Morgunblaðið - 24.06.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNl 1984
47
«■
yfirsmiður, „en gera má ráð fyrir
að það sé um tvisvar til þrisvar
sinnum dýrara en að byggja
venjulegt timburhús."
Arkitekt hússins er Hjörleifur
Stefánsson, og húsið gert upp sem
líkast því sem það var uppruna-
lega. Innréttingar eru valdar af
stakri smekkvísi og í dag er Lax-
dalshús því virkilegt augnayndi.
Kom hingað í leiftur-
heimsókn
En húsið býr yfir fleiru en feg-
urðinni, því eins og fyrr segir er
ætlunin að þar verði menningar-
miðstöð og margvísleg starfsemi í
sumar.
„Upphaflega lét ég mig dreyma
um að gamli barnaskólinn gæti
orðið nokkurskonar menningar-
miðstöð bæjarins," segir örn Ingi,
mættur á staðinn og búinn að fá
sér sæti við eitt borðið á útiveit-
ingastaðnum bak við húsið. „En
þar sem fyrirséð var að viðgerðum
yrði ekki lokið á næstunni, datt
mér í hug að koma hingað og líta á
hafa verið svona lengi þarna
vegna þess að i bankanum var
mjög góður starfsandi. Mannleg
samskipti geta bjargað mörgu,
þótt vinnan sjálf sé ekki ýkja
skemmtileg."
— Þótti það ekki bíræfið á sín-
um tima að segja upp fastri
vinnu? Hefur það ekki hingað til
þótt ein af dauðasyndunum?
„Jú, það þótti mjög skrítið.
Bestu menn aðvöruðu mig vinsam-
lega. Ég hafði málað í fristundum
en er ekki skólagenginn myndlist-
armaður, ég spila yfirleitt eftir
eyranu i því sem ég geri. Jú, þetta
var átak, líklega jafnmikið átak og
það sem ég er að gera núna með
því að opna húsið hérna. Eiginlega
kom að þvi að ég sprakk i bankan-
um, varð að gera þessa tilraun. Ég
hætti í ársbyrjun ’77 og nú fyrir
skömmu fékk ég þriggja mánaða
starfslaun listamanna, það tekur
um átta til tiu ár fyrir íslenskan
listamann að róta sig í jarðveginn.
Ég hef unnið fyrir mér með mynd-
listinni og innrömmun jöfnum
höndum og tekið að mér ýmis
verkefni. Jafnframt þessu hef ég
verið að byggja hús, þannig að
þetta hefur allt tekið á taugarnar
og veskið."
Eyjafjarðarbotn með
rjómaframburði...
„Það eru ekki nema um tveir
mánuðir frá því það lá nokkuð
Ijóst fyrir að ég fengi húsið á
leigu, svo það hefur verið nóg að
— Hvað er fleira á döfinni?
„Hér verða málverkasýningar, í
húsinu núna er sýning eftir Hring
Jóhannesson. Ætlunin er að
skipta um sýningu hálfsmánaðar-
lega, en húsið hefur fengið óvenju-
góð viðbrögð frá myndlistar-
mönnum í Reykjavík, því nú eru
sýningar bókaðar fram á vetur.
Um leið og skipti verða á sýning-
um verður skipt um borðljóð, en
við vonumst til að fá send ljóð sem
valið verður úr og þeim svo safnað
saman í ljóðabók. Fyrsta borðljóð-
ið var eftir Guðlaug Arason og
heitir: Til þín og ljóðið sem nú er á
borðum er eftir Heiðrek Guð-
mundsson.
Það er ýmislegt fleira á döfinni,
tríó hússins mun leika fyrir gesti,
en i því eru Halldóra Arnardóttir
sem leikur á fiðlu, Oliver Kentish
sem leikur á selló og Magna Guð-
mundsdóttir sem einnig leikur á
fiðlu. Þau eru öll starfsfólk húss-
ins, og reyndar ótal margt lista-
fólk sem mun leggja fram starfs-
krafta sína, ég veiti þeim einungis
aðstöðuna og gef þeim svo kakó-
bolla á eftir!
Þá verður leikhópurinn Svart-
fugl með uppákomur, félagar úr
ýmsum áttum. Við hvetjum fólk
hér með til að hafa samband við
okkur, því ætlunin er að hafa hér
reglulegar uppákomur í garðinum
síðdegis á laugardögum ef ekki
viðrar mjög illa og að auki munum
við fara eitthvað út fyrir, t.d. í
göngugötuna Hafnarstræti.
