Morgunblaðið - 22.07.1984, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984
Burgess
velur sér
BÆKUR
Rithöfundurinn breski, Anthony Burgess, hefur
skrifaö enn eina bókina, sem kom út fyrir stuttu
undir heitinu, „Ninety-Nine Novels, The Best in
English Since 1939, A Personai Choice.“ í henni
velur hann 99 skáldsögur, sem aö hans mati eru
þær bestu er skrifaöar voru á enska tungu á árun-
um 1939 til 1983. Bókin olli nokkru uppnámi meðal
manna sem hugsa um bókmenntir í Bretlandi en á
listanum yfir 99 bestu skáldsögurnar má finna
nöfn eins og Ian Fleming
bandaríska höfunda, sem
þá bresku.
„Þetta er kjánaleg, lítilfjörleg
bók,“ segir Burgess. „Hugmyndin
var að skrifa hana á tveimur vik-
um og gefa hana út á tveimur
mánuðum. Ég hafði flestar þessar
99 skáldsögur í hillunum hjá mér
og ef þær voru ekki þar, hafði ég
skrifað um þær stuttar greinar,
aðallega í blaðið „The Observer",
sem ég gat auðveldlega fundið í
skjölum mínum, þannig að þetta
var ekki svo mikil vinna."
Af lítillæti, mundu sumir segja,
sleppti Burgess því að hafa sjálfan
sig á listanum, en hvers vegna 99
sögur? „Lesandinn getur sjálfur
ákveðið þá hundruðustu. Hann
gæti jafnvel valið eina af mínum
bðkum," segir Burgess.
Þessi bók er svar hans „við hin-
um opinbera lista, sem The Brit-
ish Book Marketing Board (n.k.
markaðsráð breskra bðkaútgef-
enda) setti saman yfir 13 bestu
skáldsögurnar frá seinna stríði.
Þeir höfðu einhvers konar nefnd
af, að því að mér fannst, ekki mjög
hæfu fólki, til að velja bækur á
listann og val þeirra var algerlega
fáránlegt. En það sem kom verst
við mig var þessi djöf... breski
smásálarháttur, sem kom ein-
hverri eins og Elisabeth Taylor —
ekki kvikmyndastjarnan fræga
heldur frekar óþekktur höfundur
— á listann, vegna þess að Elisa-
beth Jane Howard (í nefndinni)
líkar vel við hana en þeir nefna
ekki bækur eins og „Invisible
Man“ eftir Ralph Ellison og „The
Naked and the Dead“ eftir Nor-
man Mailer eða þá Thomas
Pynchon.
Meira að segja þessi nefnd varð
að viðurkenna að sumar meiri-
háttar skáldsögurnar koma frá
Bandaríkjunum. En það versta
var að með þessu vali fara pen-
ingar skattgreiðenda í að auglýsa
bækur eins og „The Catcher in the
Rye“ eða „Herzog“, sem þurfa ekki
á breskum skattgreiðendum að
halda. Ég held að þær tvær og
„Lolita" eftir Vladimir Nabokov
hafi verið einu bandarísku bæk-
urnar á lista nefndarinnar. (Bæk-
ur Ellisons og Mailers eru á lista
Burgess og „Gravity’s Rainbow"
eftir Pynchon og „The Catcher in
the Rye“ eftir D.J. Salinger, en
bækur Nabokovs á listanum hans
eru „Pale Fire“ og „The Defense"
en ekki „Lolita“.)
Hinn opinberi listi nefndarinn-
ar, eftir því sem Burgess segir, var
svo „djöf... heimskulegur að ég
sagði við sjálfan mig; „RRRigh!
