starfi, sérstaklega í kaþ- ólskum löndum, að hann minnir bændurna dálítið á Jóhannes Pál páfa II í útliti. Það er nokkuð kostulegt af því að íslendingar sem Jóhannes páfi XXIII tók á móti í Rómaborg árið 1963, sögöu páfann ekki líkjast nein- um öðrum en Sigurbirni heitn- um f Vísi, föður Dr. Björns Sig- urbjörnssonar. „Við drepum ekki flugurnar, þær fá að drepast úr elli“ Það var sagt frá því í fréttum í vor að hafist hefur verið handa við að útrýma einni teg- und tse-tse-flugunnar af 1.500 ferkílómetra svæði í Nígeríu. Það fylgdi ekki fréttinni að æðsti yflrmaður þessa verkefnls er íslending- ur, Dr. Björn Sigur- björnsson, forstjóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins á Keldnaholti. Björn er í þriggja ára leyfl frá forstjórastörfum á ís- landi og hefur verið yf- irmaður sameiginlegr- ar deildar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, og Alþjóðakjarn- orkustofnunarinnar, IAEA, í Vínarborg í tæp tvö ár. FAO/ IAEA-deildin vinnur að því að nýta kjarnorku- þekkingu í þágu land- búnaðar í aðildarlönd- um Sameinuðu þjóð- anna. Hún skiptist í sex undirdeildir og landbúnaðarrann- sóknastofa IAEA í Seiberdorf, skammt frá Vínarborg, fellur einnig undir hana. Björn starfaði í jurtakynbóta- og erfðafræðideild FAO/IAEA- deildarinnar í Vínarborg á árun- um 1963—1974. Eftir það tók hann við Rannsóknarstofnun landbúnaðarins og var heima í 9 ár. Hann er menntaður í Kanada og á Cornell í Bandaríkjunum og starfaði í nokkur ár hjá At- vinnudeild Háskólans eftir að hann lauk námi. FAO velur mann í forstjóraembætti FAO/ IAEA-deiIdarinnar og IAEA velur varaforstjórann. Bretinn, Dr. Björn Sigurbjörnsson og minnkum líkurnar á frjóum eggjum enn. Þannig höldum við áfram þangað til óhugsandi er að kvenfluga hitti frjóa karl- flugu og þær geti fjölgað sér. Við drepum ekki flugurnar, þær fá að drepast úr elli.“ Flugurnar eru verksmiðju- framleiddar og geltar með gammageislum. Eitt af verkefn- unum á rannsóknarstofunni I Seiberdorf er að finna út hversu mikla geisla flugurnar þola án þess að þær missi kyngetuna. Annað verkefni fæst við að framleiða flugur úr þurrkuðum lífefnum þannig að lifandi dýr þurfi ekki að koma nálægt fjölg- uninni — þar með verður kven- hlutverkið orðið úrelt. „Það er mikilvægt að finna sem hagkvæmasta leið til að framleiða flugurnar," sagði Björn. „Við erum með annað Tse-tse-verkefni í undirbúningi á 500 ferkílómetra svæði í Kenýa. Yfir 60 manns hafa látist þar af völdum tse-tse-flugu síð- an um áramót. Þetta er skammt frá friðuðum, opnum dýragarði og það þýðir ekki að sprauta eit- urefnum. Sænska rfkið mun borga kostnaðinn en við vinnum þetta í samvinnu við stjórnvöld í Kenýa, en það er algengt að Vesturlönd borgi hluta af fram- kvæmdakostnaði í þriðja heim- inum. Stærsta verkefnið af þessu tagi í Afríku er nú í undirbún- ingi í Egyptalandi. Miðjarðar- hafsflugan veldur milljónatjóni á ávöxtum á hverju ári. Flugu- verksmiðja er í byggingu utan Dr. Björn Sigurbjörnsson segir frá störfum sínum í Vínarborg Dr. Carl G. Lamm, er varamaður Björn í Vínarborg. Þess má geta að Björn var valinn í embættið sem vísindamaður en ekki sem íslendingur. Skrifstofa Björns er á 22. hæð í skýjaklúfi A í tiltölulega nýjum húsakynnum Sameinuðu þjóð- anna f alþjóðamiðstöð f útjaðri Vínarborgar. öryggi á staðnum er geysilegt og óboðnir gestir fá ekki inngöngu. Stórkostlegt út- sýni blasir við úr skrifstofunni verkefni hennar miðast við að leysa eða finna lausn á ákveðn- um vandamálum og hún beitir annarri tækni en kjarnorku- tækni þegar það á betur við. Rannsóknir deildarinnar fara núorðið mikið inn á svið lff- tæknifræði. En í hverju felst Tse-tse- verkefnið? „Tse-tse-flugan er plága um mest alla Afríku,“ sagði Björn, „á öllu svæðinu sunnan við Sah- FAO/IAEA-deildin, sem Björn stjórnar, nýtir kjarnorkuþekkingu í þágu landbúnaðar. en á vegg hanga myndir af út- sýninu frá Keldnaholti og ekki er það sfðra. Þar við hliðina hékk áróðursspjald á móti tse-tse- flugum og sagði Björn það að- eins vera þar til bráðabirgða. „Það er verið að gera kynn- ingarkvikmynd um tse-tse-verk- efnið og ég á að segja nokkur vel valin orð í endinn," sagði hann. „Það þótti rétt að hafa mig fyrir framan þessi spjöld.“ Tse-tse-verkefnið er aðeins eitt af fjölmörgum verkefnum sem deildin hefur yfirumsjón með út um allan heim. Hún var stofnuð árið 1964 til að beita sér fyrir rannsóknum og notkun á geislum og ísótópum til að auka og auðvelda matvælaframleiðslu og landbúnað í heiminum. öll ara og til Mósambík. Hún sest á menn og dýr og veldur svefnsýki svo að kjöt- og mjólkurfram- leiðsla er mjög erfið í Afríku. Það eru yfir 20 tegundir til af flugunni. Nú hefur verið í undir- búningi í ein fimm ár að útrýma einni tegund hennar af 1.500 fer- kflómetra svæði í Nígeríu. Það er ekki stórt svæði miðað við stærð Nígeríu en einhvers staðar verð- ur að byrja. Bandaríkjamaðurinn Knipling fann upp aðferðina árið 1937. Við dreifum geldum karlflugum í tugþúsundatali yfir afmarkað svæði og minnkum mjög lfkurn- ar á því að kvenfluga hitti frjóa karlflugu og geti verpt frjóum eggjum. Við dreifum síðan tíu sinnum fleiri geldum karlflugum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.