Laxdalshús. Ég kom hingað í leift-
urheimsókn, húsið skoraði mig á
hólm og ég tók áskoruninni. Mér
hefur fundist allt of mikill að-
stöðumunur milli landshorna, og
fólk þarf því að takast á við þessa
hluti og bæta um betur. Það má
líkja þessu húsi við nýsköpunar-
togara, við erum búin að færa út
landhelgina og hér mega allir
veiða.“
örn Ingi hefur fengist við ýmis-
legt um ævina, m.a. unnið út-
varpsþætti sl. ár. Hann á það sam-
eiginlegt með þeim Gauguin og
Megasi að hafa unnið i banka og
hætt því til að þjóna listgyðjunni.
„Ég vann í Landsbankanum á
Akureyri í 11 ár, jafn lengi og
Gauguin. Eftir á finnst mér ég
gera að undanförnu. Ég verð að
gjörnýta húsið og hef neyðst til að
fara út í veitingahúsrekstur.
— Hver sér um eldamennsk-
una?
„Það má segja að við Guðlaugur
Arason verðum hálfbrytar, hann
er einn af starfsmönnum hússins,
en ekki yfirkokkur og rekstrar-
stjóri hússins eins og sagt var í
frétt Mbl. fyrir skömmu. Við bjóð-
um upp á ýmsa smárétti og sitt-
hvað með kaffinu, svo sem eins og
fylltan Eyjafjarðarbotn með
rjómaframburði. Og svo er ætlun-
in að fá hingað kokka alls staðar
að af landinu, bæði lærða og leika
og halda sérstakar matarveislur á
föstudags- eða laugardagskvöld-
um.“
Hestvagnar og
hestaleiga
„Við verðum með hraðbát um
Pollinn, það verður hægt að fara
skrens um fjörðinn og taka bátinn
á leigu í lengri ferðir svo sem til
Hríseyjar. Hestvagnar verða dag-
lega í ferðum um gamla bæinn, og
um helgar verðum við með hesta-
leigu. Vagnarnir taka fimm far-
þega hvor og það eru tveir hestar
fyrir hvorum vagni.
— Hvernig undirtektir hefur
þessi nýja menningarmiðstöð
fengið hér á Akureyri?
„Mjög góðar. Hingað hafa kom-
ið 2.000 manns á einni viku. Sjálf-
ur hef ég sjaldan orðið vitni að
eins mikilli gleði og þegar opnað
var hér um hvítasunnuna. Húsið
fylltist af blómvöndum, ein stór
blómakarfa kom t.d. frá einhverj-
um sem ekki vildi láta nafns síns
getið, en sagðist vera borinn og
barnfæddur Akureyringur. Það
var stórkostlegt að sjá unga sem
aldna koma hingað í húsið, það
komust færri að en vildu og marg-
ir urðu frá að hverfa."
— Mér er sagt að þú sért þekkt-
ur af ýmsum frumlegum uppá-
tækjum hér í bæ. M.a. gengur hér
sú saga að þú hafir boðið fólki í
kalt borð, og er allir mættu upp-
áklæddir var dregið fram borð
sem kælt hafði verið í frystikistu.
Er þetta satt?
Örn Ingi hlær og er greinilega
skemmt. Síðan Iftur hann upp og
segir: „Nei, sagan er ósönn, en í
mínum anda.“
ÍSSKÁPAR
Skeljungsbúðin
aöumúla 33
FYRIR 12V, 220V, OG GAS
ERU FYRIRLIGGJANDI
simar 81722 og 38125
Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
Vinningsnúmer 17. júní 1984:
Mercedes Benz bifreiö 1346538
Honda Civic bifreiö: 15476
Bifreiðar fyrir 320 þús. kr.:
24626 110133 140151 170004
Sinclair Spectrum heimilistölvur:
4657 37377 65638
10770 37975 72532
14058 56644 73540
14109 59052 85091
14387 59835 88339
15069 61148 89708
27305 63139 91055
29900 63892 96129
35074 65539 97023
104132 125356 155893
105068 129883 157130
107662 139123 157189
109122 141298 169276
113486 146820 172747
114769 149118
115571 149718
119686 151849
120730 153075
Handhafar vinningsmiöa framvísi þeim á skrifstofu
Krabbameinsfélags Reykjavíkur aö Tjarnargötu 4,
4. hæö, sími 19820.
Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan
stuðning.
Vantar
ÞIG
PASSAMYND
TILBÚIN Á AUGABRAGDI
Myndatökur viö öll
tækifæri
Tökum einnig eftir
__ gömlum myndum
RÉTT VIÐ HLEMM
LIÓSMYNDASTOFA REYKIAVÍKUR
ZyERFlSCOTU
IOS
62M66