Lítum gaumgæfilega á þetta og
gerum þetta af nokkru meiri al-
vöru.“ Hann fór svolítið aftar en
nefndin, „til 1939 vegna þess að þú
og Erica Jong og marga
Burgess tekur framyfir
getur ekki sleppt úr bðkum eins og
„Finnegans Wake“, sem út kom á
því ári.“
Það sem Burgess segir um bðk
sína í stuttu máli er, að „ég er
feginn að heyra að hún hafi valdið
uppnámi í London. Ég vonaði að
hún gerði það.“
Meðal þeirra, sem bókin angr-
aði, var Graham Greene, sem
„mætti til London til hádegisverð-
ar, sem nefndin hélt þegar hún
birti listann yfir 13 bestu skáld-
sögurnar", segir Burgess. „Sjálf-
um var mér boðið en ég lét ekki
sjá mig. Graham Greene nefndi
bókina mína og sagði að Burgess
væri gráðugur lesandi, en hræði-
lega óvandlátur."
ósætti Greenes og Burgess má
rekja til þess þegar sá síðarnefndi
hafði viðtal við Greene fyrir „The
Observer" fyrir nokkrum árum,
sem sagði seinna: „Burgess lagði
mér orð í munn, sem ég varð að
leita að í orðabók." Burgess tekur
undir það að Greene sé fyndinn og
segir að hann sé, „klár, en ekki
vinskaparins virði“.
Aðrar umkvartanir vegna bók-
arinnar, segir Burgess að hafi ver-
ið á hærra plani. Þær komu frá
breskum lesendum, sem þótti
hann setja sig á háan hest. „Ég
hef alltaf haft yndi af bandarísk-
um skáldsögum og ég hef senni-
lega gert meira með þær en flestir
breskir gagnrýnendur kynnu við.
Og ég setti á listann bandarískar
skáldsögur, sem enginn í Bret-
landi þekkir: ekki aðeins „Darcon-
ville’s Cat“ eftir Alexander Ther-
oux, heldur einnig „The Last
Gentleman" eftir Walker Percy og
„A Confederacy of Dunces" eftir
John Kennedy Toole.
Enn meiri reiði gagnrýnenda
vakti nafn Ericu Jong á listanum.
„En af hverju, af hverju, af
hverju?" spyr Burgess. „Mér
finnst hún vera góður rithöfund-
ur. Hún er skáld og vissulega eng-
inn bjáni."
Um tvo breska höfunda, sem
umdeildir eru á listanum segir
Burgess: „Len Deighton var aðeins
tíu ára þegar stríðið braust út og
var aldrei í Konunglega breska
flughernum, en „Bomber“ er frá-
bær vegna þess að hann hefur
skrifað bók, sem er svo full af
veigamiklum smáatriðum og svo
athyglisverð að hann fullvissar
lesandann ekki aðeins um að hann
hafi verið í hringiðu stríðsins,
heldur færir einnig lesandann upp
í háloftin. Það er ekki hægt að
horfa framhjá því frekar en mað-
ur getur litið framhjá Ian Flem-
ing, sem færði gæði njósnasagn-
anna upp um mörg þrep. Þess
Anthony Burgess
Joseph Heller
Ernest Hemingway
Norman Mailer
Somerset Maugham Evelyn Waugh
Graham Greene
Kjörbækur
Burgess
1939-83
1939 Party Going Henry Green. After Many
a Summer Dies the Swan Aldous Huxley.
Finnegans Wake James Joyce. At Swim-
Two-Birds Flann O’Brien.
1940 The Power and the Glory Graham
Greene. For Whom the Bell Tolls Ernest
Hemingway. Strangers and Brothers [to 1970]
C.P. Snow.
1941 The Aerodrome Rex Warner.
1944 The Horse’s Mouth Joyce Cary. The
Razor’s Edge W. Somerset Maugham.
1945 Brideshead Revisited Evelyn Waugh.
1946 Titus Groan Mervyn Peake.
1947 The Victim Saul Bellow. Under the
Volcano Malcolm Lowry.
1948 The Heart of the Matter Graham
Greene. The Naked and the Dead Norman
Mailer. No Highway Nevil Shute.
