Morgunblaðið - 22.07.1984, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JtJLÍ 1984
+
Innilegar þakkir faarum við öllum fjœr og nær sem auösýndu okkur
hlýhug og vináttu vlö fráfall,
SIGURFINNS GUÐMUNDSSONAR,
Reyrhaga 2,
SaNoaai,
og vottuöu minningu hans virðingu.
Dröfn Halldóradóttir
og aynir.
Guórún Siguröardóttir,
Erla og Áabjörn.
t
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför, eiginkonu
minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
ÓLAFÍU GUÐRÚNAR SUMARLIÐADÓTTUR.
Jón Áraæll Jónaaon,
Ólafur G. Jónsaon, Marfa Einarsdóttir,
Sumarliöi G. Jónsson, Hilma Marinósdóttir,
Esther Jónsdóttir, Ágúst Arason,
Markús Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Legsteinar
granít — marmari
flaníi ó.f
Unnarbraut 19, Seltiarnarnesi,
sími 620809 og 72818.
Lokað
Vegna jaröarfarar ÞORSTEINS B. JÓNSSONAR,
málara, veröur lokaö mánudaginn 23. júlí frá kl.
13—15.
Pfaff hf„
Borgartúni 20.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSWIÐJA
SK£MMUVEGI 48 Sífvtt 76677
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Sími 81960
Sumarnámskeið
T ölvuf ræðslunnar
Starfsmenntunarnámskeiö
Apple-Writer
ritvinnslu-
námskeið
Grímur Friógeirsson,
tæknifraeöingur.
Ritvinnsla meö tölvum veröur sífellt vinsælli hjá
fyrirtækjum. Aö loknu námskeiöi geta þátttakend-
ur notaö ritvinnslukerfiö hjálparlaust.
Tími: 30. og 31. júlí og 1. og 2. ágúst kl. 9—13.
Leiöbeinandi: Grímur Fridgairason, tæknifræðingur.
Multiplan
Tölvugerðarforritið Multiplan kemur m.a.
að góöu gagni við:
• áætlanagerö
• fyrningarskýrslur
• launaútreikninga
• bókhaldssamantekt
Með námskeiðsgögnum fylglr disketta meö
gagnlegum líkönum.
Tími: 31. júlí, 1. og 3 ágúst.
Leiöbeinandi: Dr. Kristján Ingvarsson,
verkfræöingur.
Námskeið fyrir fullorðna
Byrjendanámskeið í tölvunotkun fyrir þá sem ekki hafa átt þess kost að læra um tölvur í skóla.
Tími: 30. og 31. júlí og 1. og 2. ágúst kl. 20—22.
Innritun í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLANs/f
Ármúla 36 — Reykjavík.
Himalaya-fjöll
lækka stöðugt
Nýju Delhí, 20. júlí. AP.
HOPUR vísindamanna sem ran-
nsakað hefur hin miklu Himalaya-
fjöll síðustu árin hefur komist að
þeirri niðurstöðu, að þau Iskki veru-
lega ír hvert.
Vísindamennirnir segja, að hin-
ar miklu monsúnrigningar eigi
hvað mestan þátt í veðruninni sem
þarna fer fram. en einnig tiðar
jarðhræringar. I skýrslunni segir
m.a.: „Himalaya-fjöll eru upp-
byggð af mjúku setbergi og þar eð
þau eru lamin utan af 3 metrum af
rigningarvatni á hverri monsún-
vertíð, eru þau kennslubókardæmi
um mjög virkt veðrunarsvæði.
Jarðhræringarnar flýta fyrir, þær
sprengja bergið og brjóta það
niður. Fjallgarðurinn lækkar
mjög ört, örar en menn gera sér
grein fyrir.“ Á hinn bóginn segjast
vísindamennirnir ekki treysta sér
á þessu stigi málsins til að nefna
neinar tölur máli sínu til áherslu-
auka.
í skýrslunni kemur enn fremur
fram, að það eina sem hefti veðr-
unina sé hinn mikli gróður sem
nær hátt upp í hlíðar fjallanna.
Skýrslan segir: „En gróðurinn læt-
ur einnig undan síga og er maður-
inn sjálfur þar í sök, hann ryður
skóga og veldur mikilli röskun og
veðrun með vegalagningu, námu-
vinnslu, akuryrkju og með því að
beita búpeningi sínum hvar sem
finnst stingandi strá. Gróðurinn
hefur til þessa temprað rign-
ingarvatnið og komið í veg fyrir
flóð. Ef gróðureyðingin er ekki
stöðvuð mun það hafa í för með
sér, að flóðbylgjur munu myndast
í monsúnrigningunum, valda
miklum spjöllum á mannvirkjum
og eftirlifandi gróðri. Það mun
einnig þýða, að úr minna vatni
verði að spila á þurrkatimunum,
hér er þvi mikið í húfi.“
Himalaya-fjöll eru hæsti fjall-
garður heims, með Everest-tind
hæsta punkt, 8.708 metra háan.
Fjallgarðurinn er hinn mikilfeng-
legasti og eiga fjögur ríki hlut i
honum, Indland, Bhútan, Nepal og
Tíbet. _______ ________
Noregun
Sovétmenn fengu
undanþágu í fisk-
veiðilögsögunni
Osló, 17. jálí. Frá Jan Erik Laare,
rrétlaritara Mbl.
SOVÉSK verksmiðjuskip hafa feng-
ið undanþágu frá norskum Itfgum
um fískveiðilögstfgu og fiskútflutn-
ing. Þau mega nú taka við 10.000
tonnum af Norðursjávarsfld úr
norskum veiðiskipum I sumar.
í síðastliðinni viku ollu fimm
sovésk verksmiðjuskip ónæði úti-
fyrir Flekkufirði, þegar þau los-
uðu sig við fiskslóg og tóku við
hráefni.
Sjávarútvegsráðuneytið skipti
sér af málinu um helgina og fór
fram á að skipin færðu sig utar.
Orðið var við þessari beiðni og á
mánudag voru síðustu skipin á
leið út.
Meinað að fara
til S-Líbanon
Beirút, 20. júll. AP.
SKRIFSTOFA israelskra sendi-
manna í Líbanon tilkynnti í dag, að
héðan i frá yrðu ekki gefin út fleiri
skilríki til handa Llbtfnum, sem
byggjast ferðast til Suður-Líbanon,
sem er á valdi fsraela.
Er talið að þessi ráðstöfun hafi
verið gerð i hefndarskyni við
ákvörðun líbönsku stjórnarinnar
að loka ísraelsku ræðismanns-
skrifstofunni í Líbanon vegna
njósnastarfsemi.
Þeir líbönsku starfsmenn á
skrifstofu ísraelsku sendinefndar-
innar eru nú óðum að ganga frá
sínum málum og undirbúa brott-
för sína þaðan, en varnarmála-
ráðherra Líbanons, Adel Osseiran,
gaf þeim fjögurra daga frest til
þess sl. miðvikudag.