Morgunblaðið - 24.06.1984, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984
0,máérn^.
„Fiskveiðiaðstoðin
er til ills eins“
— segir formaður í samtökum indverskra
sjómanna um þróunaraðstoð Norðmanna
Ósló, 21. júní. Kra Fer A. Borglund,
fréttaritara Mbl.
Fiskveiðiaðstoð Norðmanna við
Indverja kemur indverskum fiski-
mönnum að engu gagni. Hún er
raunar til ills eins og gerir fáUeka
fiskimennina enn fátækari. Ef ekki
verður söðlað um í þessum efnum
ber að hætta aðstoðinni.
Matanhy Saldanha, formaður i
samtökum indverskra sjómanna,
sem stunda hefðbundnar fiskveið-
ar, lét þessi orð falla á blaða-
mannafundi í Ósló nú í vikunni en
erindi hans til Noregs var að mót-
mæla því fyrirkomulagi, sem er á
aðstoð Norðmanna, sem hann seg-
ir vera allt of tæknilega og ekki
eiga erindi við vanþróaðar þjóðir.
I samtökunum eru 2,5 milljónir
sjómanna í Indlandi.
Aðstoð Norðmanna er í því fólg-
in, að þeir létu smíða sex togara,
sem notaðir hafa verið við til-
raunaveiðar og til að þjálfa Ind-
verja í meðferð þeirra, og hefur
Norad, norska þróunarstofnunin,
lagt útgerð skipanna til 16—18
millj. ísl. kr. árlega. Indversk
stjórnvöld hafa hins vegar séð um
reksturinn sjálfan.
„Indverjar þurfa ekki á að halda
togurum, sem fiska á djúpslóð.
Landsfólkið hefur ekkert gagn af
þeim fiski, sem þeir veiða, aðal-
lega rækju, sem er flutt út til Jap-
ans.
Leiðsögunemar kynna sér aðstæður í Árbæjarsafni.
37 nýir leiðsögumenn
ÞANN 14. maí sl. útskrifuðust 37
nýir leiðsögumenn af námskeiði sem
Ferðamálaráð íslands hélt síðastlið-
inn vetur fyrir leiðsögumenn ferða-
fólks.
Námskeiðið hófst í lok septem-
ber síðastliðið haust og stóð fram
í maí. fyrirlestrar voru haldnir 2
kvöld í viku. Fyrir áramót var
kennt um sögu íslands, jarðfræði,
tit' msmrr imri —■íií hih— ini
gróður, dýralíf, atvinnumál, þjóð-
félagsmál, bókmenntir og listir.
Fyrirlesarar voru sérfræðingar
hver á sínu sviði. Eftir áramót
leiðbeindu reyndir leiðsögumenn
um helstu ferðamannastaði og al-
gengustu leiðir. Auk þess sá Rauði
kross íslands um námskeið i
skyndihjálp og fulltrúar frá
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
kenndu notkun áttavita. Munnleg
próf voru á erlendum tungumálum
og skriflegt próf í íslensku. Nám-
skeiðsstjóri var Birna G. Bjarn-
leifsdóttir.
Leiðsögunámskeið eru að jafn-
aði haldin annað hvert ár og er
þetta fimmta námskeiðið sem
Ferðamálaráð heldur. Með lögum
um skipulag ferðamála frá 1976
var Ferðamálaráði íslands falið að
annast menntun og þjálfun leið-
sögumanna, en áður sá Ferða-
skrifstofa Ríkisins um það mál.
Fréttatilkynning.
AFMÆLISRIT
IOGT
100 ára
í TILEFNI 100 ára afmælis Góð-
templarareglunnar á fslandi, IOGT,
hefur reglan gefið út sérstakt afmæl-
Lsrit og er ritstjóri þess Hilmar
Jónsson, stórtemplar.
Meðal efnis afmælisritsins má
nefna ávarp heilbrigðisráðherra,
Matthíasar Bjarnasonar, og grein-
ina „Góðtemplarareglan á fslandi
100 ára“ eftir ritstjórann, Hilmar
Jónsson. Þá eru í ritinu greinar
um allar þær stúkur sem stofnað-
ar hafa verið á íslandi frá 1884, er
fyrsta stúkan, ísafold nr. 1, var
stofnuð.
Curator komið út
CURATOR, tímarit Félags hjúkrun-
arfræðinema í Háskóla Islands, er
komið út og er það fyrsta tölublað
áttunda árgangs.
í blaðinu er að finna fjölda
greina eftir hjúkrunarfræðinema
sem þeir hafa unnið í tengslum við
námið eða utan þess. Einnig er í
blaðinu grein eftir Guðfinn P. Sig-
urðsson heilsugæslulækni og Ingi-
björgu Sigmundsdóttir hjúkrun-
arfræðing.
Fyrst fljugum við til Florida og hvílum okkur á huggulegu hóteli í 2 nætur áður en siglt
er af stað í 16 daga ævintýraferð um Karibahafið. Skemmtiferðaskipið Sun Viking er
ævintýraland á floti. Þar er að finna næturklúbba, spilasali, verslanir, veitingasali, snyrti-
stofur, sundlaug, íþróttasal og margt, margt fleira. Ferðinni lýkur síðan með 6 daga dvöl
í Florida.
Gerum drauminn að veruleika
mixvTik
FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl. Simar 28388 og 28580
VIÐ HÖLDUM TIL HAFS Á NÝ!
KARÍBAHAFIÐ
JAMAICA — CURACAO
— VENEZÚELA — BARBADOS —
MARTINIQIJE — ST. MARTEEN
— PUERTO RICO — VIRGIN ISLAND