Morgunblaðið - 12.07.1984, Síða 39
MORQUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12, JÚLÍ 1984
39
fclk í
fréttum
Gróu-
sögur
um
Navra-
tilovu
Judy Nelson
+ Martina Navratilova, tennisstjarnan fræga, er nú heldur
betur á milli tannanna á fólki og er það raunar ekki svo
óalgengt með tennisleikarana, sem sumir hverjir eru dálítið
öðruvísi en gerist og gengur með fólk, a.m.k. hvað varðar
skapsmunina. Það, sem er hvískrað um Navratilovu, er, að
samband hennar og vinkonu hennar, Judy Nelson, sé ekki eins
og vera eigi milli tveggja kvenna.
Navratilova er nú í London vegna Wimbledon-keppninnar og
hefur Judy, sem er tveggja barna móðir, verið óaðskiljanlegur
förunautur hennar þar. Reyndar brá hún sér sem snöggvast
vestur til Texas til að ganga frá skilnaðinum við manninn sinn,
lækninn Edward Nelson, en er nú komin aftur. Biöðin hafa að
sjálfsögðu gert sér mikinn mat úr þessu og getur Navratilova
varla komist út úr húsi því að fyrir utan bíður blaðamanna-
hjörðin eins og gráðugur úlfaskari. Navratilova hefur af þess-
um sökum heitið því að koma aldrei til Englands í öðrum
erindagjörðum en að keppa á Wimbledon.
Judy ber þverlega á móti því, að eitthvert óeðlilegt samband
sé á milli þeirra Navratilovu og segist aðeins vera ákafur
aðdáandi tennisleikarans. Sín vegna megi menn halda það, sem
þeir vilja.
COSPER
-----------------------,
— I»að er augljóst að fegurðarsmyrslunum hefur hrakað mjög.
Reagan
tekur lagið
+ Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, sem gjarna vill vera
það enn um sinn, er nú kominn
á fullt í kosningabaráttunni og
kemur víða við. Fyrir skömmu
brá hann sér í gervi sveita-
söngvara og tróð upp með
söngkonunni Tammy Wynette.
Lagið sem þau sungu var
„Stand by your Man“ og hús-
freyjan á Bergþórshvoli hefði
kallað „Ung var ég gefin
Njáli“.
Sumarið ’84
Bjóöum viö 4 teg. tjaldvagna
2 þýzka á stórum hjólum og 2 danska
Vagninn er á fjöörum, dempurum og 13“ hjólum.
Verðið er 86.000 kr. og allt innifaliö, t.d. fortjald,
eldhús m. eldavél og gaskút, dýnur, gluggatjöld, borö
o.fl.
Sami góöi undirvagninn á 13“ hjólum. Sami búnaöur.
Verð 89.000 kr.
ir*.
m
Danskur Camplet. Fallegur, auöveldur í uppsetningu.
Innifaliö dýnur, fortjald o.fl. Veró 92.000 til
98.000 kr.
Gísli Jónsson
og co. hf.,
Sundaborg 11, sími 68-66-44
Bladburöarfólk
óskast4
Vesturbær
Vesturgata 46—68
Nesvegur 40—42
Boöagrandi
Reynimelur 57—78
Reynimelur 80—96
Austurbær
Kjartansgata
Ingólfsstræti
Lindargata frá 1—38