Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 38

Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLl 1984 ALUEAF Á ÞRE)JUDÖGUM MEISTARAMOT ÍSLANDS í SUNDI KNATTSPYRNA HELGARINNAR WIMBLEDON- TENNISMÓTIÐ Itarlegar og spennandi íþróttafréttir Afmæliskveðja: Þorbjörg dóttir 95 Níutfu og fimm ára afmæli á f dag, 8. júlí, Þorbjörg Grímsdóttir. Þorbjörg fæddist að Litla-Seli (Grímsbæ) árið 1889 og aldist þar upp og hefur alla tíð átt heima f Reykjavík. Frá því 1915, er hún giftist, hefur hún búið að Skóla- vörðustíg 24A og heldur nú þar heimili með elsta syni sínum. Fáir núlifandi Reykjavíkurbúar muna trúlega betur en Þorbjörg lifnaðarhætti og lífsvenjur fólks í Reykjavík frá síðustu aldamótum og þær breytingar sem hafa orðið á heimilis- og fjölskylduháttum við þá öru þéttbýlismyndun sem hefur orðið á þessum tíma. Þorbjörg er, þrátt fyrir háan aldur, mjög vel ern og fylgist af áhuga með þjóðmálum. Minni hennar er óbrigðult og frásagnar- list hennar slík, að sá sem hlustar á hana segja frá gömlum tfma flyst sjálfkrafa aftur í tímann með henni. Sama er hvort hún lýsir búskap- arárum sínum í Reykjavík, tíman- um sem hún vann á saumastof- unni í Edinborg eða ferð sem hún fór barnung með móður sinni, Katrínu á Seli, upp í Mosfellssveit til að fá ofinn dúk í innan- og utanyfirflíkur, úr ull sem Katrín hafði unnið sjálf. Ekki er vafi á að þjóðfræðingum væri akkur í að heyra margt það sem hún hefur frá að segja. ^\pglýsinga- síminn er 2 24 80 A HVAÐ HORFIR HEIMILISFOLKIÐ MEST? Sennilega horfum við ekki eins oft og lengi á nokkum hlut og sjónvarpstækið. Það verður því að vanda valið þegar kaupa á tœki sem svo mjög verður barið augum. Veljið ekki sjónvarpstœki sem er aðeins einfaldur kassi, kannski Ijótur í þokkabót, og fer hvergi vel inni á heimilinu. Það eru nefnilega til sjónvarpstæki sem bera (sér kosti hvors tveggja: góðs útlits og tæknilegrar fullkomnunar THOMSON verksmiðjumar í Frakklandi kappkosta ekki aðeins tæknilega fullkomnun og endingu, heldur leggja þær jafnframt áherslu á látlausa útlitsfegurð. Útlit tækisins skiptir Ifka máli og er vert að hafa á bak við eyrað. Kynntu þér verð og greiðsluskilmála; við teljum að hvort tveggja sé viðráðanlegt. THOMSON - takmark hinna vandlátu. SMSSS &SAMBANDSINS ÁRMÚLA 3 SlMAR 38900 -38903 Gríms- ára Katrín á Seli, móðir Þorbjargar, var merk mannúðarkona sem ól upp og fóstraði fjölda barna auk þess sem hún saumaði fyrir fólk. Má segja að heimili Þorbjargar á Seli hafi verið dæmigert fyrir þau Reykjavíkurheimili, þar sem fað- irinn stundaði sjóinn og móðirin drýgði tekjur heimilisins með aukavinnu. Ekki voru öll auka- störf Katrínar launuð og má þar nefna að oft var börnum mæðra, sem þurftu um lengri eða skemmri tíma að leita sér vinnu til sveita eða í sjvarpláss komið i fóstur til hennar. Þannig voru dagvistun- armálin leyst á þeim tíma og daggjöldin engin. Þennan arf tók Þorbjörg með sér á heimili sitt og manns sins, Aðalbjörns Stefánssonar prent- ara, en á því heimili hafa margir átt skjólshús, bæði meðan hún var gift og þegar hún var ekkja með átta