Morgunblaðið - 24.06.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984
37
Morgunblaðið/ Emilía.
Reynir Tómas segir að nýtt sónar-
taeki af fullkomnari gerð myndi
mjög auðvelda rannsóknir og auka
öryggi á ákveðnum sviðum.
„Það er algengt að foreldrar fari
fram á það, en ég get engar hlut-
fallstölur nefnt þér. Hins vegar
má það gjarnan koma fram hér,
að ég segi aldrei að ég sé alveg
viss. Ég reyni heldur að sýna fólki
hvað sést á skerminum. Ég segi
þetta er það sem sést og þið getið
svo dregið ykkar eigin ályktanir."
— Hvernig taka verðandi for-
eldrar svo upplýsingum ykkar,
einkum ef ekki er um óskakynið að
ræða?
„Þeir taka þvi yfirleitt vel.“
„Sónar er ómissandi
öryggistæki“
— Er sónar þýðingarmikið
tæki, þegar fylgst er með með-
göngu konunnar?
„Já, sónarinn er ómissandi tæki,
og við þurfum nauðsynlega annað
tæki. Við erum hér með tæki sem
er tveggja ára gamalt og það er
ekki eins gott og það þyrfti að
vera. Við stefnum því að því að
reyna að fá nýrra tæki, sem við
gætum notað jafnhliða þessu.
Slíkt tæki gæti einnig hjálpað
okkur mikið í sambandi við ófrjó-
semisvandamál, þar með talið að
fylgjast með konum sem eiga í
vandræðum með egglos. Jafn-
framt verður slíkt tæki nauðsyn-
legt, þegar reynt verður að koma
af stað frjóvgun utan líkama kon-
unnar („glasabörn"). Þá er einnig
verið að vinna að því að koma á fót
aðstöðu til að taka sýni úr fylgju-
vef, til þess að greina litningagalla
á fyrstu þremur mánuðum með-
göngu. Til þess þarf svona tæki.
Þá gæti nýtt tæki, af þeirri gerð
sem við þurfum að fá, gert okkur
kleift að leita að eggjastokka-
krabbameini."
— Sónartæki af þeirri gerð sem
Reynir Tómas talar um hér að
ofan er því greinilega mikið
öfyggistæki, sem gæti komið í veg
fyrir ómældan andlegan og lík-
amlegan sársauka, auk þess sem
notkun þess gæti leitt til fyrir-
byggjandi ráðstafana og þar með í
raun sparað mikla fjármuni í heil-
brigðiskerfinu, þegar horft er
lengra fram en til dagsins í dag.
Með þær röksemdir í huga, þá geta
ein til tvær milljónir í slík tækja-
kaup, ekki talist stór upphæð, en
Reynir Tómas giskaði á að tæki
það sem hann ræddi um, gæti
kostað einhvers staðar á bilinu
eina til tvær milljónir króna.
Ljósmynd Valdimar Kristinsson.
Ekki óalgeng sjón í 800 metra stökkinu síðasta keppnistímabil; Örvar lang-
fyrstur og næstu hestar langt að baki.
rannsóknar og staðfestingar og
taldi hann rétt að geta þess að
endanleg niðurstaða i þessari
rannsókn lægi ekki fyrir fyrr en í
næstu viku.
Örvar átti að baki stuttan en
glæsilegan feril sem kappreiða-
hestur. Menn tóku fyrst eftir hon-
um 1981 á Vindheimamelum en þá
varð hann í þriðja sæti í 350 metra
stökki. Eftir þessar kappreiðar
var örvar keyptur suður og aðeins
viku seinna setti hann íslandsmet
i 400 metra stökki á Mánagrund
við Keflavík, 27,4 sek. Stendur
þetta met enn í dag. Árið eftir
keppti Örvar víða um land í 350
metra stökki og var hann ávallt
meðal hinna fremstu. Á siðustu
kappreiðum ársins ’82 var örvar
reyndur i fyrsta skipti í 800 metra
stökki á Hellu. Var það ógleyman-
legur sprettur því hann bókstaf-
lega stakk keppinauta sina af og
þegar hann kom á ráslínu þar sem
hleypt er af stað í 350 metra
stökki startaði klárinn á nýjan
leik eins og það er orðað á máli
kappreiðamanna og jók enn frekar
á forskotið. Var þetta fyrirboði að
því sem í vændum var þvi árið
eftir keppti Örvar eingöngu i 800
metrunum og var hann svo að
segja ósigrandi á þeirri vegalengd
á síðasta keppnistímabili.
Orvar var undan Blesa 598 frá
Skáney og hryssu frá Hindisvik,
fæddur 1975. Eigandi hestsins var
Róbert Jónsson og hleypti hann
klárnum sjálfur siðasta keppnis-
tímabil.
Skeljungur hf. opnar
nýja þjónustumiðstöð
Kgilsstödum, 16. júní.
í MORGUN opnaði Olíufélagið
Skeljungur hf. nýja þjónustumiðstöð
á horni Fagradalsbrautar og Tjarn-
arbrautar þar sem áður stóð Húsiðj-
an sf. og fangahús staðarins — en
þær fornfálegu byggingar hurfu fyrir
fáeinum vikum og í staðinn reis ný-
tísku bensínstöð og vistlegur veit-
ingaskáli með undraverðum hraða.
