Morgunblaðið - 22.07.1984, Side 28

Morgunblaðið - 22.07.1984, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ1984 Hinn 20. júlí voru 40 ár liðin síðan Hitler var sýnt banatilræði MHbv^ Borðplatan bjargaði lífí Hitlers Þeir sem staddir voru í timburskýlinu þar sem sprengingin varð, blinduðust af blossanum frá henni. Og samstundis ætlaði allt um koll að keyra í ærandi hávaða, sem rændi flesta heyrninni. Rétt áður en tímasprengjan sprakk hafði Hitler hallað sér fram yfír þykka borðplötuna til þess að rýna í kort, svo að hann gæti glöggvað sig betur á frásögn Heusingers hershöfðingja um vígstöðuna. Að öllum líkindum bjargaði þessi líkamsstaða lífí Hitlers, að minnsta kosti slapp hann við meiri háttar meiðsli. Foringinn skjögraði á fætur og Keitel, yfirmaður herráðsins, hjálpaði honum út úr rjúkandi rústunum. Andlit Hitlers var svart af sóti og ryki og fötin héngu vart utan á honum. En hvað sem öllum smáatriðum líður, hafði HitJer, þegar þarna er komið, sloppið lifandi frá júlí- tilræðinu fyrir 40 árum. Hann var einna verst farinn á fótunum, eftir KeiteJ, forseti yfirherráðsins. tréflísar sem stungist höfðu inn ( þá. Og þótt báðar hljóðhimnurnar hefðu gefið sig i sprengingunni, fékk hann heyrnina fljótt aftur. Guðrún Jóhannes- dóttir - Minning Fædd 18. mars 1890 Dáin 12. júlí 1984 A morgun verður til moldar J)orin Guðrún Jóhannesdóttir, fædd í Bolungarvík 18. mars 1890. ForeJdrar hennar voru Jóhannes PáJsson formaður í Bolungarvík og Guðrún Gunnlaugsdóttir frá Miðhlíð á Barðaströnd. Guðrún ólst upp hjá móðursyst- ur sinni á Hallsstöðum á Langa- dalsströnd, en kom ung til Reykja- víkur, aðeins 16 ára gömul. Hún giftist Sigurði Agli Hjör- leifssyni múrarameistara þann 30. júní 1916, en hann var fæddur í Hellukoti að Auðnum á Vatns- leysuströnd. Sambúð þeirra var farsæl, enda Guðrún mikil húsmóðir og glögg á hugðarefni manns síns. Sigurður lést 31. mars 1955. Þau hjónin eignuðust soninn Garðar fyrrum prentsmiðjustjóra í Reykjavík. Garðar er kvæntur Sigrid Karlsdóttur og eiga þau sex börn. Guðrún bjó alla tíð með syni sínum og tengdadóttur og átti hjá þeim skjól eftir Iát eiginmannsins. Alia tíð var gott samband á milli tengdadótturinnar og tengdamóð- urinnar og var til fyrirmyndar að sjá þá nærgætni er Sigrid auð- sýndi tengdamóður sinni í hennar löngu veikindum, þannig að Guð- rún mátti vart af henni sjá. Slíkt samband tel ég vera afar sjald- gæft. í yfir 40 ár bjuggu þær sam- an. Heimilið var stórt og börnin sex öll sólargeislar Guðrúnar. Hún naut þess að hafa ungviðið sér við hlið og alltaf hýrnaði yfir henni er börnin voru nálæg. Stundum er engill dauðans kærkominn og það held ég hann hafi verið er hann vitjaði Guðrún- ar. Kraftarnir voru þrotnir og framundan einungis sjúkrahús- lega. Hún var búin að dvelja á Landakoti deild 2A í tvö og hálft ár. Þar var allt gert fyrir hana sem hægt var og kunna aðstand- endur hennar starfsfólki deildar- innar bestu þakkir fyrir þá hlýju sem gamla konan naut þar. Guð- rún var ákaflega þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert, þannig að blíða varð mest áberandi í fari hennar. Guðrún átti stjúpson, Sigurð B. Sigurðsson. Hann er kvæntur Guðfinnu Svavarsdóttur en þau búa á Akranesi. Margar ferðir átti Guðrún til þeirra, en hún naut þess að koma og dvelja hjá þeim. Frá fjögurra ára aldri ólst ég upp hjá Guðrúnu og Sigurði manni hennar og reyndust þau mér alla tíð sem bestu foreldrar og Guðrún síðar börnum mfnum sönn amma. Nú þegar ég kveð fóstru mína kemur mér margt í hug. Hún var stillt og prúð kona, hún var hús- móðir, móðir og eiginkona. Góð tengdamóðir, amma og lang- amma. Guðrún var heiðarleg og vinaföst og aldrei lagði hún illt orð til annarra. Hún átti þá ósk að geta dvalist sem lengst í eigin hús- um og þá ósk fékk hún uppfyllta. Barnabörnin hennar, Helena Alma og Sigurður Egill Ragnars- börn, sem hún gaf svo mikið senda henni sínar bestu kveðjur og þakkir fyrir allt og allt. Ég þakka fóstru minni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og börnin mín og kveð hana með þessum sálmi sem hún fór oft með fyrir mig sem barn. Guð blessi minn- ingu hennar. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Markúsína Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.