börn. Ekki breyttist það held- ur er hún giftist í annað sinn, Þorsteini Jónssyni, sem nú er lát- inn. Góðvild, gleði og heiðarleiki hef- ur einkennt öll störf Þorbjargar Grímsdóttur um ævina og munu vinir hennar og ættingjar enn einu sinni njóta rausnar hennar þar sem hún býður þá velkomna í afmæliskaffi á heimili dótturdótt- ur sinnar, að Dúfnahólum 4, eftir kl. 15.00 í dag, 8. júlí. Veit ég að vinir hennar, ættíngj- ar og niðjar taka undir með mér þegar ég óska henni til hamingju með 95 ára afmælið og þá ósk að henni endist lengi enn aldur og heilsa til að prjóna sem flesta sokka til að ylja okkur um fætur og hjarta. Inga I. Guðmundsdóttir Sigurður Helgason kaupmaður áttræður Sigurður Helgason, kaupmaður, Miklubraut 50 hér í borg, er átt- ræður í dag, 8. júlí. Þar sem ég er fjarverandi þá langar mig að senda honum kveðju mína og minnaá síðum Morgunblaðsins. Sigurður er af dugnaðarfólki kominn í báðar ættir og fjölskyld- an stór og margmenn. Um ára- tugaskeið þá var faðir hans, Helgi Magnússon, með mikil umsvif hér í borg og setti mikinn svip á við- skiptalíf borgarinnar. Eg kynntist Sigurði árið 1971. Þurfti að leita til Guðlaugs Ein- arssonar, hæstaréttarlögmanns. Þar var Sigurður starfsmaður á þeim tíma. Örugg og ljúf framkoma hans skapaði traust til lögfræðiskrif- stofu og starfa Guðlaugs. Fannst mér þá við fyrstu kynni við Sigurð að þar væri maður, sem ekki geymdi svik, eins og Jesús sagði um Natanel forðum. Hefi ég átt kost að kynnast þessu nánar. Við andlát Guðlaugs heitins, sem öðlast hafði trú á Jesúm Krist, þá orti Sigurður eftir hann mjög fögur erfiljóð. Birtust þau í tímaritinu Aftureldingu. Kemur þar fram sem oftar að Sigurður er hagmæltur maður og kveður dýrt og ekkert léttmeti. Þegar þrengdi að í fjölskyldunni og Viggó, yngsti bróðirinn, varð helsjúkur. Þá kom Sigurður til mín með byrðar bróður síns og sameiginlega lögðum við þetta fram fyrir Drottinn allsherjar ( bæn. Sigurður hélt skrá yfir þenn- an tíma, skráði ritningargreinar sem leitað var til í þrengingu og svo stöðugt bænaefni og bænum sem haldnar voru fyrir Viggó heitnum. Þar og þá ( eldraun þrenginga sá ég hvílíkt gull var geymt í sálu Sigurðar. Síðan höfum við Sigurður verið vinir. Úr fjarlægð sendi ég því vin- arkveðjur, með þakklæti fyrir uppörvanir mér til handa og þá ekki einungis á andlegu sviði, heldur og efnislegu, sem Guð þekkir og mun launa. Ég veit um englavernd Drottins, sem hver og einn er trúir á kost á. Fyrir Sigurð þá er slíkt ekki neinn hugarburður. Hann hefir séð og sér það sem aðrir sjá ekki. Kæri vinur, Guðs miskunn og náð veri með þér allar stundir. Blessi Drottinn þig og fjölskyldu þina á þessum tfmamótum lífs þins. Lifðu vel og lengi umvafinn náð Drottins um tíma og eilífð. Einar J. Gíslason JENNÝ auglýsir tískufatnaö á dömur. Samfestingar, kjólar, buxur, jakkar, bolir o.fl. Margar stæröir. Margir litir. Sérlega lágt verö. Seljum einnig endurseljendum. Góð þjónusta. Opiö frá 9—18, alla virka daga. Fatageröin JENNÝ, Lindargötu 30, sími 22920.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.