Morgunblaðið - 24.06.1984, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984
41
Lánskjara-
vísitalan
hækkar um 2 %
Lánskjaravísitala júlímánaðar
verður 903 stig samkvæmt út-
reikningi Seðlabanka íslands.
Lánskjaravísitala júnímánaðar er
885 stig þannig að vísitalan hækk-
ar um 2% á milli júní og júlí.
Lánskjaravísitalan var 690 stig i
júlí 1983 og hefur því hækkað um
30,9% síðan.
What’s on in Reykjavík:
Mótmælafundur herstöðvaandstæðinga
Samtök herstöðvaandstæðinga efndu til mótmælafundar í Sundahöfn klukkan 15 á fostudag vegna kom þýsku
flotasveitarinnar hingað til lands. Eins og sjá má á myndinni voru sex manns á fundinum, ekki nægilega margir
til að halda á spjöldunum, því að minnsta kosti þrjú standa upp við skemmuvegginn á bak við fundarmenn.
Maðurinn lengst til vinstri er blaðaljósmyndari.
Forsíða fyrsta tölublaðs hins nýja
vikurits fyrir útlendinga, What’s on
in Reykjavík.
Tvö tölublöð eru komin út og
meðal efnis þeirra má nefna
greinar um veitingahúsin í borg-
inni, galleríin, verslanir, Norræna
húsið og Hallgrímskirkju. Einnig
ritar útlendingur búsettur í
Reykjavík grein um það hvernig
borgarlífið kemur honum fyrir
sjónir. Að auki eru sagðar fréttir
af ýmsu því sem snýr að ferða-
mönnum á höfuðborgarsvæðinu.
Eins og áður segir kemur ritið
út vikulega í sumar og verður upp-
iö af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
Útiklæðningin frá Manville er
einstaklega veðurþolin klæðn-
ing úr náttúruefnum, sem upp-
litast ekki. Klæðningin er unnin
úr trefjaplötum og er yfirborð
þeirra hiúpað asfaltlagi, sem í
er valsað steinsalla. Hér er um
að ræða einangrandi útiklæðn-
ingu, sem dregur úr hitakostn-
aði, er hljóðeinangrandi og al-
gjörlega viðhaldslaus. Manville
útiklæðningin á að baki ára-
tuga reynslu víða um heim og
hérlencíis klæðir hún og prýðir
fjölda húsa eins og sjá má á
þessum Ijósmyndum.
Nýtt vikurit
fyrir útlendinga
I þessum mánuði hóf göngu sína
vikuritið „What’s on in Reykjavík".
Með útgáfu þess er hafin þjónusta
við ferðamenn sem lengi hefur tíðk-
ast og þykir sjálfsögð i erlendum
borgum, þ.e. að kynna þeim það
helsta sem borgin hefur upp á að
bjóða á sviði menningar og lista,
skemmtanalífs, verslunar og al-
mennrar þjónustu við ferðamenn.
lagið 8 þúsund eintök. Er því
dreift ókeypis í allar vélar Arnar-
flugs og Flugleiða og til farþega
færeysku ferjunnar Norröna, auk
þess sem það liggur frammi á
ferðaskrifstofum, bílaleigum, Um-
ferðarmiðstöðinni og víðar.
Til að byrja með verður „What’s
on in Reykjavík" 16 bls. að stærð
en verður stækkað ef efnið gefur
tilefni til. Ritið er litprentað í
prentsmiðjunni Viðey en Alprent
sér um setningu og umbrot. Utgef-
andi er Atvik sf. sem er til húsa í
nýja húsinu við Lækjartorg. Á bak
við nafnið leynast m.a. þau Áslaug
Jóhannesdóttir, Nanna Mjöll
Atladóttir og örn Pálsson, og
hvetja þau alla sem vilja koma á
framfæri upplýsingum til ferða-
manna eða fá blaðið til dreifingar
að hafa samband við sig.
Helmingur hússins hér að ofan er klæddur
Ljósmyndun með hitamyndavél sýnir útgeisl
un og hitatap.^ Einangrunargildið leynir sé
ekki.
Stærð plötu er 110x35 sm og þykkt 14 mm.
Samsetning skarast. Ásetning er einföld og fljótleg.
Allar frekari upplýsingar veita sölumenn okkar
fúslega.
Kalmar
Skeifan 8 Reykjavík
Sími 82011