Morgunblaðið - 20.07.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1984
23
Lögreglumenn í Los Angeles æfa sig á torfæruhjólum, sem þeir munu nota við
gæzlustörf á ólympíuleikunum. Alls verða 50 slík bifhjól notuð í þorpum, þar sem
leikmenn búa meðan á leikunum stendur, og á leiðum til þeirra.
ísrael:
V erkamannaf lokkn-
um spáð 48 þingsætum
Tel Aviv, 19. júlí. AP.
Verkamannaflokkurinn í ísrael
g«ti fengiö 48 þingssti en Likud-
bandalagið aðeins 34 í þingkosning-
unum á mánudag. Þetta eru niður-
stöður síðustu skoðanakönnunarinn-
ar í Ísrael, sem kunngerðar voru á
þriðjudag. Þar kom jafnframt fram,
að hlutfall óákveðinna kjósenda hef-
ur hækkað upp í 28%.
David Levy aðstoðarforsætis-
ráðherra vísaði þessari skoðana-
könnun á bug í dag sem einskis
virði og sagði, að einu niðurstöð-
urnar, sem skiptu máli, væru þær
sem fram kæmu, er talið væri upp
úr kjörkössunum. f sjónvarps-
ávarpi í gær skoraði Moshe Arens
varnarmálaráðherra á alla hik-
andi stuðningsmenn Likud-banda-
lagsins að greiða smáflokkunum
ekki atkvæði sitt, þar sem slfkt
myndi spilla mjög fyrir möguleik-
um Likud.
Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra tók í sama streng í dag. Á
fjölmennum kosningafundi fyrir
utan ráðhúsið í Tel Aviv komst
hann svo að orði: „Ákvörðunar-
stundin nálgast. Fólkið í þessu
landi verður að ákveða, hver á að
stjórna landinu."
ROBERT Muldoon, fráfarandi for-
sætisráðherra Nýja Sjálands, virðist
hafa afstýrt tilraun sem var gerð til
þess að víkja honum úr stöðu leið-
toga Þjóðarflokks Nýja Sjálands.
Uppreisnartilraunin var gerð á
fundi i þingflokki flokksins. Að
fundinum loknum sagði Muldoon
Á þjóðþinginu „Knesset" eiga
120 þingmenn sæti og þarf því 61
þingsæti til þess að hafa þar
meirihluta. Það hefur þó aldrei
gerzt, að stærsti flokkurinn hafi
náð þar hreinum meirihluta, held-
ur hefur hann orðið að hafa stuðn-
ing annarra flokka til að mynda
meirihlutastjórn.
að ákvörðun yrði tekin um leið-
toga flokksins á fyrsta fundi
æðstu valdamanna flokksins á
næsta ári.
Nýsjálenska sjónvarpið segir að
sú skoðun njóti mikils fylgis í
æðstu stjórn flokksins að Muldoon
verði að víkja.
Vilja víkja Muldoon
Wellington, I9.júlí. AP.
Fyrst kvenna að stýra far-
þegaþotu yfir Atlantshafiö
London, 19. jnll. AP.
BANDARÍSKA flugstýran
Lynn Rippelmeyer varð
fyrst kvenna til að fljúga
Boeing 747 farþegaþotu
yfir Atlantshafið í áætlun-
arflugi milli New Jersey
og Lundúna á fimmtudag.
„Þetta er jafnauðvelt
fyrir konu. Það þarf ekki
krafta til,“ sagði Ripp-
elmeyer við komuna til
Lundúna. Hún sagði að
flestir hinna 470 farþega
sem um borð voru, hefðu
verið ákaflega forvitnir,
en mjög jákvæðir. Mörg-
um hafi orðið bilt við að
heyra kvenmannsrödd í
hátalarakerfi vélarinnar
á leiðinni frá New Jers-
ey. Flugvélin er í eigu
flugfélagsins People
Express.
Önnur bandarísk
kona, Beverly Burns,
flaug Boeing 747 far-
þegaþotu frá New Jersey
til Los Angeles á sama
tíma, en hún og Ripp-
elmeyer eru tvær af ein-
ungis sex konum sem
fljúga farþegaþotum í
heiminum. Bæði Burns
og Rippelmeyer höfðu
áður verið flugfreyjur
hjá öðrum flugfélögum,
en hófu störf hjá People
Express árið 1981.
Morgunblaðið/Gunnar.
Hér er vegurinn lækkaður og þröng brekka tekin af og um leið er vegurinn
færður fjær fjallshlíðinni.
Framkvæmdir á Óshlíð
á lokastigi að þessu sinni
Bolungarvík. 18. júlí.
FRAMKVÆMDIR á Óshlíðavegi hafa gengið mjög vel og er verktakinn
ístak allnokkuð á undan áætlun. Að sögn Sigurðar Hermannssonar verk-
stjóra er gert ráð fyrir því að þeim takist að Ijúka verkinu í næstu viku, en
samkvæmt samning eru verklok 18. ágúst nk.