1949 The Heat of the Day Elizabeth Bowen.
Ape and Essence Aldous Huxley. Nineteen
Eighty-four George Orwell. The Body Willi-
am Sansom.
1950 Scenes from Provincial Life William
Cooper. The Disenchanted Budd Schulberg.
1951 A Dance to the Music of Time [to 1975]
Anthony Powell. The Catcher in the Rye J.D.
Salinger. A Chronicle of Ancient Sunlight [to
1969] Henry Williamson. The Caine Mutiny
Herman Wouk.
1952 Invisible Man Ralph Ellison. The Old
Man and the Sea Ernest Hemingway. Wise
Blood Flannery O’Connor. Sword ofHonor [to
1961] Evelyn Waugh.
1953. The Long Goodbye Raymond Chandler.
The Groves of Academe Mary McCarthy.
1954 Lucky Jim Kingsley Amis.
1957 Room at the Top John Braine. The Al-
exandria Quartet [to 1960] Lawrence Durrell.
The London Novels [to 1960] Colin Maclnnes.
The Assistant Bernard Malamud.
1958 The Bell Iris Murdoch. Saturday Night
and Sunday Morning Alan Sillitoe. The Once
and Future King T.H. White.
1959 The Mansion William Faulkner. Gold-
finger Ian Fleming.
1960 Facial Justice L.P. Hartley. The Balkan
Trilogy [to 1965] Olivia Manning.
1961 The Mighty and Their Fall Ivy
Compton-Burnett. Catch-22 Joseph Heller.
The Fox in the Attic Richard Hughes. Riders
in the Chariot Patrick White. The Old Men at
the Zoo Angus Wilson.
1962 Another Country James Baldwin. An
Error of Judgement Pamela Hansford John-
son. Island Aldous Huxley. The Golden Note-
book Doris Lessing. Pale Fire Vladimir Nab-
okov.
1963 The Girls of Slender Means Muriel
Spark.
1964 The Spire William Golding. Heartland
Wilson Harris. A Single Man Christopher
Isherwood. The Defense Vladimir Nabokov.
Late Call Angus Wilson.
1965 The Lockwood Concern John O’Hara.
Cocksure Mordecai Richler. The Mandelbaum
Gate Muriel Spark.
1966 A Man of the People Chinua Achebe.
The Anti-Death League Kingsley Amis. Gils
Goat-Boy John Barth. The Late Burgeois
World Nadine Gordimer. The Last Gentle-
man Walker Percy.
1967 The Vendor of Sweets R.K. Narayan.
1968 The Image Men J.B. Priestley. Pavane
Keith Roberts.
1989 The French Lieutenant’s Woman John
Fowles. Portnoy's Complaint Philip Roth.
1970 Bomber Len Deighton.
1973 Sweet Dreams Michael Frayn. Grav-
ity’s Rainbow Thomas Pynchon.
1975 Humboldt's Gift. Saul Bellow. The His-
tory Man Malcolm Bradbury.
1976 The Doctor’s Wife Brian Moore. Fal- i
staff Robert Nye.
1977 How To Save Your Own Life Erica
Jong. Farewell Companions James Plunkett.
Staying On Paul Scott.
1978 The Coup John Updike.
1979 The Unlimited Dream Company J.G.
Ballard. Dubin’s Lives Bernard Malamud. A
Bend in the River V.S. Naipaul. Sophie’s
Choice William Styron.
1980 Life in the West Brian Aldiss. Riddley
Walker Russell Hoban. How Far Can You
Go? David Lodge. A Confederacy of Dunce
John Kennedy Toole.
1981 Lanark Alasdair Gray. Darconville’s
Cat Alexander Theroux. The Mosquito Coast
Paul Theroux. Creation Gore Vidal.
1982 The Rebel Angels Robertson Davies.
1983 Ancient Evenings Norman Mailer.