Auk eldsneytis á bensín- og dís-
elbifreiðar geta menn keypt þarna
hvers konar viðlegubúnað og vit-
anlega allar Shell-vörur. Þá er
olíusuga á staðnum svo að bif-
reiðaeigendur geta auðveldlega
skipt um olíu á bifreið sinni sýnist
þeim svo. Þá er góð aðstaða fyrir
hreinsun bifreiðarinnar að öðru
leyti; þvottastæði með hitalögnum
og ryksuga til afnota.
1 grillinu — sem ber nafnið Bit-
inn — er boðið upp á fjölbreyttan
matseðil, ýmsa smárétti, eggja-
rétti, salatrétti, fisk- og kjötmeti
auk annarra veitinga.
í máli Ólafs Eggertssonar, full-
trúa Skeljungs hf., við opnun
þjónustumiðstöðvarinnar kom
m.a. fram að grunnflötur húsa-
kynna er nú 218 fermetrar — en
möguleikar eru á stækkun — enda
er lóðin 4300 fm.
Hönnuðir mannvirkja eru Þór-
arinn Þórarinsson, arkitekt, og
samstarfsmaður hans, Björn
Kristleifsson, arkitekt. Raflagna-
teikningar annaðist Rafhönnun sf.
í Reykjavík. Verktakar voru auk
starfsmanna Skejungs hf.: Ást-
ráður Magnússon, Egilsstöðum,
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs,
Þjónustumiðstöð Shell á Egilsstöðum.
MorgunblaAM/Ótafur.
dóttur lyklana að þjónustumiðstöðinni.
Fellabæ, Sveinn Guðmundsson,
Egilsstöðum, og Sævar Bene-
diktsson, Egilsstöðum, — en eftir-
lit með framkvæmdum hafði
Sveinn Þórarinsson, verkfræðing-
ur á Egilsstöðum.
Hjónin Reynir Sigurðsson og
Anna Heiður Guðmundsdóttir
munu annast rekstur þjónustu-
miðstöðvarinnar — en auk þeirra
mun 7 manna starfslið þjónusta
viðskiptamenn í sumar. — Ólafur
Hringdu i 20560 og faöu samband viö Jón Trausta Leifsson,
„Ef til vill
happadrýgsta símtalið
í sögu fyrirtækisins‘‘
Þú ert mikiö í símanum. En af öllum
símtölunum geta ótrúlega fá talist
mikilvœg. Og aöeins örfá skipta
sköpum fyrir reksturinn - eru stefnu-
markandi fyrir fyrirtækiö.
Viö bjóöum þér aö hringja símtal sem
gæti oröiö eitt þeirra. Eitt símtal. Þú
finnur varla auöveldari leiö inn í tölvu-
öldina.
Viö veitum þér upplýsingar um tölvu-
mál. Viö kynnum okkur fyfirtækiö,
metum þörf þess fyrir tölviiVinnslu
og veitum þér örugga ráögjöf sór-
fræöinga.
Eitt fullyröum viö þó strax: Ef fyrir-
tæki þitt hefur ekki þörf fyrir IBM-PC
einkatölvuna á þvi veröi sem viö
bjóöum núna - þá teljum viö
hverfandi likur á aö þaö þarfnist á
annaö borö einkatölvu. IBM-PC var
ekki kjörin tölva ársins ’83 af fag-
mönnum fyrir tilviljun.
IBM er óumdeildur konungur tölvu-
framleiöenda og velgengni IBM-PC
kom þvi fæstum á óvart. Hún varö
strax söluhæsta einkatölvan á
Bandaríkjamarkaöi, og fyrir vikiö eru
nú öll forrit fyrir einkatölvur fyrst og
fremst hönnuö fyrir IBM-PC. Þaö
tryggir ennfrekar yfirburöi hennar
yfir aörar einkatölvur.
24% verðlækkun!
Hin mikla velgengni (í ár veröa fram-
leiddar 2 milljónir IBM-PC einka-
tölva) hefur gert framleiöandanum
kleift aö lækka veröiö á (slandi um
allt aö 24%. Allar tölvur hafa lækkaö
í veröi aö undanförnu vegna niöur-
fellingar vörugjalds og söluskatts.
IMB-PC hefur lækkaö um allt aö 24%
meira. Hún kostar nú aöeins frá kr.
74.700.
Fyrir hvem?
IBM-PC er ekki leikfang: Hún hentar
fyrirtækjum og stofnunum.
IBM-PC opnar nýja möguleika. Hún
sinnir ekki aöeins skjalavörslu, bók-
haldi, útskrift bréfa og annari rit-
vinnslu - heldur hjálpar einnig til viö
útreikning og útskrift t.d. á tilboöum
og verölistum. Þreytandi rútinuvinna
minnkar og möguleikar á betri
stjórnun og markvissari ákvaröana-
töku aukast.
Leiðandi fyrirtæki
í áratugi höfum viö hjá Skrifstotu-
vélum hf. veriö i nánu sambandi viö
islensk fyrirtæki, fylgst vel meö
erlendri þróun í skrifstofutækni og
haft bein áhrif á hinar öru framfarir
hérlendis. Á þessum grunni er
þjónusta okkar byggö.
Hring<Ju í síma 20560, eða komdu viö
á Hverfisgötu 33. Þaö gæti skipt
sköpum.
Lyklaboróið er einfalt i notkun 09 hefur
baeði rit 09 reiknivélarborð.
V M1 Cjfp
Authorized IBM Dealer - IBM Personal Computer
'fSr' &
SKRII FST< DFUVÉLAR H.F.
% m Hverfisgötu 33 — Simi 20560 ^ Pósthölt 377