Sigurður sagði að búið væri að Eina nóttina rigndi óhemju
ryðja um 80 þús. rúmmetrum úr mikið og urðu vegagerðarmenn-
fjallshlíðinni á þeim tveim stöðum
sem unnið væri á í þessum áfanga.
Við framkvæmd þessa verks
kom í ljós að sprengingar urðu
mun færri en gert var ráð fyrir,
þar af leiðandi fékkst ekki nægj-
anlegt grjót í svokallaða brimvörn
neðan við veginn og sagði Sigurð-
ur að í athugun væri að sækja
stórgrýti upp í fjall ofan við hól-
ana í brimvörnina, en það atriði er
utanvið verksamning ístaks þar
sem í tilboðsgögnum var gert ráð
fyrir því að hægt yrði að nota
sprengigrjótið.
Sigurður sagði að þeir hefðu
verið mjög heppnir með veður á
meðan á þessum framkvæmdum
hefur staðið, en samt hefðu þeir
fengið 4 til 5 miklar rigningarnæt-
ur, en þeir vinna einungis á næt-
urnar og er vegurinn þá lokaður
fyrir allri umferð.
irnir þá að hætta klukkan sex
vegna grjóthruns.
Meðan fréttaritari Mbl. ræddi
við Sigurð voru nokkrir bílar að
koma eftir veginum þó komið væri
á lokunartíma. Sigurður var því
spurður hvort mikið væri um að
fólk reyndi að komast veginn á
þeim tíma sem hann væri lokaður.
Hann kvað ekki vera mikið um
það en þeir hefðu reynt að ryðja
brautir og hleypa í gegn ef menn
hefðu frambærilega ástæðu fyrir
því að þurfa að komast svo sem ef
koma þyrfti sjúklingum eða önnur
áríðandi erindi.
Það er ljóst að þessar endurbæt-
ur á veginum og þær sem þegar
hafa verið framkvæmdar og eftir
eru samkvæmt Ó-vegaáætluninni
munu bæta samgöngur við Bol-
ungarvík sérstaklega hvað snertir
öryggi þeirra sem um veginn fara.
— Gunnar.
Hljómsveitin Prósent hef-
ur göngu sína í Bolungarvík
Bolungarvík, 18. júlf. 4
NK. LAUGARDAG mun ný dans-
hljómsveit hér í Bolungarvík leika á
sínum fyrsta dansleik í félagsheimil-
inu. Hljómsveitin, sem hefur hlotið
nafnið Prósent (%), hefur á að skipa
valinn mann í hverju rúmi, en með-
limir hennar eru þau systkinin
Hrólfur Vagnsson sem leikur á
hljómborð, Haukur Vagnsson leikur
á trommur og Pálína Vagnsdóttir
syngur, en auk þeirra eru þeir Jó-
hann Sigurðarson, söngur, betur
þekktur leikari hjá LR, Eyjólfur
Gunnlaugsson, leikur á bassa, og
Laszlo Gulyas sem kemur frá Júgó-
slavíu, en hann leikur á gítar.
Laszlo og Hrólfur stunda báðir
nám í harmónikkuleik við tónlist-
arháskóla í Hannover í Þýska-
landi, Haukur og Eyjólfur hafa
verið í tónlistarnámi í Reykjavík,
svo hér eru svo sem engir viðvan-
ingar á ferð.
Fréttaritari Mbl. leit inn á æf-
ingu hjá þeim félögum kvöld eitt í
vikunni til að fiska eftir því hvers
mætti vænta af hinni nýju hljóm-
sveit.
Það var nú gjarnan Jóhann sem
hafði orð fyrir þeim félögum, enda
maðurinn sérfræðingur og kvaðst
jafnframt því að vera leikari vera
varaoddviti Stokkseyrarbakka-
hrepps.
Jóhann sagði þá félaga ætla að
framleiða ómælda ánægju og ekki
síður fjör úr hljóðfærunum og þeir
sendu kveðju til allra tónvina.
Þeir sögðu að lagaprógrammið
væri við hæfi unglinga á öllum
aldri og enginn ætti að verða út-
undan.
Að lokum langaði þá til að koma
á framfæri þökkum til Birgis í
Tónkvísl fyrir hans rausnarlegu
gjöf til hljómsveitarinnar sem
þeir sögu að væri stór prósenta í
þessu öllu saman.
— Gunnar
Athugasemd
y/ verðkönnunar
í söluturnum
og söluskálum
í 7. tbl. Verðkynningar Verð-
lagsstofnunar er tekið saman hvað
ímynduð innkaup fjölskyldu kosta
á hverjum einstökum sölustað. I
upptalningu i blaðinu á vöruteg-
undum sem eru í þessum ímynd-
uðu innkaupum féll út 2 stk. af
íspinnum og 2 stk. af frostpinnum.
(Fréttatilkynning frá Verðlagsstofnun.)
w
A hestum úr Landssveit
til Landmannalauga
Nokkrir hnakkar auðir í hina frábæru ferð. Brott-
farir 22. júlí og 5. ágúst. Pantanir í síma 99-5598.